Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.10.1975, Qupperneq 4

Dagblaðið - 10.10.1975, Qupperneq 4
4 Dagblaöiö. Föstudagur 10. október 1975. ÞÆR ÆTLA FLESTAR AÐ TAKA SÉR FRÍ Hœgt að gera við TF-GNÁ Þótt vélin hafi iitiö illa út eftir „byltuna” telja sérfræöingar aö gera megi viö hana aftur. DB-mynd Björgvin. Bíleigendur þinga í Munaðarnesi Áttunda landsþing félags að af landinu munu sitja þingiö, málefni bifreiðaeigenda rædd, islenzkra bifreiðaeigenda verður sem verður sett á föstudagskvöld svo sem umferðar- og öryggimál, haldið I Munaðarnesi um næstu og lýkur á sunnudag. skatta- og tollamál, vegagerð og helgi. Um 40 fulltrúar viðsvegar A þinginu verða sameiginleg tryggingamál. „Þótt ekki sé búið að gera heildarkönnun hjá öllum borgar- starfsmönnum virðast viðbrögðin benda til þess að þátttaka verði mjög almenn i kvennafriinu 24. október. Þetta segir Lilja ólafsdóttir sem er fulltrúi Starfsmanna- félags Reykjavikurborgar i sam- starfsnefnd um kvennafriið. Hún sagði að þar sem könnun hefði farið fram hefði komið i ljós að yfir 90% eru fylgjandi kvenna- friinu. Á þetta til dæmis við borgarskrifstofurnar, Rafmagns- veitu Reykjavikur, Borgarbóka- safnið, Fóstrufélagið og Borgar- sjúkrahúsið þarsemáhugann vantar ekki hjá þeim sem gæta öryggisins, en þær geta ekki tekið þátt i frfinu. EVI — segja sérfrœðingar gœzlunnar „Sérfræðingar okkar hér heima telja að hægt verði að gera við þyrluna,” sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelg- isgæzlunnar er fréttamaður Dagblaðsins spurðist fyrir um „ástand og liðan” TF-GNA. „Á næstu dögum,” hélt Pétur áfram, „koma hingað til lands sérfræðingar bandarisku strandgæzlunnar til að grafast fyrirum orsakir slyssins. Þegar niðurstaða þeirrar rannsóknar liggurfyrir vitum við fyrir vist, hvort hægt verður að gera við þyrluna. Sem stendur er hún hér i skýli hjá okkur og hefur ekkert verið gert i málinu.” Aðspurður um hver hefði ætlað að borga reikningana fyrir notkun þyrlunnar er slysið varð, en eins og fram hefur komið var þyrlan að flytja staura fyrir KR, svaraði Pétur: „Það er KR. Annað stóð aldrei til. Það er rétt að þyrlan kostar 70—80 þúsund krónur á timann, en þetta voru nú aðeins þrir staurar og sjálft vérkið hefði ekki tekið nema kannski 20 min- útur. Við höfum áður verið beðnir að lána þyrluna i svona verkefni, en alltaf visað þeim frá okkur. 1 þetta skipti var fall- izt á það þar sem þyrlan var að koma úr gagngerri skoðun og þurfti að fljúga, en sjálfur vissi ég ekkert um málið fyrr en hún hafði hrapað.” —ÓV. Sigurður Hallur héraðsdómari Sigurður Hallur Stefánsson, aðalfulltrúi bæjarfógetans i Hafnarfirði, hefur verið skip- aður héraðsdómari við emb- ætti sýslumannsins i Gull- bringusýslu og bæjarfógetans i Keflavik og Grindavik. I frétt frá dómsmálaráðuneytinu segir að Sigurður Hallur sé skipaður frá 1. október. Aðrir umsækjendur um embættið voru Sveinn Sigur- karlsson, fulltrúi við bæjar- fógetaembættið i Keflavik, og ValtýrSigurðsson, aðalfulltrúi við sama embætti. —óv. Konurnar hjó borginni: Áskrifendur athugið Hlutafjórútboð Dagblaðsins Mikilvægur þáttur þeirrar ætlunar að gefa út