Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 TILVERA 39 Zellweger borðar á sig tuttugu kíló Leikkonan Renée Zellweger lætur sig nú ekki muna um að borða og borða til að þyngjast um tuttugu kíló fyrir framhaldsmyndina um hina geðþekku Bridget Jones. Og það er ekkert leynarmál hvernig hún fór að. „Þetta er einfald- ur reikningur. Ég er búin að vera að háma í mig mjög feitan mat," segir leikkonan, sem mætt er til Englands til að sprella afturfyrirframan myndavélarnar. Á með- an á fitukúrnum stóð hóf Renée hvern dag með því að borða fjórar sneiðar af ristuðu brauði með rjómaosti ofan á. En hún lét ekki þar við sitja. „Þetta er bara fyrsti rétt- urinn af fjögurra rétta morgunmat," segir leik- konan. Maður ætti sos- um ekki að vorkenna Renée því hún fær um tvo milljarða milljarða króna ofan á jafnhá laun fyrir að fita sig. Þoldi ekki að sjá sig í nauðgunarsenu Leikkonunni Nicole Kidman varð svo mikið um þegar hún horfði á atriði í nýrri kvik- mynd sinni þar sem henni er nauðgað, að hún yfirgaf sýn- ingarsalinn. Um er að ræða atriði í Dogville, nýjustu kvik- mynd danska leikstjórans Lars von Triers. ( myndinni leikur Kidman dularfulla konu á flótta undan útsend- urum mafíunnar á fjórða ára- tug síðustu aldar. Hún leitar hælis í litlum bæ í Kólóradó þar sem altmuligmaðurinn Chuck, sem Stellan Skarsgárd leikur, nauðgar henni. Síðar nauðga fleiri karlar henni ít- rekað. „Mér fannst þetta ein- um of erfitt og fór þess vegna," sagði Nicole eftir sýninguna. VELKOMIN: Það er huggulegt að láta þennan myndarlega svein standa við dyrnar og taka á móti gestum. Efnið í hann fæst í Föndurkofanum. KERTASKREYTINGAR: Vinsælttóm- stundagaman hjá hagleiksfólki. Úr Litum og föndri. ekki eftir hjartalaga jólapokunum? í Litum og föndri eru þeir úr filti sem klippt er niður í sérstakri vél sem hver og einn hefur aðgang að ef efnið er keypt þar. Krukkur og box Pappamassabox fást í ýmsum formum og stærðum. Þegar þau hafa verið máluð og skreytt breyt- ast þau í hinar glæsilegustu um- búðir utan um hvaðeina, til dæmis kökur eða góðgæti. Sama er að segja um glerkrukkurnar sem geta verið venjulegar niðursuðukrukkur úr búrskápnum. Þær eru málaðar í grunninn með möttu dekalakki og skreyttar með máluðum eða álímd- um myndum, glimmeri, perlum eða glitrandi snjó. „Þetta er bara spurning um útfærslu," segja hagar konur og finnst þetta ekki mikið mál. gun@dv.is Ekki vildi Silja afmælisgjafir og bað boðsgesti að styrkja Rauða krossinn í staðinn. Hún þáði samt frá DV Ijósmynd af forsíðu Vísis frá 4. október 1943 (Silja fæddist á sunnudegi og þá kom Vísir ekki út). Smáviðbót var við forsiðuna þar sem sagði að fæðst hefði altalandi undrabarn í Eyjafirðinum daginn áður! Það var Jónas Haraldsson, aðstoðarritstjóri DV, sem færði Silju gjöfina. DV-MYNDIR TEITUR OG HARI Ingibjörg Haraldsdóttir skáld flutti afmæl- isbarninu veglegt kvæði undir bragarhætti sem Púshkín var tamur. Gagnrýnendurnir Jónas Sen og Sigríður Albertsdóttir stigu á svið og sögðu frá kynnum sínum af Silju. Matthías Johannessen, skáld og fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, ásamt eigin- konu sinni Hönnu Johannessen. afmæli Silja Aðalsteinsdóttir, menning- arritstjóri DV, átti sextíu ára afmæli síðastliðinn föstudag. Hún bauð ættingjum og vinum til afmælis- veislu í Iðnó sama kvöld og kom hátt á annað hundrað manns í veisluna sem var hin glæsilegasta og ekki síður hin skemmtilegasta. Dagskrá var í gangi langt fram eftir kvöldi þar sem fluttar voru ræður Silja var manna kátust í eigin afmælisveislu. Hér skemmtir hún sér ásamt Bubba Morthens og fleiri gestum. Mikill fjöldi gesta kom í Iðnó á föstudagskvöldið og skemmti sér hið besta enda dagskráin vönduð og skemmtileg. Meðal bestu vina Silju eru Bubbi Morthens og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Is- lands. Silja tekur lagið uppi á sviði ásamt dætrum sínum, Sif og Sigþrúði. hjá Silju og kvæði og tónlist ómaði. Dætur Silju, Sif Gunnarsdóttir og Sigþrúð- ur Gunnarsdóttir, stjórnuðu dag- skránni af miklum myndarskap og fékk Silja engu þar um ráðið. Þegar dagskránni lauk var dansað fram á nótt við ljúfa tóna, harmonikku, fiðlu og kontrabassa. Er óhætt að segja að gestir hafi farið ánægðir til sinna heimkynna að veislu lokinni. Guðmundur Ólafsson leikari skálaði fyrir Silju og söng Ó sole mio henni til heiðurs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.