Dagblaðið - 06.11.1975, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 06.11.1975, Blaðsíða 12
12 Pagblaðið. Fimmtudagur 6. nóvember 1975. Pagblaðið. Fimmtudagur fi. nóvember 1975. 13 íþróttir Iþróttir v**> < ■ Kþróttir iþróttir róttir Fóru yfir 100 stigin Finnska liðið Playboys sigraöi Armann i sfðari leik liðanna i Evrópukeppni bikarhafa i körfu- bolta meö 2fi stiga mun i Heisinki i gær. Lokatölur 107-81 og finnska liðið vann þvi samaniagt 195-146. t Keykjavik 88-65. Ánnenningar byrjuðu vel i gær — skoruöu sex fyrstu stigin, en Playboys voru fljótir að snúa blaöinu við. Komust i 20-lfi og i hálfleik 55-36. Jimmy Itogers, bandariski svertinginn i liði Ármanns, var stigahæstur með 29 stig, en Jón Sigurðsson skoraði 21. i liði Playboys Sarkalathi stigahæstur ineð 30 stig (19 i Reykjavik), en Handarikjamaðurinn Canon lét sér uægja 21 stig — 33 stig i leiknum i Rcykjavik. West Ham ekki í vandrœðum West Ham átti ekki i vandræðuin með Ararat Jerevan austán úr Kákasus. Paddon opnaði marka- reikning West Ham mcð þrumu- fleyg og Robson bætti öðru marki við fyrir hálfleik. Alan Taylor skoraði þriðja markið við geysi- legan fögnuð hinna 30 þúsund áhorfenda á Upton Park. Petrosian tókst siðan að minnka inuninn en sigur West HAM var aldrei i hættu. West Ham komst áfram — geröu jafntefli I Jerevan 1-1. Samanlagt þvi 3—1. Hadjuk Split — mótherjar Kefl- vikinga á siðasta keppnistimabili — voru ekki i vandræöum með belgfsku meistarana frá Molcn- beek. Eftir stórsigur sinn i Júgó- slaviu 4—0 sigraði Hadjuk lika i Belgíu 3—2. Surjak, Zugnal og Govanik skoruðu fyrir Júgóslav- ana, en Tuegels og Nielsen fyrir Belgana. Liðið úr 3. deild komið í 3. umferð! I.itla Wrexhain frá Wales stendur fyrir sinu. i gærkvöldi náði liðið jöfnu gegn pólsku bikar- meisturunuin Stal R/.eszow —1—1. Kozerki byrjaði að skora fyrir Pólverjana, en sköminu fyrir leiks- lok lókst Mel Sutton að jafna fyrir Wrexham. I.iðið vann fyrri leikinn 2- 0 þannig að samanlagt vann það 3- 1. I>eim mun athyglisverðara er þessi sigur Walcsbúa, sem leika i 3. deildinni ensku, að þeir hafa enn ekki lilotiö stig á útivelli i 3. deild. Já, þeir lial'a stór lijörtu i Wales. i UEFA-keppninni i gær sigraði Bareelona italska liðið Lazió með 1—0 á lcikvclli sinum. Hollendihg- arnir i spánska liöinu, Cruyff og Neeskens, voru óstöðvandi og skoruðu sitt markið hvor. Hin tvö skoruðu Sotil og Fortcs. Áhorf- endur voru 40 þúsund i Barcelona. Liðin léku ekki fyrri leik sinn, sem átti að vera i Róm — ítalir þorðu ekki að taka áhættu á þvi að leikið væri vegna hugsanlegra óeirða — og var Barcelona af U.EFA úthlutaður 3—0 sigur. Samanlagt vann þvi Barcelona 7—0. Eþróttir Eþróttir 1 Iþróttir Þetta var knattspyrna. Leikmenn Kænugarðsliðs- ins Dinamo sýndu áhorf- endum — 4091 keyptu sig inn — á Melavelli i gær- kvöldi hvers vegna liðið er talið hið sigurstrangleg- asta í Evrópubikarnum — keppni meistaraliða — sýndi hvers vegna liðið hefur ekki tapaö leik í Evrópukeppni i tvö ár. Þarna voru knattspyrnu- menn á ferðinni, sem kunna allt i knattspyrnu frá a til ö. Snillingar — leiknir, fljótir, taktiskir, jafnvel malarvöllurinn gamli góði, dró litið úr getu þeirra. Meira að segja þó pollar væru þar á þremur stöðum, sem kom vissu- lega á óvart eins og veðri var háttaö i gær, sýndi liðið heilsteyptari leik en sézt hefur hér áður. En það þarf tvö lið til ab gera kriattspyrnuleik góðan og skemmtilegan. Þar