Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 FRÉTTIR 7 7 tónllstamus vio Reykjavíkurhofn. Málio virðist nú vera komið á dagskrá fyrlr alvöru en hugmyndlr Landsbanka um að fá lóð f narsta nágrennl hefur hleypt nýju Iffl I umraaðuna. NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR LANDSBANKANS Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka (slands, sendi for- manni borgarráðs, Alfreð Þorsteinssyni, bréf sem dagsett er 24. september með ósk um viðræður við borgina um lóðamál Landsbankans. Áhugi sé innan bankaráðs og bankastjórnar að reisa nýjar höfuðstöðvar í miðborginni. Saga miðborgar Reykjavlkur og þróun höfuðstöðva Landsbankans sé samofin frá upphafi síðustu aldar. Það sé vilji Landsbankans að halda áfram að vera með aðalstarfsemi sína í miðborginni ef aðstæður séu fyrir hendi. Óskað er eftir við- ræðu um lóð austan Pósthússtrætis og sunnan Geirsgötu. Einnig kemur fram í bréfi Björgólfs að Landsbankinn muni áfram nýta byggingu sína að Austur- stræti 11 fyrir útibú, fundahöld og gestamóttöku. Alfreð Þorsteinsson hefur lýst yfir ánægju sinni með áhuga Landsbankans á miðbænum. Talið er að þetta geti leitt til þess að stór fyrirtæki endurskoði hug sinn til miðbæjarsvæðarins með það í huga að festa sig þar I sessi. hkr@dv.is að gefa út leiðbeinandi teikningar um útlit, heldur ætlum við fyrst að klára drög að deiliskipulagi." Stefán segir að hugmyndir Landsbanka um nýbyggingu í mið- bænum geti vel samrýmst áform- um um byggingar á svæðinu. Lóðin sem Landsbankinn hafi sótt um sé einmitt á forræði Austurhafnar-TR. / tengslum við tónlist- ar- og ráðstefnuhúsið er gert ráð fyrir 250 herbergja fyrsta flokks alþjóðlegu hóteli með möguleika á stækkun. Reiknað hafi verið með að koma mætti fyrir aukalega á þeirri lóð um 15 þúsund fermetra byggingum. „Þeir eru ekki að biðja um nema 8 til 10 þúsund fermetra svo það gengur alveg upp í sjálfu sér.“ Tilbúið 2008 Stefnt er að opnun tónlistarhúss- ins og ráðstefnumiðstöðvarinnar í árslok 2008, samkvæmt fýrirliggj- andi framkvæmdaáætlun og í skýrslunni er gert ráð fyrir að heild- artekjur af tónlistarhúsinu og ráð- stefnumiðstöðinni geti numið um 416 milljónum króna strax árið 2009, miðað við verðlag árið 2003. Á móti kæmi heildarkostnaður upp á tæplega 385 milljónir króna þannig að áætlaður hagnaður af rekstrinum fyrsta árið næmi því um 31 milljón króna. Er gert ráð fyrir í skýrslunni að rekstrarhagnaður fari stigvaxandi næstu fimm árin eftir opnun hússins og verði kominn í ríflega 63 milljónir króna árið 2013. MAftGVfSLEGAR HUGMYNDÍR: Samkeppni hefur verlð haldln um skipulag svæðls undir 6,4 milljarða tónlistar- hús og 6 milljarða hótel Talið geta skilað hagnaði straxáfyrsta rekstrarári Rekstur fyrirhugaðs tónlistar- og ráðstefnuhúss, sem áætlað er að rísi í miðborg Reykjavíkur fyrir árslok 2008, á að geta stað- ið undir sér og skilað hagnaði strax á fyrsta rekstrarári. