Helgarblaðið - 30.04.1992, Síða 4
Helgar 4 blaðið
Svo virðist sem verkalýðshreyfingin ætli að
beygja sig undir málamiðlunartillögu
ríkissáttasemjara. Forystumenn launafólks
hafa hver á fætur öðrum játað sig sigraða og
mæla með þvi að sáttatillagan verði samþykkt.
Þrátt fyrir stór orð í allan vetur, þar sem
atvinnurekendum og ríkisstjórninni hefur
verið hótað öllu illu, næðust ekki viðunandi
samningar, munu verkalýðsfélögin ganga til
atkvæða um samning sem færir launafólki lítið
sem ekki neitt.
JATAR
SIG
SIGRAÐA
Miðlunartillaga ríkissáttasemj-
ara felur í sér að launafólk stend-
ur í sömu sporum hvað kaupmátt
varðar og við lok þjóðarsáttar-
samninganna svokölluðu. Síðan
þá hefur kaupmáttur lækkað um
1,7%, sem er nákvæmlega sama
hækkun og lillaga sáttascmjara
gengur út frá. Að vísu mun lág-
launafólk fá eitthvað meira fyrir
sinn snúð, cn í tillögunni er gcrt
ráð fyrir sérstökum láglaunabót-
um sem miðast við laun undir 80
þúsund krónum á mánuði. Einnig
koma orlofs- og desemberuppbót
láglaunafólkinu vel.
Fólk vildi ekki átök
„Það urðu mér vonbrigði að
ekki tókst að semja um sama
kaupmátt og var í júní á síðasta
ári. Við slefndum að því marki.
Málið er að fólk virtist ckki lilbú-
ið í aðgerðir af neinu tagi, þannig
að ég tel að við mcgum vel við
miðlunartillöguna una,“ sagði
Bjöm Grétar Sveinsson; formaður
Verkamannasambands Islands.
Undir þessi orð Bjöms Grétars
tekur Ögmundur Jónasson, for-
maður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja.
„Það er meira en að scgja það
að fara í aðgcrðir og til þeirra er
ekki gripið fyrr en í lengstu lög.
Samstaðan um aðgerðir var ekki
fyrir hendi í þessum kjaraviðræð-
um og við verðum því að sætta
okkur við það sem í miðlunarti-
lögunni felst,“ sagði Ögmundur.
I stórum félögum, eins og stétt-
arfélög jafnan cru, verða skoðanir
félagsmánna ærið mismunandi. 1
kjaraviðræðunum undanfarna
mánuði kom fram að þótl forystu-
fólk vcrkalýðsfélaganna væri til-
búið í átök hlaut það lítinn stuðn-
ing almcnnra félaga.
Skýringar á þcssu cru jafn-
margar túlkcndunum. Björn Grét-
ar scgir að nútíma viðskiplahætlir
cigi þarna stóra sök.
„Fólk er alltaf búið að eyða
laununum sínum fyrirfram. Við-
skiptahættir í dag eru á þann veg
að fólk safnar upp skuldum og
trcystir sér ekki til að lcggja niður
vinnu vegna þess. Þetta var öðru-
vísi hér áður fyrr, þegar fólk gat
hagað eyðslu sinni eftir því hvað
það hafði mikla pcninga milli
handanna," sagði Björn Grétar.
Sveinþór Þórarinsson
Veik forysta
Páll Halldórsson tckur annan
pól í hæðina. Hann scgir að for-
ystan í verkalýðsfélögunuin sé
veik í dag. “Menn hafa vcrið með
allskonar yfirlýsingar sem þeir
hafa ekki getað staðið við þcgar á
hefur reynt. Aðildarfélög innan
BHMR, sem kannað hafa hug
sinna félagsmanna til aðgerða,
segja aö fólk sé tilbúið í allsherj-
araðgcrðir. Til þess að svo megi
vcrða þarf mikla samstöðu milli
stéttarfélaga um leiðir. Sú sam-
staða hefur ekki verið í kringum
þessar kjaraviðræður,“ sagði Páll.
Ögmundur Jónasson var spurð-
ur hvort forysta BSRB hefði ekki
brugðist miðað við yfirlýsingam-
ar fyrr í vetur, og hvort ekki væri
eðlilegt að hún segði af sér.
„Ég tel að foryslan hafi ckki
brugðist. Eins og staðan er í dag
var ekki hægt að ná betri samn-
ingum. Það var ljóst að viljinn til
verkfalla var ekki fyrir hendi, og
ef við íollumst ekki á tillögu rík-
issáttasemjara þýðir það margra
mánaða þvarg við samningaborð-
ið á ný. A meðan hækka launin
ekki og þær eingreiðslur sem
koma lægst launaða fólkinu til
góða í tillögunni koma þá ekki til
framkvæinda," sagði Ögmundur.
