Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 13
Pagblaðið. Mánudagur 10.
23-0 í
hálfleik
Pólland sigraði England 42-5 i
Varsjá á laugardag í forkeppni
Olympluleikanna I handbolta.
Staðan 1 hálfleik var 23-0!! Flest
mörk Póllands skoruðu Jerzy
Kempel 10, Jan Gmyrej 8, Andre
Sokolowskiog Alfred Kaluzinski 5
hvor. John Horne skoraði 4 af
mörkum Englands. — John
Compton það fimmta.
Létt hjá A-
Þjóðverjum
Austur-Þýzkaland sigraði
Belgiu i gær 27-11 i 5. riðli I for-
keppni Olympiuleikanna i hand-
bolta. Leikurinn var háður i
Austur-Berlin og staðan i hálfleik
10-5. Jurgen Rost var mark-
hæstur með 7 mörk, og Axel
Kaehlert skoraði 5. Dirk
Verhofstadt skoraði 6 mörk fyrir
Belgiu. Næstileikur A-Þjóðverja i
riðlinum verður við V-Þjóðverja I
Munchen 20. desember.
Vestur-Þjóðverjar léku við
Rúmena I gær — vináttuleikur —
og sigruðu Rúmenar með 17-13.
Og Ungverjum
Ungverjaland sigraði Sviss
24-15 i forkeppni Olympiuleik-
anna i handbolta i Budapest á
laugardag. Staðan I hálflcik var
11-7. Varga skoraði flest mörk
Ungverja eða 6, en Szilagyi var
með 5. Zullig var markhæstur
Svisslcndinga með 4 og Egg
skoraði 3.
NUDD- OG
SNYRTISTOFA
Hagamel 46,
sími 14656
AFSLATTUR
af 10 tima and-
lits- og likamsnuddkúrum
AFRODIPA býður allt til
fegrunar.
Haltu þér ungri og komdu i
AFROPIPU.
ÞÚ ATT ÞAÐ SKILIÐ
Regnboga-
plast h/f
Kársnesbraut 18
Sími 44190
Höfum fyrirliggjandi glært
Acryl plastgler undir skrif-
borðsstóla og fleira á hag-
stæðu verði.
Knötturinn sendur I körfu Snætells - og Fram sigraöi
DB-mynd Bjarnleifur
Sigruðu UMFN í íþróttahúsinu í Njarðvíkum í fyrsta leik
íslandsmótsins í körfubolta
Agnar Friðriksson gerði út um
leikinn i Njarövikunum I fyrradag
þegar heimamenn, UMFN, kepptu
við IR-inga I I-deild körfuknattleiks-
ins. IR-ingarnir höfðu reyndar ávallt
forustuna, en tókst ekki að hrista
Njarðvikingana af sér fyrr en Agnar
tók að skora úr hverju langskotinu á
fætur öðru I siöari hálfleik, án þess
að heimamenn kæmu nokkrum vörn-
um við, skoraði 14 stig.
lagaðist staðan úr 23 stiga mun I 15
eftir að „varaliðið” var komið inn á
að mestu. Stigahæstir voru þeir
Stefán Bjarkason og Gunnar
Þorvarðarson, en Geir Þorsteinsson.
skoraði átta stig undir lokin og
bjargaði „andliti” UMFN að nokkru.
Dómarar voru þeir Jón Otti og
Hörður Tulinius og var mikið ósam-
ræmi I dómum þeirra. Sérstaklega
voru menn undrandi á úrskurði
Harðar, bæði leikmenn og áhorfend-
ur — og sé það rétt, að hann hafi
komið akandi norðan frá Akureyri I
einni lotu og beint til leiks, þarf varla
að undra þótt dómgreindin hafi eitt-
hvað sljóvgast. Samt er ekki annað
hægt en lofa Hörð fyrir eljusemina
og áhugann að leggja slikt erfiði á sig
fyrir vanþakklátt dómarastarf-emm
að sækja I sig veðrið — átti Kristinn
Jörundsson.'beztan leik IR-inga bæði
i vörn og sókn. Hann hirti mörg frá-
köst og krækti I knöttinn á sinn læ-
visa hátt og skoraði hvorki meira né
minna en 31 stig. Þorsteinn
Guðmundsson skoraði 10, en nafni
hans Hallgrimsson aðeins 6 stig enda
litið með I leiknum, vegna meiðsla.
