Dagblaðið - 25.10.1975, Síða 3
Dagblaðið. Laugardagur 25. október 1975.
3
Sjónvarpið ó sunnudagskvöld kl. 20.35:
##
Veiðiferð í óbyggðum
Það er alltaf viðburður að sjá
islenzkt leikrit i sjónvarpi, ekki
sizt ef það er eftir Halldór
Laxness, en á sunnudagskvöldið
verðursýnt leikritið, „Veiðiferð
i óbyggðum”, eftir samnefndri
smásögu Laxness úr „Sjöstafa
kverinu”, sem kom út árið 1964.
Leikrit eftir
samnefndri
smásögu
Halldórs
Laxness úr
„Sjö stafa
kverinu"
Það veitir ekki af aö æfa sig áður en farið er i „Veiðiferö I óbyggðir”
en það er einmitt það sem Gisli Halldórsson leikari er að gera I
hlutverki Grasdals gjaldkera.
Dótturinni virðist ekki litastof vel á blikuna. Saga Jónsdóttir og
Gfsli Halldórsson.
Leikritið var tekið upp i
sumar og vann skáldið sjálft að
breytingu sögunnar i leikrit.
Leikstjóri er Helgi Skúlason og
stjórnandi upptöku Andrés
Indriðason. Björn Björnsson
gerði leikmynd.
Krilon (Sveinbjörn Matthiasson) og Grasdal (GIsli Halidórsson) fá sér
einn gráan áður en lagt er af stað i veiðiferð.
Það má segja að leikritið sé
vel til þess fallið að sýna á
kvennaári. Kona aðalpersón-
unnar, Grasdals gjaldkera, fer I
fyrsta skipti i fri i 25 ár og ætlar
að vera 3daga aðheiman. Bóndi
hennar hugsar gott til glóðar-
innar þvi hann hefur, vægt til
orða tekið, verið dálitið undir
töflunni hjá frúnni. Ætlunin er
að fara i góðan veiðitúr og hann
nær i vin sinn, Krilon son úti-
bústjórans, til að koma með, en
fyrst er setzt að sumbli. Krilon
fer nú að lauma ánamöðkum inn
á Grasdal og krækir önglum,
spúnum og flugum i pluss-
mublur heimilisins. Heimilis-
búnaður er mjög vandaður eins
ogtilheyrirstétt af betra taginu,
en Grasdal er algjör reglu-
maður og óvanur að geta skvett
úr klaufunum — konulaus.
Með hlutverk Grasdals gjald-
kera fer Gisli Halldórsson,
Sveinbjörn Matthiasson leikur
son útbússtjórans, Krilon.
Margrét Helga Jóhannsdóttir
leikur vinnukonuna og leik-
konurnar Saga Jónsdóttir og
Þórhalla Þorsteinsdóttir frá
Akureyri leika dótturina og
skipstjórafrúna. EVI
Q Utvarp
SUNNUDAGUR
26. október
8.00 Morgunandakt. Hr. Sigur-
björn Einarsson biskup flytur
ritningarorö og bæn.
8.15 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. tltdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. „Haustið” og
„Veturinn”, konsertar op. 8 nr.
3 og 4 fyrir einleiksfiðlu og
hljómsveit eftir Vivaldi. Felix
Ayo, og I Musici leika. b.
Kvintett I Es-dúr op. 16 fyrir
pianó og blásturshljóðfæri eftir
Beethoven. Vladimir
Ashkenazy og Blásarasveit
Lundúna leika. c. Einleikssvita
fyrir selió nr. 4 i Es-dúr eftir
Bach. Enrico Mainardi leikur.
11.00 Guðsþjónusta i kirkju Fila-
delfiusafnaöarins I Reykjavik
Einar J. Gislason forst.maður
safnaðarins flytur ræðu.
Asmundur Eiriksson les
ritningarorð og flytur bæn. Kór
safnaöarins syngur. Orgelleik-
ari og söngstjóri: Árni Arin-
bjarnarson. Undirleikari á
orgel: Daniel Jónasson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Hugmyndir Jerome Bruners
um nám og kennslu Jónas Páls-
son skólastjóri flytur hádegis-
erindi.
14.00 Staldrað viö á Vopnafirði —
fjórði og siðasti þáttur þaðan
Jónas Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
15.00 Mrðdcgistonleikar: Frá
tónlistarhátiö i Salzburg Verk
eftir Mozart. Flytjendur:
Mozarteum-hljómsveitin,
Sylvia Sass sópran og Jörg
Demus pianóleikari. Stjórn-
andi: Ralf Weikert. a. Sinfónia
i F-dúr (K75). b. Pianókonsert I
C-dúr (K467). c. Tvær ariur úr
óperunni „Idomeneo” (K336).
d. Sinfónia i D-dúr (K202).
