Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 10
70 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 MIÐBORGIN: Horft úr lofti inn yfir Reykjavíkurhöfn og miðborgina. Hægra megin blasir við svæðið þar sem fyrirhugað er að reisa tónlistarhús og fleiri byggingar. Nær miðbænum er líka stórt svæði sem talið er hægt að byggja á, en vandamálið er Geirsgatan sem sker svæðin I sundur. Arkitektar fagna áhuga Landsbankans á miðbænum: Vítamínsprauta fyrir miðborgina Áhugi Landsbanka fslands á að byggja nýjar höfuðstöðvar í miðbæ Reykjavíkur eru taldar af mörgum arkitektum bestu fréttir sem komið hafa um mið- bæinn í langan tíma. Trausti Valsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, telur að ósk Landsbankans um nýja lóð undir höfuðstöðvar sínar í miðbæ Reykjavíkur muni hleypa nýju lffi í umræðuna um miðbæinn. Hug- myndin sé mjög snjöll og spenn- andi og gefi m.a. möguleika á að tengja þetta umræðunni um tón- listarhús við höfnina. Verkefnið sem slíkt, að koma fyrir 10 þúsund fermetra byggingu Landsbankans á fjórum hæðum í miðbænum, sé líka mjög ögrandi fyrir arkitekta. Ekki er þó talið mögulegt að byggja slíkt hús sem turnbyggingu vegna aðflugsins á Reykjavíkurflugvöll. Pétur Ármannsson arkitekt segir áhuga Landsbankans á að byggja á þessu svæði mikil gleðitíðindi. - „Ég fagna því mjög eindregið að einkafyrirtæki sé reiðubúið til að fjárfesta f skrifstofuhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þetta gæti sannarlega orðið vítamfnsprauta fyrir þetta svæði. Það þarf líka að bregðast við því og standa þannig að skipuiagi að slfkar byggingar geti átt sér stað.“ Pétur hefur gagnrýnt mjög þá samkeppnistillögu um tónlistarhús við höfnina sem hlaut fyrstu verð- laun fyrir tveim árum. Hann dregur stórlega í efa að sú tillaga sé nothæf lengur þar sem margar forsendur hafi breyst síðan hún var gerð. Auk þess geri sú tillaga ekki ráð fyrir að skipulagi gatnakerfisins á svæðinu verði breytt sem þýðir að tónlistar- húsið yrði skorið úr tengslum við miðbæinn líkt og hafnarsvæðið er í dag. „Ég ætla sannariega að vona að sú tillaga verði endurskoðuð eða lögð á hilluna og byrjað út frá öðr- um forsendum." Ég fagna því mjög ein- dregið að einkafyrir- tæki sé reiðubúið til að fjárfesta í skrifstofu- húsi í miðbæ Reykjavík- ur. Þetta gæti sannar- lega orðið vítamín- sprauta fyrir þetta svæði. - Er hægt að tengja saman skipu- lagslega nýja byggingu fyrir Lands- banka og byggingu tónlistarhúss? „Ég var einmitt að benda á það í mínum málflutningi að í stað þess að líta á tónlistarhúsið sem eina risabyggingu þá bæri að líta á þetta svæði í heild sem nýjan miðborgar- hluta. Þar gæti einmitt verið svig- rúm fyrir ýmiss konar starfsemi og ýmiss konar fyrirtæki að reisa sín 15 ÞÚSUND FERM.HÚS Reiknað er með að samanlögð stærð tónlistarhúss og ráðstefnu- miöstöðvar verði um 15.000 fer- metrar. Byggingin á m.a. að rúma: 1.500 manna tónleikasal (háum gæðaflokki Allt aö 750 manna sérhannaðan ráðstefnusal Æfinga- og tónleikasal sem rúmi allt að 450 manns og geti einnig nýst til ráðstefnuhalds Aðstöðu listamanna og skrifstofur Sinfóníuhljómsveitar fslands 16 minni fundarsali sem taki 400-500 manns í sæti Þjónustu-, stoð- og tæknirými. hús - með öðrum orðum skipulag þess eðlis að það væri hægt að laga það að þeim áhuga sem fyrir hendi er á hverjum tíma - nýta þá miklu fjárfestingu sem tónlistarhúsið verður í það að skapa forsendur fyrir annarri uppbyggingu í kring- um það og þá mjög gjarnan svona banka. Mér finnst þetta vera mikil gleðitíðindi því það hefúr verið til- hneiging