Dagblaðið - 08.09.1975, Qupperneq 20
BIAÐIÐ
trjálst, óháð dagblað
Mánudagur 8. september 1975,
TAYLOR
ÍSVÉLAR
Eiríkur
Ketiisson
s. 23472
— 19155
Bakvið
Hótel Esju
simi 35300
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFIORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Brennuvargur laus á
Kef lavíkurf lugvelli?
■ ■ ■ 'Æ • •• I f F • w ■ t V « m_
— eldur laus í tveimur vöruhúsum á svipuðum slóðum í nótt
Grunur leikur á, að
brennuvargur hafi ver-
ið á ferð á Keflavikur-
flugvelli i nótt. Þar
kviknaði i tveim bygg-
ingum með stuttu
millibili. Að sögn
Sveins Eirikssonar,
slökkviliðsstjóra, er
talið útilokað, að
kviknaði hafi i út frá
hita eða rafmagni.
Rétt um miðnætti varð vart
við eld i vöruhúsi P. Árnason &
Proppé, en það er fyrirtæki,
sem sér um pökkun og flutning á
húsgögnum fyrir ibúa flugvall-
arsvæðisins. Þar var eldur i
skrifstofukompu og pappaköss-
um inni i miðju húsinu. Sá eldur
varð aldrei verulega magnaður
og skemmdir urðu ekki mjög
miklar.
Um klukkan hálffjögur upp-
götvaðist svo eldur i vöruhúsi
Base Housing, sem er hús-
gagnafyrirtæki og i sama
hverfi. Sveinn taldi, að þá hefðu
verið liðnir tveir timar frá þvi
að sá eldur kviknaði, en ástæðan
til þess, að hann uppgötvaðist
svo seintværi sú, að lögreglu-
menn voru uppteknir við fyrri
brunann og komust þvi ekki til
venjulegra eftirlitsferða.
Þegar að var komið, var hús
Base Housing nær alelda og erf-
itt um stökkviliðsstarf, þvi þar
var mikið af dýnum, sófuin og
öðru sliku, sem mikill reykur
kemur- af, og að sögn Sveins
nánast ógerlegt að slökkva i
slikum varningi nema bera
hann út. Það var hins vegar
mjög óhægt, þar sem eldurinn
hafði mallað svo lengi og allt
orðið logandi heitt. Þó taldi
hann, að tekizt hefði að bjarga
um helmingi húsgagnanna, sem
þarna voru. — í ljós kom, að dyr
voru ólæstar á þessu húsi og gat
þvi hver sem var komið þar og
farið að geðþótta.
Nóg vatn var til slökkvistarfs-
ins og voru notaðir fimm dælu-
bilar við siðara húsið, sem geta
dælt riflega 11 þúsund litrum af
vatni (3000 gallónum) á minútu.
Einnig notaði slökkviliðið
byssu, sem fræg varð i Vest-
mannaeyjum á sínum tima, er
hún var notuð við tilraunir með
kælingu hraunsins.
Húsin sjálf skemmdust ek'ki
verulega i brunanum, enda stál-
grindahús klædd með stáli.
—SHH
Óviti renndi
bíl niður
bratta brekku
Þriggja ára drengur
prílaði upp í vörubíl
pabba síns og tókst að
hreyfa girstöngina í hlut-
lausan, þar sem bíllinn
stóð á hlaði bæjar nokk-
urs í Borgarfirði. Rann
bíllinn af stað niður
bratta brekku, sem lá
niður frá hlaðinu og hafn-
aði í skurði, skammt frá.
Svo mildilega tókst til, að litli
drengurinn komst af eigin
rammleik út úr bilnum og varð
fólk alls hugar fegið, þegar
snáðinn kom hlaupandi á móti
börnum á bænum, sem höföu
séð óhappið og tóku þegar til
fótanna, er þau höfðu látið full-
orðna vita, hvað gerzt hafði.
Þannig hagar til, að hefði bill-
inn runnið niður mjög bratta og
langa heimreiðina, hefði hann
komizt á mikla ferð. Óvist er,
hvernig þá hefði endað þessi ó-
timabæra bilferð
Er full ástæða til að vara einu
sinni enn við þvi, að vélar eða
tæki, sem farið geta af stað við
jafnvel smábarnapril, séu skilin
eftir aðgengileg fyrir óvita.