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikritið: „Eyja i
hafinu” eftir Jóhannes Helga I.
þáttur: „Skip kemur af hafi”.
Leikstjóri: Þorsteinn Gunnars-
son. Persónur og leikendur:
Murtur: Arnar Jónsson,
Klængur: Jón Sigurbjörnsson,
Úlfhildur Björk: Valgerður
Dan, Alvilda: Guðrún Stephen-
sen, Njörður: Guðmundur
Pálsson, Sigmann: Jón
Hjartarson, Sögumaður: Helgi
Skúlason
Aðrir leikendur: Randver
Þorláksson, Harald G.
Haralds, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Siguröur Skúla-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Steindór Hjörleifsson og Helga
Bachmann.
17.15 Tónleikar.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri” eftir
Gunnar M. Magnúss.Höfundur
les fyrsta lestur.
18.00 Stundarkorn meö sembal-
leikaranum Kenneth Gilbert.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Bein lina. Umsjónarmenn:
Kári Jónasson og Vilhelm G.
Kristinsson.
20.30 óperutónieikar: „Roberto
Devereux” eftir Donizetti.
Flytjendur: Beverly Sills, Pet-
er Glossop, Beverly Wolff,
Robert Ilosfalvy o.fl. ásamt
Ambrosian óperukórnum og
Konunglegu filharmoniusveit-
inni i Lundúnum. Charles
Mackerras stjórnar. Guð-
mundur Jónsson kynnir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög
Hulda Björnsdóttir danskenn-
ari velur lögin.
23.25 Fréttir I stuttu máli. Dag-
skrárlok.
MANUDAGUR
27.október
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregn-
ir kl.7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimikl. 7.15 og 9.05:
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Búnaðarþáttur kl.
10.25: íslenskt mál kl. 10.40:
b Morguntónleikar kl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
r ..........
Útvarpið á sunnudaginn kl. 16.25:
Framhaldsleikritið „Eyja í hafinu" 1. þáttur:
„Skip kemur af hafi"
„Það var allveruleg vinna að
breyta sögunni i sviðsverk,”
sagöi Jóhannes Helgi, en fyrst
breytti hann sögu sinni,
„Svartri messu”, i sviðsverk,
sem ber nafnið „Eyja i hafinu”
áður en það kemur nú fyrir
hlustendur sem útvarpsleikrit.
Útvarpsstykkið vann hann i
samvinnu við Þorstein Gunn-
arsson, sem jafnframt er leik-
stjóri.
Leikendur eru rösklega 20 og
verður leikritið flutt framvegis
á sunnudögum. Þættirnir eru
alls fimm.
Jóhannes Helgi segir að bók-
ina hafi hann skrifað i Hrisey á
árunum 1963-64, þar 'sem hann
bjó i einangrun i þeim tilgangi
aö vinna að bókinni. Hann vann
hana á eigin vegum en Helgafell
kostaði verkiö. „Eyja i hafinu”
er heimur út af fyrir sig og er
hugsuð sem ísland i hnotskurn.
Jóhannes Helgi segir að sig hafi
lengi langað til að skrifa bók um
ísland, um erlendu áhrifin i
landinu og hersetuna. Hann fór
til Hriseyjar upp á von og óvon
um að koma hugsunum sinum á
pappír. Það sem hrinti skrið-
unni af stað var gamall bruna-
lúður i kassa, fiskstúlka, sem
hann sá út um gluggann, og
bróðir Arna Tryggvasonar leik-
ara. „Stundum veit maður ná-
kvæmlega hvað maður ætlar að
gera en stundum er hugmyndin
úti i hafsauga,” segir Jóhannes
Helgi.
Séra Bolla Gústafssyni, nú
presti i Laufási mági Jóhannes-
ar Helga, varveitt prestakallið i
Hrisey árið 1963. Þá var það
sem Jóhannes ákvað lika að
fara þangað, en bókinni
„Svartri messu” lauk hann hjá
systur sinni á Hvitárbökkum i
Borgarfirði, eins og svo mörg-
um öðrum bókum sem hann hef-
ur skrifað.
Meðal þess sem hann hefur
skrifað er smásagan „Róa sjó-
menn”, bókin „Allra veðra
von”, „Horft á hjarnið”, „Hús
málarans” og „Hin hvitu segl”.
Jóhannes Heígi er nú að skrifa
ævisögu farmanns og einnig
vinnur hann að sjónvarpsefni.
—EVI
Jóhannes Heigi stendur hér I góðum félagsskap islenzkra leikara, en yfir 20 manns koma fram I fram-
haldsleikriti hans, „Eyja i hafinu”, sem verður flutt næstu sunnudaga. Það er Þorsteinn Gunnarsson
sein leikstýrir.
1