Dagblaðið - 07.11.1975, Qupperneq 18
18
Oagblaðift. Föstudagur 7. nóvember Í975.
Friðrik vann
Murray í gœr
Ribli og Liberzon efstir og
jafnir — Friðrik og Parma
mann, læknir, Balur Möller,
ráðuneytisstjóri, Tómas Arna-
son, alþingismaður, Vilhjálmur
Arnason, hæstaréttarlögmaður,
Mikael Jónsson, forstjóri,
Kristján Oddsson, bankastjóri,
Haraldur ólafsson, lektor,
Gunnlaugur Finnsson, alþingis-
maður, Baldur Mariasson,
Flugleiðum, Jóhann Gislason,
tannlæknir, Ólafur Hannesson,
prentari og fótboltamaður fyrr-
verandi, Sæmundur Pálsson,
lögregluþjónn og lifvörður
Fischers, Vilmundur Gylfason,
Sófus Hólm, verkamaður, Jón
Sigurbjörnsson, leikari, Gisli
Alfreðsson, leikari, Sverrir
Einarsson, tannlæknir. Auk
fast á eftir
Friðrik vann Murray i 13.
umferð svæðismótsins, sem
tefld var i gærkvöldi. Parma
vann Poutiainen. Eru þeir þvi
jafnir i 3.—4. sæti á mótinu,
Friðrik og Parma, með 9 vinn-
inga.
Ribli vann Björn en Liberzon
og Zwaig gerðu jafntefli. Eru
þeir Ribli og Liberzon þvi efstir
og jafnir með 9 1/2 vinning.
Aðrar skákir úr 13. umferð-
inni fóru þannig:
Jansa — Hartston: 1/2-1/2
Ostermayer — Hamann: 1-0
Laine — Van Den Broeck:
1/2-1/2.
Engar biðskákir urðu i þess-
ari umferð og er þvi hreint borð,
þegar 14. og næstsiðasta um-
ferðin hefst i dag kl. 17. Staðan
er nú þannig:
I, —2. Ribli, Liberzon- 9 1/2
3.-4. Friðrik, Parma: 9
5.—7. Timman, Ostermayer og
Jansa: 7
8. Poutiainen: 6 1/2
9. Zwaig: 6
10. Hamann: 5 1/2
II. Hartston: 5
12.—13. Murray, Van Den
Broeck: 3
14.—15. Björn, Laine: 2.
Skákin milli Björns og Ribli er
stytzta skák mótsins, þegar frá
er talin skákin, sem Timman
mætti ekki til að tefla við Laine.
Þegar Björn hafði leikið 2
leiki i enskri byrjun varð hann
að yfirgefa mótsstað vegna
veikinda. Taflið tapað. Eins og
áður hefur komið fram, hefur
Björn kennt sér meins frá upp-
hafi mótsins, en mætt til leiks og
teflt. 1 gær var Björn á bak og
burt eftir 2 leiki, eins og fyrr
segir, en ekki Björn að baki
Kára.
Parma og Poutiainen tefldu
Sikileyjarvörn. Er enginn vafi á
þvi, að Finninn ætlaði að velgja
jafnteflisvélinni frá Júgóslaviu.
Að loknum 40 leikjum gaf
Poutiainen og fékk Parma þar
með sinn 6. vinning i mótinu.
Hann hefur gert 6 jafntefli og er
þvi með 9 vinninga eins og Frið-
rik.
Jansa og Hartston tefldu
einnig Sikileyjarvörn. Sömdu
þeir jafntefli eftir 32 leiki. Þeir
fóru i „litla herbergið” á eftir og
skoðuðu taflið og tefldu upp.
Jafntefli.
Ostermayer mátaði Hamann i
28 leikjum. Hjá þeim kom upp
þriðja Sikileyjarvörnin i um-
ferðinni og átti Þjóðverjinn alls
kostar við Danann.
Friðrik og Murray tefldu
Kóngs-Indverja. Jafnt og þétt
saumaði Friðrik að 'tranum,
sem gerðist timastuttur. Þegar
Murray gaf, fór kliður um á-
horfendasalinn, en i skákskýr-
ingasalnum var klappað.
