Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 12
72 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 Útlönd Heimurirm í hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Suu Kyi sleppt þegar við á STOFUFANGELSI: Baráttukon- unni Aung San Suu Kyi, leið- toga stjórnarandstöðunnar í Burma, verður ekki sleppt úr stofufangelsi fyrr en við á, að því er aðstoðarutanríkisráð- herra landsins sagði í blaðavið- tali í morgun. Ummæli aðstoðarráðherrans birtust á sama tíma og forsæt- isráðherra Burma, Khin Nyunt, lagði upp í ferð til Indónesíu þar sem hann mun sitja fund leiðtoga annarra ríkja í Suð- austur-Asíu. Ekki er búist við að herforingjastjórnin í Burma verði gagnrýnd beint á þeim fundi. Hin 58 ára gamla Suu Kyi var flutt á heimili sitt í september- lok en þá hafði hún verið í haldi frá því í maílok. Fiskveiðibrot GRÆNLAND: Skipstjóri spænsks togara hefur verið sektaður um 60 þúsund dansk- ar krónur fyrir ólöglegar fisk- veiðará Grænlandsmiðum. Togarinn var færður til hafnar á föstudag, meðal annars fyrir ólöglegt brottkast afla. Það var áhöfn varðskipsins Triton sem uppgötvaði brot spænsku sjómannanna. Bandaríkin hvetja til stillingar: Sýrlendingar í vitlausu liði Bandarísk stjórnvöld hvöttu deilendur fyrir botni Miðjarðar- hafs til að sýna stillingu eftir að ísraelskar herflugvélar gerðu loftárásir í Sýrlandi til að hefna fyrir sjálfsmorðsárás Palestínu- manna í Haifa á laugardag. Við það tækifæri sökuðu Banda- ríkjamenn Sýrlendinga um að vera í vitlausu liði í stríðinu gegn hryðjuverkamönnum. öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til neyðarfundar í gær, að beiðni sýrlenskra stjórnvalda sem sögðu að árásir ísraela ógnuðu friði og öryggi, ekki aðeins í þessum heimshluta heldur einnig í heimin- um öllum. Israelar höfðu ekki gert árásir jafnlangt inn í Sýrland í þrjá- tfu ár. Þeir sögðust sjálfir hafa ráð- ist á þjálfunarbúðir fyrir palest- ínska hryðjuverkamenn og að um sjálfsvörn hefði verið að ræða. Ráðamenn íWashington sögðust ekki myndu styðja ályktun Sýrlend- inga þar sem árásin var fordæmd vegna þess að í henni var ekki minnst einu orði á sjálfsmorðsárás palestínskrar konu á veitingastað í Haifa á laugardag þar sem nítján ísraelskir borgarar fórust. Frekari skoðun Sýrlensk stjórnvöld vildu að þeg- ar yrði gengið til atkvæða um álykt- unina en Bandaríkjamenn, sem hafa neitunarvald í Óryggisráðinu, sögðu að hún þyrfti frekari skoðun- ar við. Aðrir stjórnarerindrekar sögðu að ekkert yrði aðhafst í dag, mánudag, þar sem gyðingar halda upp á Yom Kippur trúarhátíðina. „Bandaríkin telja að Sýrland sé í vitlausu liði í stríðinu gegn hryðju- verkum," sagði John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ. Bandarísk stjórnvöld hafa iengi krafist þess að Sýrlendingar láti af stuðningi sínum við hópa sem vestan hafs er litið á sem hryðju- verkahópa. Sýrlensk stjórnvöld hafa neitað öllum ásökunum í þá veru. George W. Bush Bandarfkjafor- seti frétti ekki af loftárásum ísraela fyrr en nokkrum klukkustundum eftir að þær væru gerðar. Hann hringdi þá í Ariel Sharon, forsætis- ráðherra fsraels, og hvatti deilend- ur til að halda að sér höndum. „Allt í einu heyrðum við hræðilega sprengingu. Við sáum reykinn koma út úr veitingastaðnum. Fjölskyldur voru látnar við borðin. Þarna voru börn án útlima," sagði Navron Hai. ítrekuð ofbeldisverk hafa sett svo- kallaðan Vegvísi að friði, sem Bandaríkin og önnur stórveldi standa að, út af sporinu. Þar er kveðið á um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza árið 2005. Gyðingar