Dagblaðið - 06.11.1975, Síða 6

Dagblaðið - 06.11.1975, Síða 6
6 Pagblaðið. Fimmtudagur 6. nóvember 1975. Ben Barka-málið tekið upp á ný Mál Mehdi Ben Barka, leiðtoga vinstrimanna i Marokkó, sem hvarf á dular- fullan hátt i franska hverfinu i Paris fyrir 10 árum, hefur verið tekið upp á ný. Franski undirheimurinn, lög- reglan, leyniþjónustan og st jórn Marokkó, allir þessir aðilar urðu á sinum tima fyrir miklum óþægindum vegna málsins og vegna „öryggis rikisins” kom franska stjórnin i rauninni i veg fyrir að allir málavextir væru dregnir frami dagsljósið. Nú hefur sonur Ben Barka, Bachir, 25 ára gamall, höfðað mál á hendur óþekktu fólki fyrir „morð og samsæri um morð” á leiðtoganum horfna. Dómari hefur verið skipaður i málið. Bachir Ben Barka, sem nemur við háskólann i Rennes, hefur ekki gefið upp alla von um að raunverulegir morðingjar föður hans — og enginn efastum að marokkanski leiðtoginn hafi verið myrtur af pólitiskum ástæðum — hljóti sinn dóm. Hann hefur vakið málið upp nú til að koma i veg fyrir að það fyrnist, eins og gert er ráð fyrir um 10 ára gömul mál eða eldri skv. frönskum lögum. Hann sagði á blaðamanna- fundi i Paris nýlega: „Þar sem föður minum var rænt rekur maður sig alltaf á vegginn, sem segir ekki orð.” Hvað nákæmlega gerðist þegar Ben Barka hvarf, virðist enginn vita, og heldur ekki hverjir eru hinir raunverulegu morðingjar hans. Tvenn meiri- háttar réttarhöld voru og tóku langan tima — þeim siðari lauk i júni 1967 — en ekkert kom þar fram, sem stætt var á. Mikill fjöldi manna var yfir- heyrður og hafður i haldi um stundarsakir— þar á meðal lög- reglumenn, skúrkar, blaða- menn, diplómatar, stjórnmála- menn, lögfræðingar og fleiri og fleiri. Enginn vissi nokkurn hlut. Töluverð áhrif á réttarhöldin hafði skyndilegt sjálfsmorð eins aðalvitnisinsog svo skyndilegur vitnisburður Dlimis höfuðs manns, yfirmanns leyni- þjónustu Marokkó, sem svaraði fyrir yfirmann sinn, Oufkir hershöfðingja. Oufkir var dæmdur i fjarveru sinni i lifs- tiðar fangelsi. Siðar voru minni háttar spámenn i málinu — tveir lögreglumenn, yfirmaður hjá Air France, leyniþjónustu- maður og einn eða tveir skúrkar — dæmdir til fangelsisvistar. Enginn var ákæröur fyrir sjálft morðið á Ben Barka, heldur aðeins fyrir brottnám hans. Charles de Gulle sjálfur hafði lofað móður Ben Barka, að einskis yrði látið ófreistað til að komast að sannelikanum i málinu. í april 1967 sagði hann við Vincent Monteil prófessor, sérfræðing i málefnum Araba: „Hinir seku verða að taka út sina refsingu. Ég á við Oufkir og Dlimi, svo ekki sé minnzt á konunginn, upphafsmann og þátttakanda i glæpnum.” Það eina, sem staðfest varð fyrir réttinum á sinum tíma, var að 29. október 1965hafði lög- regluþjónn beðið Ben Barka að koma með sér inn i lögreglubil. Marokkómaðurinn var^ þá að koma út úr veitingahúsi i Paris. Hann var fluttur til einbýlishúss i eigu undirheimaforingja i út- hverfi Parisar og þangað komu þeir Oufkir og Dlimi leynilega til að yfirheyra hann 30. október. Talið er, að þeir hafi gefið skipun um brottnám stjórnmálaleiðtogans með sam- þykki franskra yfirvalda. Aldrei fannst tangur né tetur af Ben Barka. A undanförnum átta árum hafa allar tilraunir til að endurvekja málið strandað á afskiptaleysi dómsvaldsins. Nú, þegar Lecanuet er orðinn dómsmálaráðherra, kann að fara svo, að málið verði tekið fastari tökum. Það var hann, sem I kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar 1965 for- dæmdi frönsku stjórnina harð- lega fyrir afstöðu hennar til mannránsins. En aftur á móti er Oufkir hershöfðingi og nokkrir aðrir mikilvægir menn i þessu sam- bandi komnir á fund feöra sinna og þeir sem eftir lifa eru heldur fámálir, ef miða má við það, sem á undan er gengið. Algengt efni i kvikmyndum Pasolinis að undanförnu var ofbeldi og aöeins nokkruin klukkustundum áðuren bann var myrlur fordæmdi liann olbeldi nútimaþjóðfélagsins i blaðaviötali. Stóra myndin er af liki lians, sú innsetta tekin i siöustu viku af lionum á blaðamanna- fundi. Pasolini grafinn í dag Þúsundir manna söfnuðust saman i miðborg Rómar i gær- kvöldi til að votta kvikmynda- ge rða rm anninum Paolo Pasolini, sem myrtur var á sunnudaginn, hinztu virðingu sina. t mannfjöldanum voru leikarar og listamenn áberandi, en þar voru einnig ibúar fátækrahverfa borgarinnar og „venju legir” Rómverjar. Rithöfundurinn Alberto Moravia og fleiri vinir lista- mannsins fluttu ávörp og þökkuðu Pasolini fyrir listhans. 