Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Síða 24
40 TILVERA MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003
íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Fólk í fréttum
Ólafur Þórðarson
þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍA
Ólafur Þórðarson, þjálfari meist-
araflokks ÍA í knattspyrnu, gerði lið
sitt að bikarmeisturum í ár með 1-0
sigri á FH í úrslitaleiknum nú um
helgina.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Akranesi 22.8.
1965 og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Hann var í grunnskóla á Akra-
nesi og stundaði nám í bifvélavirkj-
un við iðnbraut Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi.
Ólafur hóf ungur störf við fyrir-
tæki fjölskyldu sinnar, Bifreiðastöð
ÞÞÞ á Akranesi, starfaði þar með
námi og hefur sinnt þar akstri, við-
gerðum, rekstrarstörfum og flestu
því sem til fellur f stóru flutninga-
fyrirtæki.
Ólafur hóf ungur að keppa í
knattspyrnu með ÍA, varð íslands-
meistari með 5. flokki 1978, ís-
landsmeistari með 3. flokki 1980,
íslands- og bikarmeistari með
meistaraflokki 1983 og 1984, bikar-
meistari 1986, íslands- og bikar-
meistari 1993, íslandsmeistari
1994, fslandsmeistari 1995, ís-
lands- og bikarmeistari 1996, bikar-
meistari 2000 og fslandsmeistari
2001. Auk þess varð hann fyrstu
deildar meistari með Fylki 1999.
Ólafur var atvinnumaður í knatt-
spymu í Brand í Bergen í Noregi
1989-90 og með Lyn í Ósló 1992 en
lék með og þjálfaði Fylki 1998-99
og hefur nú þjálfað meistaraflokk
ÍAfrá hausti 1999.
Ólafur hefur leikið öllum aldurs-
flokkum íslenska landsliðsins og A-
landsliðinu. Hann er nú þjálfari
íslenska karlalandsliðsins 21 árs og
yngri.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 19.3. 1988 Frið-
meyju Barkardóttur, f. 5.10. 1965,
húsmóður og starfsmanni við dval-
arheimilið Höfða á Akranesi. Hún
er dóttir Barkar Jónssonar,
netagerðarmanns og fyrrv.
verkstjóra hjá íslenska
járnblendifélaginu, og Valgerðar
Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Ólafs og Friðmeyjar em
Valgeir, f. 19.3. 1986, nemi; Ester
María, f. 26.8. 1988, nemi; Vigdís, f.
7.9. 1992, nemi.
Systkini Ólafs: Þórður Þorsteins-
son Þórðarson, f. 27.10. 1949, bif-
vélavirki og bifreiðarstjóri á Akra-
nesi, kvæntur Fríðu Sigurðardóttur
og eiga þau þrjú börn, þ. á m. Þórð
Þórðarson, markmann hjá ÍA, og
Stefán Þórðarson, leikmann
meistaraflokks ÍA; Teitur Þórðar-
son, fyrrv. knattspyrnuþjálfari hjá
Brand í Bergen og fyrrv.
landsliðsþjálfari í Eistlandi, kvænt-
ur Ásdísi Dóm Óladóttur og eiga
þau tvö börn; Lilja Þórey, f. 23.7.
1954, húsmóðir og fiskverkakona á
Akranesi, gift Valgeiri Valgeirssyni
vélvirkja og eiga þau fjögur börn;
Guðni, f. 28.3. 1957, bifreiðarstjóri,
búsettur íTungu í Svínadal, kvænt-
ur Lindu Guðbjörgu Samúelsdóttur
og eiga þau sex börn; Sigríður, f.
9.5. 1963, húsmóðir í Svíþjóð, og á
hún tvær dætur; Kristín, f. 20.7.
1968, skrifstofustúlka á Akranesi,
og á hún tvö börn.
Foreldrar Ólafs em Þórður Þ.
Þórðarson, f. 26.11. 1930, d. 29.10.
2002, bifreiðarstjóri og forstjóri á
Akranesi en var auk þess landsliðs-
maður og lengi í fremstu röð ís-
lenskra knattspyrnumanna, og
k.h„ Ester Teitsdóttir, f. 26.9. 1932,
húsmóðir.
Ætt
Þórður er sonur Þórðar Þor-
steinssonar, bifreiðarstjóra og for-
stjóra á Akranesi, Þórðarsonar, b. á
Leiru, Þórðarsonar. Móðir Þórðar
Þ. Þórðarsonar og kona Þórðar á
Leiru var Guðný, dóttir Stefáns
Bjarnasonar, b. í Hvítanesi í Skil-
mannahreppi, og Kristjönu Teits-
dóttur.
