Alþýðublaðið - 23.04.1969, Side 12
Alþýðu
hlaðið
Afgreiðslusími: 14900
Ritstjómarsímar: 14901, 14902
Auglýsingasími: 14906
Pósthólf 320, Reykjavík
Verð í áskrift: 150 kr. á mánuði
Verð f lausasölu: 10 kr. eintaki?
Flosí og vorið
Hér getur að líta okkar fjölhæfa
listamann, Flosa Olafsson, x sínu
fínasta vorskrúði. Hann er með
skemmtiþátt í sjónvarpinu kl. 20.50
í kvökl, „Vorið er komið“, og þar
•koma fram auk hans Sigríður Þor-
valdsdóttir, Margrét Guðmunds-
dóttir, Helga Magnúsdóttir, Egill
Jónsson, Gísii Alfreðsson, Karl
Guðmundsson, Ornar Ragnarsson
og Þórhallur Sigurðsson.
I bætur
I á frysti-
I húsi
I .
119. þessa mánaðar kom m.s. Ol-
afur Magnússon hingað með 70—
80 lestir af fiski, sem skipið hafði
veitt á Skagagrunni. Aflanuirx var
Ilandað til vinnslu í nýju frystihúsi
sem Valtýr Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri hefur byggt hér. —
IBygging hússins hófst árið 1966, og
var þá eingöngu miðað við síldar-
frystingu. Nokkuð var fryst af síld
árið 1967.
INú hefur Valtýr látið breyta hús-
inu og er það nú mjög vel útbúið til
Ibolfiskvinnslu. Vinna í húsinu 40—
50 manns. Valtýr Þorsteinsson og
skipstjórinn á Ólafi Magnússyni,
Gunnar Jóhannsson, eiga þakkir
Iskildar frá Seyðfirðingum fyrir þátt
þeirra í að bæta það ömurlega at-
vinnuástand, sem ríkt hefur hér að
undanförnu.
UMS0N
Irönsk kona Ijóstrar upp 16 ára gömlu
leyndarmáli
írönsk kona, sem á sínum
tíma var æskuvinkona Sor-
ayu fyrrverandi keisaradrotin
ingar, og síðar hirðmey hjá
keisarahjónunum, hefur nú
haldið því fram, að Soraya
hafi fætt keisaranum son ár-
lið 1953. Telur konan, að þessu
hafi af ásettu ráði verið hald
ið leyndu fyrir umheiminum,
en sem kunnugt er, skildi keis
arinn við Sorayu og kvæntist
Föruh ®ibu á þeim forsend-
um,að Soraya hefði ekki get
að alið honum son.
Konan, sem kemur nú fram með
þessa ótímabæru og að margra
dórni hæpnu fullyrðingu, heitir
Minr Soltan Sadeh og er fædd í
: Iran, en býr nú í Lausanne í Sviss.
Hún fór frá Iran sam dag og
skilnaðurinn varð með keisara-
hjónunum.
— Við Soraya duldum Iivor
aðra einskis, segir kona þessi. Við
gengum á sama skóia í Sviss og
höfðum mikið saman að sælda,
Og þegar Soraya giftist keisaran-
um, réð hún mig sem hirðmey.
. I. ágúst 1952 trúði Soraya mér
fyrir því, að hún væri með barni.
Bara, að það verði nú sonúr, sagði
hún oft. Við óskuðum þess báðar
af heilum hug, því að það hefði
stuðlað að því, að keisarinn festist
í sessi með þjóðinni. MossadeQ
réði lögum og iofum í Iran um
þessar mundir, og var lítt vin-
veittur keisaradæminu. Flins vegar
voru Iíkur til, að Mossadeq yrði
að láta í minni' pokann, fyrir
þeirri fagnaðaröldu, sem fæðing
ríkisarfa, hefði orðið þjóðinni á
þessuni erfiðu tímum. Af þeirri
ástæðu ákváðum við að reyna að
halda þunga drottningar leyndum
í lengstu lög. Auðvelt er að gera
sér í hugarlund, hversu auðhlaupið.
var að þessu! Njósnarar og flugu-
menn voru á hverju strái. Og
sjálfur bjó Mossadeq skammt frá
höllinni og fylgdist gjöria mc3
því, sem þar fór fram. Læstur sal<
ur í höliinni var því dubbaðua
Frh. á 4. síðu.