Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 27
MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 TILVERA 43
^^MlRhl'iípL
|| |j
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.20.B.L 12 ára. Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30.B.L 16 ára
STORMVIÐRI: Sýnd kl.8 og 10.
ALEX AND EMMA: Sýnd kl. 8 og 10.
f r--# Breskir /&C/ Bíódagar
SWEET SIXTEEN: Sýndkl.6 BLOODY SUNDAY: Sýndkl.6 |
ALL OR NOTHING: Sýndkl. 10.15. PLOTSWITH A V.: Sýndkl.6.
THE MAGDALENE SISTERS: Sýnd kl. 8
KVIKMYNDAGAGNRWH
Henry Birgir Gunnarsson
henry@dv.is
Útsendari
djöfutsins
Á næstunni fer í loftið þátturinn
Lífsaugað með Þórhalli miðli. Þeir
eru margir sem bíða spenntir eftir
þættinum enda hafa skyggnilýs-
ingar ekki sést í sjónvarpi síðan
Eggert Þorleifsson lék miðil á
ógleymanlegan hátt í myndinni
Með allt á hreinu.
Annars held ég að Þórhallur hafi
gert reginmistök með því að mæta
Gunnar Þorsteinssyni, forstöðu-
manni Krossins, í pallborðsum-
ræðum í íslandi í dag fyrir helgi en
Gunnar er ekki par sáttur við að
slíkur þáttur sé á leið í loftið. Þau
„átök" voru svo óborganleg að
þátturinn hans Þórhalls á eftir að
falla algjörlega í skuggann. Gunn-
ar er einsktakur karakter og svo
einlægur og trúr skoðunum sínum
að sjálfur Móses gæti ekki fengið
hann til þess að skipta um skoðun.
Þáttastjórnendumir fóm mikinn í
hasarnum en þó á sinn hátt.
Gunnar fór augsýnilega vemlega í
taugarnar á Jóhönnu og beið mað-
ur eiginlega eftir þvf að hún myndi
stökkva yfír borðið og skrúfa
Gunnar í gólfið - svo reið virtist
hún vera honum.
Þórhallur Gunnarsson virtist
aftur á móú hafa gaman að öllu
saman og reyndi hann að toga allt
það versta upp úr Gunnari og
fiskaði vel því hann fékk Gunnar
til þess að kalla miðilinn útsend-
ara djöfulsins og einnig lét Gunn-
ar sig ekki muna um að spá fyrir
svartnætti hjá Stöð 2 fyrir að setja
slíkan þátt í loftið. Þórhallur má
vera „djöfulli heitur" ef hann ætlar
að gera betur en Gunnar í íslandi í
dag.
STJORNUGiOF ÐV
W
All or Nothing ★ ★★★
The Magdalene Sisters ★★★'i
BloodySunday ★★★'Á
Sweet Sixteen ★★★■i
Nói albfnói ★★★<
28 Days Later ★★★
Pirates of the Caribbean ★ ★★
Terminator 3 ★★★
The Live of David Gale ★★i
Sindbað sæfari ★ ★i
The Italian Job ★ ★
BruceAlmight ★★
League of Extraordinary Centlemen ★ ★
Hollywood Homicide ★★
Legally Blonde 2 ★i
DaddyDayCare ★
Lara Croft.... ★
Freddy vs.Jason. , ★
Svikari svikinn
KVIKMYNDÁGAGNRÝNt
Sif Gunnarsdóttir
sif@dv.is
Svikahrappamyndir hafa verið
vinsæl tegund kvikmynda í gegn-
um tíðina. í þeim svíkja svalir
töffarar peninga út úr hrekklausu
fólki - reyndar oft hrekklausum
glæpamönnum - og það er eitthvað
alveg einstaklega skemmtilegt við
vel unna glæpi, sérstaklega þar sem
enpu ofbeldi er beitt.
I myndinni Matchstick Men leik-
ur Cage Roy einstaklega færan
svikahrapp enda með 20 ára starfs-
reynslu. Stundum, eins og hann
segir sjálfur, svíkur hann peninga af
fólki sem á það ekki skilið. Hann er
ekki sjarmatröll eins og þeir voru
allir svikahrapparnir f Oceans El-
Sambíóin/Háskólabíó
Matchstick Men
★★★
even. Hann er haldinn alls kyns fó-
bíum eins og víðáttufælni og sjúk-
legri hræðslu við ryk og fær
ástæðulaus áhyggjuköst. Svo lengi
sem hann tekur lyfin sín þá lætur
hann sér nægja að loka dyrum
þrisvar og heimta að fólk fari úr
skónum ef það kemur í heimsókn.
En þegar pillurnar klárast hellist
yfir hann ofsahræðsla, andlitið
verður samsafn af kækjum og kipp-
um og hann hellir svívirðingum yfir
fólk.
