Dagblaðið - 08.09.1975, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.09.1975, Blaðsíða 5
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975. 5 Sunnuflöt, Garðohreppi Vorum að fá i sölu eitt glæsi- legasta einbýlishúsið á Stór-Reyk ja vikurs væðinu. Húsið er 270 ferm ásamt 80 ferm kjallara, sem I eru 2 bilskúrar, ásamt 2 geymsl- um. ibúðarhæðin skiptist i 2 samliggjandi stofur, hús- búndaherbergi, sjónvarps- herbergi, hjónaherbergi og 3 barnaherbergi. Inn af eld- húsi er þvottahús og búr. Hér er um að ræða eign I algjör- um sérflokki. Allar nánari upplýsingar gefnar á skrifstofunni. Eignamarkaðurinn FASTEIGN ER FRAMTÍÐ 2-88-88 Við Austurbrún 4ra herb. ibúð I þribýlishúsi. 3 svefnherbergi, stofa, sér- þvottaherbergi m.m. 45 fm bllskúr. Sérhiti. Sérinngang- ur. t Norðurbænum, Hafnarfirði 3ja herb. vönduð Ibúð. Sér- þvottaherbergi. Stórar suð- ursvalir. Góð sameign. 1 Breiðholti 2ja herb. glæsileg Ibúð. Vandað tréverk. Góð sam- eign þ.á.m. vélaþvottahús og frystigeymsla. Frágengin lóð og bílastæði. í Hafnarfirði 2ja herb. kjallaraíbúð. Sér- inngangur. Laus fljótlega. Við Leirubakka 4ra herb. ibúð á 2. hæð: Suð- ursvalir. Góð sameign. Við Eskihlið 4herb. ibúðfað auki eitt Ibúð- arherbergi I kjallara. Sérverzlun. Til sölu sérverzlun við Laugaveg. AÐALFASTEIGNASALAN Austurstræti 14, 4. hæð Simi 28888 kvöld- og helgarslmi 82219. SÍMIMER 24300 í Hliðahverfi 5 herbergja efri hæð um 130 ferm með sér hitaveitu. Bil- skúr fylgir. Nýtt raðhús um 140 ferm hæð og 73 ferm kjallari I Breiðholtshverfi. Efri hæð og ris kjallari I Breiðholtshverfi. bergja ibúð með svölum og rishæðin 2 herbergi, eldhús og baðherbergi I steinhúsi við Þórsgötu. Sér inngangur og sér hitaveita. Við tjörnina 4 herbergja ibúð um 110 ferm á 4. hæð. Laus næstu daga. Útborgun 4 millj., sem má skipta. Kópavogskaupstaður Einbýlishús parhús og 3ja—6 herbergja ibúðir. Einnig fok- helt raðhús. Litið einbýlishús 3 herbergja ibúð ásamt skúr- byggingu á eignarlóð I skipt- um. útb. helzt 3 millj. Við Viðimel 2ja herbergja kjallaraibúð með sérinngangi. Útborgun 2—2,5 millj. Nýja fasteignasalan Simi 24300 Laugaveg 1 2 utan skrifstofutíma 18546 Auglýsið í Dagblaðinu Italir bezt klœddir Ford í sókn Ford Bandarikjaforseti hefur aukið forskot sitt gagnvart þeim flokksbræðrum, sem helzt koma til grcina sem frambjóðendur við forsetakosningarnar næsta ár. 45afhverjum 100 repúblikönum völdu Ford i Gallupkönnun. Ronald Reagan, fylkisst jóri i Kalifomiu, varð næstur, en fékk aðeins 19 af hundraði atkvæða. Þá kom Barry Goldwater öldunga- deildarþingmaður með 11 af hundraði. Reagan, sem enn hefur ekki lýst þvi formlega yfir, að hann verði i framboði, hefur að undan- förnu verið á niðurleið. Hann hef- ur mest fylgi meðal hinna ihalds- sömustu. 