Dagblaðið - 08.09.1975, Page 3
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975.
3
Friðrik
í 7.-11.
sœti
Friðrik og Hort gerðu jafntefli i
6. umferðinni á skákmótinu i
Middlesborough sem var tefld i
.gærkvöldi. Bronstein vann
Smyslov og Hubner Stean. Lom-
bardy og Kavalek gerðu jafntefli,
einnig Timman og Georghiu. Bið-
skákir urðu hjá G.eller og Harston
og Sax og Niles. Friðrik er i 7.-11.
sæti.
' -Bronstein hefur forystu með 4
1/2 vinning. 2. er Hubner með4, 3.
Sax með 3 1/2 og biðskák.
1 4. sæti er Geller með 3 og bið-
skák. 5. er Hort með 3. Siðan
kemur Timman með 2 1/2 og
biðskák. 1 7.-11. sæti eru Friðrik,
Smyslov, Georghiu, Kavalek og
Stean með 2 1/2 vinning.
Harston hefur 2 og biðskák,
Lombardy 2, Keene 1 1/2 og Miles
1/2 og biðskák.
—HH
80 Norður
landahjúkrunar-
konur þinga
ó Loftleiðum
Vinnuskilyrði hjúkrunar-
fræðinga innan og utan stofnana
verður aðalviðfangsefni 80 full-
trúanna á fulltrúafundi Samvinnu
hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndunum. Fundur þeirra hefst á
Hótel Loftieiðum á morgun og
stendur til 12. september.
Þeir þættir sem kannaðir
verða, eru fyrirkomulag stjórn-
unar, ábyrgðar—iog verkaskipt
ing, starfsmannamál, vinnuvernd
og ráðstöfun mannafla og fjár-
magns. Fjallað verður um efnið i
nefndum.
— JBP —
Er kynþáttum mismunað hér á landi?
ENGINN VILL LEIGJA
FJÖLSKYLDUNNI ÞEGAR
INDVERJINN BIRTIST
Asdis Gunnarsdóttir er gift
Indverjanum Ikram Ahssan og
hafa þau verið búsett hér á landi
frá þvi árið 1973. Fljótlega eftir
aö þau komu til l'andsins byrj-
uðu þau að leita að ibúð til leigu,
til að eiga sér einhvers staðar
samastað. Og enn þann dag i
dag leita þau. 1 tvö ár hafa þau
verið á eilifum hrakhólum með
húsnæði. Og hver skyldi ástæð-
an vera fyrir þvi að i rúm tvö ár
hafi þau ekki getað fengið ibúð
til langframa? Jú, ibúðareig-
endur á Stór-Reykjavikursvæö-
inu virðast ekki vilja hafa neitt
meö litað fólk að gera.
Ef þau auglýstu eftir Ibúð,
gáfu upp simanúmer og einhver
hringdi, var eins og gengur og
gerist spurt, hver þau væru. Og
er i ljós kom að húsbóndinn var
Indverji var tólinu ýmist skellt
á eða þá að leigan hækkaði
skyndilega upp úr öllu valdi.
Einnig vissi Ásdis um Ibúöir
er lágu á lausu, en ef hún setti
sig i samband viö húseigand-
ann, var hann ekki reiðubúinn
til að leigja hana, heldur beið
þar til hann fékk „ólitaða” fjöl-
skyldu til að fiytja inn.
Heldur er þetta leiðinleg
reynsla íslendings af samlönd-
um sinum, sem stæra sig þó af
frjálslyndi og viösýni á allan
máta.
Ásdis auglýsir eftir húsnæði
eins og svo margir aðrir i smá-
auglýsingum Dagblaðsins I dag.
-BH-
A myndinni sjást Asdfs og Ikram ásamt börnunum sinum tveim Selmu 2ja ára og óskirðum 2ja mánaða
á heimiii foreldra Asdisar.
VILTU
BREGÐA ÞÉR TIL
- áskrifendur DAGBLAÐSINS fá að
keppa um draumareisu til Suðurhafs-
eyja, Disneylands og New York
1. Hvað heitir höfuðborgin i Astraliu?
A: Canberra
B: Sydney
C: Melbourne
HAWAII?
DAGBLAÐIÐ efnir til
getraunar fyrir áskrif-
endur sina, sem þegar
fyrir útkomu blaðsins
voru orðnir f jölmargir;
skiptu þúsundum.
Getraunin okkár er nokkuð
einföld — og þó. Varizt gildr
urnar. Þekktu borgirnar þurfa
ekki endilega að vera höfuð-
borgir. Kannski er réttast að slá
upp i alfræðioröabókinni?
1 átta fyrstu tölublöðumDAG-
BLAÐSINS verður sem sagt
getraun og sá heppni, sem sigur
hlýtur, fær að launum
HAWAII-FERÐ FYRIR 2
MEÐ VIÐKOMU I NEW YORK
OG DISNEYLANDI.
