Dagblaðið - 08.11.1975, Side 14

Dagblaðið - 08.11.1975, Side 14
14 Pagblaðið. Laugardagur 8. nóvember 1975 Hvað segja stjörnurnar Spáin gildir fyrir sunnudaginn 9. nóvem- ber. Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.):Þú ættir að leggja meiri rækt við einkamál þin. Farðu varlega út i heimboð i kvöld. Vertu ákveðinn gagnvart fólki sem er að skipta sér af heimilismálum þinum. Það meinar ekkert illt en er litt uppbyggjandi. Kiskarnir (20. febr.—20. marz); Eitthvað rómantiskt kemur þér á óvart i dag og gerir þér létt um hjartað. Nú er heppileg- ur timi til að skipuleggja breytingar á heimilinu, jafnvel þó ekki komi til fram- kvæmda strax. llrúturinn (21. marz—20. april): Einhver streita rikir i kringum þá eldri i fjölskyld- unni i dag. Dagurinn er góður til viðskipta en farðu varlega þar til þú getur orðið þér úti um sérfræðilega aðstoð. Nautið (21. april—21. mal): Ein hug- mynda þinna gæti fært þér miklar vin- sældir fólks i kringum þig. Kvöldið er talið einkar heppilegt til ferðalaga og munu þau einna helzt verða tengd skemmtun- um. Tvíburarnir <22.mai—21. júni): I cfag ætí- irðu að ganga frá fjármálum og fara í gegnum reikninga þina. Ljúktu af van- ræktum verkum heima fyrir til að hafa nægan tima i komandi viku. Krabbinn (22. júni—23. júlí>: Áður en þú kaupir mikilvægan hlut ættirðu að ræða málið við aðra er það skiptir máli. Kvöldið er ekki heppilegt til félagslegrar athafnasemi svo þú skalt sleppa öllu þvi um liku. Ljónið <24. júli—23. ágúst): Þér kynni að koma eitthvað á óvart i dag, jafnvel eitt- hvað er krefðist hátiðahalda i kvöld. Lik- ur eru á smávegis heimilisvanda en með smávegis hjálp ættirðu auðveldlega að geta leyst hann. Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Mikil rórriantik ætti að rikja yfir kvöldinu hjá hinum ólofuðu, en ekki skulið þið trúa öllu sem einhver „sjarmerandi ” af hinu kyn- inu segir. Fyrri hluti dags verður liklega annasamur. Vogin (24. sept,— 23. okt.): Farðu varlega i alla eyðslu eða hún gæti orðið pyngjunni um megn. Likur eru á ferðalagi og gæti það orðið lengra en þú býst við. Sporðdrekinn (24.okt —22. nóv.): Dagur- inn gæti orðið þreytandi fyrir flest ykkar. Látið smámuni ekki ergja ykkur. Haldið gleöi ykkar og málin gætu snúizt til betri vegar — og það fyrr en ykkur grunar. Hogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Vertu ekki of viðkvæmur fyrir gagnrýni i dag. Haltu áfram með þin mál, rólega og af dugnaði. Ástamálin gætu orðið átaka- meiri og ruglingslegri en áður hefur gerzt. Steingeitin (21. des.—20. jan.): Fram- takssemi mun einkenna daginn fyrir flestum undir þessu merki. Gerðu samt ekki of mikið úr hlutunum þvi þá gætiröu ofreynt þig. Ef þú mögulega getur ættiröu að eyða kvöldinu i róandi bóklestur. Áfmælisbarn dagsins: Arið verður ykkur flestum mjög sigursælt og ánægjulegt. Vertu endilega varkár i fjármálum, þvi þér hættir til að eyða um efni fram á stundum. Hafðu auga með pyngjunni og allt mun fara vel. Anægjulegur atburður i enda árs mun gleðja þig mjög. Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Altarisganga. Séra Halldór S. Gröndal. Digranesprestakall: Barnaguðs- þjónusta i Vighólaskóla kl. 11. Messa fellur niöur vegna viðgerðar á kirkjunni. Séra Þor- bergur Kristjánsson. Fella- og Hólasókn: Barna- samkoma kl. 11 árdegis. Messa klukkan 2 slðdegis i Fellaskóla. Séra Hreinn Hjartarson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Guðmundur Óskar ólafsson. Langholtsprestakali: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Arelius Nielsson. Óskastundin kl. 4. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Laugarneskirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Garöar Svavarsson. Kársnesprestakail: Barnaguðs- þjónusta I Kársnesskóla kl. 11. Messa fellur niður I Kópavogs- kirkju vegna viögerðar. Séra Arni Pálsson. Borgarspitalinn: Guðsþjónusta kl. 10. Séra Halldór S. Gröndal. Keflavikurkirkja: Sunnudaga- skólikl. 11 árdegis. Guðsþjónusta kl. 2 siödegis. Kristniboðs- dagurinn. Æskulýössamkoma kl. 8.30 síðdegis. Séra ólafur Oddur Jónsson. Ytri-Njarövlkursókn: Guðsþjónusta i Stapa kl. 5 siödegis. Kristniboösdagurinn. Séra Ólafur Oddur Jónsson. Flladelfla: Samkomur laugardag kl. 16 og 20.30. „Gospel night” með Gunnari Sameland og ungu fólki kl. 22.30. Sunnudagur: Álmennarsamkomurkl. 14 og 20. Gunnar Sameland kvaddur. Fjöl- breyttur söngur. Fórn til kristni- boðsins I Afriku. Hjálpræöisherinn: Laugardagur kl. 14. Laugardagsskóli I Hóla- brekkuskóla. Sunnudagur kl. 11 helgunarsamkoma. Kl. 14 sunnu- dagaskóli. Kl. 20.30 hjálpræðis- samkoma. Deildarstjórarnir Ingibjörg og Óskar Jónsson stjórna samkomum dagsins. For- ingjar og hermern taka þátt i söng og hljóðfæraslætti. Verið velkomin. Skemmtistaðir Klúbburinn: Experiment og Kaktus. Opið frá 8(2. Tónabær: Eik. Opið frá 9—1. Þórscafé: Gömlu dansarnir. Sesar: Diskótek. Opið til kl. 2. Opið frá 8—2. Hótel Saga: Hljómsv. Ragnars Bjarnasonar. Opið til kl. 2. Sigtún:Pónik og Einar. Opið til kl. 2. RööulLAlfa Beta. Opið frá 8—2. LeikhúskjalIarinn’.Skuggar. Opið til kl. 2. Hótel Borg:Hljómsv. Arna Isleifs & Linda Walker. Opið til kl. 2. óðal: Diskótek. Opið til kl. 2. Skiphóll: Hljómsv. Birgis Gunn- laugssonar. Opið til kl. 2. Glæsibær: Ásar. Opið til kl. 2. Tjarnarbúö: Lokað vegna einka- samkvæmis. Hvoll: Júdas. Arnarstapi, Snæfellsnesi: Mexikó. Festi: Hljómsv. Þorsteins Guðmundssonar. Maria Theresa skemmtir. Selfossbió: Haukar. Maria Theresa skemmtir. Skátabasar Hinn árlegi skátabasar öldunga- ráðs skátafélagsins Urðarkettir veröur haldinn laugardaginn 8. nóvember kl. 14.30 i Skáta- heimilinu I Breiðholtsskóla. Á boðstólum veröa góðar kökur og tilvaldar jólagjafir. — Stjórnin. Kvenfélag Lágafellssóknar Fundur I boði Kvenfélagsins Seltjörn veröur miðvikudaginn 12. nóvember I Félagsheimilinu Seltjarnarnesi. Rútuferð verður frá Brúarlandi kl. 8 siðdegis. Bingó Kvenfélag Asprestakalls heldur bingó að Hótel Borg þriðjudaginn 11. nóvember kl. 8.30. Barðstrendingafélagið i Reykjavik Sveitakeppni Barðstrendinga- félagsins i bridge hefst mánu- daginn 