800 milljónir kunna ekki að lesa Meira en 800 milljónir manna kunna ekki að lesa eða skrifa, og þeim fer fjölgandi. Þetta eru niðurstöður skýrslu Sameinuðu þjóðanna um málið. Skýrslan segir, að áhugaleysi valdi mestu um ólæsið. Mikið hef- ur verið gert viða um lönd, þar sem vandinn er mestur, en al- menningur hefur ekki áhuga. Þó eru dæmi um, að vel hafi tekizt. Þannig minnkaði ólæsi á Kúbu úr 23 af hundraði niður i 4 af hundraði árið 1961, þegar stjórn- völd sneru sér fullum fetum að lausn vandans. Skólum á Kúbu var lokað, svo að nemendur gætu farið um landið og kennt öðrum lestur og skrift. Franskir karlmannafatahönn- uðir hafa kjörið italska karl- menn bezt klæddu menn heims- ins. Bandarikjamenn og Rússar eru aftur á móti verst klæddir — og deila með sér neðsta sætinu I könnun, sem hönnuðirnir hafa gert með sér i Paris, þar sem nú stendur yfir sýning á haust- og vetrartizku karlmanna. t öðru sæti voru franskir karl- menn og spánskir og s-ameriskir jafnir i þriðja sæti. Belgir lentu i fimmta sæti, en i sjötta sæti voru Bretar, V-Þjóðverjar og Japanir. Þetta er stúlkan, sem ætlaði að myrða Bandarlkjaforseta, Lynn Fromn. Charles Manson, sem talinn er vera hennar „guð”, var yfir- heyrður I nótt. Lítiö hafðist upp úr þvf. Hann neitar að hafa átt þátt I málinu. Fjöldaflutningur fólks frá jarðskjálftasvæðun- um i Lice i Tyrklandi, þar sem miklir jarð- skjálftar urðu um há- degi á laugardaginn, hófust i morgun. í borg- inni og næsta nágrenni hafa a.m.k. 1700 manns farizt og óttazt er, að endanleg tala látinna geti náð 3000. Fjöldi farartækja, bæði her- flutningavagnar og aðrir, hefur verið notaður til að flytja fólk frá eyðileggingunni og hefur fólk ekki annað með sér en samanvöðluð föt i bögglum. Mörgum stundum eftir aðal jarðskjálftann, sem mældist 6,8 stig á Richter, mátti enn finna fyrir smávægilegum jarðhrær- ingum,og Reuter-fréttastofan hefur eftir tyrknesku Anatolin- fréttastofunni, að fólk þori ekki einu sinni inn i þau hús, sem þó standa ennþá. Tjaldborg spratt upp utan við rústir Lice og rikis- útvarpið tyrkneska sagði i morg- un, að mikil áherzla væri lögð á að koma lyfjum og matarbirgð- um á st-aðinn. Nokkrir þeirra, sem komust af, fengu mat i gær, en flestir urðu að láta sér nægja eigið brauð. Hinir einbeittustu meðal múhameðs- trúarmanna neyttu þó hvorki matar né drykkjar i allan gær- dag, heldur virtu fyrsta dag föst- unnar, sem stendur frá sólarupp- — Eldur gaus upp, hús hrundu rás til sólarlags. Aðrir létu undan lögreglu vegna heilsu sinnar. 1 Lice létu minnst 700 lifið og rúmlega 1000 byggingar, heimili, skólar, bænahús og sjúkrahús jöfnuðust við jörðu. 1500 manna björgunarlið leitar i rústunum. Átta þúsund manns bjuggu i Lice, þegar jarðskjálftinn hófst. Að sögn sjónarvotta féll stórgrýti úr fjalli fyrir ofan bæinn, mikill eld- ur kom upp viða i bænum og hús féllu saman og krömdu ibúana til bana. — Uppbyggingin getur tek- ið mörg ár. RKI EKKI BEÐINN UM HJALP Eggert Asgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, sagði Dagblaðinu i gærkvöldi, að ekki hefði enn borizt formleg hjálparbeiðni frá tyrkneska „Rauða hálfmánanum”, þannig að enn hefði RKt engar ráðstafanir gert til hjálpar bágstöddum þar eystra. Erlendar fréttir OMAR VALDIMARSSON FJALLIÐ RIFNAÐI Spasskí vill kvœnast franskri — en sovézk yfirvöld hóta brúði hans mólsókn Sovézka skákstjarnan Boris Moskvu. Hún sagði fréttamönn- Spasskí hefur sótt um leyfi til um igærkvöldi, að hún hefði feng- sovéskra yfirvalda til að kvænast ið fyrirmæli um að fara úr landi, franskri stúlku, áöur en hún þarf áður en brúðkaupið fer fram 11. að fara úr landi i Sovét, aö þvi er nóvember. Spasski sagði i dag. Fyrirmælin fékk hún frá u V""11,?13 ^auSA Mar'na Stcher- franska sendiráðinu, eftir að batcheff, er þritug að aldri og sovéska utanri^isráðuneytið starfar sem ritari viö viðskipta- hafði varað við þvi, að færi hún deild franska sendiráðsins I ekki úr landi, gæti hún átt yfir höfði sér málsókn vegna um- ferðarslyss, sem hún flæktist inn i á siðasta ári. Spasskí, sem tapaði heims- meistaratitli sinum hérlendis fyr- ir Bobby Fischer fyrir þremur ár- um, sagði I gærkvöldi, að hann hefði skrifað sovézku leyfisbréfa- skrifstofunni og farið fram á að fá að kvænast frönsku stúlkunni, en ekkert svar hefði borizt. Spasskl sagðist hafa vitnað i málsgrein úr Helsinkisamkomu- laginu um öryggismál Evrópu, sem evrópskir þjóðarleiðtogar undirrituðu i siðasta mánuði, þar sem þvi var lofað, að hjónabönd fólks úr austri og vestri yrðu ekki tafin. Leyfisbréfaskrifstofan i Moskvu hefur ákveðið, að brúð- kaupið fari fram 11. nóvember, en ungfrú Stcherbatcheff sagði sendiráð sitt hafa tjáð sér, að hún yrði að hætta vinnu þar 30. september, jafnvel þótt upphaf- legur vinnusamningur hennar eigi ekki að renna út fyrr en i júli 1977. Spassklog Larissa I Laugardalnum 1972: Þá þegar gengu sögur um stirölega sambúð þeirra hjóna og hefur jafnvel getum verið aö þvl leitt, að það hafi átt sinn þátt i tapi Spasskls gegn Fischer. Umferðarslysið, sem Marina átti óbeinan hlut að i fyrra, varð á sinum tima ekki til þess, að hún væri kölluð fyrir rétt, enda haföi hún lánað Rússa nokkrum bil sinn. Sovézka utanrikisráðuneyt- iö segir hinsvegar nú, að vegfar- andi, sem fyrir bilnum varð án þess þó aö hljóta alvarleg meiðsli, Ihugi að stefna henni. Heimsmeistarinn fyrrverandi og ungfrú Stcherbatcheff, sem er frá Allemont i nágrenni Grenoble, kynntust i nóvember á siðasta ári. Giftingaráætlanir þeirra voru kunngerðar af franska sendiráð- inu i Moskvu skömmu fyrir mánaðamótin. Þau hafa undanfarið búið i Ibúð hennar i útlendingahverfi I út- hverfi Moskvu. Spasski skildi við konu sina, Larissu — sem var með honum i Reykjavik ’72 — I júli. Stór- meistarinn hefur verið i ónáð sið- an hann tapaði fyrir Fischer — eftir að heimsmeistaratitillinn hafði verið i Sovétrikjunum i 25 ár. Eftir tapið var Spasski mjög gagnrýndur af skákfræðingum, sem töldu hann ekki hafa undir- búið sig nægilega vel fyrir einvig- ið. Marina sagði fréttamönnum i gær, að sögn Reuters, að hún væri ákveðin i að fara ekki úr landi þrátt fyrir uppsögnina i sendiráð- inu. Þá lýsti Spasski þvi yfir, að hann hefði i hyggju að búa áfram i Sovétríkjunum ásamt væntan- legri eiginkonu sinni og halda áfram að tefla.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.