Dagblaðið - 23.10.1975, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 23.10.1975, Blaðsíða 6
6 Oagblaöið. Fimmtudagur 23. október 1975. Vatikanið leggst gegn foreldrum Karenar Quinlan „Bað um að verða ekki haldið á lífi með tilbúnum aðferðum," sagði móðir hennar fyrir rétti Dagblað Vatikansins, Osservatore, sagði i grein i gær að Karen Anne Quinlan, tvituga stúlkan frá New Jersey sem verið hefur meðvitundarlaus i hálft ár, ætti ekki að fá að deyja eins og foreldrar hennar hafa farið fram á fyrir rétti. „Enginn hefur gert kröfu til dauðans,” sagði i grein eftir fööur Gino Concetti, áhrifa- mikinn guðfræðing i Vatikaninu. ,,Mál Karenar Anne Quinlan er án nokkurs efa mjög sorglegt. En jafnvel þótt foreldrum hennar sé sýndur allur hugsan- legur skilningur, svo hræddir og hrjáðir sem þeir eru, þá getum við ekki stutt kröfur þeirra.” Móðir stúlkunnar kom fyrir rétt I gær og sagði m.a. að Karen hefði fyrir dauða sinn' beðið um að verða ekki haldið á ltfi með „tilbúnum aðferðum” ef hún ætti við ólæknandi sjúkdóm að striða. Ættingi hennar hafði nýlega dáið úr krabba. Sjónvarpskaupendur athugið Vorum að fá hin frábæru Ferguson sjónvarpstæki. Engir lampar. Mjög gott verð. Fullkomin viðgerða- og varahluta- þjónusta. Verð á tæki með 24” skermi kr. 71.325,- Sjónvarpsmiðstöðin s.f. Þórsgötu 15, Reykjavik. Simi 12880. Kjötborg Breyttur afgreiðslutími Framvegis verða verzlanir okkar opnar til kl. 20 á föstudögum og til hádegis á laugardögum. Föstudaginn 24. október er opið eins og ekkert hafi i skorizt. Kjötborg Búðargerði 10, Austurborg Búðargerði 10 -símar 34945 34999 Vörubifreið rni sölu Volvo árg. 1971 16 tonna i fyrsta flokks standi með 3 1/2 tonna Focokrana. Billinn ber 14 tonn og er með 16 tonna sturtum. Uppl. i sima 13227 eftir kl. 18. Ford í andstöðu við dómara Fromme Bandariska stjórnin hvatti i dag alrikisdómara i Sacramento til að endurskoða þá kröfu að Ford forseti leggi fram mynd- segulbandsupptöku til sönnunar ákæru um morðtilraun Lynnette Fromme. John Virga, lögmaður Fromme, hafði farið fram á þaö við dómarann að Ford forseti yrði kvaddur til að bera vitni við réttarhöldin, sem hefjast 4. nóvember. Dómarinn varð við beiðninni vegna „sérstakra aðstæðna” en jafnframt lýsti hann hryggö sinni yfir þvi að þurfa að valda for- setanum þessum óþægindum. Bandariska dómsmálaráðu- neytiö sagði i gærkvöldi að það hefði formlega farið fram á það við MacBride dómara aö hann tæki úrskurð sinn til endur- skoðunar. Enginn forseti USA hefur til þessa borið vitni i saka- máli og talið er vist aö lög- fræðingar stjórnarinnar muni leggja mikla áherzlu á einmitt þá staðreynd. Dómsmálaráðuneytið hefur beðið rétlinn að ákveða ekki siðar en á morgun hvort ósk þess verður tekin til greina. Arnold Toynbee látinn Brezki prófessorinn og sagnfræðingurinn Amold Toynbee lézt i York á Englandi i gær. Með honum er genginn einn mesti sagnfræðingur okkar tima. Toynbee var 86 ára. Ungverji efstur í Szolnok ( Finnski skákmaðurinn West- skákmanninn Hernandez i sjö- l erinen komst I dag I annað sæti undu umferð mótsins. 7 á alþjóðlegu skákmóti sem nú Westerinen er með 4 1/2 vinn- \ fer fram I Szolnok I Ungverja- ing og eina biðskák. 1 fyrsta sæti 4 landi. Sigraði hann kúbanska er Ungverjinn Barczay. Gráhærði, þéttvaxni sagnfræð- ingurinn lézt á einkareknu elli- heimili, þar sem hann hafði verið siöan hann fékk hjartaslag fyrir 14 mánuðum siðan. Dr. Toynbee aflaöi sér heims- frægðar og virðingar þegar 10- binda verk hans „Alheimssaga”, kom út á árunum 1934-1954. 1 verkinu gerði Toynbee grein fyrir allri sögu mannsins, reyndi þar að grafast fyrir um „liffræði” hennar og kanna með hvaða hætti menningarskeið yrðu til og glöt- uðust. í þriðja bindi verks sins sagði Toynbee hiö forna evrópska stjórnarfar vera undir ungum, yfirþyrmandi risaveldum „á hinu ytra borði” og spáði þvi að valda- hlutföll færðust I hendur „ytri barbaranna, sem enn eru ekki færir um að valda þvi.” í stríðinu miðju Lifið verður að ganga sinn gang, þrátt fyrir strið og annað mannanna böl. í Libanon hefur yfirstand- andi borgarastyrjöld verið háð hvaö grimmilegast og af mestu kappi I höfuðborginni Beirút. En drengirnir, sem afla sér viðurværis á grænmetis- og ávaxtasölu, láta það ekki á sig fá og selja vörur sinar i striðinu miðju.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.