Sálfræðingur Roys heldur að lyf
séu ekki rétta lækningin og setur
hann í samband við 14 ára dóttur
hans, Angelu, sem Roy vissi varla
að var til. Stelpan er sjarmerandi og
finnst spennandi að pabbi skuli
vera glæpamaður. Hún vill gjarnan
læra nokkur trikk af honum og Roy
getur ekki annað en montað sig að-
eins af færni sinni. Rétt í því að sál-
artetur Roys er að opnast örlítið
vegna tilkomu Angelu kemur félagi
hans og lærlingur, Frank
(Rockwell) með hugmynd að mun
stærri svikum en þeir hafa áður
unnið saman og hvað gerir Roy -
nýorðinn ábyrgur faðir?
Sagan er tvíþætt og hvor hluti um
sig gæti haldið uppi heilli kvik-
mynd, hvort sem það væri svika-
mylla þeirra Roys og Franks eða
karakterstúdían á Roy, vandamál-
um hans, vantrú á starfinu sem
hann valdi sér og hin nýfundna
föðurást sem allt í einu opnar hon-
um ótal dyr og sýnir honum mögu-
leika sem hann vissi ekki að væru
til.
Ridley Scott er frábær sögumað-
ur og á einkar auðvelt með að
skapa persónur sem skipta áhorf-
andann máli. Hver keyrði ekki út af
með Thelmu og Louise, hljóp und-
an skrímslinu með Ripley í Alien og
barðist við hlið Maximus í hringn-
um í Gladiator? Matchstick Men er
lágstemmdari en flestar aðrar
myndir Scotts og fyndnari en hann
vinnur snilldarlega úr báðum sög-
um. Þótt spennan sé meiri í kynn-
um Roys og dóttur hans þá er
svikamyllan nægilega þétt til að
halda okkur við það efni líka.
Cage er fullkominn í hlutverki
Roys, píndur og skrýtinn, en aldrei
um of, og alltaf sannfærandi.
Rockwell er líka fínn í hlutverki fé-
lagans og algjör andstæða Roys,
töffari sem tekur lífinu létt, stríðir
fóbískum félaga sínum en þó með
ástúð. Lohman í hlutverki dóttur-
innar sjarmerar áhorfendur um
leið og föður sinn og atriðin milli
þeirra þar sem þau eru varfærnis-
lega að búa til samband föður og
dóttur eru virkilega falleg.
Matchstik Men ratar auðveldlega
í hóp betri svikahrappsmynda þar
sem saman fer óvænt saga, þétt
leikstjórn og frábær leikur.
Leikstjóri: Ridley Scott. Handrit
Nicholas &Ted Griffin, byggt á skáld-
sögu Eric Garcia. Kvikmyndataka:
John Mathieson. Tónlist: Hans
Zimmer. Aðalleikarar: Nicolas Cage,
Sam Rockwell, Alison Lohman ofl.
SVIKAHRAPPURINN: Nicolas Cage leikur smákrimmann sem fær dóttur sína í heimsókn.
Lífið.eftir
vinnu
Salurinn: Stórtónleikar verða í
Salnum í kvöld, kl. 20, þar sem
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Gunnar
Guðbjörnsson, Kristinn Sig-
mundsson og Jónas Ingimund-
arson koma fram og flytja
vinsælar aríur, dúetta og terzetta
úr þekktum óperum, ásamt
íslenskum sönglögum.
Hátíðasaiur Iláskólans: Ina
May Gaskin heldur fyrirlestur í
dag kl. 17.00 í Hátíðasal Háskól-
ans. Hann nefnist kynhormónar
og barnsfæðing.
Gerðuberg: Yfirlitssýning á
verkum Koggu sl. 30 ár stendur
yfir í Gerðubergi til 16. nóvem-
ber.
Eden: Torfhildur Steingríms-
dóttir frá Hafnarfirði og Ólafur
Árni Halldórsson frá Keflavik
sýna í Eden í Hveragerði, m.a. ol-
íumálverk, pastelmyndir og
skúlptúrverk úr hvalskíðum,
fjörugrjóti og steinsteypu.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur:
Yfirlitssýning á verkum Magnús-
ar Ólafssonar (1862-1937) hefur
verið sett upp í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í Tryggvagötu. Verk-
in varpa ljósi á tímabilið frá alda-
mótum 1900 fram undir miðbik
20. aldar.
Gallerí Skuggi: Guðrún Öya-
hals er með sýninguna Eftir
höfðinu dansa limirnir í Gallerí
Skugga.
Grensáskirkja: Himinn og jörð
nefnist sýning Þorgerðar Sigurð-
ardóttur í Grensáskirkju. Þar eru
15 teikningar, unnar með blýi á
akrýlgrunnaðan pappír. Þær eru
gerðar á þessu ári og eru úr
myndröð sem var sýnd í Ás-
mundarsal, Listasafni ASÍ í apríl
sl. AUmargar eru í einkaeigu, ein
fengin að láni hjá Listasafni
Reykjavíkur en aðrar eru til sölu.
Listasafn ASÍ: Einar Garibaldi
Eiríksson og Bruno Muzzolini
eru með einkasýningar í Lista-
safni ASÍ. Einar Garibaldi sýnir
málverk og kallast sýning hans
ísland í níu hlutum. Bruno sýnir
ljósmyndir og myndbandsverk
og undir yfiskriftinni Augna-
gildrur.