Óheppnin elti UMFN strax I byrj-
un. Brynjar Sigmundsson, fékk fjór-
ar villur á þremur minútum og þá
fimmtu skömmu eftir að hann kom
inn á i siðari hálfleik. Samtals lék
hann I rúmar fjórar minútur og var
kallaður af gárungunum „villingur-
inn”. Hittni UMFN liðsins var I lág-
marki og svo var að sjá sem öflug-
ustu mennirnir væru hafðir of lengi
inn á og yrðu útkeyrðir of fljótt, enda
Troðfullt hús áhorfenda var i
Njarðvikum og hvöttu þeir flestir
„sitt lið”, UMFN, ákaflega. Framan
af virtist leikurinn ætla að verða
jafn, 6-6 sáust á töflunni og 10-10, en
eftir það voru IR-ingar yfir og leikn-
um lauk með stórum sigri, 75-61.
Þótt Agnar skoraði þegar mest á
reið fyrir IR — UMFN var þá heldur
Tveir tapleikir Snœfells
ana, Fram. Reykjavlkurliöið sigraði
örugglega 88-67.
teknum hætti — stööugt jókst munur-
inn.
Sér i lagi var „Trukkurinn” iðinn.
Hann var ekki aöeins stigahæstur
heldur hirti hann lika 17 fráköst og
munar um minna. Þegar yfir lauk
var staðan 88-54 — öruggur og um
leiö’léttur sigur KR i höfn. Stiga-
hæstur KR-inga var — þarf ég að
taka það fram — „Trukkurinn” með
22 stig. Gunnar Jóakimsson skoraöi
13 stig. Arni Guðnasogn og Eirikur
Jóhannesson skoruðu 12 stig hvor.
Snæfell gerði ekki stóra hluti þegar
liðið kom til höfuðborgarinnar um
helgina og lék við KR og nýliðana i
deildinni Fram. Báðir leikirnir töp-
uðust með miklum mun og svo virðist
sem Snæfell þurfi að taka á honum
stóra sinum ætli liðið að halda sér I 1.
deildinni i ár.
Á laugardaginn léku Snæfellsmenn
við KR. Þeir höfðu litið i hendurnar á
„Trukknum” og hans sveinum að
gera — ekki var leikurinn skemmti-
legur. Hraði nánast enginn og hittni
léleg, einkum leikmanna Snæfells.
KR-ingar tóku strax afgerandi for-
ystu og höfðu yfir i hálfleik, 40-20
I siðari hálfleik héldu KR-ingar upp-
Drýgstur i liði Snæfells var
Kristján Agústsson með 24 stig. Sig-
urður Hafsteinsson skoraði 14 stig.
Snæfell lék siðan i gær við nýlið-
RITSTJORN:
HALLUR
SÍMONARSON
Iþróttir
nóvember 1975.
Dagblaðið. Mánudagur 10. nóvember 1975.
13
Haukar féllu á prófinu
töpuðu fyrir Gróttu!
— Mikil spenna komin aftur í íslandsmótið í handknattleik eftir sigur Gróttu
— Valur og Haukar hafa tapað þremur stigum, Víkingur og FH fjórum
Leikmenn Gróttu gerðu það
sem sterkustu liðum deildarinnar
hefur ekki tekist. Þeir sigruðu
Hauka i iþróttahúsinu i Firðinum
i gærkvöldi. Já, Haukavélin
hikstaði svo um munaði og i raun
komst hún aldrei i gang. Eilifar
gangtruflanir — ef til vill munaði
þar mest um Hörð Sigmarsson,
sem aldrei fann sig i leiknum.
