Helgarblaðið - 30.04.1992, Page 17

Helgarblaðið - 30.04.1992, Page 17
Helgar 17 blaðið Jan Timman eða Nigel Short teflir við Kasparov Þau tíðindi spyrjast frá bæn- um Linares á Spáni að enska vonin Nigel Short hafi lagt A- natolij Karpov að velli með sex vinningum gegn ijórum. Þar með heldur hann áfram í keppn- inni um réttinn til að skora á heimsmeistarann Garrij Ka- sparov og brýtur í mola hið mikla veldi Karpovs sem staðið hefur óslitið í nær 20 ár. Vissu- lega tókst Kasparov á sínum tíma að hrifsa til sín krúnu heimsmeistara en Karpov var áður settur á stall sem einhvers- konar varaheimsmeistari. Hann hefur aldrei áður tapað í einvígi fyrir öðrum en Kasparov og allt- af eftir harða keppni. Short vann tiundu skákina sl. þriðju- dag og jók þar með við forskot sitt. Annar góðvinur okkar íslend- inga, hollenski stómieistarinn Jan Timman, hefur einnig klárað sitt mál með miklurn sóma; hann lagði Artur Jusupov að velli með sömu tölum, sex vinningum gegn fjór- um. Kannski fannst Karpov eins og flestum öðrum að sjötta einvígið hans við Kasparov væri einum of mikið af því góða. Vissulega olli síðasta einvígi engum vonbrigðum skrifar í skáklegu tilliti, þvert á móti, en einvígi Kasparovs við Vestur- landabúa, hvort heldur sem hann heitir Jan Timman eða Nigel Short, er það sem fólk vill og aðili í Los Angeles hefur þegar heitið 6 miljónum dala í verðlaunafé. Jan Timman hefur siglt ótrúlega létt í gegnum þrjú fyrstu einvígin. Hann sigraði Robert Hiibner ör- ugglega 5 1/2; 3 1/2, síðan Viktor Kortsnoj með sömu tölum og nú Jusupov 6:4. Þess má geta að í upphafi árs 1986 tapaði Timman íýrir þessum sama Jusupov með miklum mun, 3 1/2:6 1/2, og hefur því náð að hefna sín rækilega. Þeð liggur í augum uppi að hvorki Short né Timman eiga mikla möguleika gegn Kasparov eins og staðan er í dag. Ég hallast að því að Short eigi að vinna Tim- man þótt vissulega hafi maður taugar til Hollendingsins lífsglaða sem þvert ofan í hrakspár ýmsar heldur áfram göngu sinni að heimsmeistaratitlinum. Short tefldi af sannfærandi ör- yggi gegn Karpov, tapaði fyrstu skákinni en tefldi siðan hverja skákina af annarri af miklu öryggi. Það væri mikill sigur fyrir enska skáklist nái Short þvi marki að tefla við Kasparov. Hann hefur heldur vinninginn gegn Timman en þess má geta að nýlega tefldu þeir stutt einvígi sem lauk 3:3. Lítum á síðustu skák Timmans og Jusupovs sem varð að vinna til að jafna. Það hafði hann leikið gegn Dolmatov og Ivantsjúk og síðan unnið í styttri skákum en nú var þrautin þyngri: 10. einvígisskák: Jan Timman - Artur Jusupov Sikilevjavörn 1. e4 c5 2. RO Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Nigel Short Rc3 0-0 8. Be2 b6 9. 0-0 Bb7 10,. ORh5 11. Rdb5 a6 12. Ra3 Hb8 13. f4 Bxc3 14. bxc3 Rf6 15. e5 Re4 16. Del d6 17. BO Ra5 18. f5 gxf5 19. Bh6 Kh8 20. Bxf8 Dxf8 21. exd6 Rxd6 22. Hbl Re4 23. De3 Dg7 24. Dxb6 Dxc3 25. Bxe4 Dxa3 26. Hxf5 Rxc4 27. Dd4+ f6 28. Hxf6 e5 29. Da7 Hfd8 30. Dxb7 - og Jusupov gafst upp. Kasparov og Ivantsjúk efstir i Dortmund Garrij Kaspaerov heimsmeistari í skák og Vasilij Ivanstjúk deildu efsta sæti á stórmótinu í Dortmund sem Iauk fyrir skömmu. Tíu skák- menn tóku þátt í mótinu og hlutu efstu menn 6 vinninga. Evgenij Baarev varð í 3. sæti með 5 1/2 vinning og í 4. sæti varð lndverj- inn Anand með 5 vinninga. Gata Kamsky og Valeri Salov deildu fimmta og sjötla sæti með 4 1/2 vinning, Robert Hubner varð í 7. sæti nteð 4 vinninga, þvínæst komu Adams og Shirov með 3 1/2 vinning og lestina rak Piket með 21/2 vinning. Kasparov náði lvantsjúk að vinningum með því að vinna Val- eri Salov í síðustu untferð. Ekki síðan á Sovétmeistaramótinu 1981-'82 hefur hann tapað tveim skákurn á sama mótinu; fyrst tap- aði hann fyrir Gata Kamsky og síðan Robert Hiibner. En fimm glæsilegir sigrar bættu þetta upp. Lítum á viðureign hans við sig- urvegarann á síðasta Reykjavíkur- móti: 1. umferð: Garrij Kasparov - Alexei Shirov Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. O O-o 6. Be3 e5 7. Rge2 c6 8. Dd2 Rbd7 9. 