Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.11.1975, Qupperneq 3

Dagblaðið - 07.11.1975, Qupperneq 3
Pagblaðið. Föstudagur 7, nóvember 1975. 3 Nýjasta nýtt í bifreiðaviðgerðum: Ákvœðisvinna með tíma- kaupsólagi Algerlega ólöglegt segja þeir hjó verðlagsstjóra ann vegna þess að bilar á ís- landi séu óhreinni og ver farnir en bilar erlendis, þar sem við- gerðir gegn ákveðnum töxtum eru algengar. Dagblaðiðræddi þetta mál við lögfræðing Félags isl. bifreiða- eigenda og sagði hann að FÍB teldi það algjörlega ólöglegt af verkstæðunum að taka bæði á- kvæðisvinnugjald og bæta tima- kaupi ofan á. Viðskiptavinir verkstæðanna ættu og rétt á þvi að fá að vita fyrirfram hvort viðgerð á bil þeirra yrði unnin i ákvæðisvinnu eða timavinnu og ættu i raun að fá að ráða, hvor tilhögunin yrði viðhöfð. Að bæta timagjaldi ofan á ákvæðis- vinnutaxta vegna óhreininda á bil, væri sambærilegt við það að trésmiður heimtaði hærri á- kvæðisvinnutaxta ef snjókoma væri eða rigning er hann væri við vinnu sina. FIB telur ákjósanlegt að á- kvæðisvinnufyrirkomulagið verði hér innleitt, en að sjálf- sögðu undir eftirliti og að á- kvæðisvinnutaxtar yrðu aug- lýstir og eftir þeim væri ná- kvæmlega farið en ekki pukrað með þá og bætt við þá að geð- þótta. ASt. Fjögur bifreiðaviðgerðar- verkstæði hafa fengið leyti verðlagsst jóra til að taka að sér bifreiðaviðgerðir i ákvæðis- vinnu. flafa viðkomandi verk- stæði fengið samþykki verð- lagsstjóra fyrir ákveðnum gjaldtöxtum fyrir hinar ýmsu tegundir viðgerða. Eru þeir taxtar ákveðnir eftir þeim stundafjölda sem viðgerðin er talin taka. Verkstæðin fjögur sem fengið hafa leyfi til þessara ákvæðis- vinnu-viðgerða eru: Hekla, P. Stefánsson, Sveinn Egilsson og Skoda-verkstæðið. Siðan þessi skipan komst á hefur ýmsum viðskiptavinum verkstæðanna þótt bregða Ut frá þvi að farið væri eftir töxtunum i einu og öllu. I ýmsum tilvikum virðast verkstæðin taka fullan ákvæðisvinnutaxta og bæta sið- an ofan á timavinnukaupi eftir mati og eigin geðþótta. „Slikt er algerlega óheimilt,” sagði talsmaður verðlagsstjóra i viðtali við Dagblaðið, ,,og þyrftum við að fá reikninga yfir slikar viðgerðir til að komast að hinu rétta i málinu. Starfsmaður á einu verkstæð- anna hefur sagt að timavinnu sé bætt ofan á ákvæðisvinnutaxt- Hœtta Húsvíkingar að reykja? Skaðsemi reykinga er nú að verða öllum landslýð ljós, en Hús- vikingar fá þó tækifæri til aðstoð- ar við að hætta að reykja dagana 9.—13. nóv. Verður þá námskeið i þvi hvernig hætta á þessum ljóta leik. Gisli Auðunsson læknir fjall- ar um málin læknisfræðilega en Jón Hj. Jónsson bindindisfulltrúi fjallar um sálfræðilegu hlið máls- ins. Kvikmyndir um skaðsemi reykinga veröa svo sýndar á hverju kvöldi. Námskeiðið er öll- um opið og fer innritun fram dag- lega i sima 4Í356. Umboðssala ó nýjum og notuðum hljóðfœrum „Við verðum með alls konar hljóðfæri og hljómtæki til sölu,” segja tveir ungir menn, Anton Kröyer og Gunnar Jósepsson, sem eru að opna umboðssölu að Hverfisgötu 108. Verzlunin ber nafnið Hljómbær. Þeir segjast álita mikla þörf fyrir svona verzlun hér, þar sem engin slik sé til. Um leið og þeir voru búnir að setja upp skilti i búðinni: Tökum i umboðssölu, var mikiðum að menn spyrðu eða kæmu með hljóðfæri sem þeir vildu selja. „Hljóðfæraverzlanir taka yfirleitt ekki neitt i umboðs- sölu.