Móðir Þórðar, föður Ólafs, var
Sigríður, systir Rósu, ömmu Péturs
Péturssonar, fyrrv. landsliðs-
manns, atvinnumanns í knatt-
spyrnu, og Bjarka, fyrrv.
meistaraflokksmanns í ÍA, KR og
Merkir íslendingar
Magnús Guðmundsson
Magnús Guðmundsson, cand.
mag. og menntaskólakennari,
fæddist að Ytri-Sveinseyri í
Tálknafirði 29. september 1917.
Hann var sonur Guðmundar
Hallssonar, bónda á Ytri-Sveins-
eyri, og k.h., Margrétar Einars-
dóttur húsfreyju.
Magnús var á trillum frá
Tálknafirði frá tólf ára aldri, tvö
sumur á kúttemm sem gerðir
vom út frá Patreksfirði en hann
stundaði sjómennsku til 1936 og
starfaði síðan við Hvalstöðina á
Suðureyri til 1939 er hann flutti
suður tii Reykjavíkur.
Hann stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Núpi 1936-38, lauk
kennarapróf! frá KÍ 1940, las ut-
anskóla til stúdentsprófs, lauk
því 1949, lauk kennaraprófi í ís-
lenskum fræðum við HÍ 1955 og
stundaði nám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík í þrjú ár.
Magnús var kennari við Mið-
bæjarskólann í Reykjavík frá
1941, við gagnfræðadeild skólans
1946-57, kenndi við VÍ 1957-64
og var íslenskukennari við MR
1964-89 er hann lét af störfum
sökum heilsubrests.
Magnús þótti afburðar ís-
lenskukennari og var ætíð sér-
stakalega ljúfur í viðmóti við
nemendur. Hann var í hópi vin-
sælustu kennara sem kennt hafa
Móðir Teits sjómanns var Guðný
Guðlaugsdóttir, b. í Höll í Þverár-
hlíð, Jónssonar, b. á Stálpastöðum í
Skorradaf, Erlendssonar. Móðir
Guðnýjar var Oddrún Pálsdóttir, b.
í Ártúni, Magnússonar, b. í Úthlíð í
Biskupstungum, Sigurðssonar, b. í
Hólshúsum, Magnússonar. Móðir
Magnúsar í Úthlíð var Margrét Ara-
dóttir, b. í Götu á Stokkseyri Bergs-
sonar, ættföður Bergsættar Stur-
laugssonar.
Móðir Esterar var Unnur Sveins-
dóttir, í Nýlendu, Ingjaldssonar.
Móðir Unnar var Ólafína Ás-
mundsdóttir, formanns í Háteigi
Þórðarsonar, hreppstjóra í Elínar-
höfða Gíslasonar. Móðir Ásmundar
var Elín Ásmundsdóttir. Móðir
Ólafínu var Ólína Bjarnadóttir, b. á
Kjaransstöðum Brynjólfssonar og
Helgu Ólafsdóttur.
Andlát
Brynjar Guðbjörn ívarsson, Möðru-
felli 3, Reykjavík, lést á Landspítal-
anum fimmtud. 25.9.
Siguröur Jónsson frá Engey í Vest-
mannaeyjum, síðasttil heimilis á
Hásteinsvegi 53, Vetsmannaeyj-
um, lést á Heilbrigðisstofnun Vest-
mannaeyja þriðjud. 23.9.
Ólöf Pálfna Sigurðardóttir (Lóa),
dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
andaðist miðvikud. 24.9.
Sigurður Jónsson, Dunhaga 23,
andaðist á Landspítala, Landakoti,
mánud. 22.9. Útför hans hefur far-
ið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Lilja Bjarnadóttir, áður til heimilis í
Hjaltabakka 8, lést á Droplaugar-
stöðum sunnud. 21.9. Útförin hef-
ur farið fram í kyrrþey að ósk hinn-
ar látnu.
Pétur Jóakimsson lést á Sólvangi
miðvikud. 24.9.
Breiðabliki. Sigríður var dóttir Guð-
mundar, sjómanns á Sigurstöðum
á Akranesi, Guðmundssonar,
snikkara frá fsafirði, Árnasonar,
bróður Erlends Árnasonar, bygg-
ingameistara í Reykjavrk. Móðir
Guðmundar á Sigurstöðum var Sig-
ríður Ásbjörnsdóttir. Móðir Sigríð-
ar Guðmunsdóttur var Kristín Jóns-
dóttir frá Neðranesi, Helgasonar og
Halldóru Vigfúsdóttur frá Grund.