Islendingar ferðast gjarnan
suður á bóginn, en til Hawaii
hafa vist ekki margir komið. En
hvað um það. Tveir heppnir
Dagblaðslesendur eiga væntan-
lega eftir að sóla sig á Waikiki-
ströndinni frægu og njóta lysti-
semda þessara frægu Kyrra-
hafseyja. Svo liggur leiðin til
Kaliforniu, þar sem Disneyland
verður heimsótt, og þaðan
norður á bóginn til New York og
heim.
Lesendur ættu að klippa get-
raunina út, safna henni saman
og senda siðan bunkann, átta
myndir samtals, með krossi vifl
rétta svariö til: DAGBLAÐS-
INS, Siðumúla 12, merkt Get-
raun.Svör skulu hafa borizt eigi
siðar en 4. október n.k.
Dagblaðið
83322
Ritstjórn
Afgreiðsla
Auglýsingar
Beinar linur:
85112 - 85119 Ritstjórn
Notið beinu línurnar,
þegar 83322 er á tali
UMBOÐS-
MENNIRNIR
OKKAR
Akranes: Þorsteinn Óskarsson
Krókatún 5. Akureyri: Pálmi
Ólafsson, Blaðavagninn. Borgar-
nes Björn Arason. Dalvik: Jó-
hann Tryggvason, Asvegur 13D.
Egiisstaðir: Gunnar Vignisson,
Brúarland. Eyrarbakki: Þuriður
Þórmundsdóttir, Túngata 55.
Grindavik: Sjöfn Sveinsdóttir,
Mánagerði 2. Grundarfjörður:
Ágúst Elbergsson, Fossahlið 7.
Hafnarfjörður: Kristin Sölvadótt-
ir, Garðavegur 9. Hella: Helgi
Einarsson, Laufskálar 8. Hellis-
sandur — Rif: Hrafndis Halldórs-
dóttir, Naustabúð 18, Helliss.
Hornafjörður: Þorsteinn Gisla-
son, Hrisbraut 1. Húsavik: Þórar-
inn Stefánsson, Bókaverzlunin.
Hvalfjörður: Benzinsalan, Oliu-
stöðinni. Hvammstangi: Verzl.
Sig. Pálmasonar. Hverageröi:
Helga Eiriksdóttir, Laugaland.
Hvolsvöllur: Sigriður Magnús-
dóttir, Stórageröi 21. Isafjöröur:
Olfar Ágústsson, Sólgata 8.
Keflavik: Sig. Sigurbjörnsson,
Hringbraut 92A. Mosfellssveit:
Kaupfélag Kjalarnesþings,
Brúarlandi. Neskaupstaður:
Helga Axelsdóttir, Urðarteigur
14. Patreksfjöröur: Björg
Bjarnadóttir, Aöalstræti 87.
Reyðarfjöröur: Friðjón Vigfús-
son. Sandgeröi: Oddný Jónas-
dóttir, Holtsgata 8. Selfoss: Pétur
Pétursson, Engjavegur 49.
Seyðisfjörður: Gisli Blöndal,
Túngata 11. Siglufjörður: Friö-
finna Simonardóttir, Aragata 21.
Staðarskáli: Staðarskáli, Hrúta-
firöi. Stokkseyri:Páll Bjarnason.
Stykkishólmur: Hanna Jónsdótt-
ir, Silfurgata 35. Vestmannaeyj-
ar: Helgi Sigurlásson, Brimhóla-
braut 5. Vogar: Margrét Péturs-
dóttir, Kirkjugerði 3. Ytri- og
Innri Njarðvik: Steindór Sigurös-
son, Klapparstlgur 10Y-Nj. Þing-
eyri: Páll Pálsson, Fjaröargata
52. Þorlákshöfn: Franklin Bene-
diktsson, Skálholtsbraut 3.
Borgarfjarðarbrúin:
Kafarabátur
dró mann-
virkin með
sér niður
Brúargerðin yfir Borgar-
fjörö kemur til með að tefjast
nokkuð vegna þess að kafara-
báturinn Orion lagðist á hlið-
ina og sökk á iaugardags-
morguninn.
Fregnir af þessu óhappi eru
enn fremur óljósar, en eftir
þvi, sem næst veröur komizt,
gerði mikiö flóð, og Orion, sem
bundinn var við mannvirkin
sökk og dró þau með sér. i
fyrstu var taliö aö þarna væri
tveggja mánaða vinna farin i
súginn, en er við höfðum sam-
band upp i Borgarfjörö i gær-
kvöld var okkur tjáð að tjónið
væri ekki mjög mikið, en nóg
samt. . —AT