þarsem þær flytja hljóðfæri og hljómtæki inn sjálfar,” segja þeir — og vonast til að bæði kaup- endur og seljendur fari ánægðir eftir viðskipti við þá. EVI Þeir lélagar Gunnar Jósepsson og Anton Kröycr eru cigendur nýju ver/.lunarinnar og auðvitað spila þeir sjálfir á hljóðfæri, Anton á gitar og Gunnar trommar undir. — DB-mynd Björgvin. Stjórn og starfsmenn Kaupmannasamtaka islands. Frá vinstri: Sveinbjörn Árnason, Sigurður Matthiasson, Leifur isleifsson, Magnús E. Finnsson framkvæmdastjóri, Gunnar Snorrason formaður, Sveinn Björnsson, Jón I. Bjarnason fundarritari, Hreinn Sumarliðason, Asgeir S. Ásgeirsson og Jónas Eggertsson. UNNIÐ AÐ FRJÁLSRI MJÓLKURSÖLU OG LANGLÁNASJÓÐI VERZLUNARINNAR Kaup manna- samtök Islands 25 óra Á morgun eru 25 ár liðin frá stofnun Kaupmannasamtaka Is- lands. Stofnfélög voru fjögur en nú eru aðildarfélögin rúmlega 20 auk einstaklinga, en samtals eru um 700 félagar i Kaupmannasam- tökum Islands. Tilgangur samtakanna er að vinna að hagsmunamálum félaga sinna, koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart opinberum aðilum og stofnunum, annast undirbún- ing og gerð allra kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna við sam- tök launþega, safna skýrslum varðandi vörudreifingu i smá- sölu, beita sér fyrir umbótum á verzlunarlöggjöf og vinna að af- námi hafta, verðlagsákvæða og hvers konar þvingana, er skerða rétt og frjálsræði verzlunarinnar. Kaupmannasamtökin hafa stuðlað að og átt beinan þátt i stofnun margra félaga og fyrir- tækja tengdra verzlun á ýmsan hátt. Má þar til nefna Verzlunar- sparisjóðinn á sinum tima en kaupmenn eiga um helming hlutafjár núverandi banka. Meö stofnun sjóðsins og siðar bankans var stórt skref stigið til uppbygg- ingar verzlunar i landinu. Þá áttu Kaupmannasamtökin hlut að máli er tollvörugeymslan var stofnuð. Samtökin hafa á sið- asta áratug beitt sér fyrir stofnun sérstakra stofnlánasjóða til þess að leysa eftir megni lánsfjárþörf félagsmanna. Eru þessir stofn- lánasjóðir nú fjórir, fyrir mat- vöruverzlanir, skó- og vefnaðar- vörukaupmenn, raftækjasala og almennur stofnlánasjóður. Hafa þessir sjóðir mjög greitt götu fé- laga samtakanna og stuðlað að uppbyggingu smásöluverzlana, en kaupmenn telja verzlunina mjög afskipta á almennum lána- markaði i landinu. Samtökin hafa unnið að marg- vislegri fræðslustarfsemi og haldið námskeið fyrir kaupmenn og afgreiðslufólk og hafa samtök- in átt ánægjulegt samstarf við Norðmenn i þessum efnum. Af öðrum málefnum, sem nú er unnið kappsamlega að, má nefna skipulagsmál, stofnun langlána- sjóðs fyrir verzlunina, að inn- heimtulaun verði greidd fyrir söluskattsinnheimtu, verðlags- mál og frjálsa mjólkursölu. —ASt. DUNA FLYTUR I SIÐUMULANN Siðumúlinn. eða Blaðsiðumúli, eins og sumir vilja kalla hann. er að verða ein af vinsælustu verzlunargötum borgarinnar. Stöðugt bætast þar við fleiri og fleiri fyrirtæki, og þessi rólega gata er að verða ein af mestu umferðargötum borgar- innar. Nýjasta fyrirtækið við Siðumúl- ann er húsgagnaverzlunin Dúna. Hún flutti i hverfið nú i vikunni i nýtt og rúmgott húsnæði. Dúna er nú á tveimur stöðum i bænum,— hin verzlunin er i Glæsibæ. Að sögn eigenda fyrirtækisins mun þó Glæsibæjarverzlunin hætta um áramótin og verður þá verzlunin á einum stað. Húsgagnaverzlunin Dúna var stofnuð árið 1963. Hún er rekin sem hlutafélag, en aðaleigend- urnir eru hjónin Helga Jensdóttir og Óskar Halldórsson. Fyrirtækið framleiðir sjálft öll bólstruð hús- gögn, sem það selur, i eigin verk- smiðju, en borð.skápar ogþvi likt er flutt inn frá Englandi og Dan- mörku. Rafmagnsvörur verzl- unarinnar koma hins vegar frá Þýzkalandi. —A T—

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.