Dagblaðið - 06.11.1975, Síða 5
5
Pagblaðið. Fimmtudagur 6. nóveinber 1975.
Sjónvarp
i
s
Utvarp
Útvurp kl. 20,15 í kvöld:
Samóbyrgð og
samsekt mannsins
gagnvart með-
brœðrum sínum
— er aðalinntak leikritsins
„Óvœnt
heimsókn"
Gunnar Valdimarsson frá Teigi sér um bókmenntakynningu fyrir
börn. —Ljósm. Björgvin.
Barnatími kl. 16,40 í dag:
Kynnir bðrnum
verk höfuð-
skólda og
rithöfunda
Kl. 20.15 i kvöld er Ieikritið
„Óvænt heimsókn” eftir J.B.
Priestley á dagskrá útvarpsins.
Gisli Halldórsson stjórnar
upptöku en þýðandi er Valur
Gislason. Leikendur eru: Ævar
Kvaran, Herdis Þorvaldsdóttir,
Steinunn Jóha nnesdóttir,
Sigurður Skúlason, Sigmundur
Orn Arngrimsson, Ingunn Jens-
döttir og Valur Gislason.
Flutningstimi er 1 klst. og 45
min.
Höfundur leikritsins „Óvænt
heimsókn”, J.B.Priestley, er
fæddur árið 1894 i Bradford i
Yorkshire. Hann hlaut
verzlunarmenntun en stundaði
siðan nám i Cambridge, m.a. i
bókmenntasögu. Fyrsta bók
hans var ljóðasafnið „The
Champman of Rhymes”, er út
kom árið 1918. Eftir 1930 fór
hann að fást við ieikritagerð
fyrir alvöru. Meðal fyrstu
leikrita hans eru „The Good
Companion”, sem samið var
upp úr skáldsögu, og
„Dangeröus Corner”.
Einkennandi fyrir Priestley
eru hin svokölluðu „tima-
leikrit” hans, þar sem hann ger-
ir nýstárlegar tilraunir með
timaskyn, notar „flash-back”
sem alþekkt er úr kvikmyndum.
Priestley hefur einnig starfað
sem. gagnrýnandi og blaða-
maður og haft mikil afskipti af
alþjóðaleikhúsmálum. Hann er
án efa einn af vinsælustu brezku
leikritaskáldunum hér á landi.
Alls hafa sjö leikrit hans verið
flutt i útvarpinu, „Ég hef komið
hér áður” 1945, „Gift eða ógift”
1946, „Hættulegt horn” 1948,
„Óvænt heimsókn” 1948,
„Tvöfalt lif” 1951, ..Þau komu
til ókunnrar borgar” 1958 og
„Timinn og við” 1961. Hið
siðasttalda hefur einnig verið
sýnt á leiksviði hér.
Þjóðfélagsvandamál er uppi-
staðan i mörgum leikritum
Priestleys og svo er einnig um
leikritið „Óvænt heimsókn”,
þar sem aðalinntakið er sam-
ábyrgð mannsins eða samsekt
gagnvart meðbræðrum sinum.
Leikrit þetta samdi Priestley i
stríðslok og það var frumsýnt i
London 1946.
A.Bj.
Ævar Kvaran leikur eitt aðalhlutverkið i lcikriti kvöldsins. Ljósm.
Bjarnleifur.
1 dag kl. 16.40 er barnatimi á
dagskrá útvarpsins. Er hann i
umsjá Gunnars Valdimarssonar
frá Teigi. Við ræddum við
Gunnar og spurðum um efni
þáttarins.
Flutt verður samfelld
dagskrá úr verkum Jóhannesar
úr Kötlum og verður það
blandað efni, bæði úr ljóðum og
lausu máli. Ein af bókum
Jóhannesar kom út i þremur
bindum og nefndust þau
Dauðsmannsey, Siglingin mikla
og Frelsisálfan. — Ég tek til
flutnings kafla úr Dauðsmanns-
ey sem fjallar um litinn dreng
sem nefnist Siggi Gudduson.
Verk þetta kom út i kringum
1950 og hefur að minum dómi
ekki verið kynnt sem skyldi.
—Tiigangurinn er fyrst og
fremst að kynna börnum verk
höfuðskálda og rithöfunda. Ég
hef þá trú að börn geti tileinkað
sér annað efni en það sém kallað
er sérstakt barnaefni. Ég hef
alltaf verið dálitið gagnrýninn á
að eitthvert efni sé sérstaklega
fyrir börn.
Þessi þáttur er sá fjórði i
vetur þar sem verk rithöfunda
og skálda hafa verið kynnt. Ég
hef kynnt verk eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson, Þórberg Þórðarson,
Þorstein Valdimarsson og á
næstunni verða kynnt verk Hall-
dórs Laxness og Gunnars
Gunnarssonar.
—Hefurðu heyrt um hverjar
undirtektir þessir þættir hafa
fengið?
—Nei, þvi miður. Það er mjög
slæmt sambandsleysið sem
rikir milli hlustenda og þeirra
sem fást við dagskrárgerð.
Okkur þætti vænt um ef fólk
vildi láta heyra i sér og allar
leiðbeiningar eru vel þegnar.
Þegar við spurðum Gunnar
hvort hann væri uppeldis-
fræðingur hló hann við og
sagðist. hafa alið sjálfur sin
fjögur börn upp og það væri öll
reynsla hans i uppeldismálum.
Gunnar Valdimarsson er frá
Teigi i Vopnafirði þar sem hann
var bóndi i 20 ár. Hann starfar
nú sem næturvörður á Kjarvals-
stöðum.
Flytjendur auk Gunnars i
barnatimanum i dag eru:
Guðrún Birna Hannesdóttir,
Þorsteinn V. Gunnarsson og
Barnakór Akureyrar. A.Bj.
nýtl í hverri Viku
Brift og Rod Steward — Kona ársins — Söiukeppni Vikunnar