Liberzon og Zwaig tefldu
spánska leikinn. Hefur þetta lik-
lega verið harðasta skákin i um-
ferðinni. Norðmaðurinn hagg-
aðist ekki, hvernig sem tsrael-
J.MORS
Kriftrik vann — en þaft er allt i góftu hjá þeim.
inn sótti að honum. Er þvi ekki
að leyna, að áhorfendur voru af-
ar ánægðir með frammistöðu
hans.
Laine og Van Den Broeck
tefldu drottningarbragð og
gerðu stórmeistarajafntefli í 22
leikjum.
Enn fer áhorfendum fjölgandi
á mótinu. Hafa þeir aldrei verið
jafnmargir og i gærkvöldi. Er
nokkuö þröngt setinn bekkur-
inn, en mikil og góð stemmning.
Fleiri konur prýddu mótið en
nokkru sinni fyrr. Meðal þeirra
má nefna Kristinu Guðjohnsen,
Guðriði Friðriksdóttur, Mar-
gréti Kristmundsdóttur, Guð-
rúnu Norðdahl og unga skák-
drottningu, Aslaugu Kristins-
dóttur, en allt eru þetta áhuga-
samar skákkonur. Fyrir utan
„fastagesti” voru þarna meðal
áhorfenda þeir Þórir Bergsson,
tryggingafræðingur, Sigurður
Ólason, hæstaréttarlögmaður,
Guðjón Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðarinnar, Jón Barða-
son, kennari, Sverrir Berg-
þessara voru þarna fastagestir
svo sem Guðmundur Ágústsson,
Einar Þorfinnsson, Arni
Jakobsson, Högni Torfason,
Sigurður Sigurðsson, Þráinn
Guðmundsson, Kristján Sig-
urðsson, Sigurður Gislason,
Ingimar Jónsson, Jón Sigurðs-
son, Birgir Ólafsson, Ingi G.
Ingimundarson, Sigurjón Jó-
hannsson, Halldór Pétursson,
Valur Benediktsson, Asgeir As-
geirsson, Úlfar Kristmundsson,
Guðni Theódórsson, Sturla Pét-
ursson, Guðfinnur Kjartansson,
Haukur Henderson, Isleifur
Runólfsson, örn Guðmundsson,
Eyjólfur Bergþórsson, svo að
nokkrir séu nefndir.
Það er mál manna, að nú sé
farið að reyna nokkuð á úthaldið
og reynsluna. Þykir jafnvel
mega greina þetta á einhverjum
keppenda, þó að allir sýnist enn
við fulla krafta nema Björn
Þorsteinsson. Friðrik bætir nú
við sig I hverri umferð.
1 kvöld er tefld 14. umferð
mótsins. Van Den Broeck á fri
en þessir eigast við:
Ribli — Laine
Poutiainen — Björn
Hanston — Parma
llamann — Jansa
Friðrik — Ostermayer
Zwaig — Murray
Timman — Liberzon.
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
1. Ribli 11 / / v2 / / 'h 1 'h 77 'h 1 9'/2
2. Poutiainen o|; i o o / / o 1 'h 1 0 1 672
3. Hartston o o 0 o i o o 'h 1 'h / l 5
4. Hamann o 1 i 'h o o o 'h 0 / 'h l 572
S. Friórik '/2 1 l 'k 'h 1 1 1 0 / 1 'h 9
6. Zwaig o 0 0 I 'h 0 'k l 'h 'h l 1 6
7. Timman 0 o i i O 1 1 'h 'h 1 0 1 7
8. Liberzon 7z 1 i i 0 'lz 1 'h 'h 'h 1 1 1 9'/?
9. Murray 0 o '/2 'k o o 'h 0 'k 1 0 3
10. Ostcrmoyer 'h 'k o i o 'h 'h '/z /2 1 1 1 7
11. Jansa 'iz o 7z 0 'h 'h i /2 1 l 1 7
13. Parma 'k 1 1 'k '/z ‘/2 1 '/z Vz 1 1 1 9
13. Björn o 0 0 'h 0 0 'h O 0 0 1 O 2
14. Laine 0 'lz o 0 1 0 0 0 0 0 0 'h 2
15. Vanden Broeck Ö o o 'h o o 0 1 0 0 0 1 'h 3
Guðmundur í fremstu víglínu í Búlgaríu
Guðmundur Sigurjónsson er
nú með 5 1/2 vinning og tvær
biðskákir á svæðismótinu i
Búlgariu. 1 11. umferð tefldi
hann við Netzker frá Tékkó-
slóvakiu. Fór skákin i bið og
hefur Guðmundur betra. Bið-
skákin úr 10. umferðinni er við
Vogt frá A-Þýzkalandi.