Með miðlunartillögu ríkissátta-
semjara fylgdi yfirlýsing frá rík-
isstjórninni um hvað hún væri til-
búin að gera vegna kjarasamning-
anna. Þeir sem bundu miklar von-
ir við það að ríkisstjómin kæmi
með tillögur til að bæta kjör
launafólks urðu sjálfsagt fyrir
miklum vonbrigðum.
Engin þjóöarsótt
„Yfirlýsingin frá ríkisstjórninni
er rýr að mínu mati,“ sagði Ög-
mundur Jónasson, og bætti því
við að þótt tillaga sáttasemjara
yrði samþykkt, þýddi það ekki
áframhaldandi þjóðarsátt.
Davíð Oddsson hefur í ljöl-
miðlum barið sér á brjóst vegna
þess að yfirlýsing ríkisstjómar-
innar þýði um eins miljarðs
kostnaðarauka ríkissjóðs. Það
getur verið að einhverjir af for-
ystumönnum verkalýðshreyfing-
arinnar séu ánægðir með þennan
árangur, cn hafa ber í huga að
ríkisstjórnin hefur, síðan hún
komst til valda, kreist þó nokkra
miljarða í niðurskurði velferðar-
kerfisins.
Ríkisstjórnin hefur nú þegar
tekið af skarið í vaxtalækkunum
mcð því að vextir á spariskírtein-
um voru lækkaðir úr 7,4% í 6,5%.
Þetta hcfur stjórnarandstaðan ít-
rekað bent á að þurfi að gera og
ber að fagna því að ríkisstjómin
sýndi loksins dug í sér til að
lækka vextina eftir ótímabæra
vaxtahækkun á síðasta ári.
Það er umhugsunarefni að
þurfa að karpa um hvort loka eigi
geðdeildum og öldrunardeildum í
kjarasamningi við atvinnurekend-
ur. Orð Ögmundar lýsa vel frum-
byggjahætti íslendinga í þessum
málum: „í siðaðra manna þjóðfé-
lagi á ekki að semja um slíka
hluti“.
Bjöm Grétar tekur undir þetta,
en segir að ekki hafi verið komist
hjá því að taka upp niðurskurðinn
á velferðarkerfinu. „Ég er þokka-
lega ánægður með ýmislegt sem
kemur frá ríkisstjórninni. Við
höfum komið í veg fyrir ýmsa
þætti sem áfonnaðir voru og
hefðu þýtt auknar álögur á Qöl-
skyldur í landinu," sagði Bjöm
Grétar.
Aðspurður um aðgerðir ríkis-
stjómarinnar vegna aukins at-
vinnuleysis, sagði hann að með
yfirlýsingu sinni væri ríkisstjóm-
in búin að taka á sig ábyrgðina.
„Ef hér verður viðvarandi at-
vinnuleysi er við engan að sakast
nema þessa ríkisstjóm. Hún hefur
lofað að vinna að eflingu atvinnu-
lífsins um allt land í samráði við
aðila vinnumarkaðarins. Hvort
hún vili gera það með erlendum
lántökum eða á einhvem annan
hátt er hennar mál,“ sagði Bjöm
Grétar.
Tímabær vaxtalækk-
un
Ögmundur sagði það mikilvæg-
an áfanga að ríkisstjórnin hefði
tekið við sér og lækkað vexti.
„Ég tel það miklu máli skipta
að vextimir séu lækkaðir. Há-
vaxtastefna ríkisstjómarinnar hef-
ur verið megin orsök gjaldþrota-
hrinu sem riðið hefur yfir at-
vinnulífið. Ef vextir em lækkaðir
tel ég von til þess að atvinnulífið
geti rétt úr kútnum.
Menn hafa leitt getum að því
að við hvert vaxtastig þurfi at-
vinnulífið að greiða 1500 miljónir
í vexti, þannig að það munar mik-
ið um hvert prósent sem vextirnir
lækka,“ sagði Ögmundur.
Um mánaðamótin mun megin-
þorri launafólks ganga til at-
kvæða um þessa samninga. Ef
fólk vill samþykkja þá getur það
allt eins setið heinta, því sam-
kvæmt lögum þarf ákveðið pró-
sentuhlutfall í hverju félagi til að
sáttatillaga teljist samþykkt.
Ef 35% félagsmanna í verka-
Iýðsfélagi greiða atkvæði í kosn-
ingum um sáttatillöguna telst ti-
lagan felld greiði helmingur
þeirra atkvæði á móti henni.
Þetta breytist hins vegar ef
kosningaþátttakan verður minni.
Á hvert prósentustig sem verður
undir 35% þarf eitt prósentustig
til viðbótar við 50% til að fella
tillöguna. Ef kosningaþátttakan
nær ekki 20% telst tillagan hins
vegar samþykkt þó svo að allir
kjörseðlar segi nei.
Fimintudagurinn 30. apríl