Dagblaðið - 08.11.1975, Síða 2
Pagblaðið. Laugardagur 8. nóvember 1975
Sjónvarp
»
$
Útvarp
Björn Baldursson umsjónarmaður þáttarins „Vikan
framundan”.
Útvarp kl. 15:00:
Efni sjónvarps
og útvarps
nœstu
kynnt
„Vikan framundan” heitir
þáttur Björns Baldurssonar
sem er á dagskrá útvarpsins kl.
15:00 i dag. Þetta er þriöji
þátturinn á þessum vetri.
Eins og nafnið ber með sér er
þetta kynning á efni útvarps og
sjónvarps fyrir næstu viku. Við
ræddum við Björn Baldursson
og spurðum hann um fyrir-
komulag þáttarins.
Björn sagðist hafa hugsað sér
að hafa þáttinn með liku sniöi
og undanfarna vetur, hann ræð-
ir við flytjendur einstakra, at-
hyglisverðra þátta og flytur
glefsur úr þeim.
Ef eitthvert áhugavert
islenzkt efni er á dagskrá sjón-
varpsins kynnir hann það einnig
viku
og á sama hátt.
Fastir liðir eru kynntir af við-
komandi deild, tónlistarkynning
er i höndum tónlistardeildar-
innar, leiklistarkynning i
höndum leiklistardeildar
o.s.frv.
Þættir þessir eru mjög
athyglisverðirog fólki eindregið
ráðlagt að hlusta á þá og fá þar
með vitneskju fyrirfram um
dagskrána, sem ætti að auð-
velda öllum að velja og hafna.
Útvarp kl. 20:45 í kvöld:
LESIÐ ÚR
NÝÚTKOMNUM
BÓKUM
Einn af þeim þáttum i
dagskrá útvarpsins, sem hafa
verið mjög vinsælir á undan-
förnum árum, er þátturinn ,,Á
bókamarkaðinum.” Kl. 20:45 i
kvöld er annar þáttur vetrarins
á dagskrá. Umsjón þáttarins
annast Andrés Björnsson
útvarpsstjóri en Dóra Ingva-
dóttir er kynnir.
Eins og undanfarin ár er lesið
úr innlendum bókum sem út
hafa komið á árinu og annast
höfundarnir sjálfir val þeirra
kafla sem þeir lesa.
Þá er einnig lesið úr þýddum
bókum sem koma á markaðinn
fyrir jólin. Þessi þáttur er
vinsæll og getur verið til leið-
beiningar við val bóka til jóla-
gjafa.
A.Bj.
Sjónvarpið kl. 21:35 í kvöld: Kvikmyndin
„Meistari Móses"
Kvikmyndin, sem er á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld,
nefnist Meistari Móses. Með
aðalhlutverkin fara Robert
Mitchum, Carroll Baker og Ian
Bannen. Myndin er gerð árið
1965 og i sjónvarpshandbók
okkar hefur hún hlotið tvær
stjörnur sem þýðir að hún sé
„sæmileg”.
Myndin gerist i Afriku og
fjallar um þorpsbúa sem flytja
á i burtu vegna stiflugerðar. Þá
kemur ófyrirleitinn náungi til
þorpsins, villir ibúunum sýn og
þeir leita á náðir hans. Þýðandi
er Dóra Hafsteinsdóttir.
A.Bj.
Carroll Baker heitir aðalleik-
konan i kvikmynd kvöldsins.
Hún er ein af „sex”-bombunum
og hefur á undanförnum árum
leikið fjölmörg tælandi hlut-
verk. Hérna sést hún I hlutverki
Jean Harlow I kvikmynd sem
tekin var árið 1965. — Ekki er
okkur kunnugt um hvort henni
tekstað tæla Robert Mitchum i
kvöld eða ekki.
Laugardagur
8. nóvember
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugreinar
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrún Guðlaugsd.
les „Eyjuna hans Múmin-
pabba” eftir Tove Jansson
(10). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli atriða.
óskalög sjúklinga kl. 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleik-
ar. 13.30 iþróttir Umsjón:
Bjarni Felixson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Björn
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. íslenzkt
■nál Jón Aðalsteinn Jónsson
cand. mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi
17.30 Viðtal við Kristján
Kristjánsson söngvara,
fyrri liluti Áður flutt i þætti
Sverris Kjartansson, Úr
handraðanum.
18.05 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir, Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 A minni býlgjulengd
Jökull Jakobsson við hljóð-
nemann i 25 minútur.