Ermenkov gerði jafntefli i
gær, Matanovic vann sina skák,
en Matuiovic i biðskák. Um röð
keppenda og stöðu eru fregnir
óljósar að öðru leyti.
Guðmundur teflir við rúm-
enska stórmeistarann Georghiu
i 12. umferð i dag. Hefur Guð-
mundur hvitt.
Tónabær: Cabaret. Opið frá 9—1.
Sesar: Diskótck. Opið til kl. 1.
Klúbburinn: Kristall og Experi-
ment. Opið frá 8 1
Röðull: Stuðlatrió. Opið frá 8—1.
Leikhúskjallarinn:Skuggar. Opið
til kl. 1.
Tjarnarbúft: Lokað vegna einka-
samkvæmis.
Óftal: Diskótek. Opið til kl. 1.
Hótel Borg: Kvartetl Arna Isleifs
& Linda Walker. Öpið til kl. 1.
Glæsibær: Ásar. Opið lil kl. 1.
Sigtún: Pónik og Einar. Opið til
kl. 1.
Ingólfscafé: Giimlu dansarnir.
Skiphóll: Hljómsv. Birgis Gunn-
laugssonar. Maria Theresia
skemmtir. Opið tit kl. 1.
Ungó: Júdas.
Sýningar
MÍR-salurinn: Sýning á cltir-
prentunum sovézkra veggspjalda
frá styrjaldarárunum 1941- 45 og
veggspjölduin, sem voru gelin út i
Sovétrikjunum a þessu ári til
kynningar á kvikmyndum um
styrjöldina og atburði. er þá
gerðust, er opin i MÍR-salnum
Laugavegi 178. Sýningin er opin
laugardaginn 8. nóv. kl. l<;—155 og
sunnudaginn kl. 14—lti. Ettir það
á skrifstofutima MÍR a þriðju-
dögum og fimmtudögum kl.
17.30—19.30. óllum heimill að-
gangur.
Galleri Output: Niels Hafstein
sýnirtil9. nóvembern k. Opið frá
klukkan 16-21. Aðgangur
ókeypis.
Listasafn islands: Yfirlitssýning
á verkum Jóns Egilberts. Opið
frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem-
ber.
Kjarvalsstaftir: Sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals er opin
alla daga nema mánudaga klukk-
an 16—22. Aðgangur og sýningar-
skrá ókeypis.
Fundartimar AA-
samtakanna.
Fundartimar AA-deildanna i
Reykjavik eru sem hér segir:
Tjarnargata 3c mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 9
e.h.
Safnaðarheimili Langholtssafn-
aðar föstudaga kl. 9 e.h. og
laugardaga kl. 2 e.h.
Hlutavelta.
Skagfirzka söngsveitin minnir á
hlutaveltuna og happamarknöinn
i anddyri Langholtsskóla næst-
komandi sunnudag. 9. nóvember
klukkan 2 eftir hádegi.
Fjáröflunarnelndin.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar.
Fótsnyrting fyrir aldraða er
byrjuð aftur. Upplýsingar hjá
Guðbjörgu Einarsdóttur á
miðvikudögum kl. 10-12 árdegis i
sima 14491.
Skrifstofa félags
einstæöra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. A
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn,
Endurhæfingarráó.
Hæfnis- og starlspnilanir lara
fram i Hátúni 12 alla daga nema
laugardaga og sunnudaga Simi
84848.
Fótsnyrting fyrir aldrað fólk i
Mosfellssveit. Kvenfélag
Lágafellssóknar verður með fót-
snyrtingu fyrir aldrað fólk að
Brúarlandi. Timapantanir i sima
66218. Salome frá kl. 9—4, mánu-
daga—föstudaga.