Allir gleðjast yfir þvi, þegar
svona vel er sloppið, en augljóst
er, hversu stutt er oft i mikla
ógæfu, þegar ekki er gætt nauð-
synlegrar varkárni. -BS-
Þetta er bátur mannsins, sem drukknaði i Hafnarfjarðarhöfn I gærdag (Ljósmynd DAGBLAÐSINS
B.P.)
Fannst látinn í
Hafnarfjarðarhöfn
Maður fórst i Hafnarfjarðar-
höfn i gær, er hann varð viðskila
við bát sinn þar i höfninni. Hann
hafði ætlað að flytja bátinn inn
til Reykjavikur, var einn á ferð
og er ekki fullljóst, hvernig slys-
ið bar að höndum.
Maður þessi, sem faeddur er
1909 og af erlendu bergi brotinn,
tilkynnti Hannesi Hafstein hjá
Slysavarnafélagi Islands, að
hann hygðist leggja af stað til
Reykjavikur klukkan kortér
fyrir ellefu. Svo var um samið,
að hann léti vita af sér, er hann
kæmi til Reykjavikur.
Klukkan rúmlega hálf tólf var
lögreglunni i Hafnarfirði til-
kynnt að bátur væri á reki i
höfninni. Það reyndist vera bát-
ur mannsins, og hafði hann rek-
— bófurinn fannst
á reki með
vélina i gangi
ið yfir að vestari hafnargarðin-
um. Hann var mannlaus, en vél-
in i gangi. Leit var þegar hafin
og slysavarnasveitin i Hafnar-
firði kvödd út. Skömmu siðar
fannst likið á reki i höfninni.
Helzt er talið, að maðurinn
hafi fallið fyrir borð, en veður
gekk á með hvössum hryðjum
og hált var á botni bátsins, sem
er úr plasti. — SHH
Óháð stjórnmálaflokkum og hagsmunaöflum"
— segir í samþykktum félagsins, sem stofnað var í gœr
Dagblaðið h.f
nýtt hlutafélag:
Dagblaðið hf. heitir
nýtt hlutafélag, sem
stofnað var i gær. Til-
gangur hins nýstofnaða
hlutafélags er að gefa
út frjálst dagblað, óháð
stjórnmálaflokkum og
hagsmunaöflum. Á
hluthafafundi Dag-
blaðsins hf., sem hald-
inn var að Siðumúla 12 i
gær, voru gerðar sam-
þykktir fyrir félagið. í
þeim er gert ráð fyrir
þvi, að áskrifendum
verði gefinn kostur á
að kaupa eitt þúsund
króna hlutabréf i félag-
inu.
Við stofnun var hlutafé fé-
lagsins ákveðið 10 milljónir
króna, en á hluthafafundinum
var samþykkt að auka hlutafé
um 40 milljónir króna, þannig
að hlutafé hins nýstofnaða fé-
lags verði allt að 50 milljónum
króna, og er stjórn félagsins fal-
ið að annast sölu aukningar-
hlutabréfanna.
Auk nýmælisins um að gefa á-
skrifendum kost á að kaupa eitt
þúsund króna hlutabréf, gerir
stofnsamningurráðfyrir því, að
á fyrsta aðalfundi félagsins
skuli að minnsta kosti einn
stjórnarmanna vera úr hópi
starfsmanna þeirra, sem eru
hluthafar, en nær allir stofnend-
ur eru blaðamenn eða aðrir
starfsmenn DAGBLAÐSINS.
A stofnfundi Dagblaðsins hf.
var kosin þriggja manna stjórn
og tveir endurskoðendur-. 1
stjórn voru kjörnir: Björn Þór-
hallsson viðskiptafræðingur,
Jónas Kristjánsson ritstjóri og
Sveinn R. Eyjólfsson fram-
kvæmdastjóri. Endurskoðendur
eru: Benedikt Jónsson vélstjóri
og Leifur Agnarsson háskóla-
nemi.
Að lokinni hlutafjáraukningu
þeirri, sem að framan greinir,
skal haldinn aðalfundur i sið-
asta lagi f janúar 1976. Þá skal
fjölga i stjórn i 5 menn, þar sem
einn þeirra skal vera úr hópi
starfsmanna, sem hluthafar
eru.