var hlutur Akurnesinga frábær gegn þessu sterka liði — já, hreint ótrúlega góður. Það er ekki vafi á þvi, að liö tslandsmeistara Akurnesinga nú er jafnbezta lið, sem knatt- spyrnubærinn mikli — Akranes — hefur teflt fram i þau 25 ár, sem lið frá Akranesi hafa sett svip á islenzka knattspyrnu. Toppur liðsins kannski ekki alveg jafn hár og þegar bezt lét áður, en breiddin miklu, já, miklu meiri. Það er ný gullöld i knattspyrnu Skagamanna — tslandsmeistar- arnir nú leika góöa knattspyrnu, þar sem knötturinn er látinn vinna — samleik fléttað saman. Oft gekk knötturinn milli nær allra leikmanna liðsins án þess þeir sovézku kæmu við hann. Ekki eins og áður var svo oft ein- kennandi i islenzkri knattspyrnu — sparkað, hlaupið. Að visu höfðu Skagamenn aldrei möguleika til sigurs i Evrópubikarleiknum á Melavell- inum gegn snillingum Kænu- garðsliðsins, en hvaða lið i Evrópu hefur það? Þó áttu þeir miklu fleiri sóknarlotur — fleiri tækifæri — en til að mynda Evrópumeistarar Bayern i leikj- um sinum við Dinamo i stórbikar Evrópu á dögunum. Það kom vissulega á óvart hve góð tæki- færi Skagamenn fengu — þeir voru jafnvel óheppnir að skora ekki 2—3 mörk i leiknum. Þá fyrst og fremst úr vita- spyrnunni, sem dæmd var á Di'namo. ,,Það var greinilega vitaspyrna”, sagði irski dómar- inn Wright ..miðherjinn ykkar, Matthias Hallgrimsson. var kom- inn i gott færi, þegar einn leik- maður kippti i peysu hans — dró Matthias frá knettinum". Björn Lárusson tók vitaspyrnuna, en brást bogalistin — spyrnti knett- inum rétt yfir þverslá. En fleiri marktækifæri Skagamanna ylj- uðu áhorfendum. Jón Gunnlaugs- son skallaði knöttinn rétt yfir þverslá i fyrri hálfleik eftir frá- bæra aukaspyrnu Árna Sveins- sonar (Sjá mynd) — Sjálfur átti Arni hörkuskot i siðari hálfleik. en knötturinn fór nokkrum milli- metrum framhjá stöng, Þröstur Stefánsson þrumufleyg, sem ris- inn Rudakof sló yfir þverslá á sið- ustu stundu. Teitur Þórðarson komst frir innfyrir, en Rudakof rak út fótinn og varði. Heppinn þar. tSjá mynd). Synd að Skagamenn skoruðu ekki úr einhverju þessara tæki- færa — og svo fengu þeir á sig tvö mörk af ódýrustu gerð. Hið fyrra Bjarnleifur á Evrópuleiknum. —Myndin efst lil vinstri: Teitur Þórðarsun koniinn innfyrir vörn Dinaino — spyrnti á markið, en Rudakol rak út sinn langa fót og varði. Til liægri skallar Jón Gunnlaugsson á inark Dinamo — knölturinn sleikti þverslána að idanveröu. Til liliðar: Vita- spyrnan og Björn Lárusson helur lyl't kneUinum einum um ol' —liann strvkst yfir þverslána og leikinenn Kænugarðsliösins sluppu inéð skrekkinn. Svo nœrri samt svo fjarri „Annaðbvort fara þeir inn eða ekki. Eg ákvað að bregða út af vananum og negla i stað þess eins og ég er vanur að setja boltann i annað livort hornið,” sagði Björn Lárusson en hann brenndi af viti og inöguleikar Skagamanna á að jafna runnu út i sandinn. ,,Eii þeir voru góðir og lofuðu okkur að spila. Það er stórkost- legt að leika á móti jafngóðu liði og Kiev liðiðer. Mér fannst við ná vel saman, sérstaklega i siðari hálfleik." „Svo nærri en samt svo fjarri,” sagði George Kirby, þjálfari Akurnesinga, eftir leik Dynamo Kiev og Akraness i gærkvöldi. ,,Var ekki allt rétt scm við sögðuin um þetta lið? Þeir eru góðir og samt stóöum við þetta i þeim. Já, ég get ekki verið annað en ánægður meö frammistöðu minna mánna,” sagði Kirby um leið og hann brá sér i sturtu. ,,Jú. mér fannst strákarnir ná