Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003
Vinnsla á léttsöltuðum þorskflökum hafin á Raufarhöfn
LÉTTSALTAÐ: Vinnsla hófst á
léttsöltuðum, frystum þorsk-
flökum þann 1. október sl. hjá
GPG á Raufarhöfn. Gunnar
Jónasson, framleiðslustjóri,
segir að fólk sé vissulega mjög
ánægt að koma aftur til vinnu,
en jafnframt hafi verið í því
ákveðinn kvíði vegna þess að
hér er sé um að ræða allt aðra
vinnslu en áður var á Raufar-
höfn. Vinnslu á tvífrystum bol-
fiskafurðum var hætt á Raufar-
höfn í byrjun júlí sl. og ákveðið
að hefja vinnslu á léttsöltuðum
þorskflökum. Töluverðar breyt-
ingar þurfti að gera á vinnsl-
unni, m.a. taka út vinnslubún-
að og setja annan í staðinn.
Þessi vinnsla gengur í stórum
dráttum út á að fiskurinn er
flakaður með roði og bein-
garði. Flökin eru síðan sett í
daufan pækil, þarsem þau eru
M til 2 sólarhringa, og að því
búnu eru þau lausfryst. Þessi
vinnsla er ekki ósvipuð því
þegar fiskur er nætursaltaður.
Stærsti markaður fyrir þessa af-
urð er Spánn. Stefnt er að því
að vinna úr að minnsta kosti
tíu tonnum af hráefni á dag í
framtíðinni. Það mun taka dá-
lítinn tíma að þjálfa starfsfólk
og ná upp afköstum, sem hafa
verið 3,9 tonn af hráefni, en
stefnt er það því að vinna úr 5
til 6 tonnum. Síðan verða af-
köstin aukin stig af stigi.Tutt-
ugu starfsmenn hófu störf hjá
GPG á Raufarhöfn. Þar af eru
ellefu Pólverjar sem hafa unnið
í fiskvinnslu á staðnum undan-
farin ár og fest þar rætur.
Stórfelldar blekkingar
gegn fjármálastofnunum
Ríkislögreglustjóri hefur ákært
44 ára Reykvíking fyrir að hafa
falsað nafnritanir föður síns og
tyeggja bræðra á skjöl sem
hann notaði í blekkingarskyni
gagnvart Sparisjóðabanka ís-
lands hf., Lánasýslu ríkisins og
Búnaðarbanka íslands.
Á grundvelli þessara skjala var
hann að setja verðbréf í eigu föður-
ins og bræðra sinna - sem ekki
vissu um falsanirnar - samtals að
andvirði 76 milljóna króna, til
tryggingar eigin verðbréfaviðskipt-
um en einnig öðrum skuldbinding-
um hans sjálfs í þessum þremur
fjármálastofnunum.
Málið var þingfest fyrir Héraðs-
dómi Réykjavíkur í morgun. Málið
snýst um að maðurinn hafi notað
nöfn bræðra sinna og föður ítrekað
á skjöl sem sneru að verðbréfum en
einnig íbúðum. Tilgangurinn, sam-
kvæmt ákæru, var að tryggja kröfur
fjármálastofnana vegna viðskipta
sem hann hafði gert eða myndi
gera við þær um t.d. skiptasamn-
inga.
Málið snýst um að
maðurinn hafi notað
nöfn bræðra sinna og
föður ítrekað á skjöl
sem sneru að verðbréf-
um en einnig íbúðum.
í einum lið ákæmnnar er mannin-
um gefið að sök að hafa falsað nafn-
ritun bróður sína á tryggingabréf.
Bréfið var til staðfestingar á sam-
þykki bróðurins fyrir veðsetningu á
fasteign hans á 2. veðrétti, en bréfið,
sem var að fjárhæð allt að 12 milljón-
ir króna, gaf ákærði út til að tryggja
skilvísar og skaðlausar greiðslur allra
skuldbindinga hans til Sparisóða-
banka Islands hf.
í öðru tilfelli falsaði maðurin nafri-
ritun föður síns undir handveðs-
samning milli föðurins og Búnaðar-
bankans. Þar var um að ræða beiðni
um eignaflutning til Lánasýslu ríks-
ins þar sem óskað var flutnings á allri
verðbréfaeign föðurins ffá Lánasýsl-
unní til Búnaðarbankans. Sam-
kvæmt skjölunum afhenti faðirinn
Búnaðarbankanum á grundvelli
handveðssamnings verðbréf sín,
samtals að markaðsvirði 46 milljónir
króna, að handveði til tryggingar öll-
um kröfum bankans á hendur
ákærða vegna viðskipta hans. -aþ
LÍKGJALDSKYLDA: Lesandi DV norðan heiða tók þessa athyglisverðu mynd af opinberu
umferðarskilti á Akureyri í sumar. Ekki var það listraent yfirbragð sem vakti athygli hans og
ekki heldur hitt að fjárans gjaldskyldunni skyldi Ijúka einmitt við þennan staur. Það sem
hins vegar vakti athygli vegfaranda var stafsetning á hinu opinbera skilti. Ef gjaldskyldu-
stæði lýkur raunverulega þarna þá ætti það að sjálfsögðu að vera með Ý en ekki I eins og
raunin er. Nema gjaldskyldustæði þetta sé bara nauðalíkt einhverju öðru gjaldskyldustæði
á Akureyri, sem reyndar er alls ekki ósennilegt.