17. nóvember. Þátttak- endur eru beðnir að mæta tiu minútum fyrir klukkan átta. Barðstrendingar, eflið bridge- deildina og mætið stundvislega. Spilað er i Domus Medica. Flóamarkaður i Kópa- vogi til styrktar öldruð- um. Soroptimistaklúbbur Kópavogs var formlega stofnaður 4. júni sl. Slikir klúbbar eru aðeins skipaðir konum, úr hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins. Eru klúbbarnir orðnir fjórir hér á landi. Þeir eru aöilar að alþjóðasam- tökum soroptimista. Til vigslu klúbbsins i Kópavogi kom prófessor Rachel Shalon frá Israel, en hún er formaður Evrópusambands soroptimista i ár. Klúbbarnir vinna einkum að liknarmálum. Aðalmarkmið Kópavogsklúbbsins er að vinna að málefnum aldraðra I kaup- staðnum. I þeim tilgangi ætla konurnar að efna til flóamark- aðar i félagsheimilinu i Kópavogi á sunnudaginn kl. 2.Vænta þær stuðnings allra þeirra sem bera hag aldraðra fyrir brjósti. Þarna verður um auðugan garð að gresja fyrir ýmsa sem ætla að fá eitthvað með góöum kjörum, til dæmis ýmiss konar fatnað og leikföng, bæði nýtt og notað. Badmintonfélag Hafnarfjarðar Æfingatimar eru á föstudögum kl. 18.00 — 19.40 og á fimmtu- dögum kl. 21.20 — 23.00 i íþrótta- húsinu við Strandgötu. HVAÐ ER AÐ? — lausn á „finnið fimm villur” bls. 10. Norðurhiarinn í Kópavogi Norræna félagið i Kópavogi hefur vetrarstarfið með fjöl- breyttri kvöldvöku á morgun, sunnudag kl. 20,30, að Álfhólsvegi 11. Eins og rauður þráður i gegnum kvöldvökuna gengur efnið: Norðurhjarinn. Fjallar hún um landsvæðin norðan heim- skautsbaugs i Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Sýnd verður kvikmynd og flutt frásögn. Auk þess syngur Sigriöur E. Magnúsdóttir óperu- söngkona við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. — BS UTIVISTARFERÐIR Laugard. 8/11 kl. 13: Geldinganes. Fararstj. Sólveig Kristjánsd. Verð 500 kr. Sunnud. 9/11 kl. 13: Undirhliðar. Fararstj. Gisli Sigurðsson. Verð 600 kr. Brottfar- arstaður BSl (vestanverðu). Allir velkomnir. Útivist Kýrin, sem hefndi sona sona slnna. Það gerðist á Spáni fyrir stuttu, að einn frægur nautabani lét ltfið fyrir vesælli nautamömmu. An samúðar minnar. tþrótt var þtn ein að kvelja alsaklausar skepnurnar. Kom fram hefndum kollótt belja kappanum til háðungar. llöfuðlausn Gylfa. Það kvisaðist eitthvað um daginn, að kratar I Finnlandi væru að smygla nokkrum aurum frá flokksbræðrum slnum I Svtþrjóð og vlðar a6. Eitthvað var Islenzkum krötum blandað t mál þetta. Gytfi þrætti fyrir þetta og lagöi höfuö sitt að veði. Lag: Seltjarnarnesið er litið og lágt Eg setti að veði minn heimsfræga haus. Héðanaf er ég viö áburöinn laus. Höfðinu fæ ég að halda um sinn, hann er svo vel geymdur sjóður minn. Svlunum treystandi alls ekki er. Allskonar vandræði steöja aö mér. Vilmundur Gylfason veiztu ekki það, við eigum hér okkar Alþýðublað. Fengið þá getum við fjandans skell og félagsskap uppi við Armannsfell. Við vammlausir erum ei vinurinn. ÞU verður að skilja það drengurinn minn. Einhver urgur var I bátasjómönnum útaf skiptaverðinu, höfðu þeir á orði