1 samþykktum félagsins er
sérstakt ákvæði þess efnis, að
ritstjóri DAGBLAÐSINS skuli
gæta þess og bera ábyrgð á, að
haldin sé i heiðri 2. gr. stofn-
samnings, sem kveður á um
„útgáfu frjáls dagblaðs, óháðs
stjórnmálaflokkum og hags-
munaöflum”.
Auk þess, sem að framan
greinir um tilgang félagsins, er
hann einnig önnur útgáfustarf-
semi, prentun og skyldur at-
vinnurekstur, svo og kaup og
sala hlutabréfa og fasteigna og
almenn lánastarfsemi.
—BS-
Tvœr liggja á
sjúkrahúsi
eftir árekstur
Fólk úr tveimur bilum var flutt
á sjúkrahúsið á Akranesi i gær,
eftir árekstur uppi i Svinadal. Þar
rákust saman tveir bilar úr
Reykjavik og varð áreksturinn
harður.
Tildrög voru þau, að Cortina
mun hafa lent of utarlega i kant-
inum. Við það brá ökumanninum
svo, að hann reif bilinn inn á veg-
inn,en lenti þá framan á Volvobil,
sem kom úr gagnstæðri átt. Þetta
gerðist á beina kaflanum undir
Kornahlið, meðfram Geitabergs-
vatni. 1 þessum bilum voru sam-
tals sex manns, og eru tvær stúlk-
ur enn á sjúkrahúsinu á Akranesi,
en ekki lifshættulega meiddar.
Bilarnir eru báðir mikið
skemmdir. —SHH
ÞRÍR I'
EINNI
BENDU
— til að bjarga
þeim fjórða
Harður árekstur varð i gær i
Svinahrauni, er bill kom á öf-
ugum vegarhelmingi á móti
umferðinni. Annar, sem kom á
móti honum á réttum kanti,
neyddist þá til að stöðva all-
snögglega tii að komast hjá
árekstri, en fékk við það bíl
aftan á sinn, og siðan kom sá
þriðji og bætti um betur.
Bílarnir þrir eru allir mikið
skemmdir, en fólk meiddist
ekki. — Sá sem ók á röngum
vegarhelmingi slapp hins veg-
ar við allar skrokkskjóður.
Hann náðist þó og reyndist
allsgáður, en fékk trúlega til-
tal fyrir akstursmátann.-SHH
Skildu tjaldið
eftir og héldu
heim til sin ,
Þegar maður er orðinn leiður á
tjaldinu sinu er ekkert sjálfsagð-
ara en að skriða út úr þvi og skilja
það eftir. Það gerðu að minnsta
kosti Þjóðverjarnir, sem ein-
hvern tima i sumar tjölduðu aust-
ur á Hellisheiði.
A laugardaginn var lögreglunni
á Selfossi tilkynnt um mannlaust
tjald, sem stæði skammt frá
veginum, nálægt svonefndri
Vetrarbraut ofan við Skíðaskál-
ann i Hveradölum. Tjaldið sást þó
ekki frá veginum. Við athugun
kom i ljós, að i tjaldinu voru teppi
og eitthvað fleira dót, sem þó var
ekki mikils virði. Undir steini þar
skammt frá fundust flugmiðar frá
Þýzkalandi til Islands.
Meðal þess, sem fannst i tjald-
inu, voru mjólkurumbúðir dag-
settar 16. júli. Flugmiðarnir voru
orðnir illlæsilegir vegna bleytu,
en unnt var að finna eftir númer-
unt þeirra, hverjir hefðu keypt
þá. Með mjólkurumbúðirnar sem
timasetningu var farið að leita að
þvi, hvort þetta fólk hefði farið úr
landi um þetta leyti, og i ljós kom,
að það hafði haldið utan með
Flugle.iðum 16. júli siðast liðinn,
siðasta söludag mjólkurinnar,
sem fyrr getur.
Að sögn er þetta heldur ómerki-
legt tjald, litið og ekki með botni,
og draslið, sem eftir var skilið,
heldur ekki mikils virði. Kannski
hefur blessuðu fólkinu ekki fund-
izt tjaldið veita svo mikið skjól
gegn votri veðráttu, að það tæki
þvi að burðast með það aftur
heim. — SHH