hjá stórfyrirtækjum að flytja starfsemi sína úr miðborg- inni." Best kosturinn Pétur Ármannsson segir að hvergi sé hægt að útvíkka miðborg Reykjavíkur f beinum tengslum við aðalgönguás hennar á jafn auð- veldan og aðgengilegan hátt og akkúrat á svæði fyrirhugaðs tónlist- arhúss. Forsendan fyrir því er sú að hægt sé að ganga á jafnsléttu beint úr miðborginni og helst eftir skjól- sælli göngugötu alveg út á enda torgsins - þá án þess að þurfa að fara um einhver undirgöng, brú eða hlaupa yfir fjögurra akreina hraðbraut sem væri óviðunandi skipulagslausn. Hægt að tvöfalda byggð í Kvosinni „Ef Geirsgatan yrði sett í undir- göng og svæðið frá Ingólfsgarði að miðborginni yrði nýtt með þeim þéttleika sem er annars staðar í kvosinni þá yrði hægt að tvöfalda byggingamagnið í Kvosinni. Þannig yrði hægt að koma fyrir nokkrum 10 þúsund fermetra Landsbanka- byggingum og líka tónlistarhúsi." - En er ekki mjög dýrt að setja Geirsgötuna í stokk? „Þetta mál hefur eingöngu verið reiknað út frá tilkostnaði við gatna- gerð, en það hefur aldrei verið reiknað inn í breytuna hver ávinn- ingurinn er í raun fyrir miðborgina. Ég vil meina að framtíðar-vaxtar- möguleiki miðborgarinnar standi og falli nánast með því að þessu verði breytt. Því finnst mér nokkru til kostandi. Dýrmætasta land sem til er Þarna eru trúlega dýrustu fer- metrar á íslandi, sérstaklega eftir að búið verður að fjárfesta f nýju tónlistarhúsi. Ef Geirsgatan yrði sett í undirgöng og svæðið frá Ingólfsgarði að mið- borginni yrði nýtt með þeim þéttleika sem er annars staðar í Kvos- inni þá yrði hægt að tvöfalda bygginga- magnið. Ég skil það mjög vel að Lands- bankinn vilji setja sig niður akkúrat á þessum stað. Þetta er trúlega dýr- mætasta land sem til er. Ef ekki er arðbært að nýta þetta land þá veit ég ekki hvar slflct land er fyrir hendi." - Er ekki líka lykillinn að þessu að með byggingum á svæðinu takist að búa til skjólsælli miðborg? „Jú, og það gerist með því að koma með góða og vandaða út- færslu á þessu svæði sem nýjum borgarhluta - ekki sem einstakri byggingu heldur borgarhluta með götum og torgum og sem greiðust- um tengingum við gönguásinn sem liggur frá Ingólfstorgi og upp Laugaveg." Trausti Valsson tekur undir að vandinn við tónlistarhúsið við höfnina sé ekki síst tenging þess við miðbæinn. Nú skeri vegur þetta svæði í sundur og hugmyndir hafa verið uppi um að aðgengi að tón- listarhúsi yrði um göng undir veg- inn. Þetta telur Trausti óraunhæft og ekki aðlaðandi að koma að slflcri byggingu um dimm undirgöng. Setur umræðuna á fullt Hugmynd Landsbankans setur á fullt umræðu um að finna nýja lausn á umferð um Geirsgötu. Hætt var við áform sem byrjað var á að framkvæma á sínum tíma með vegi yfir hafnarsvæðið um aðra hæð Tollstöðvarhússins og tengingu inn á Mýrargötu. Trausti hefur m.a. viðrað hug- myndir um að leggja veginn í stokk við Miðbakka, fyrir framan Hafnar- húsið og í gegnum slippsvæðið og á fyllingu út í sjó þar fyrir vestan. Þannig verði til mjög verðmætt byggingarland sem samtengt er miðbænum. Hann viðurkennir þó að slflc lausn sé mjög dýr í fram- kvæmd. „Þetta er trúlega dýr- mætasta landsem til er. Efekki er arðbært að nýta þetta land þá veit ég ekki hvar slíkt land er fyrir hendi." Einn þáttur í þessu er einmitt slippsvæðið, en annar áfangi sam- keppni um það svæði verður kynntur á næstu vikum. Ekki er ljóst hvort Mýrargatan muni, sem framhald af Geirsgötu, í þeim til- lögum áfram skera væntanlegt nýtt hverfi á slippsvæðinu frá miðbæn- um. hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.