aö sigla flotanum heim og hætta veiðum, ef ekki fengjust úrbætur. „Heyrið morgunsöng á sænum". Svona ekkert fjas. Allir heim i einum grænum. Andlaus Matthias hefur okkur hýrudregið herjans þrjóturinn. Ekkert stendur, sem hann segir, siglum allir inn. Lúðvik hugsar þá, en þegir, þungur leizt mér hugurinn Slæmur er Bakkus. Bakkus hefur mörgum mætum manni troðið niður t svaðið. Og af hýrum heimasætum hefur hann rifið titilblaðið. Höf. ókunnur. Ef þú teynist óháður öllum málum rétt þú lýsir. Yrði fjöldinn ánægður að eignast þig, en missa Vtsir Minning. Ein minning getur björtum blómum þakið blett á ltfsins eyðimerkur göngu. Stundum geta gróður nýjan vakið geislar, sem að skinu fyrir löngu. Hér verður heilög þögnin. Harmur mun undan láta. Sérhvert hljóð verður söngur og sorgin hættir aö gráta. Huldukona Hestavisur. Hófatak og fáksins fjör finn ég vaka i svörum Létt á baki I fleygiför flýgur staka af vörum. Hallgrimur Jónsson Sit ég hljóður, harmþrunginn hugarmóði altekinn. Kasta á góða klárinn minn kveöjuljóöi hinzta sinn. Sveinbjörn Benónýsson Ferðin gréiðist fram á leið fákar skeiðið herða. Yfir heiðarhraunin breið hörð skal reiðin verða. Pétur Hannesson Engu kviði, létt er lund ljúft er stríði að gleyma. Blesa rlð ég greitt um grund, en Guðný biður heima. Jón Benónýsson Nýja gosið. Ætli að vandi af þvl standi og öidnum grandi þjóðarsið. Ajax, landi og ögn af hlandi og allrahanda samanvið. Alþlngi. Þá er nú Alþing setzt á rökstóla, já rökfastir eru alþingismenn, annars sætu þeir ekki á rökstólum. Saman komið er Alþing enn nú á ekki aö plata þjóðina. Freistandi konur og flnir menn fylla nú tómu sjóðina. Flest er nú, sem við flytjum inn finnska mold, kökur og soðfiskinn. . Allt þetta borgar hann Matti minn. Mikið er drengurinn greiðvikinn. Svo er það hann landhelgis Matti minn. Mikið er karlinn nú stórbrotinn. Hann lætur ei Þjóðverja lúskra á sér. Lafhræddur helvtzkur Bretinn er. Framsýnir menn. Framsýnir stjórnmálamenn linnast, sem betur fer enn. Við höfu.n heilagar kýr. Helv. er ollar. dýr. I samnir.gum hana við samt skulum nota. Sumir sér þrýsta, en aðrir sér pota. Um árið gafst olian einkar vel. Enda frá Shell, hana bezta ég tel. Nýlega var Alþýðublaðið að kasta hnútum að Jóni Sólnes fyrir léttlyndi I fjártnálum t sambandi við Kröflunefnd. Jón hafi látiö innrétta eina finustu skrif- stofu á landinu, farið alla leið til Japan með friðu föruneyti o.fl. Það þykir nú fleirum en Gylfa gaman að skvetta sér upp. O blessuð vertu sumar Sól ég sá I Japan nes og hól. Já þar er mikill fljóðafans og fegurð ltkamans. Þar galant voru geisurnar. Þær geymdu lopapeysurnar á meðan lékum léttklæddir og löngum sætkenndir. Þar dömur eru dúnmjúkar og dásamlega kurteisar, ég unaðsstrauma óðar fann um allan llkamann. Vöðvar stööugt stækkuðu. Stórum hrukkum fækkuðu. Ég sælla ltf ei siðar kýs i sjálfri Paradls. Leiörétting frá stðasta þætti.... 1 vtsunni um varið land stóð „kippa hérna”, — þaö átti aö vera „væn er kippa héra”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.