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu, Imformation Memorand- um, sem kynnt var í gær um bygg- ingu og rekstur tónlistarhúss, ráð- stefnumiðstöðvar og hótels í Reykjavík. Þá er talinn góður rekstrargrund- völlur fyrir fyrsta flokks alþjóðlegt hótel í tengslum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Þetta er meðal nið- urstaðna í ítarlegri skýrslu sem al- þjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Hospitality Consulting International hefur unnið fyrir einkahlutafélagið Austurhöfn-TR ehf., sem var stofnað af ríki og borg í apríl sl. til að hrinda þessu verk- efni í framkvæmd. AUSTURHÖFN: Frá kynnningu á nýrri skýrslu um rekstur fyrirhugaðs tónlistar- og ráðastefnuhúss sem ætlunin er að reisa í miðborg Reykjavíkur. Einkaframkvæmd Unnið er að því að tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin verði boðin út sem einkaframkvæmd. í því felst að einkaaðili mun annast hönnun, byggingu, íjármögnun og rekstur mannvirkja. Er nú gert ráð fyrir því að framlag ríkis og borgar til bygg- ingar tónlistarhúss og ráðstefnu- miðstöðvar nemi 6,4 milljörðum króna og greiðir ríkið 54% þess kostnaðar en borgin 46%. Miðað við þær fjárhæðir sem gert er ráð fyrir í verkefninu er skylt að bjóða það út á Evrópska efnahagssvæð- inu. Reynist einkaframkvæmdarað- ferðin ekki fær verður aðferðafræði verkefnisins endurskoðuð. Munu ríki og borg þá beita sér fyrir lausn verkefnisins eftir öðrum leiðum. 6 milljarða alþjóðlegt hótel f tengslum við tónlistar- og ráð- stefnuhúsið er gert ráð fyrir 250 herbergja fyrsta flokks alþjóðlegu hóteli sem reist verði og fjármagn- að af einkaaðilum. Áæduð heildar- stærð hótelsins er um 20.000 m2 en mögulegt verður að byggja við það 7.000 m2, þannig að herbergin verði 450. Áætlað er að bygging hótelsins muni kosta rúmlega 6 milljarða króna, miðað við gengið árið 2003, og gætu byggingarframkvæmdir farið fram á sama tíma og fram- kvæmdirnar við tónlistar- og ráð- stefnuhúsið, eða seinna. Miðað við áætlaðar markaðsaðstæður gæti rekstrarhagnaður hótelsins árið 2009 numið rúmlega 432 milljón- um króna, miðað við verðlag árið 2003, og hækkað upp í tæplega 747 milljónir árið 2013, eða um 43,1%. Stjórn Austurhafnar-TR ehf. tók til starfa í maí, hefur þegar hrundið af stað nauðsynlegri undirbúnings- vinnu og leitað sér sérfræðiráðgjaf- ar, bæði innanlands og utan. Útboð á sérfræðiráðgjöf fyrir Austurhöfn- TR hefur verið auglýst og er ráðgert að opna tilboð nú í október. hkr@dv.is Gert er ráð fyrir því að framlag ríkis og borgar til byggingar tónlistar- húss og ráðstefnumið- stöðvar nemi 6,4 millj- örðum króna. Ríkið greiði 54% þess kostn- aðar en borgin 46%. Skýrslan, Imformation Memorandum, er ætluð fjárfest- um, þróunaraðilum og verktökum sem hafa áhuga á að fjármagna, hanna, byggja og reka tónlistarhús- ið og ráðstefnumiðstöðina í heild sinni eða að hluta til, sem og þeim sem vilja fjárfesta í byggingu og rekstri hótels á Austurhöfninni í tengslum við bestu ráðstefnuað- stöðu sem í boði verður á íslandi næstu árin. Framkvæmdastjóri Austurhafn- ar-TR, Stefán Hermannsson, fyrr- verandi borgarverkfræðingur, segir tæplega tveggja ára verðlaunatil- lögu um skipulag svæðisins og tón- listarhús ekki verða nýtta í óbreyttri mynd en eftir eigi að fara í mikla skipulagsvinnu. „Það er mjög líklegt að höfundur verðlaunatillögunnar, Guðni Tyrf- ingsson í Kaupmannahöfn, muni koma að þeirri vinnu. Við erum ekki komnir á það stig að við séum ■ v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.