Alþýðublaðið - 18.04.1969, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 18.04.1969, Blaðsíða 11
8ðÖí fi .81 Allþýðulblaðið 18. apríl 1969 11 I Elskendurnir I KVIayerling i „Hefurðu nokkra hugmynd um hvað þú ert búinn að flytja rnarga þætti?“ Útvarpið alltaf sýnt mér traust „Nei, ég hef aldrei haldið tölu | á þeim. Aður var ég með þá reglu- lega, stundum einu sinni í viku, en núna hef ég bara samband við útvarpið þegar mér finnst/ ég kom- inn með efni sem gaman væri að láta fleiri athuga með mér. Ut- varpið hefur alla tíð sýnt mér sér- stakt traust og leyft mér að vera algerlega sjálfráður um efnisval. Það hefur verið mér mikils virði, og ég er þakklátur fyrir það. — Þættirnir hafa aldrei veriSj ,rit- skoðaðir', heldur teknir á mína á- byrgð, og auðvitað reynir maður að bregðast ekki því trausti sem manni er sýnt. En fyrir bragðið er ég miklu frjálsari, því að ég get tekið hvað sem mér lízt á, og það eru stundum ólíklegustu efni“. „Og oft ferðu út á dulræna sviðið.“ Mikill áhugi á dulrænum 'málum „Já, það er satt. Mér hefur virzt bæði af vinsamlegum bréfum sem — H ö f u m v i ð 1 i f a ð á ð - u r ? Það beitir erindi sem Ævar R. Kvaran flytur okkur í útvarpið kl. 20,30 f kvöld. Og við flýturn okkur að hafa samband við Ævar og heimta svar- ið fyrirfram. „Já, hvað segir þú, Ævar, höf- u m við það?“ Ekki fu tdið betri skýringu „Eg er á því“, svarar hann með þessari velþekktu rödd sinni sem hljómar alltáf eins og hann sé að trúa manni fyrir leyndarmáli. „Já, ég hef a.m.k. ekki fundið betri skýr- ingu ennþá á ráðgátum og vanda- málum lífsins. I þessu erindi reyni ég að sýna fram á, að með því að gera ráð fyrir endurfæðingar- lögmálinu skýrist ýmislegt sem hingað tih hefur reynzt örðugt að skilja. I5að er t. d. þessi gífurlegi mismunur á kjörum manna og öll- tim aðstæðum. Eg trúi á endanlegt réttlæti tilverunnar, og það er sá grundvöllur sem ég byggi á. En ég er engan veginn þeirrar skoð- unar, að ég sé búinn að finna loka- lausnina. Eg hef alltaf opinn huga og er reiðubúinn að kasta fyrir borð því sem ég held í dag ef liægt er að sannfæra mig um, að eitthvað- annað sé líklegra." PASKAMYND Laugarásbíós, Mayerling, nýtur mikilla vin- sælda um þessar mundir, enda ný af nálinni, rómantísk að efni og dramatísk. Og þá spillir ekki að hafa aðrar eins stjörnur og Cat- herine Deneuve og Omar Sharif í hlutverkum elskendanna, því að bæði eru hið mesta augnayndi. Catherine stendur nú á tindi frægðar sinnar sem alþjóðleg stjarna og er að vinna í Holly- wood þessa dagana að nýrri gam- anmynd með Jack Lemmon. Hún var orðin Ieið á öllum harmleikj- unum og vill ekkert nema grín og garnan, og af því ætti hún að fá nóg við hliðina á Jack Lemm- on í A p r i 1 F o o 1 s, en það heitir myndin. ... ems og onnur Garbo... Hún forðast blaðamenn eins og önnur Garbo og harðneitar að svara nokkrum spurningum um einkalíf sitt. Það hefur heldur ekki gengið eins glæsilega og listferill hennar — hún varð yfir sig hrifin af Roger Vadim eins og fleiri ung- ar stjörnur, ól honum son, en um hjónaband var ekki rætt. Systir hennar, hin aðlaðándi unga leik- kona, Francoise Dorlac, fórst í bíl- slysi fyrir tveimur árum, og nú et Catherine að skilja við mann sinn, Ijósmyndarann David BaiL ey. Það er kannski ekki furða þótt hún kjósi heldur gamanmyndir en tragedíur eins og ástatt er. Ástríðufullur bridgespilari Omar Sharif er einn af eftirsótt- ustu kvikmyndaleikurum heimsins á síðustu árum og leikur í hverri stórmyndinni af annarri, en áhuga- mál hans einskorðast ekki við leik- listina, heldur er hann ástríðufull- ur bridgespilaði og meira að segja talinn í fremstu röð á því sviði. Þegar hann var að leika með Peter O’Toole í Lawrence of Ara- b i a , sátu þeir og spiluðu bridge í öllum hléurn, og Peter vesaling- urinn fékk ekki einu sinni vatns- sopa til að svala þorsta sínum — (hvað þá sterkara) — fyrr en Omar var búinn að fá sínar þrjár rú- pertur á dag. Omar þykir mikið kvennagull bæði í einkalífinu og á skermin- um, en verður fljótt leiður á draumadísunum. Sem Múhameðs- trúarmaður má hann víst eiga ' 4 "eiginkonur í einu, en hann myndi láta sér nægja þrjár — ef þær væru nógu slyngir bridgespilarar. fólk hefur skrifað mér víða að um 1 landið, símhringingum út af þátt- - unum og samtölum við ýmsa, að 1 íslendingar hafi mikinn áhuga á 1 yfirskilvitlegum fyrirbærum og dul- i rænum málum yfir höfuð. Þeir K brjóta heilann um tilveruna og hafa If gaman af þessum skýringartilgát- m 11111.“ „T>etta hlýtur að kosta þig mikla I vinnu?“ „Ja - jú, kánnski, en ef áhug- “ inn er fyrir liendi, finnur maður | sér einhvern veginn tíma. Ég er I alltaf á kafi í bókurn og blöðum og J reyni að fylgjast með öllu því nýj- asta, og ég hef svo gaman af þessu ; sjálfur, að ég luigsa aldrei um' það ,« sem vinnu, sízt þreytandi vinnu.“ ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.