Ester er systir Sveins, sem var í
fyrsta gullaldarliði Skagamanna,
föður Árna, fyrrv. landsliðsmanns í
knattspyrnu. Systir Esterar er Mar-
grét, móðir Sigursteins Gíslasonar,
í meistaraflokki KR. Ester er dóttir
Teits, sjómanns á Akranesi, Bene-
diktssonar, skútusjómanns á Bjargi
á Akranesi, Teitssonar, í Skarðsbúð,
Benediktssonar. Móðir Benedikts á
Bjargi var Þorbjörg Kristjánsdóttir.
við MR enda lengst af nefndur
Magnús góði af nemendum skól-
ans.
Magnús var kvæntur Önnu
Hallgrímsdóttur kennara en böm
þeirra em dr. Hallgrímur læknir
og Vigdís hjúkrunarfræðingur.
Magnús lést 21. febrúar 2003.
Smáauglýsingar
sölutilkynningar og afsöl
550 5000
Stórafmæli
90 ára
Ingileif Guðmundsdóttir,
Holtsgötu 18, Hafnarfirði.
Jóna Ásta Sigurðardóttir,
Bergþórugötu 43þ, Reykjavík.
85 ára
Geirþrúður Brynjólfsdóttir,
Tjarnarlundi Id, Akureyri.
Skúli Magnússon,
Hveratúni, Árnessýslu.
80ára
Björgvln Magnússon,
Dalhúsum 51, Reykjavík.
Inga Lovísa Guðmundsdóttir,
Lækjasmára 8, Kópavogi.
Jóhann Ingvarsson,
Hjallaseli 31, Reykjavík.
Jónfna Guðmundsdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
Úlfur Ragnarsson,
Barðastöðum 21, Reykjavík.
75 ára
Guðni Sigfússon,
Arahólum 4, Reykjavík.
Halldór Viðar Pétursson,
Gullsmára 8, Kópavogi.
70 ára
Jóna Jónsdóttir,
Hrísateigi 39, Reykjavík.
Steinunn Ingimundardóttir,
Reykjarfirði, (safirði.
Þóra Sigurmundsdóttir,
Laugarbrekku 19, Húsavík.
60 ára
Barbara Stefánsdóttir,
Bakkastíg 3b, Eskifirði.
Jón Gunnar Hannesson,
Laugarnesvegi 65, Reykjavík.
Katla Kristinsdóttir,
Brekkubyggð 8, Garðabæ.
Magnús Kristjánsson,
Lágholti 21, Stykkishólmi.
Þorvaldur Benediktsson,
Sjávargötu 32, Njarðvík.
Þórunn Ásta Sveinsdóttir,
Ljósheimum 4, Reykjavík.
50 ára
Agatha S. Sigurðardóttir,
Skriðustekk 12, Reykjavík.
Ásdfs Blöndal,
Súluhöfða 24, Mosfellsbæ.
Eirfkur Þórarinn Axelsson,
Reykási 23, Reykjavík.
Elvar Kristinsson,
Jöklafold 2, Reykjavík.
Gunnar Svavarsson,
Engihjalla 21, Kópavogi.
Kristfn Hannesdóttir,
Kögurseli 5, Reykjavík.
Martlna Brogmus,
Flókagötu 65, Reykjavík.
PéturJónsson,
Árholti 3, (safirði.
Pétur Magnús Sigurðsson,
Hólabergi 42, Reykjavík.
Stefán Loftur Stefánsson,
Dísarási 3, Reykjavík.
40 ára
Björgvin Gylfason,
Langagerði 112, Reykjavík.
Gísli Eiríksson,
Egilsbraut 20, Þorlákshöfn.
Guðiaugur Kristinn Gunnarsson,
Vesturgötu 117, Akranesi.
Guðrún Pálsdóttir,
Gerðhömrum 28, Reykjavík.
ingólfúr Rúnar Jónsson,
Lautasmára 14, Kópavogi.
Kolbrún Jónasdóttir,
Tjarnarlundi 12d, Akureyri.
Ólafur Haukur Þórólfsson,
Miðhúsum 20, Reykjavík.
Rfkarður Guðjónsson,
Litluhlíð 5a, Ákureyri.
Sesselja M. Blomsterberg,
Lindarbraut 6, Seltjarnarnesi.
Sigfús Ólafur Helgason,
Langholti 16, Akureyri.
Sigurður Gunnar Sveinsson,
Dalhúsum 68, Reykjavík.
Jarðarfarir
Minningarathöfn um Ólöfu Höllu
Hjartardóttur Chenery, verður
haldin í Þingvallakirkju mánud.
29.9. kl. 13.30.
Jóna Sigurðardóttir, Stuðlabergi
60, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
mánud. 29.9. kl. 13.30.