frjálst, óháð dagblað er sá, að eigendur þess séu starfsmenn blaðsins og lesendur þess. Starfsmönnum buðust hlutabréf þegar í upphafi. Það boð þágu þeir strax og iðrast þess ekki, því að augljóst er, að hver dagur, sem liðinn er f rá því að útkoma blaðsins hófst, hefur skilað góðri afkomu. Það er að vísu langt um- fram allar vonir, en staðreynd samt sem áður. Þúsundir íslendinga kaupa Dagblaðið í lausasölu á degi hverjum. Til þeirra lesenda er því miður ekki unntað ná. Nöfn þeirra eru hvergi til á skrá. Hverjir áskrifendur Dagblaðsins eru, vitum við hins vegar. Og við treystum því, að þeir vilji frjálst, óháð dagblað. Því kjósum við þá sem meðeigendur okkar að rekstri blaðsins og bjóðum þeim nú hlutabréf. Stærð hlutabréfanna er mjög í hóf stillt, til þess að sem f lestir áskrifendur geti orðið hluthafar. Fyrir aðeins eitt þúsund krónur getur áskrifandi gerzt hluthaf i í Dagblaðinu. Stærri hlutir bjóðast að sjálfsögu einnig. Skilyrði er, að kaupandi sé áskrifandi að blaðinu. Þetta boð stendur til 1. nóvember n.k. Hringið í síma 27022 (3 línur) og látið skrá yður sem kaupanda að hlutabréfi eða fáið nánari upplýsingar, ef þörf er á. Símaþjónustan verður opin f rá 9 til 22 hvern dag til 1. nóvember. Vinsamlega afsakið það, ef illa gengur að ná sambandi. Skiptiborð Dag- blaðsins er mjög áhlaðið. Auk venjulegs álags berst mikill f jöldi áskriftar- pantana daglega og beiðnir um birtingu smáauglýsinga eru miklu f leiri en við var búizt, svo sem blaðið ber með sér. Svo virðist sem Dagblaðið þjóni þar stærri markaði en vitað var, að væri í landinu. Þar af leiðir, að hlutabréfa- þjónustu verður aðeins unnt að veita í síma 27022 ÁSKRIFENDUR DAGBLAÐSINS Gjöriðsvo vel. Síminn er 27022 (3 línur ).Opiðtil kl. 22 á kvöldin. Virðingarfyllst Dagblaðið hf. Lézt þegar eftir slysið Hásetinn á Skinney, sem beið bana eftir slys er varð þegar skipið var við veiðar á Glettinga- nesflaki i fyrrinótt, hét Július Sveinbjörnsson. Hann var 22 ára, kvæntur en barnlaus. Friðjón Guðröðarson lögreglu- stjóri á Höfn hélt sjópróf i málinu i gær. Leiddu þau ekki i ljós að um handvömm nokkurs skipshafnar- manns hefði verið að ræða, heldur hefði hleri sveiflazt af ókunnum orsökum inn fyrir lunningu skipsins, er það var að leggja trollið, og klemmdist Július milli hlerans og lunningarinnar. Læknir telur að hann hafi látizt skömmu eftir slysið. —ASt. ERTU ÁNÆGÐUR? — með reksturinn? — meö ágóöann? — meö söluna? — meö framleiösluna? — meö bókhaldiö? — meö forstjórann? — meö starfsfólkiö? — meö stjórnarfundina? — meö andrúmsloftiö á vinnustaö? — meö þjóöarbúskapinn? — meö lifiö yfirleitt? Ef svarið er já. — Til hamingju Ef þú vilt hins vegar gera betur — hvernig væri þá að kynna sér stjórnunarfræðslu Stjórnunarfélagsins. Viö sendum ókeypis bækling meö upplýsingum um 26 mismunandi námskeiö, sem eru sniðin fyrir þig. Nánari upplýsingar á skrifstofu Stjórnunarfélagsins, Skipholti 37, simi 82930. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Sendlar Okkur vantar sendla fyrir hádegi. Hafið sam- band við afgreiðsluna Þverholti 2. Dagblaðið

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.