Garðbæingar ATH.!
Hef ákveðinn kaupanda að rað- eða
einbýlishúsi í nágrenni við Hofsstaðaskóla
í Garðabæ. Verðhugmynd 30-35 milljónir.
Allar nánari upplýsingar gefur Gyða
Gerðarsdóttir, sölufulltrúi RE/MAX
HAFNARFIRÐI, í s. 820 9510 eða 590 9510.
íiyða Gorðarsdóltir
sölufulltrúi
S. WKJ9510, 820 9S10
gyda@rcrmix is
RE/MAX -
ÖÐRUVÍSI FASTEIGNASALA
w//mK
fei
T irHV Hafnarfirði
Slgurbjnrn Skarpfióðlnssnn,
lóíjij fastolguarialf
Verðmæti útfluttra sjávarafurða jan. - ágúst 2003
samtals 76,5 milljarðar kr.
Landfryst SJ&fryst Saltað Fluoflskur Gémurog MJöl og Hert og
slgllngar lýsl annað
Þorskurinn 39% af
útflutningsverð-
mæti sjávarafurða
Heildarafli á fiskveiðiárinu sem
iauk 31. ágúst si. er áætlaður
1.889 þúsund tonn upp úr sjó,
sem er liðlega 274 þúsund
tonnum minni heildarafli en
árið áður.
Loðnuaflinn var 728 þúsund
tonn sem er samdráttur um 323
þúsund tonn. Þorskafli, að með-
töldum Barentshafsþorski, nam
204 þúsund tonnum sem er um 20
þúsund tonnum minni afli en fisk-
veiðiárið 2001/2002. Þetta kom
fram í skýrslu stjórnar Samtaka
fiskvinnslunnar á aðalfundi hennar
á föstudag.
Hráefnisverð til fiskvinnslunnar
hefur hækkað nokkuð, m.a. 2% á
þorski, lækkað um 24% á ýsu vegna
mikils framboðs, lækkað um 9% á
ufsa, staðið í stað á karfa, lækkað
um 3% á rækju, lækkað um 36% á
sfld innan og utan fiskveiðilögsögu
og lækkað um 10% á loðnu. Á síð-
asta fiskveiðiári voru 25% af þorsk-
inum seld á innlendum fiskmörk-
uðum, 62% af ýsunni, 23% af ufsan-
um og um 14% af karfanum. Heild-
armagn sem fór um innlenda físk-
markaði á síðasta fiskveiðiári var
rúmlega 92 þúsund tonn og nam
söluverðmæti aflans um 12,3 millj-
örðum króna. Þetta er meira magn
en árið á undan en hins vegar um-
taisvert minna heildarverðmæti
vegna hráefnisverðs. Ráðstöfun
botnfiskafla til vinnslu innanlands
var 62% fyrir áratug en lækkaði
fljótlega niður í tæp 60% að meðal-
tali á hverju ári.
Arnar Sigurmundsson, formaður
SF, sagði að heildarskuldir í sjávar-
útvegi hefðu numið í júní um 188
milljörðum króna og hefðu ekki
hækkað frá sl. áramótum. Þar af
nema skuldir sjávarútvegsíyrir-
tækja við innlendar fjármálastofn-
anir liðlega 137 milljónum króna.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða
nam á sl. ári tæplega 130 milljörð-
um króna og hafði aukist um 8
milljarða króna frá árinu á undan.
Afurðir Iandfrystingar voru tæplega
44 milljarðar króna og sjófrystingar
liðlega 22 milljarðar, útflutnings-
verðmæti salfisks 23 milljarðar
króna, flugfisks tæplega 9 milljarð-
ar króna, gáma og siglinga 6 millj-
arðar króna, mjöls og lýsis 22 millj-
arðar króna og annað, mest hertir
þorskhausar, skreið og lagmeti, lið-
lega 5 milljarðar króna. Þorskurinn
vegur um 39% af útflutningsverð-
mæti sjávarafurða.
„Alþjóðlegur samanburður og
aukin samkeppni milli fyrirtækja,
án tillits til landamæra, vegur sífellt
þyngra. Ógnanir og tækifæri í ís-
lenskum sjávarútvegi taka mið af
þessari þróun. Öflugur sjávarútveg-
ur, sem byggist á skynsamlegri nýt-
ingu fiskistofna mun, eins og áður,
ráða mestu um velsæld og framfar-
ir hér á landi," sagði Arnar Sigur-
mundsson. ggts.dv.is