0-0-0 a6 10. Kbl b5 ll.Rcl exd4 12. Bxd4 He8 13. Bxf6 Dxf6 14. Dxd6 Dxd6 15. Hxd6 Re5 16. f4 Rg4 17. e5 Rf2 18. Hgl Bf5+ 19. Kal b4 20. Ra4f6 21.e6 Hxe6 22. Hxe6 Bxe6 23. Be2 f5 24. Rb3 Bf7 25. Ra5 Hd8 26. Hfl Rg4 27. Hdl Hxdl+ 28. Bxdl Re3 29. BO Rxc4 30. Rxc6 a5 31. Rd8 Rd2 32. Bc6 Bh6 33. g3 Rfl 34. Rb6 rxh2 35. Rd7 Bg7 36. Re5 Bxe5 37. fxe5 KO 38. c6 Be8 39. Bxe8 Kxe8 40. Rc6 Rfl - og Shirov gafst upp. Lobron efstur í New York Þýski stórmeistarinn Erik Lo- bron varð efstur á Opna New York-mótinu sem lauk um pásk- ana. Hann hlaut 7 1/2 vinning úr 9 skákum. Þrír íslenskir stórmeistar- ar tóku þátt i mótinu sem var vel skipað. Jón L. Amason hlaut 6 vinninga en Margeir Pétursson og undirritaður hlutu 5 vinninga. Hrafin stefinir Helgarblaðinu Hrafn Gunnlaugsson kvik- myndaleikstjóri hefur farið fram á það við siðanefnd Blaða- mannafélags Islands að nefndin úrskurði hvort grein um Hrafn, sem birtist í 2. tölublaði Helgar- blaðsins, brjóti í bága við siða- reglur Blaðamannafélagsins. Greinin sem um ræðir nefnist Hrafnsins helgu vé og Qallar um umsvif Hrafhs í íslenskri kvik- myndagerð og gagntýni á hann frá kollegum hans í i'aginu. Greinin var rituð af Sigurði A. Friðþjófs- syni. Lögfræðingur Hrafns, Magnús M. Norðdahl hdl., sendi Helgar- blaðinu langa greinargerð um ákæruatriði og óskaði eftir birt- ingu á henni auk þess sem blaðið drægi ýmis ummæli í greininni til baka með jafn áberandi hætti og þau voru upphaflega birt og Hrafn beðinn afsökunar á þeim, ella muni hann leita til dómstóla. Nýjar reglur siðanefndar kveða á um að nefndin taki ekki afstöðu til mála sem reka á fyrir dómstól- um. Nefndin mun að öllum líkind- urn taka afstöðu til þess hvort kæra Hrafns verði tekin til um- fjöllunar áður en langt um líður. Blaðið stendur við greinina sem birtist upphaflega og sér því ekki ástæðu til að verða við kröfu Hrafns. Tvö smáatriði í greininni er þó rétt að leiðrétta, en það er sú fúllyrðing greinarhöfundar að Hrafn hafi ekki verið búinn að skila af sér sjónvarpsleikriti Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra, Allt gott, þegar greinin var rituð. Hrafn mun hafa skilað leikritinu 25. janúar, tveimur vikum áður en greinin birtist. Eftir stendur að Sjónvarpið hafði áformað að sýna leikritið um jólin, en afþví gat ekki orðið vegna þess að mynd- inni var ekki lokið fyrr en eftir jól. Hitt atriðið er að í greininni er íbúð við Hagamel sögð ein af þeim íjórum fasteigniun sem Hrafn er sagður eiga. I bréfi lög- fræðingsins segir að Hrafn hafi átt hlut í íbúð þar með fyrrverandi eiginkonu sinni og tengdaföður þar til fyrir nokkrum árum. Er Hrafn beðinn velvirðingar á þess- um mistökum. Að öðru leyti stendur Helgarblaðið við greinina og sér því ekki ástæðu til að verða við kröfú Hrafns. Ritstj. Tónlist: Listasafn íslands: Þriðjudaginn 5. maí kl. 20.30: Trio Borealis, flytur tvö tríó frá rómantíska tima- bilinu eftir Max Bruch og Emil Hartmann, auk tríós eftir Þorkel Sigurbjömsson. Einnig sellósónötu eftir Claude Debussy og klarí- nettsónötu eftir Francis Pou- lenc. Norræna húsið: 1. maí kl. 16: Norrænir vísnadagar hefjast. Aðgang- ur 800 kr. Sunnudagur ki. 17: Tónleik- ar á vegum vcrkefnisins