Frá iþróttafélagi fatlaftra,
Reykjavik:
Vegna timabundins húsnæðis-
leysis falla æfingar niöur um óá-
kveðinn tima. Bréf verða send út
er æfingarnar hefjast aftur.
Stjórnin.
Andlát
Stefán Thorarensen, apótekari,
lézt 31. októher sl. og verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni i dag
kl. 13.30. Stefán var fæddur á
Akureyri 31. júli áriö 1891, sonur
hjónanna ölmu Clöru Margrétar
f. Schiöth og Odds Carls Thorar-
ensen apótekara.
Stefán lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræöaskóla Akureyrar árið
1910 og prófi úr 4. bekk Mennta-
skólans i Reykjavik 1912. Hann
lagði stund á lyfjafræði i Akur-
eyrarapóteki og Christianshavns
apóteki árin 1912 -16 og lauk þá
aðstoðarlyfjalræðingsprófi. en
Cand. pharm. prófi lauk hann frá
Danmarks Farmaceutiske Höj-
skole árið 1918.
Hann hóf þegar að námi loknu
starf i Reykjavikurapoteki. sem
þá var eina apótekið i Revkjavik.
Eftir spönsku veikina fékkst lcyli
til að opna eitt apólek til viðbótar
og stofnsetti Stefán þá Lauga-
vegsapótek. Arið 1963 lét hann af
störfum og við tók sonur hans. —
Einnig stofnsetti Stefán Elnagerð
Reykjavikur og rak hana um ara-
tuga skeið. Arið 1944 stofnsetti
hann fyrirtækið Stefán Thoraren-
sen hf., sem er einn aðalinnflytj-
andinn og heildsali Ivfja liér á
landi. Auk þessara fyrirtækja rak
hann fjölmörg önnur, svo sem
Oculus, Týli o.fl.
Stefán var einn af stolnendum
Apótekarafélags tslands og var
formaður þess i um aldarljorð-
ung. Hann varð fyrsti heiðursfé-
lagi félagsins. liann kvæntist árið
1923 eftirlifandi konu sinni Ragn-
heiði Hafstcin. dóttur Hannesar
Hafstein ráðherra og eignuðust
þau sex börn, sem öil eru á lifi.
Jón Gunnsteinsson Irá Nesi lézt
31. október sl. og verður jarð-
sunginnfrá Neskirkju i dag kl. 15.
Hann var fæddur «. april 1917 að
Skildinganesi við Skerjafjörð.
sonur hjónanna Sólveigar Jóns-
dóttur og Gunnsteins Einarsson-
ar. Ungur að árum hóf Jón að
stunda sjómennsku, en siðar
gerðist hann vörubifreiðarstjóri.
Mikið umferðarslvs batt siðar
enda á það starf hans. Er liann
var kominn til lieilsu eftir slvsið
fór hann til sjos. og var á togurum
um þriggja áratuga skeið. Árið
1963 hætti hann sjómennsku og
hóf að vinna hjá Sútunarverk-
smiðju Sláturfélags Suðurlands.
Árið 196« kvæntist Jón Högnu
Erlendsdóttur. cn þau skildu eftir
fá ár.
Guftbraiiilur Gislasonfrá Kamhs-
nesi, Skúlagötu 58. lézt 31. októ-
ber. litför hans fer fram frá Fos-
vogskirkju á morgun kl. 10.30.
Sigriftur Oddsdóttir. Hvassaleiti
153, lézt 30. október. Hún verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni á
morgun kl. 10.30.
Jóna Kristinsdóttir. fyrrverandi
Ijósmóðir. verður jarðsungin frá
Landakirkju a morgun kl. 14.
K r i s t ó f e r I n g i in u n d a rson .
Grafarbakka. verður jarðsunginn
frá Hrunakirk ju á morgun kl. 14.
Bjarni G. Friöriksson frá Súg-
andafirði, Jiikulgrunni 1, lézt 5.
nóvember.
Tilkynningar ,
Frá Kvenfélagi óháöa
safnaðarins.
Kirkjudagur safnaðarins
verður næstkomandi sunnudag.
Félagskonur, sem ætla að gefa
kökur.eru góðfúslega beðnar að
koma þeim á laugardag kl. 1—5
og sunnudag kl. 10—12 i Kirkju-
bæ.