Haldi einhver að sigur Gróttu
hafi verið heppni eða tæpur, þá er
það mikill misskilningur. Seltirn-
ingar virkuðu sterkari frá
upphafi til enda. Sjálfságt hafa
Haukarnir fallið i sömu gryfju og
FH og Vikingar gerðu þegar þau
léku við Haukana — vanmátu
andstæðing sinn.
Grótta náði strax forystu með
mörkum Björns Péturssonar og
Axels Friðrikssonar og tónninn
var gefinn. Leikmenn Gróttu
náðu upp góðri baráttu. Fyrri
hálfleikur var jafn — Grótta yfir-
leitt fyrri til að skora og staðan i
hálfleik var 8—8. Markakóngur
þeirra Hauka, Hörður Sig-
marsson, hafði ekki skorað mark
I hálfleiknum og það út af fyrir sig
eru tiðindi.
Leikmenn Gróttu komu tvi-
efldir til siðari hálfleiks og fljót-
lega náðu þeir fjögurra marka
forystu — 14 — 10. Það var of
mikið fyrir hið unga Haukalið —
þeir náðu ekki upp þeirri baráttu
og samstillingu sem hefur verið
þeirra aðall fram til þessa. Þó
þeim tækist að minnka muninn i
eitt mark — 14—15, þá hafði
maður alltaf á tilfinningunni, að
þetta væri ekki þeirra dagur.
Grótta seig aftur fram úr með
mörkum Atla Þórs og Björns
Péturssonar — 17—14. Lokaorðið
áttu Elias og Hörður en það var
allt of seint — öruggur og um leið
óvæntur sigur Gróttu var i höfn.
Haukar féllu þarna á mikil-
vægu prófi — möguleikar þeirra
til að ná afgerandi forystu i 1.
deild runnuút i sandinn. Sjálfsagt
hafa þeir vanmetið andstæðing
sinn og slíkt kann ekki góðri lukku
að stýra. Þegar þeir svo fengu
óvænta mótstöðu, þá höfðu þeir
ekki bein i nefinu til að ná upp
baráttu. Eitt ætti þessi ósigur að
kenna þeim: Aldrei að vanmeta
andstæðing sinn. Einmitt þetta
boðorð virðist fara hljótt meðal
islenzkra handknattleiksliða.
Þó Hörður Sigmarsson ætti ekki
göðan dag, var hann engu að
siöur markahæstur Hafn-
STAÐAN
Úrslit í Islandsmótinu i handbolta
um helgina urðu þessi.
1. deild
Haukar — Grótta 16-17
FH —Fram 19-16
2. deild
Þór — KR 21-25
KA — KR 23-20
Leiknir — Fylkir 19-11
Staðan er nú þannig:
1. deild
Valur 5 3 1 1 94-73 7
Haukar 5 3 1 1 89-78 7
Vikingur 5 3 0 2 106-95 6
FH 5 3 0 2 100-92 6
Fram 6 2 2 2 94-94 6
Grótta 5 2 0 3 88-94 4
Ármann 5 1 1 3 69-97 3
Þróttur 4 0 1 3 56-73 1
2. deild
KA 5 4 0 1 108-91 8
ÍR 2 2 0 0 43-34 4
KR 3 2 0 1 74-59' 4
Þór 3 1 0 2 64-62 2
Leiknir 3 1 0 1 57-64 2
Fylkir 2 1 0 1 28-34 2
Keflavik 2 0 0 2 30-34 0
Breiðabl. 2 0 0 2 27-53 0
firðinganna með 4 mörk — 1 viti
Guðmundur Haraldsson skoraði 3
mörk, Elias Jónasson, Ólafur
Ólafsson og Ingvar Haraldsson
skoruðu tvömörk hver. Sigurgeir
Marteinsson, Arnþór
Guðmundsson og Svavar
Geirsson skoruðu eitt mark
hver.
Það er engum hnöppum um það
að hneppa, Grótta er að vakna —
eftir væran svefn i 3 fyrstu
leikjum sinum i Islandsmótinu.
