Alþýðublaðið - 23.04.1969, Síða 5

Alþýðublaðið - 23.04.1969, Síða 5
yrarakTieindattJórtt Þúrir SKmundJSOB lUtstJdrar: Kristjio Bersl óufitoo (itn) Bcncdlkt GrttndU. Frtttastjóri: Sieurjón Jóhannisoo Auelísingastjóri: Signrjón Arl signrjónssoa {Itgeiandi: Njja útcáfuféiaglS f’renlsmlðja AJJjjóublaislnf, GRÆNLAND Fregnir herma, að Grænlandsmálaráðherra Dana hafi með miMu föruneyti orðið strandaglópur í Reykjavík. Hann var á leið til Austur-Grænlands, en komst ekki lengra vegna veðurs. Þetta er ekki merkileg frétt, en hún minnir o'kkur á, hve nærri okkur Grænland er. Þrátt fyrir þetta nábýli hafa íslending- ar ávallt látið eihs og Grænland væri ekki til — eða gæti eins vérið í Síberíu hvað okkur snertir. Þetta var skiljanleg afstaða fyrr á öldum, en í dag er hún óafsakanleg með öllu. íslendingar ættu að taka upp náið sam- band við Grænland og Grænlendihga á mörgum sviðum. Má nefna þar fyrst ferða- .menPsku, sem miklir draumar eru um í báðum löndum. Væri án efa skynsamlegt að ísland og Grænland sameinuðu krafta srna til að lolkka til sín erlenda ferðamenn, en þeir mundu koma í stórhópum, ef að- stæður til móttöku þeirra væru betri en þær eru. Heilar stéttir í auðugum löndum eru búnar að fara ár eftir ár til Suðurlanda og mundu án efa fagna góðu tækifæri til að heimsækja í einni ferð ísland og Græn- land. ■ Hér er um að ræða verkefni, sem flug- félög beggja landa gætu sem bezt tekið upp til samvinnu. Hópferðir til þessara tveggja landa norðursins þyrftu að vera vel skipulagðar, en þær mundu án efa fljót lega ná viinsældum og gætu fært stórfé í erlendum gjaldeyri. Hér er um iað ræða verkefni, sem liggur og bíður eftir fram- kvæmd. Þessu til viðbótar og allt annað mál er sú skömm íslendinga, að þeir hafa varla gengizt við næstu nágrönnum sínum. Þús- undilr lanldlsmanna hafa ferðazt til Kaup- mannahafnar og fjarlægra landa, en hve margir hafa komið til Grænlands? Af hverju teru öll samSkipti þessara landa svo lítil sem raun ber vitni? Af hiverju kotma Alþýðublaðið 23. apríl 1969 5 —W——■——P—■——11 ■ iiiim m nVi i nip, i. ii, i i .mii iiii ■ 1,1.11—. ekki fleiri Grænlendingar til íslands til beimsókna en raun ber vitni? Fyrir nokkru kom hingað fjölmenn nefnd manna frá Grænlandi til að kynna sér atvJnnuvegi íslendinga, og hafa þeir án efa eitthvað getað af okkur lært, þótt við séum á fáum sviðum til fyrirmyndar. Er ekki tímabært að ríefnd íslenzkra at- hafnamanna fari til Grænlands til að end- urgjalda þessa heimsókn? Getur ekki ís= len^fcur iðnaður selt heilmikið af vörum sínum á Grænlandi? Þurfa Grænlendingar að flytja alla hluti frá Vestur-Evrópu, þeg- ar þeir hafa háþróað land eins og ísland v.lð bæjardíyrnar. Það er sarría hvOrt litið er á ferða- mennsku, viðskipti eða annað, aukin sam- skipti við Grænland virðast vera sjálfsagð- ur hlutur fyrir íslendinga. Samgöngurn- ar eru ekki lengur f jötur um fót, heldur ætti flugfélagið að hvetja til þessara auknu samskilpta og að sjá um það flug, sem síð- an ætti iað skapaSt fastur markaður fyrir. Hér er bæði um hagsmuna- og menn- ingarmál að ræða. Það þarf að verða meirí háttar breyting á samskiptum okkar við næstu nágranna okkar. Nú er fyrir Alþingi allmikill laga. bálkur, sem e.t.v. virSist ekki í fljótu bragði marka nein sérstök tímamót í hugum þeirra, sem ekki eru þeim mun kunnugri lagasetn- ingu eSa þá lögum og reglum, sem á þessu sviSi, sem um er aS ræSa hafa gilt. Hér er átt viS frumvarp til laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. — Þó er bálkur þessi ekki ó- merkari en svo, aS meS sam- þykkt hans verSa numin úr gildi ýmis lagafyrirmæli, sem gilt hafa í nærfellt 700 ár. Þctta vekur aftur þá spurningu, liversu mörg lagafyrirmæli séu í gildi hér á landi frá fyrstu tímum lagasetningar á Islandi. Því er fljót- svarað, að með Iögtöku Jónsbókar um 1281 voru m.a. ýmis lagafyrir- mæli um málefni það, sem varð til- efni þessarar greinar, látin lialdast, sem eiga rót sína að rekja til þjóð- veldislaganna, Grágásar, svo sem um afréttir almenninga, ágang bú- fjár o. fl. Eru því þessi ákvæði að stofni til enn eldri en Jónsbók sjálf. Áratug í smíðum Það þarf heldur ekki lítils með, þegar settur er saman lagabálkur sem sá, sem nú liggur fyrir Alþingj, cnda hefur tekið um áratug að koma honum í það horf, sem hann birtist nú