Dagblaðið - 23.10.1975, Blaðsíða 3
Dagblaðiö. Fimmtudagur 23. október 1975.
3
Heimsmarkaðsverð minkaskinna
hœkkandi
Fáum við 100
milljónir fyrir
minkaskinnin?
„Vissulega er upplifgandi fyrir
minkaræktendur að fá fréttir af
25% verðhækkun minkaskinna.
Þó að þarna hafi aðeins verið um
eitt uppboð að ræða með 121 þiis.
skinn af svörtum kvendýrum þá
eru það okkur góðar fréttir þvi
hér er 70% allra minka i þeim
lit,” sagði Skúli Skúlason um-
boðsmaður Hudson Bay félagsins
hér á landi, er við ræddum við
hann um málefni minkaframleið-
enda.
„Aætlað er að islenzk minkabú
muni senda um 32000 skinn á
markað næsta vetur. Meðalverð
skinna á s.l. vetri var 6 sterlings-
pund en var 8 sterlingspund vet-
urinn þar á undan. 1 vetur er
reiknað með 7 sterlingspunda
meðalverði, en nú er útlit fyrir að
það hækki eitthvað,” sagði Skúli.
Miöaö við 7 punda meðalverð og
32 þús. skinn munu isl. minka-
ræktendur fá um 74 millj. kr. fyrir
framleiðslu sina.
— Uppboðið, sem markaði
þessa miklu verðhækkun, fór
fram i London á dögunum og
verður án efa verðmarkandi þeg-
ar til stóru uppboöanna kemur i
desember og á þeim sem á eftir
fylgja á næsta ári, sagði Skúli.
Pelsun skinna hefst upp úr miðj-
um nóvember og fyrsta uppboðið
hjá Hudson Bay stendur 15.-23.
desember. Stærsta skinnaupp-
boðið er siöan frá 17.-25. febrúar
.en siöan eru minni skinnauppboð I
april, mai og september. Þannig
gengur árið i minkaræktinni.
— 1 minkaskinna,,bransanum”
getur allt gerzt og þar eru miklir
sviptivindar hvað verð snertir.
En þessi verðhækkun gefur vis-
bendingu, sem nokkuð verulega
má byggja á.
Skúli sagði að hækkunin myndi
koma isl. ræktendum minka-
skinna mjög vel. Búin hefðu átt
við mikla byrjunarerfiðleika að
etja. Dýrin þurftu að aðlagast
breyttu loftslagi, nýju fóðri og
nýju fólki og umsjónarfólk þurfti
að þjálfa.
t vor tókst „hvolpun” ágæt-
lega, að sögn Skúla, og þW eru
horfur allgóðar fyrir fsl. minka-
rækt i bili.
Skúli tjáði okkur aö á tslandi
væru nú sjö minnkabú, Grávara
með um 2000 lifdýr, Dalvik með
um 2400, Sauðárkrðkur með um
1200, Akranes með um 700, Loð-
dýr h.f. með um 1000, Dalsbær
með um 800 og Polarmink með
um 2500. Alls eru þvi á Islandi ná-
lega 11000 lifdýr. —ASt.
Skriftvélavirkjar gera verkfall:
GÆTI KOMIÐ
ILLA NIÐUR
Á BÖNKUNUM
Verkfall Sveinafélags skrift-
vélavirkja, sem boðað hefur verið
frá og með laugardeginum 1.
nóvember, getur haft mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir svo gott
sem alla þjónustustarfsemi i
landinu. Skriftvélavirkjar sjá um
viðhald og viðgerðir á öllum
skrifstofuvélum, m.a. i bönkum
og opinberum stofnunum, svo
eitthvað sé nefnt.
Einn félagsmanna, Gunnar
Björnsson, sagði fréttamanni
blaðsins i morgun að hver banki
þyrfti að fá skriftvélavirkja til sin
að meðaltali tvisvar á dag, og
segir það sina sögu um mikilvægi
stéttarinnar.
Til verkfallsins er boðað vegna
ágreinings um kaup og kjör. Að
sögn Gunnars Björnssonar hafa
staðið yfir samningaviðræður —
þær fyrstu — á milli sveinafélags
skriftvélavirkja og vinnuveitenda
siðan i ágúst en upp úr þeim slitn-
aði á mánudaginn. í sveinafélag-
inu eru 27 sveinar af 30, sem eru
starfandi i faginu.
Núverandi lágmarkstaxti
sveina að sögn Gunnars er kr. 493
pr. klst. en þeir fara fram á hækk-
un upp i 550 kr. pr. klst. Vinnu-
veitendur bjóða hinsvegar 12%
lækkun, sagði Gunnar.
—ÓV.
Já en elskan mln, þú getur þó hjálpaö mér I uppvaskinu og þurrkaö uppi
HIÐ LJÚFA LÍF
í ELDHÚSINU
Það er kvennaverkfall, — eða
fridagur, hvort heldur fólk vill
kalla það. Þau brugðu á leik
fyrir okkur, Baldvin Björnsson,
auglýsingateiknari i Form, og
Helga Eldon,ung og falleg kona.
Hinn dæmigerði kvennafridag-
Eiginmaðurinn hefur verið
handjárnaður „i tilefni kvenna-
ársins”, og kvennafridagurinn
virðist verða honum þungur I
skauti. Það er i mörg horn að
lita i eldhúsinu.
Á meðan nýtur Helga lifsins,
ekki bara með þvi aö horfa á
karlinn sinn svitna við eldhús-
verkin, heldur dundar hún sér
við að snyrta sig og lesa Dag-
blaðið.
Fjóröi diskurinn farinn, þetta
verður dýr kvennafrldagur.
Ekki vissi ég aö eldhúsáhöldin
væru svona ægilega mörg, og
fitug!
Ifvert ætti maöur að skreppa I
kvöld? Klúbbinn, Naustiö,
Cesar....??
V
Gunnar Friðriksson, varaþm. (S>: Það fer nú
eftir þvi hversu lengi maður veröur hér. Ef ég fæ
tækifæri til mun ég beita mér I málaflokkum er
varða atvinnumál, enda starfa ég við þau sjálf-
ur.
Vilborg Harðardóttir, varaþm. (AL): Ég tek
engan málaflok fram yfir annan hér á Alþingi.
Ef eitthvað væri, myndi ég telja mig málsvara
reykviskra kvenna i þeim málum er þær varðar
og þá sérstaklega verkakvenna.
N
Jóhannes Arnason, varþm.: Fyrst og fremst
sveitarstjórnarmál og svo efnahags- ög fjármál.
Byggðastefnan er mér einnig mjög hugleikin,
sem þingmanni utan af landi.
/
Gleym-mér-ei
í Kópavogi
„Einstaklingar eöa fjölskyldur,
sem eiga við erfiðleika að striöa
vegna veikinda eða af öðrum or-
sökum, fá hjálp úr þessum sjóöi
sem viö erum að safna til,” sagði
Helga Þorsteinsdóttir, formaöur
Liknarsjóðs Aslaugar K.P.
Maack i Kópavogi.
Á sunnudaginn seljum við
„gleym-mér-ei” tii þéss að afla
fjár i þessu skyni. Aslaug Maack
gleymdi ekki þeim sem áttu i
veikindum eða erfiðleikum og
þess vegna er blómið táknrænt.
Víð vonum aö Kópavogsbúar beri
allir blóm I barminum á sunnu-
daginn”, sagöi Helga aö lokum.
—BS—