Dagblaðið - 08.11.1975, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 08.11.1975, Blaðsíða 10
Pagblaðið. Laugardagur 8. nóvember 1975 Formaður kennarasamtaka hefur lítinn tíma aflögu fy Albert Shanker hefur mörg áhuga- inál svo sem Ijósmyndun, klassiska hljómlist, lestur góðra bóka, garð- yrkjustörf, eldamennsku og stjórn stærsta kennarafélags Banda- rikjan na. Þegar Albert Shanker missti annað lungað árið 1951 vegna veik- inda hefði mátt ætla að hann gerði einhverjar varúðarráðstafanir. En það var nú eitthvað annað. Hinn 47 ára gamli formaður bandarisku kennarasamtakanna hélt áfram að reykja. Hann segist hafa byrjað daginn með sterkri pipu þegar hálsinn fór að sárna um miðjan daginn skipti hann yfir i vindla og endaði svo um kvöldið með þvi að reykja heilan pakka af sigarettum. — Allt sem ég tek mér fyrir hendur geri ég af fullum krafti, segir hattn. Samstarfsmenn hans eru á sama máli. Áður fyrr var hann undir- borgaður gagnfræðaskólakennari i einni af útborgum New York borg- ar en i dag er hann einn af valda- mestu mönnum i New York, Hann hefurverið formaður kennarasam- takanna i New York siðan 1964. 1 samtökunum eru 81 þúsund félag- ar. Það voru einmitt þessi samtök sem björguðu New York borg frá gjaldþroti i sl. mánuði. Aðeins 63 minútum áður en frestur borgar- innar rann út gaf Shanker sam- þykki sitt til þess að lána borginni 150 milljónir dala úr eftirlaunasjóði kennaranna. Á sl. 8 árum hefur orðið að loka skólum i New York þrisvar sinnum vegna kennaraverkfalls undir stjórn Alberts Shanker. Hann neit- ar þvi samt staðfastlega að aðal- starf hans sé i þvi fólgið að semja um kaup og kjör og koma á sættum i verkfallsdeilum. — Min er aðeins getið i fréttum þegar vandræði eru á ferðinni, segir hann. — Á þeim 11 árum sem ég hefi setið i formannsstarfi kenn- arasamtakanna hefur minna en 5% af tima minum farið i samninga- gerðir. Albert Shanker er fæddur i New York borg. Faðir hans vann við blaðadreifingu og móðir hans hjá saumavélafyrirtæki. Hann lærði sparsemi af móður sinni, sem hafði orð á sér fyrir að vera mjög hagsýn húsmóðir. Það gat tekið hana allt upp i hálf- tima að velja 2 tómata, segir Shanker um móður sina. Þegar Shanker var i 6. bekk i barnaskóla var hann þegar búinn að ná fullri hæð sinni, en hann er 189,6 cm á hæð. — Þar sem ég var svona hávax- inn, segir Shanker, — ætluöust krakkarnir i skólanum til þess að ég væri lika sterkur og lenti ég þrá- faldlega i handalögmálum við fé- laga mina. Siðar útskrifaðist Shanker frá háskólanum i Illinois með láði, með heimspeki sem aðalfag. Eftir það hóf hann kennslustörf i New York og hafði 42 dali eða um 7000 kr. i vikulaun. Árið 1959 hóf hann störf sem skipulagsstjóri fyrir kennara- sambandið. Kennarasamtökin greiða honum núum 11 1/2 millj. isl. kr. i árslaun. Ilann þarf lika að vinna mikið.fyrir þessum launum sinum. Shanker segir að það sé óvenjulegt ef hann geti verið heima hjá sér eitt kvöld i viku. llann er áhyggjufullur vegna barnanna sinna þriggja, sem eru 10. 11 og 14 ára. að þeim finnist hann vanrækja þau. BjDDU, VÆNI! Ég er orðin þreytt á að þurrka af, þvo úpp, safna brenni og hala upp vatn A ALEIN! Þú ferð ekkert í stríð fyrr en þú ert bú inn að Ijúka heimilisverkunum. Vertu róleg Finnið fimm villur — lausnin er á bls. 14 Í79 Sem læknir verð ég að mæla með að maðurinn vðar l'ari i l'ri til sólarstranda, aleinn. ■■■■■■■■■■■■■ ' 'i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.