Dagblaðið


Dagblaðið - 08.09.1975, Qupperneq 11

Dagblaðið - 08.09.1975, Qupperneq 11
ð horfa á búizt við mörkum. rra ætlaði 'erða þess að danski sen, hafði en hann leiknum, varðarað- >ókn með ’um, allt íýja fram rotnuðu á g haföldur it, ellegar ,f þvilikri il að lýsa ndantekn- miðherji nn i netið íálfleiks. höggi við fa snerpu olls sendi hnitmiðaðan knött frá hliðarlin- unni, beint á höfuð Lamberts. Jón Pétursson stökk upp með Lam- bert i þeirri von að ná til knattar- ins, — en Belginn var sterkari, — skallaði yfir Jón og undir þverslá, i netið, 1:0. Landsliösþjálfarinn Tony Knapp sannaði enn hæfileika sina sem stjórnandi landsliðs okkar, fremur en þjálfari, — til þess hefur honum ekki gefizt tóm. Honum tókst að berja i bresti liðsins, frá þvi i Nantes með nýrri uppstillingu og ná fram sterkara liði, þótt Jóhann- esar Eðvaldssonar nyti ekki við, þar sem hann fékk ekki Belgum vegna þýðingarmikils leiks félagsins. Tony gerði þær breytingar á vörninni, að Jón Pétursson lék miðvörð ásamt Marteini Geirssyni og áttu þeir báðir framúrskarandi góðan leik, samstilltir eins og tannhjól i vél, svo mikill var skilningurinn og samheldnin þeirra á milli. Björn Lárusson lék vinstri bakvörð að þessu sinni, en Gisli Torfason fékk einnig að glima við nýtt hlut- verk i landsliði, tengilið, og eins og ávallt skilaði hann þvi með prýði, sennilega aldrei betur en gegn Belgum. Matthias Hall- grimsson var einnig færður til, i stöðu tengiliðar i leikkerfi 4-4-2, en Elmar Geirsson og Teitur léku miðherjana. Þessi uppstilling gaf mun betri raun en sú skipan, sem var á lið- inu gegn Frökkum, enda orkaði það mjög heilsteypt og samstillt- ara og skilaði betri árangri gegn voldugum andstæðingi.' Timi sá, sem liðið hefur haft til æfinga i ferðinni hefur greinilega verið nýttur, og sú spurning leitar á hugann, hverju landslið okkar gæti áorkað, ef það fengi tóm til undirbúnings likt og önnur lands- lið, eftir slikar framfarir á stutt- um tima? Belgiumennirnir drógu sýni- lega nokkurn dám af Frökkum. Notuðu útherjana mjög mikið framan af og freistuðu þess að sundra með þvi móti islenzku vörninni, en þegar það misheppn- aðist reyndu þeir meira miðjuspil og leikbrögð, — en vörnin var vel á verði, svo opin tækifæri urðu fremur fá, þótt sóknarþunginn lægi á islenzka liðinu meirihluta leiksins. Hins vegar áttu Belgarn- ir nokkur hættuleg skot af löngu færi og úr horn- og aukaspyrnum. Betra var að gæta þeirra inni i vitateignum og skapaðist mesta hættan undir slikum kringum- stæðum, þar á meðal skalli i stöng og skot i þverslá, — og ekki má Staðan í 7. riðli Staðan i sjöunda riðli Evrópu- keppni landsliða er þannig eftir leik Belgiu og islands. Belgia 4 3 1 0 5-1 7 Frakkland 4 12 1 6-4 4 ísland 6 1 2 3 3-8 4 A-Þýzkal. 4 0 3 1 4-5 3 island hefur lokið leikjum sinum. Belgia á eftir að leika við Austur- Þýzkaland heima og Frakkland á útivelli — og auk þess er eftir leikur A-Þýzkalands—Frakk- lands. g tala við föður Lolla. Strákurinn er ) eddur knattspyrnumaður, en faðir ans vill hann verði arkitekt. Síðar hjá föður Lolla. Aðeins rólegur, J Sonur'-X . Þjálfisæll. gleyma að minnast á skotin, sem ekki hittu, en mishittni þessara þrautþjálfuðu atvinnumanna var næstum furðuleg. Eins og að framan má sjá, var áherzlan lögð á varnarleikinn, en Islendingar voru óragir við að sækja, ef svo bar undir, og þrátt fyrir allt fengu þeir opnasta færi leiksins, sem fékk islenzku áhorf- endurna til að risa úr sætum sin- um. Elmar Geirsson brauzt i gegn hægra megin og sendi knött- inn fyrir markið, til Teits Þórðar- sonar, sem stóð þar einn, — en á óskiljanlegan hátt spyrnti Teitur frá markinu i stað þess að senda knöttinn i netið. Matthias Hall- grimsson átti einnig gott skot af löngu færi i fyrri hálfleik, en knötturinn smaug rétt fyrir utan stör.g. Ef nokkurs staðar bar á mistökum var það helzt við sókn- artilraunirnar, rangar sendingar voru þvi miður of tiðar, og fram- herjarnir, áttu erfitt með að sjá við rangstöðuaðferð Belganna, — sem nutu við hana sérstakrar að- stoðar glámskyggnra danskra linuvarða. Asgeir Sigurvinsson var fyrir- liði liðsins i stað Jóhannesar, og stjórnaði hann liðinu mjög fag- lega, bæði hraða og skipulagi, auk þess sem hann vann óhemju mik- ið. Eftir að hafa horft á hann á sinum heimavelli þarf engan að undra þótt hann sé dýrkaður af borgarbúum, duglegur, fljótur og leikinn. Guðgeir Leifsson barðist að vanda, en kom ekki eins vel frá leiknum og i Nantes, enda fékk hann eins og venjulega, ómjúka meðferð mótherjanna, sem hlifðu honum ekkert i návigum, Elmar Geirsson fékk nú að leika fullan leik. Barðist af dugnaði, en var þó slappur i seinni hluta fyrri hálf- leiks, en náði sér vel á strik i þeim seinni. Landsliðið heldur næst til keppni við Sovétmenn i Moskvu án atvinnumannanna og veikist að sjálfsögðu við það, en aldrei er að vita, nema Tony Knapp, snill- ingurinn, sem búinn er að vinna islenzkri knattspyrnu nafn á al- þjóðavettvangi, raði saman nýju liði, — sem stenzt hramma rúss- neska bjarnarnins. emm MYNDIRNAR tslendingar sækja að marki Frakka I Nantes og þar má greina islenzka leikmenn frá vinstri: Jó- hannes, Matthias, Jón Pétursson og Teit — i hvitum búningum. Neðri myndin: Marteinn Geirsson og Jón Péturs- son sækja að belgiska mark- verðinum i landsleiknum á laug- ardaginn — en honum tókst að slá knöttinn frá.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.