Dagblaðið - 06.11.1975, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 06.11.1975, Blaðsíða 11
iMammmmmmmmmmm Pagblaðiö. Fimmtudagur 6. nóvember 1975. Þetta fiskisalat getur vel verið aðalréttur i máltíðinni. Tómatasalöt eru bæði holl, góð og skrautleg á matar- borðinu. Gómsœtir grœnmetis- réttir iWJ Reiknað er með að blómkálið i þessari uppskrift sé hrátt en alit eins má nota blómkál sem hcfur verið snöggsoðið til geymslu i frysti. Nú fer vetur i hönd og hinn stutti grænmetistimi okkar er brátt á enda. Við birtum hérna nokkrar uppskriftir af gómsæt- um salötum. Blómkálssalat: Blómkálshöfði er skipt i smá- hrislur sem látnar eru i skál og sósu, sem búin er til eins og lýst er hér á eftir, hellt yfir. Smátt skorinn grænn og rauður pipar, annaðhvort saman eða sitt i hvoru lagi, látinn ofan á. Sósan: 1 bikar sýrður rjómi hrærður með 2 hráum eggjarauðum, 1 msk. af smátt hökkuðu dilli, graslauk og kjörveli blandað út i ásamt 2 msk. sitrónusafa og 1 tsk. sinnepi. Salt og pipar eftir smekk. Salat meö fiskafgöngum: Kaldur, soðinn fiskur (má vera næstum hvaða fiskur sem er, einnig reyktur). 1 salathaus. 1 búnt radisur. Graslaukur. Dill. 1 stór matarlaukur. 8—10 kaldar kartöflur, soðnar og skornar i sneiðar. 2 tómatar, ef vill. Salt og pipar. Lögur úr: 1 dl. mataroliu, 3 msk, sitrónu- safa, 1/4 dl. vinediki, 1 msk. smátt skornum graslauki, 1/2 msk. srnátt skornu dilli, salt og pipar eftir smekk. Tómatasalat með ólífum: 4 stórir og vel þroskaðir tómat- ar skornir i sneiðar. 10—12 fyllt- ar ólifur (fást aðeins niðursoðn- ar i glösum) skornar i litlar sneiðar' og raðað á tómatsneið- arnar. Yfir þetta er hellt eftir- farandi sósu: 6 msk. olia, 2 msk. vinedik, smávegis sinnep, 1 msk. hakk- aður laukur, 1 msk. hökkuð steinselja, salt og pipar. Rússneskt tómatasalat: 5 vel þroskaðir tómatar eru skornir i sneiðar og þeim raðað á fat. 1 glas kaviar (grásleppu- hrogn) látin ofan á, 2 harðsoðin egg söxuð smátt og raðað á tóm- atana og i miðið er smátt skor- inn graslaukur. Ofan á kaviar- inn er látinn rifinn börkur af sitrónu. Yfir þetta er hellt sósu: 3/4 dl. olia, 3 msk. sitrónusafi, 1 rif smátt saxaður hvitlaukur, salt og pipar. Með þessu á að borða sýrðan rjóma. r ARABIA HREINIÆTISTÆKÍ Finnsk gæðavara GERIÐ VERÐSAMANBURÐ <~B\jc)C)ingcioöruverzlunin^ 1!33®!IíS3!1™f SKULATUNI 4 SIIVII 25150 TOYOTA vetrarskoðun 1. Vélastílling 2. Stilltir ventlar 3. Hreinsun á blöndung 4. Skipt um kerti 5. Hreinsuö loftsia 6. Fyllt á rúðusprautu (frostvari) 7. Mældur frostlögur 8. Rafgeymir mældur, geymissambönd hreinsuð 9. Viftureim skoöuð 10. Stillt kúpling. Verö meö sölusk. kr. 5500—6500 eftir gerðum. Innifaliö í veröi: Kerti, platinur, ventlaloks- pakkning, frostvari á rúöusprautu, vinna. TOYOTA þjónustan Ármúla 23. — Simi: 30690 —

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.