í, en þá er búið að leita umsagna frá mörgum aðilum víðs vegar um landið, enda hafa um þessi efni gilt ýmsar venjur í ómuna tíð, sem hafa verið ólíkar frá einni sýslu eða landshluta til annars. Sem fyrr segír hefur að mestu 1 þessum efnum verið stuðzt við Jónsbók og reyndar einnig við Rétt- arbót Eiríks konungs Magnússonar verið með lögtöku Jónsbókar, en landsmenn gátu ekki sætt sig við frá 1294. Með þeirri réttarbót var afnumið ýmislegt, sem sett liafði enda miðað við norska staðhætti. Enda þótt morg þessi ákvæði Jónsbókar hafi ekki verið numio beLnlínis úr gildi, fyrr en þá með þessu frumvarpi, ef að lögum verð- ur, getur risið spurning um laga- gildi þeirra. Sum eru auðvitað al- giörlega orðin úrelt og hafa því gengið sér til húðar, en ef ákvæðin verða ekki fyrnd talin, eða niður- fallin fyrir notktinarleysi eru þau enn gildandi lög um þessi efni. Ýmis ákvæði þeirra sem nú verða afnumin, eru fáorð og gagnorð. Hvort nútímalagasmiðum hefur tekizt það sarria við gerð þessa bálks skal ósagt látið,.en þeir sem áhuga bafa á gætu kynnt sér það með .satnanburði. Hér skal til gamans nefna nokkur ákvæði: „Eigi skulu réttir vera fyrr en VI vikur lifa sumars". „Svo skulu almenningar vera sem að fornu liafa verið, bæði bið efra og bið ytra.“ „Elver maður, er sauði á, skal ganga eitt sinn á fjall, og um land- areign sína bvert sinn er lögrétt skal vera“. Slík og þvíltk ákvæði eru gott dæmi um liversu gagnorðir forfeður okkar voru. Elztu lögin frá 1275 Annars er í Lagasafni frá 1965 elzti lagabálkurinn talinn vera Kristinréttur Árna biskups Þorláks- sonar frá 1275. Af honum lifa enn eftir 11. og 12. kapítuli. Segir svo í 12. kap., sem fjallar um kirkju- vígslu: „Vígja skal kirkju síðan er ger er .......... En ef kirkja brenn upp eða annars kostar spill- ist, svá at niðr fellr öll eða meiri hlutr, þá skal vígja endrgerva kirkju. En þó at kirkjuraf brenni, fúni ok niðr falli lítill hlutr af veggjum, þá skal eigi vígja endr- bætta kirkju ..........“ Hvort eftir þessu er svo farið nú á tímum út í yztu æsar, skal ekki fullyrt hér. Enn er í lögitm ýmsir bálkar úr Jónsbók,, sem var okkar helzta lög- bók um langan aldur. Hér áður var drepið á nokkur ákvæði varð- andi fjallskil og afréttir. Allmörg ákvæði önnur eru enn í lögum í sambandi við landbúnað, og eru þau ákvæði í Landsleigubálki Jóns- bókar. Má þar nefna t.d. ákvæði um skóga og spjöll á þeim og um löggarð um hey(girðingu) á ann- ars manns jörðu. Til fróðleiks og gatnans má nefna 29. kapitula, um elds ábvrgð, en þar segir: „Brenna má maðr sinu af jörð sinni, þar sem ltann vill, ok bæta skaða þann ailan, er öðrum mönnum verðr af .... ef hcfir þá eigi orlofs tij- beðit, cr næstir búa ....“ Um' fúlgufé og handvömm Úr Kaupabálki Jónsbókar eru nokkrir kapítular í lögum. Skal hcr til gamans tilfæra úr 17. kap. glefs- ur. Sá kafli fjallar um FÚLGUFÉ OG HANDVÖMM MANNA, en þar er ýmislegt í orðalagi sem kem» ur okkur nútímamönnum kynlegS fyrir sjónir, t.d. „Nú felr maðr búfé sitt inni at rnanni at fúlgumála ^ réttum, þá skal hann ábyrgjast við handvömmum sínum öllum. Þat eru bandvömm hans, ef hann svelt- ir eða drepr eða þeir nienn, er hann skal halda orði ok éiði fyrir. Þaí eru ok handvömm hans, ef halds- maðr hittir eigi fyrr en önd er úr, eða fellr fyrir berg ok fylgir eigi féliirðir", eða „Þat eru handvöjnm hans, ef drukknar í brunni eða kyrkir klafi“ eða þá þ.etta „Þat skal maðr eigi ábyrgjast, að kýr fái eigt kálfs, ef hann hefur graðung meS nautum sínutn." Ýmislegt hefur nú verið.týnt hér til, en af nógu slíku er að taka. Helztu bálkar aðrir, sem úr Jóns- bók ertt, og enn eru í I-agasafni 1965, ertt: Rekabálkur, Þjófabálkur, Kvennagiptingar og Mannbelgi. Þetta eru ásamt Kristinrétti Árna biskups, þeir elztu lagabálkar, sem enn eru í lögutn. Engin lög frá 1300—1700 Þegar litið er í umgetið Laga- safn, ketnur í Ijós, að frá því um 1300 og þar til árið 1607, eru cng- in ákvæði sein enn eru í lögum, en upp frá því er þó nokkuð af ákvæðum, sem eru enn við lýði. Þá er líka stjórn Dana kcftnin I alveldi. Þessir sundurlausu punktar, sem bér hafa verið tilfærðir eru engan veginn heilleg skrá utn lög frá þess- um tíma, en e.t.v. hefur einhverj- um orðið þetta til fróðleiks eða gam ans. — H. P.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.