20.00 llljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
20.45 A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri sér um þáttinn. Dóra
Ingvadóttir kynnir.
21.30 Frá tónlistarhátiðinni i
Vinarborg s.l. sumar.
Filharmoniusveitin i Vin
leikur lög eftir Johann
Strauss, Karl Böhm
stjórnar.
22.00 Fréttir. .
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
t). nóvember
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morgunlónleikar.
(10.10 Veðurfregnir i. I.
Frá tónlistarhátiðinni i Bel-
grad i ár. — Piallard-
kammerhljómsveitin leik-
ur. Einleikarar: Maurice
André, Maksans Larije, Zak
Sambon og Zerar Zari.
Stjórnandi: Jean Francois
Paillard. a. Svita fyrir
trompet og strengjasveit i
D-dúr eftir Hándel. b. „Sex
gamlar áritanir” eftir De-
bussy. c. Brandenborgar-
konsert nr. 2 i F-dúr eftir
Bach. d. Konsert fyrir sex
h Ijóðfæra leikara eftir
Rameau. II. Frá útvarpinu i
Vestur-Berlin. — Desz
Ranki og Filharmoniusveit
Berlinar leika Pianókonsert
i c-moll (K491) eftir Mozart,
Zubin Metha stjórnar.
11.00 Mcssa
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Skinner og boðnám. Dr.
Ragnheiður Briem flytur
hádegiserindi.
14.00 Staldrað við á Þistilfirði
— fyrsti þáttur. Jónas
Jónasson kveður Bakka-
fjörð og heldur til Þistil-
fjarðar.
15.00 Miðdegistónleikar. a.
„Leonora”, forleikur eftir
Beethoven. Filharmoniu-
sveit Berlinar leikur. Her-
bert von Karajan stjórnar.
b. Þrefaldur konsert fyrir
fiölu, selló, pianó og hljóm-
sveit op. 56 eftir Beethoven.
David Oistrakh, Mstislav
Rostropovitsj, Svjaltoslav
Rikhter og Fil'narmoniu-
sveit Berlinar leika, Her-
bert von Karajan stjórnar.
c. „Dauöi og ummyndun”,
tónaljóö eftir Richard
Strauss. Sinfóniuhljóm-
sveitin i Cleveland leikur,
George Szell stjórnar.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikritið:
„Eyja i hafinu” eftir Jó-
hannes Helga III. þáttur:
„Þjóðhátið”. Leikstjóri:
Þorsteinn Gunnarsson. Per-
sónur og leikendur:
Murtur/ Arnar Jónsson,
Hiidigunnur/ Jónina H.
Jónsdóttir, John Agnew/
Erlingur Gislason, Alvilda/
Guðrún Þ. Stephensen,
Kiængur/ Jón Sigurbjörns-
son, Sýslumaður/ Steindór
Hjörleifsson, Læknirinn/
Þorsteinn O. Stephensen,
Úlfhildur Björk/ Valgerður
Dan. Aðrir leikendur: Helgi
Skúlason, Helga Bachmann,
Guðmundur Pálsson, Jón
Hjartarson, Harald G. Har-
alds, Randver Þorláksson,
Halla Guðmundsdóttir og
Sigurður Pálsson.
17.15 Tónleikar.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri”
eftir Gunnar M. Magnúss.
Höfundur les (7).
18.00 Stundarkorn með pianó-
leikaranum Alexis Weissen-
berg. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Samfelld dagskrá úr
öræfasveit. Jón R. Hjálm-
arsson fræðslustjóri ræðir
við Sigurð Björnsson Kvi-
skerjum, Odd Jónsson,
Fagurhólsmýri, Þorstein
Jóhannsson, Svinafelli, Pál
Þorsteinsson, Hnappavöll-
um og Ragnar Stefánsson
Skaftafelli.
20.45 tslenzk tónlist.a. „Stikl-
ur” eftir Jón Nordal. b.
„Ymur” eftir Þorkel Sigur-
björnsson.
21.05 Rakin gömui spor.
Minningarþáttur með tón-
list, um Svein Bjarman á
Akureyri. Stefán Agúst
Kristjánsson flytur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
10. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir,
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdcgissagan:
„Fingramál” eftir Joanne
Greenberg. Bryndis Vig-
lundsdóttir byrjar lestur
þýðingar sinnar.
15.00 Miðdegistónleikar.