Dagblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 4
4
Dagblaðið. Þri&judagur 23. september 1975.
„Ekkert prógramm í vasanum"
— meðan stjórnvöld vita ekki, hvað á að gera, segir Björn Jónsson
,,Það er varla hægt
að krefjast þess af okk-
ur, að við höfum pró-
gramm i vasanum um
aðgerðir i efnahags-
málum, meðan stjórn-
völd vita ekki, hvað
þau ætla að gera,”
sagði Bjöm Jónsson,
forseti ASl, i viðtali við
Dagblaðið.
„Við i alþýðusamtökunum
munum nota næstu vikur og
mánuði til að meta hvaða stefnu
við tökum. Meðan verðbólgan
heldur svona áfram, er alþýðu-
fólk utan dyra.”
Björn sagði, að kjör hefðu
rýmað um 16 prósent á þessu
ári. Þótt árið i fyrra hefði verið
slæmt, hefðu kjör þó batnað um
sjö og hálft prósent.
Verðhækkanir hefðu verið 54
prósentá siðustu tólf mánuðum.
Kauphækkunin frá i júni væri að
heita má uppétin á þeim tima,
sem liðið hefur, siðan samið
var.
,,Við svo búið getur ekki stað-
ið,”sagði Björn. Samningalotan
næsta ætti að verða i desember.
Kjarasamningar mundu ganga
úr gildi við uppsögn frá og með
áramótum, og ætti að vera búið
að semja fyrir áramót.
—HH
Ekki dautt úr öllum œðum:
Ólafur Jóh. stýrir
fundi EFTA í REYKJAVÍK
Friverzlunarbandalagið EFTA Fundur verður haldinn á vegum sem menn skiptast á skoðunum
er ekki dautt úr öllum æðum. þess hér 29. og 30. september, þar um heimsmálin og EFTA,
Portúgal, viðskiptin við Efna-
hagsbandalagið og fleira. „EFTA
hefur ákveðin verkefni. Þessar
þjóðir hafa svipuð sjónarmið i
viðskiptamálum. Þetta eru litil
lönd með mikil utanrikis-
viðskipti,” sagði Þórhallur
Asgeirsson ráðuneytisstjóri i
morgun.
60—70 fulltrúar koma frá
EFTA-löndunum á þennan fund,
sem haldinn er I svonefndri ráð-
gjafanefnd samtakanna. óform-
legar viðræður verða við fulltrúa
frá Bretum og Dönum, sem skildu
við EFTA og fóru i Efnahags-
bandalagið. 1 ráðgjafanefndinni
eru fulltrúar atvinnulifs. Fyrir Is-
lands hönd hafa fimm menn verið
fulltrúar, Gunnar J. Friðriksson
frá Félagi islenzkra iðnrekenda,
Agnar Tryggvason frá SÍS, Jón H.
Bergs frá Vinnuveitendasam-
bandinu, Guðmundur H. Garð-
arsson frá ASl og Hjörtur Hjart-
arson frá Verzlunarráði.
Ólafur Jóhannesson viðskipta-
ráðherra er um þessar mundir
formaður EFTA-ráðsins. Hann
verður i forsæti á fundinum.
Fundurinn verður haldinn i
Loftleiðahótelinu. —HH
Hins vegar finnst mér eini rétti
vegurinn til að nálgast mynd
þannig að maður spyr sjálfan
sig að sýningu lokinni, „Hvaða
áhrif eða tilfinningar vakti þessi
mynd hjá mér?” Og svo. „Af
hverju vakti myndin þessa til-
finmngu eöa áhrif?” Þegar
maður hefur svarað þessum
spurningum er fyrst hægt að
fara að grufla i öllu hinu. Góð
mynd hefur yfirleitt eitthvað af
öllum áðurnefndum gildum.
Oftast spila öll þessi gildi saman
að einhverju leyti til að hægt sé
að ná fram ákveðinni stemmn-
ingu eða áhrifum hjá áhorfand-
„Ég Nanú,—
þú Jane"
Söguþráður:
Bandariskur iþróttaþjálfari
og aðstoðarmaður hans fara til
Afriku. Þar finna þeir ungan
mann sem litur út eins og Tarz-
an. Með brögðum taka þeir
hann með sér til USA og setja
hann i skóla. Þar sem ungi mað-
urinn, sem heitir Nanu, er i
mjög góðu formi, setja þeir
hann í iþróttir. Að sjálfsögðu
vinnur hann allar greinar sem
hann tekur þátt i. Að lokum
hverfur hann aftur til frum-
skógarins ásamt ungri og sætri
piu sem hann hefur náð sér i.
Þjálfarinn og aðstoðarmaður-
inn fara til Kina og sjá ungan
mann sem er ákaílega fljótur að
hlaupa.
Það er yfirleitt hægt að nálg-
ast kvikmynd á nokkra vegu. Til
dæmis er hægt að dæma hana út
frá eínislegu gildi, þjóðfélags-
legu gildi, skemmtigildi, upp-
Gamla Bió. Ilcimsins mesti
iþróttamaður. (The world’s
greatest athlctc). Bandarisk, 93
min., gerð 1973 Technicolour.
Leikstjóri: Robert Scheere.
lýsinga- eða menntunarlegu
gildi eða þá tæknilegu gildi.
Nanu, frumskógastrákurinn frækni (Jan-Michael Vincent) ásamt
þjálfurum sinum, Tim Conway og John Amos.
Dayle Hafldon ásamt Harri,
400 punda Bengaltigri.
anum. Þegar ég kom út áf
Heimsins mesta iþróttamanni
og fór að spyrja mig þessara
tveggja spurninga, þá fór nú
málið að vandast. Myndin hafði
sem sé ekki skilið eftir sig nein
áhrif. Það er kannski ekki nema
von þar sem henni er greinilega
beint að bandariskri æsku, og
vafasamt hvort hún á erindi til
Islands. Og þó....
Kannski speglar þessi mynd
bandariskt þjóðfélag eins og það
var 1973. Samkeppnisþjóðfélag
hins frjálsa framtaks þar sem
tilgangurinn helgar meðalið og
einskis er svifizt til að ná toppn-
um. Ennfremur að það sé allt i
lagi að taka örlög eða lif annars
einstaklings i sinar hendur þvi
það sé jú viðkomandi l'yrir
beztu. Að lokum er gaman að
geta þess að aðalleikkona
Kvik
myndir
myndarinnar Dayle Haddon var
sett á svartan lista hjá Disney
Production eftir að myndir af
henni höfðu birzt i aprilhefti
timaritsins Playboy 1973. Einn-
ig var henni tjáð að hún væri
ekki velkomin i Disneyland og
Disneyworld.
Þetta var ein af myndunum, sem Disney-félagið gat ekki fellt sig
við, en myndin birtist i Playboy I hittiðifyrra.