og arabar Sjálfsmorðsárásin í Haifa á laug- ardag, þar sem nítján fórust, var gerð á vinsælan veitingastað við sjávarsíðuna, þar sem gyðingar og arabar höfðu unnið saman í áratugi. Staðurinn var rekinn af kristinni arabaijölskyldu og gyðingafjöl- skyldu. „Allt í einu heyrðum við hræði- lega sprengingu. Við sáum reykinn koma út úr veitingastaðnum. Fjöl- skyldur voru látnar við borðin. Þarna voru börn án útlima," sagði Navron Hai sem átti leið hjá í bíl sínum þegar sjálfsmorðsliðinn tendraði sprengju sína. Samtökin Heilagt stríð íslams hafa lýst tilræðinu á hendur sér. Neyðarástand Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, lýsti yfir neyðarástandi á palestínsku heimastjórnarsvæðun- um og féllst á tilnefningu átta manna neyðarstjórnar Ahmes Quries sem hefur verið tilnefndur forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar. Um þrjátíu erlendir friðarsinnar, þar á meðal Viðar Þorsteinsson, stjórnarmaður félagsins fsland-Pa- lestína, komu sér fyrir við höfuð- stöðvar Arafats í Ramallah í gær til að hindra að ísraelar gerðu alvöru úr þeim hótunum sínum að Qar- lægja Arafat, eins og þeir hafa kall- að jíað. Palestínskur embættismaður sagði að tveir varðmenn hefðu særst í loftárásum ísraelsku flugvél- anna á búðir Alþýðufylkingarinnar til frelsunar Palestínu (PFLP). Emb- ættismaðurinn sagði að þar færi engin þjálfun fram en sagði ekki til hvers búðirnar væru notaðar. VOÐAVERK í HAIFA: fsraelskir lögreglu- þjónar kanna verksúmmerki á vinsaelum veitingastað í Haifa þar sem palestínskur sjálfsmorðsliði sprengdi sjálfan sig á laug- ardag og varð nítján gestum að bana, börnum og fullorðnum. Frambjóðandi Pút- íns vann stórsigur Fyrrum múslímaklerkur sem naut stuðnings ráðamanna í Moskvu vann yfirburðasigur í forsetakosningunum í Tsjetsjeníu um helgina. Fréttaskýrendur efast þó um að friður komist á í landinu. Akhmad Kadírov hafði fengið 82,5 prósent atkvæða þegar búið var telja rúmlega helming og ekki útlit fyrir að það breyttist mikið, að sögn Itar-Tass fréttastofunnar. Allir raunverulegir keppinautar Kadírovs höfðu dregið framboð sín til baka fyrir atkvæðagreiðsl- una. Uppreisnarmenn í Tsjetsj- eníu lýstu kosningarnar mark- lausar og sögðust berjast áfram. AUÐVELDUR SIGUR: Akhmad Kadírov vann auðveldan sigur ÍTsjetsjenlu í gær, enda eini frambjóðandinn að heita má. Robin Cook birtir kafla úr dagbók sinni: Sakar Blair um lygi Breska forsætisráðuneytið vísar á bug staðhæfingum þess efnis að Tony Blair hafi verið kunn- ugt um að lítil hætta stafaði af írökum áður en innrásin var gerð síðastliðinn vetur. Robin Cook, fyrrverandi ráð- herra í stjórn Blairs, greinir frá því í nýrri bók að Tony Blair hafi verið fullkunnugt að Irakar hefðu ekki yf- ir að ráða gjöreyðingarvopnum sem hægt væri að beita með þriggja stundarfjórðunga fyrirvara. Tony Blair, forsætisráðherra Breta, sagði ítrekað að her Sadd- ams Husseins gæti beitt vopnum ROBIN COOK: Heldur því fram að Blair hafi tekið undir þá skoðun að Bretum stafaði ekki hætta af her Saddams Hussein. með fyrrgreindum hraða og vitnaði þar til breskrar skýrslu sem birt var fyrir ári. Breska blaðið The Sunday Times birti útdrætti úr bók Cooks í gær. Cook heldur því fram að Tony Blair hafi viðurkennt fyrir sér að lítil hætta stafaði af frökum um hálfum mánuði fyrir innrásina. John Scar- lett, yfirmaður samræmdrar leyni- þjónustunefndar, hafi gert slíkt hið sama. Talsmaður breska forsætisráð- herrans segir fullyrðingar Cooks úr lausu lofti gripnar. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.