17 ára gamall piltur hefur játað á sig morðið, sem varð eftir að PasoJini — sem var yfir- lýstur kynvillingur — hafði leitað á piltinn með kynmök i huga. Pasolini verður grafinn i Cas- arsa i dag. Alkirkjuráðið vill ákveða dagsetningu páska Guillaume-réttarhöldunum að Ijúka Réttarhöldin i máli austur þýzka njósnarans Giinters Guillaumes, sem var helzti ráðgjafi Brandts, fyrrum kanslara Vestur-Þýzkalands, var frestað i tvær v-ikur i gær svo að lögfræðingar sóknar og varnar gætu undirbúið lokaávörp sin. Réttarhöldin hafa staðið i fjóra mánuði. Frestunin var tilkynnt eftir að siðasta vitnið, Fritz Förtsch, einn yfirmanna leyniþjónustu þýzku utanrikisþjónustunnar, hafði gert réttinum stuttlega grein fyrir mikilvægi þeirra upplýsinga, sem Guillaume hafði aðgang að á meðan hann vann með kanslaranum fyrrverandi. Förtsch talaði fyrir lokuðum dyrum. Ekki þykir ljóst hver áhrif njósnir Guillaumes geta hafa haft á njósnakerfi austurblokkar- innar, en Brandt sjálfur hefur sagtþau mögulega vera „umtals- verð”. Guillaume á lifstiðar fangelsisdóm yfir höfði sér. Dæmt verður i desember. Akveðin dagsetning páska nýtur stuðnings yfirgnæfandi meirihluta þeirrar 271 kirkju- deildar mótmælenda, orþódoxa og kaþólikka, sem aðild eiga að Alkirkjuráðinu i Genf. Frá þessu sagði i yfirlýsingu frá ráðinu i gærkvöldi. Sagði þar, að samkvæmt könnun, sem gerð hefði verið á vegum ráðsins, þá væru aðeins örfáar kirkjur og kirkjudeildir, sem veigruðu sér við — eða neituðu — að fallast á tillögu um að páska skyldi ævinlega bera upp á annan laugardag i april. Sem stendur fylgja páskar gangi himintunglanna. Páskar eru nú á fyrsta sunnudegi eftir fullt tungl á eftir jafndægri á vori, að þvi er segir i frétt Reuters. Orþódoxakirkjur austan járn- tjalds fagna venjulega páskum siðar en kirkjur á Vesturlöndum, þar sem notað er annað timatal. Aö sögn Alkirkjuráðsins er rómversk-kaþólska kirkjan fylgjandi þvi, að þetta nýja fyrir- komulag verði tekið upp þegar 1977, þegar páska ber upp á annan sunnudag i april hvort eð er. Svo kann að fara, að fundur ráðsins i Nairobi i Kenýa, sem haldinn verður siðar i þessum mánuði, beini þeirri ósk til aðildarkirkna, að þær bindi sig við ákveðna dagsetningu páska i framtiðinni, en ekki er þó vist að málið verði rætt á þeim fundi vegna andstöðu einstaka rétt- trúnaðarkirkna. Nýr forseti í Bangladesh Forseti Bangladesh, Khondker Mushtaqe Ahmed, hefur sagt af sér og verður nýr forseti settur inn i embættið i dag. Það er forseti hæstaréttar landsins, A.M. Sayem. Frá þessu var skýrt i frétta- sendingu útvarpsins i Dacca, sem heyrðist i Kalkútta á Indlandi. Tilkynningin kemur i kjölfar þriggja daga valdabaráttu i Bangladesh. Mushtaque Ahmed varð forseti landsins eftir að landsföðurnum, Mujibur Rahman, var steypt af stóli og hann myrtur 15. ágúst i sumar Sayem dómari var i Kalkútta á þeim tima, en hann fór heim á leið fjórum dögum siðar. Skömmu áður en tilkynningin um forsetaskiptin var lesin upp i útvarpi, hafði verið útvarpað til- kynningu stjórnarinnar um að Mushtaque Ahmed hefði sett á laggirnar 10-manna byltingarráð til að stjórna landinu. Var sú tilkynning fyrsta visbendingin um að hann væri enn við völd. 1 Khondker Mushtaque Ahined. siðari tilkynningunni sagði að Ahmed hefði gefið út tilskipun. byggða á lögum frá 20. ágúst, þar sem forseta landsins er veitt svig- rúm til að tilnefna eftirmann sinn ef hann væri sjálfur ófær um að gegna embætti eða vildi hætta fyrir aðrar sakir. Erlendar fréttir REUTER

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.