Liðið er að komast i æfingu og er
leitt til þess að vita, að liðið skuli
leyfa sér að koma jafn illa undir-
búið til íslandsmótsins og raun
hefur borið vitni. Vörn liðsins er
að verða nokkuð sterk — mark-
varzla Guðmundar Ingimundar-
sonar i leiknum var góð. Arni
Indriðason er ekki aðeins sterkur
varnarmaður heldur og sóknar-
maður. Þó hann skoraði ekki
nema eitt mark I leiknum, þá
fiskaði hann ótalin vitaköst —
liðið fékk sjö alls — , flest fiskaði
Ámi. Björn Péturssson var að
vanda markhæstur þeirra
Seltirninga — skoraði 7 mörk — 5
víti.
Halldór Kristjánsson og Axel
Friðriksson skoruðu 3 mörk hvor.
Magnús Sigurðsson 2 mörk. Atli
Rekinn af velli
út leikinn
Leiknir sigraði Fylki 19-11 I
2.deild I gær i hörðum leik. Jafnt
var i hálfleik 7-7, en þegar um 10
min. voru af siðari hálfleik var
einum leikmanni Fylkis, Einar
Agústssyni visað af leikvelli það
sem eftir var leiks. Þó annar
kæmi i hans stað 5 mín. siðar
hafði þetta mikil áhrif. Leiknir
þétti vörn sina vel og vann örugg-
lega.
Charleroi tapaði
Marsh í Anderlecht
Allt er nú farið að snúast á
ógæfuhlið hjá Charleroi á ný —
liðinu, sem Guögeir Leifsson
leikur með I Belgiu. I gær lék liðið
við Ostende á heimavelli og
tapaði. Ostende skoraði eina
markið i leiknum, sem var
afspyrnu lélegur. Ahorfendur i
Charleroi voru mjög æstir eftir
leikinn — réðust inn á völlinn og
höfðu i heitingum við þjálfara og
aðra forsvarsmenn liðsins.
Ostende er neðarlega á blaði,
svo þetta var slæmt tap hjá
Charleroi. Liðið er i alvarlegri
fallhættu. Standard Liege, liðið,
sem Asgeir Sigurvinsson leikur
með, lék ekki i gær, en úrslit urðu
annars þessi I Belgiu.
Malinois-Brugge 1-3
Molenbeek-Beveren 0-2
Liegeois-Louviere 2-2
Antwerpen-Anderlecht 0-3
Lokeren-Malines 1-0
Brugeois-Berchem 4-0
Beerschot-Lierse 1-1
Charleroi-Ostende 0-1
Beringen-Waregem 0-2
Þá má geta þess, að Rodney
Marsh hjá. Manch. Cty hefur
samþykkt að leika með Ander-
lecht. Hann mun skrifa undir 2ja
ára samning á fimmtudag — en
Anderlecht mun greiða
Manch.City 75-80 þúsund
sterlingspund fyrir hinn 32ja ára
sóknarmann. Galli er á gjöf
Njarðar. Marsh má ekki byrja að
leika með Anderlecht fyrr en eftir
niu mánuði. — Aðeins leikmenn,
sem hafa gert samning áður en
leiktimabilið hefst eru hlutgengir
i deildakeppnina, en hins vegar
getur hann leikið i Evrópuleik
félagsins i marz. Rodney Marsh
lék niu landsleiki fyrir England
og er talið, að hann muni þéna
þrefalt meira i Belgiu en
Englandi.
Þór Héðinsson og Arni Indriðason
skorðuð 1 mark hvor.
Leikinn dæmdu Jón
Friðsteinsson og Kristján örn.
h.halls.
Stórsigur
Bayern
Úrslit i 1. deildinni vestur-
þýzku á laugardag urðu þessi:
Uerdingen-Borussia 1-1
Hertha-Duisburg 1-2
Dusseldorf-Offenbach 0-0
Frankfurt-Bochum 6-0
Schalke-Köln 3-1
Bayern Munchen-Essen 5-1
Werder-Hannover 0-0
Brunswick-Hamborg 1-0
Karlsruher-Kaiserslautern 3-5
Björn Pétursson , nr. 4, sendir knöttinn I mark Hauka- fyrirliði Gróttu
Árni Indriðason, nr. 9. fylgist spenntur með. DB-mynd Bjarnleifur.