góðum leik. Þeir spiluðu vel sam- an og liefðu auðveldlega getað skorað eitt cða tvö mörk. Þetta Dinaino lið er virkilega skenimti- legt," sagði Rikharður Jónsson um leikinn og var þotinn, enda i nógu að snúast. um miðjan fyrri hálfleik. Gefið var inn i vitateiginn og af varnar- manni féll knötturinn fyrir fætur Onisjenko. Ovænt komst hann i gegn — renndi knettinum fram- hjá Davið markverði. innan á stöng og i mark. Hið siðara var sjálfsmark Jóns Gunnlaugssonar — snillingurinn Blohkin og Luyen léku upp vinstra megin. Blohkin gaf á Luyen. sem spyrnti fyrir markið. Jón ætlaði að spyrna frá — hitti illa, og knötturinn þaut framhjá Davið i markið. Hins vegar fóru leikmenn Dinamo illa með sin beztu tæki- færi — einkum Blohkin. einn mesti snillingur, sem leikið hefur hér á landi. Hreint ótrúlega fljót- ur og leikinn. En þessi kunnasti leikmaður liðsins, sem sökkti Bayern. var ekki á skotskónum hér. Það var ekki hans dagur i markaskoruninni. 2—3 auðveld tækifæri misnotaði hann. Samt var þar mesti snillingurinn á, ferð á vellinum og dæmigert. Eini ein- staklingshyggjumaðurinn í ann- ars samfelldri heild sovézkra. Sigur Kænugarðsliðsins var aldrei i hættu og þvi leyfðu leik- menn sér þann munað að leika ekki allfaf á fullu — forluðust ná- vigi. Hugsuðu aðeins um að kom- ast heilir úr þessari viðureign i átökin framundan i Evrópu- keppni landsliða. En hæfni liðsins levndi sér aldrei. Ég þori varla að hugsa til þess hvaða útreið islenzk lið áður fyrr hefðu fengið i viðureign við lið á borð við Dinamo — og þá um leið öll önnur islenzk lið nú en Akra- nes og landsliðið. Akurnesingar voru lslandi til sóma i gærkvöldi i viðureign við jötun Evrópu. Hreint undravert úthald. sem leikmenn syndu — liðið er i frábærri æfingu. Lék án efa sinn bezta leik á leiktimabil- inu hér heima — og varla trúi ég að leikur liðsins hafi verið betri i Kænugarði. Enn ein fjöður i hatt islenzkrar knattspyrnu i sumar. Allir leikmenn liðsins stóðu fyr- ir sinu og ég hef ekki i annan tima séö Matthias Hallgrimsson betri. ..Alltof góður leikmaður til að fara til Brann", sagði Halldór Halldórsson. landsliöskappinn úr Val hér áður fyrr. Já, Matti var snjall — en það voru fleiri.. Guðjón Þórðarson lék sinn bezta leik fyrr og siðar — Jón Allreðs- son ákaflega drjúgur „bezti leik- maður islen/.ka liðsins", sagði VVright dómari. Jón Gunnlaugs- son klettur i vörninni — Teitur sækinn, Arnf og Karl nettir. Þröstur, Björn, Jóhannes traustir og Davið varði það, sem hægl var að krefjast af honum. Is- landsmeistarar Akraness léku knattspyrnu — knattspyrnu. sem var þeim og tslandi til sóma. —Iisim. Gamla meistaraliðið sýndi meistaratakta Real Maclrid — sex siiinum Kvrópuiiieistari — gerði það sem llestir tölclu ómögulegt, sigraði llerby 5-1 og sló ensku meistar- aua út úr Kvrúpukeppni mcist- araliða. Já, vissulega er þetta góður sigur lijá Netz.er og félög- um en i lið Derby vantaði McFar- lancl, Rioc. Lee og Newton. Mikill hraði var strax i leiknum og 120 þúsund áhorfendur hvöttu sina menn ákaft i Madrid. Strax á 5. minútu skoraði Martinez mark fyrir Spánverjana. Stöðug sókn var á mark Derby en Boulton stóð eins og klettur þar. En hann átti ekki möguleika, þegar Santillana skoraði annað mark Real i byrjun siðari hálfleiks. Skömmu siðar skoraði Nish sjálfsmark og Spán- verjarnir voru komnir yfir á úti- marki, sem þeir skoruðu i Derby. Töpuðu þar 1-4. En Derby gafst ekki upp. George