Norræn tónlist í skólum. Kl. 20.30: Bjöm Afzelius með tónleika. Aðgangur 1200 kr. Gerðuberg: Laugardaginn 2. maí kl. 16: Kuran Swing leikur eigin tónlist í bland við gamla standarda. Njarðvíkurkirkja: Föstudaginn 1. maí kl. 17: Trio Borealis. Tónlistarskóli Akraness: Laugardaginn 2. maí kl. 17: Trio Borealis. Þorlákskirkja, Þorlákshöfn: Sunnudaginn 3. maí kl. 17: Trio Borealis. Myndlist Kjarvalsstaðir: Vestursalur: Japönsk grafik. Austursalur: Teinkingar Kjarvals. Austurforsalur: Ljóð Kristjáns Karlssonar. Vesturforsalur: Margrét Zóphaniasdóttir sýnir gler- verk. Listasafn Islands: Sýning á verkum Nínu Sæ- mundsson. Lýkur 17. maí. Finnur Jónsson í Listasafn- inu. Síðasta sýningarhelgi. Lýkur 3. maí. Norræna húsið: Sýning á ljósmyndum nem- enda frá Konstfackskolan í Stokkhólmi opnuð í dag, fimmtudagkl. 15. Lýkur 10. maí. Hafsilfúr, sýning á silfúr- munum eftir Sigurð Þórólfs- son opnuð í anddyri laugar- daginn 2. maí kl. 14. Lýkur 17. maí Nýlistasafnið: Kees Visser. Lýkur 3. maí. FIM-salurinn: Margrét Jóndóttir sýnir olíu- málverk. Lýkur 10. maí. Gerðuberg: Andrés Magnússon opnar málverkasýningu í Kaffi Gerði, veitingabúð menning- armiðstöðvarinnar laugar- daginn 2. maí. Landslags- myndir unnar með olíu. Sýn- ingunni lýkur 19. maí. Ami Sigurðsson sýnir teikn- ingar og litógraflur. Lýkur 19. maí. Verk i eigu Reykjavíkur- borgar til sýnis. Nýhöfn: Asgerður Búadóttir sýnir myndvefnað. Tiu verk ofin úr ull og hrosshári á árunum 1989-1992. Lýkur 13. maí. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Farandsýningunni Sigurjón Ólafsson Danmörk-Island 1991 lýkur sunnudaginn 3. maí. Gallerí Eniil, Austurstræti 6:Helgi Valgeirsson sýnir málverk. Lýkur 10. maí. Leikhús Þjóöleikhúsið: Elín, Helga, Guðriður: fimmtudag og fostudag kl. 20. Emil í Kattholti: laugardag kl. 14 (uppselt) og kl. 17 (ör- fá sæti laus), sunnudag kl. 14 og 17 (örfá sæti laus). Kæra Jelena: Uppselt á allar sýningar til og með 24. maí. Ég heiti ísbjörg: laugardag, sunnudag og miðvikudag kl. 20.30. Leikfélag Reykjavíkur: Þrúgur reiðinnar: fimmtu- dag, föstudag, laugardag, þriðjudag og fimmtudag (uppselt á allar sýningar). Sigrún Astrós: fostudag og laugardag. Óperusmiðjan: La Boheme: Sunnudag og miðvikudag. Leikfélag Akureyrar: íslandsklukkan: fostudag og laugardag kl. 20.30. Nýi tónlistarskólinn: Álfa- drottningin: föstudag og þriðjudag kl. 20.30. Hugleikur: Fermingarbamamótið: fimmtudag og laugardag kl. 20.30 (uppselt á báðar sýn- ingar). Garðaleikhúsið, Félagsheimili Kópavogs: Luktar dyr: föstudag kl. 20.30. And-leikhúsið, Tunglinu: Danni og djúpsævið bláa: laugardag kl. 21. Annab: Sóknarsalurinn, Skipholti 50A: Starfsmannafélagið Sókn og Verkakvennafélagið Fram- sókn bjóða félagsmenn vel- komna í 1. maí kaffi að úti- fúndi loknum. Húsið opnað kl. 15. Styrkur til tónlistamáms Eins og áður hefur verið auglýst mun Minningarsjóður Lindar hf. um Jean Pierre Jacquillat veita á þessu ári tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári, 1992/93. Veittur verður einn styrkur að upphæð kr. 600.000.-. Styrkur þessi verður sá fyrsti sem sjóðurinn úthlutar. Athygli skal vakin á því að umsóknir með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform sendist fyrir 15. maí n.k. til formanns sjóðsins Erlendar Einarssonar Selvogsgrunni 27 104 Reykjavík Umsókn fylgi hljóðritanir, raddskrár og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Tónlistarfólk sem hyggur á nám í Frakklandi kemur að öðru jöfnu frekar til greina en slíkt er þó ekki skilyrði. Fimmtudagurinn 30. april

x

Helgarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.