Meðalmennskan réð
í lelk FH og Fram
— og FH vann öruggan sigur 19-16 í Hafnarfirði í gœrkvöldi
FH sigraðiFram örugglega i 1.
deild suður I Firði I gærkvöldi.
Aðeins i byrjun var jafnræði með
liðunum — eftir 23 minútna leik
var staðan 5-4 fyrir Fram — en
FH-ingar sigu fram úr og sigruðu
19-16 eftir 9-5 i hálfleik. Fram-
arar misstu illilega tökin á
leiknum eftir að þeir komust yfir
— 5-4 og þær minútur sem eftir
liföu hálfleiksins skoruðu FH-ing-
ar hvert markið á fætur ööru.
Guðmundur Stefánsson og Þðrar-
inn voru þá drjúgir — Guðmundur
skoraði þrjú mörk og Þórarinn
tvö. Þessi kafli var afdrifarikur
fyrir Fram, þvi þcir voru
ekki þess megnugir aö vinna upp
forskotið, þrátt fyrir góðan leik
Pálma Pálmasonar, sem skoraði
hvert markið á fætur öðru fyrir
Fram. En það var einfaldlega
enginn til að aðstoða Pálma og
einn mátti hann sín litils.
Þó þessi leikur hafi verið milli
liða, sem eru að berjast um að
komast meðal toppliöa, þá var
fátt um fina drætti — meðal-
mennskan allsráðandi.
Almennt talað held ég megi
segja þetta um öll liðin i deildinni
— meðalmennskan virðist tröll-
riða islenzkum handknattleik —
ef til vill ekki nema von. Það er
búið að fleyta rjómann ofan af og
á ég þar við Islendingana i
Þýzkalandi. Ekkert lið virðist
þess megnugt að taka af skarið —
aðeins eitt stig og skilur fyrsta og
fimmta lið að. Við skulum vona,
að fyrir vikið verði mótiö
skemmtilegra, þó gæðum sé ef til
vill ábótavant.
En hvað um það — Fram tókst
aldrei að nálgast FH-inga i gær-
kvöldi — þá Gils, Sæmundi og
Geir hafi verið visað af velli, þá
er það mikii reynsla i FH-liðinu,
að þeir féllu ekki i sömu gryfju og
Vikingarnir á dögunum.
Eins og ég sagði áðan, þá var
þetta enginn glansleikur. FH-ing-
ar höfðu alltaf töglin og hagldirn-
ar. Þórarinn Ragnarsson var
markahæstur FH-inga skoraði 5
mörk — 4 viti. Sérstaklega var
Þórarinn iðinn við að fiska viti.
Guðmundarnir, Sveinsson og Ste-
fánsson, skoruðu sin fjögur mörk-
in hvor, Geir Hallsteinsson 3, Örn
Sigurðsson 2 mörk og Viðar Si-
monarson 1 mark.
Pálmi barðist hetjulegri bar-
áttu — en hann hafði ekki menn
með sér og mátti sin litils einn.
Hann skoraði 8 mörk, Pétur Jó-
hannesson, Arnar Guðlaugsson,
og Jón Arni Rúnarsson 2 mörk
hver. Kjartan Gislason og Hannes
Leifsson sitt markið hvor.
Leikinn dæmdu Björn
Kristjánsson og Óli Ölsen-h.halls.
Úrslitaleikur
Fram og Vals
Hörkuleikir voru i' mcistara-
flokki kvenna á Reykjavikur-
mótinu i gærkvöldi. Valur átti i
erfiðleikum með Viking, en vann
þó 11-9 — og þegar Fram vann
Ármann i tvisýnum leik á eftir 8-7
urðu Valur og Fram jöfn að
stigum i mótinu. Hreinan úrslita-
leik þarf þvi milli liðanna um
meistaratitilinn.