skoraði fyrir Derby og allt á suöupunkti. Aðeins sjö min- útum fyrir leikslok urðu Todd á mistök, sem kostuðu viti, þegar hann felldi Amancio innan vita- teigs. Pirri skoraði örugglega úr vitinu og framlengja varð leikinn. Nú voru Spánverjarnir komnir á bragðið ákaft hvattir af áhorf- endum. Þetta reyndist Derby of- viöa. t framlengingunni skoraði Santillana sitt annað mark eltirírábæra sendingu frá vestur- þýzka snillingnum Poul Breitner. Leikmenn Derbv vissu þá að þeir höfðu tapað fyrir sér betra liði en ómögulegt hefði verið að segja hvernig farið hefði ef fjór menningarnir hjá Derby hefðu verið með. Sem sagt Real komst áíram á betri marka'ölu, saman lagt fi-5. — li.lialls. Jóhannes skoraði Jóhannes Eðvaldsson átti góðan leik á Parkhead í gærkvöldi, þegar Celtic sigraði Boavista frá l’ortúgal 3-1. Að viðstöddum 37 þúsund áhorfendum skoraði Dalglish fyrsta markCeltic. Áhorfendum til mikillar skelfingar öfnuðuPortúgalir- Mane skoraði. 3n Jóhannes kom Skotunum yfir ■neð góðu marki við geysilegan fögnuð áhorfenda. Þannig var staðan i hálfleik 2-1. í siðari hálf- leik bætti svo Dixie Deans við þriðja markinu og Celtic var komið 3. umferð. Jafntefli var i fyrri leiknum 0-0. Benfica var í vandrœðum Benfica lenti i miklum vandræð- um i Budapest. Eftir stórsigur í Lissabon 5—2 áttu flestir von á að liðið kæmist auðveldlega áfram. En Upezti Dozsa var á öðru máli. Gamla kempan Bene skoraði tvö mörk fvrir Ungverjana og Nagy bætti þvi þriðja við. En 10 minútum fyrir leikslok tókst Nene að skora og Benfica komst áfram samanlagt 6—5. PSV Eindhoven sigraði pólsku meistarana, Rueh Chorzow ör- ugglega i Einhoven 4-0. Kerkhof- bræðurnir ,,áttu" þennan leik. Rene van Kerkhof byrjaði á að skora eftir sendingu frá bróður sinum. Siðar átti Rene frábærar sendingar á Willy van der Kuvlen. sem skoraöi tvö næstu mörk. Lubse skoraði siðan fjórða mark Hollendinganna og Eind- hoven var öruggt um að kmast ál'ram i 3. umferð. Haföi einnig sigrað i Póllandi 3-1. Samanlagt 7- 1. Athyglisverður sigur yfir þessu sterka, pólska liði. Rongers sótti Frakkar unnu Glasgow Rangers sótti stlft gegn frönsku meisturunum St. Entienne á Ibrox Park i Glasgow. Frakkarn- ir vörðust vel og i síðari hálfleik skoraði Rocheteau tvö mörk. Þó McDonald tækist að minnka mun- inn skömmu fyrir leikslok voru Skotarnir sigraðir af sér betra liði. — Frakkarnir unnu samanlagt 4—1. tsorussia Mönchengladbach komst áfram i 3. umferð eftir jafntefli gegn itölsku meisturun- um Juventus i Torino — 2-2. En það leit ekki vel út hjá þýzku meisturunum. Gori skoraði mark i fyrri hálfleik og um miðjan siöari hálfleik skoraði Bettega — og allt i járnum. Þjóðverjarnir unnu i Þyzkalandi 2-0. En v-þyzka liöið syndi hversu það er sterkt. Danner skoraði fvrir Þjóðverj- ana áhorfendum til mikillar skelfingar og skömmu lvrir leiks- lok skoraði Allan litli Simonsen annað mark Þjóðverjanna og Borussia komst áfram samanlagt 4-2 Svíi felldi Svíana! Bayern Munchen átti í mikluin erfiðleikum nieð sænsku meistar- ana frá Málmey. Það var ekki fyrr en langt var liðið á siðari liálfleik. að Durnberger skoraði fvrir Bay- ern og jafnt var, þvi Sviarnir sigr- uðu i Málmey 1—0 En það var Svii, sem kom Sviun- ú.m út úr keppninui. Connv Thor- stenssoii skoraði sigurmark Bay- ern sköniinu fyrir ieikslok og Þjóð- verjarnir sluppu með skrekkinn, uniiu samanlagt 2—1.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.