Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 18
18 Hagblaðið. Mánudagur 10. nóvember 1975. Ribli tryggur í efsto sœti Óvissa ríkir um nœstu sœti Staðan i biðskák Friðriks er þessi: Jansa (hvltt): K e3, H b5, b c4, f3, g4, h4. Friðrik(svart): K g7, Hb2, Itd7, b3, f7, gfi, hG. Hvftur á leik i þessari stöðu. Biðskákir verða tefldar i dag kl. 3, og fæst þá skorið úr þeirri nistandi óvissu um, hvort Frið- rik nær jöfnu við Liberzon. Sama óvissan rikir um úrslitin hjá Parma i skákinni við Ham- ann. Staðan i svæðismótinu er nú þessi: Ribli: 11 Liberzon: 10 1/2 Friðrik, Parma: 9 1/2 og bið- skák Poutiainen: 8 1/2 Ostermayer: 7 1/2 og biðskák. Timman: 7 1/2 Zwaig og Jansa: 7 og biðskák Hamann: 6 1/2 og biðskák Hartston: 6 1/2 Murray og Van Den Broeck: 3 1/2 Björn og Laine: 2 Efstu menn úr svæðismótum, ásamt nokkrum, sem öðlast rétt á annan hátt, keppa á tveim millisvæðamótum. Verða þau haldin á næsta ári. Annað verð- ur haldið á Filippseyjum en hitt i Sviss. 18 keppendur verða i hvoru móti. Verði tveir eða fleiri jafnir fer fram keppni milli þeirra um 2. sætið, en Ribli er öruggur meö að vera nr. 1 i mótinu hér. Séra William Lombardy, yfir- dómari mótsins, bað keppendur og áhorfendur að eiga með sér hljóöa stund áður en lokaum- ferðin hófst. Fregnir höfðu bor- izt um, að faðir Hollendingsins unga, Jan Timman, hefði látizt aðfaranótt sunnudagsins. Vott- uðu menn honum samúð sina á þennan einfalda en virðulega hátt. Timman tjáði fréttamanni Dagblaðsins, að lát föður sins hefði borið mjög óvænt að. Hann hefði ekki kennt sér meins, þeg- ar hann lagðist til svefns á laug- ardagskvöldið, en ekki vaknað aftur. Irinn Murray og Timman átt- ust við i þessari umferð. Léku þeir örfáa leiki og sömdu siðan jafntefli. Þannig var þeirra þætti i svæðismótinu lokið nokkru fyrr en gert var ráð fyr- ir. Þeir áttu hvorugur mögu- leika á 1. eða 2. sæti og voru þvi úrslit skákarinnar einungis per- sónulegt metnaðarmál. Slik mál eru hégómi meðal sómamanna, þegar svona stendur á. Van Den Broeck brosti breitt og rétti fram hönd sina til sam- þykkis, þegar Zoltán Ribli bauð honum jafntefli eftir 9 leiki i kóngs-indversku tafli. „Maður leikur sér ekki að eldinum i minni stööu á mótinu,” hafði Ribli sagt i viðtali við Dagblaðið stundu áður en hann varð sig- urvegari. Hann bætti við: ,,Það getur maður gert alla aðra daga.” Ribli var kominn i ó- hnekkjandi efsta sæti með 11 vinninga. Laine tapaði fyrir Poutiainen i stuttri skák, sem Finninn hafði tögl og hagldir i. Þar með er þessi ungi og hresilegi Finni kominn með 8 1/2 vinning i 5. sæti eftir 8 vinninga og eitt jafn- tefli i öllu mótinu. Björn og Hartston tefldu Sikil- eyjarvörn. Björn gaf eftir 30 leiki. Ostermayer og Zwaig tefldu spánska leikinn. Var skákin býsna skemmtileg þótt hún félli að visu i skuggann af skákum Friðriks og Jansa og Parma og Hamann. Liklegt var talið, að Norðmaðurinn ætti vinnings- möguleikann, þegar skákin fór i bið. Parma og Hamann tefldu Sikileyjarvörn. Varðist Ham- ann vel, þegar þess er gætt, hvi- BRAGI SiGURÐSSON Friðrik, — allra augu beindust aö honum um helgina, — og gera enn. A hann von i biðstöö- unni eða ekki? (DB-myndir Björgvin) likt kapp Parma lagði á að koma honum á kné. Varð Parma raunar að gæta sin á köflum fyrir Dananum, og er liklegt, að hann hafi oft átt lak- ari stöðu i skákinni en þegar hún fór i bið. Ekki heyrðust þó stærri spámennirnir reikna neinum vinning, þegar skákin fór I bið. Friðrik hafði svart á móti Jansa. Sikileyjarvörn. Taflið var mjög jafnt mestallan tim- ann, en afar þungt og fast. Saxaðist jafnt og þétt á timann en leikirnir komu seint. Tima- hrakið blasti við hjá báðum. Voru áhorfendur ekkert óá- nægðir með það eftir atvikum. Menn treysta Friðrik i hrað- skák við hvern sem er. Voru menn heldur tregir til að sjá vinninghjá Friðrik, þegar skák- in fór i bið. Hefði Friðrik haft einhver not af hugsunum áhorf- enda i sinn garð, hefi hann getað unnið marga Jansa. Ahorfendur voru nú fleiri en nokkru sinni — sennilega ekki færri en á milli fimm og sex hundruð. Skákir voru skýrðar á þrem stöðum utan keppnissal- arins. Poutiainen tók skemmti- lega rispu með Ingvari As- mundssyni. Skýrðu þeir einkum skákina milli Friðriks og Jansa. Annars stóðu þeir sig prýðilega að vanda Margeir Pétursson, Helgi Olafsson og Leifur Jó- steinsson. Fleiri góðir menn lögðu hönd á plóginn eins og oft- ast áður. Meðal áhorfenda voru þessir: Sveinn Finnsson, lögfræðingur, Jóhann Guþmundsson, vélvirki dr. Ingimar Jónsson, Ólafur Helgason, bankaeftirlitsmaður, Einar Ólafsson, stórkaupmaður og Sigrlður Bjarnadóttir, Valur Jónsson, yfirþjónn, Eggert Guð- mundsson, pipulagningameist- ari, Þorlákur Kristmundsson, arkitekt, Gunnar Hvanndal, Finnur Arnason, bifreiðasmið- ur, Eysteinn Helgason, sölu- maður, Bragi Kristjánsson, simaforstjóri, Sigurður Helga- son, deildarstj., Guðni Theó- dórsson, verzlunarm., Róbert Gestsson málarameistari, Magnús G. Jónsson, mennta- skólakennari, Ólafur Friðriks- son, Jakob Hafstein, Lárus Johnsen, Haraldur Einarsson, lista teiknari, Kristján Sylveriusson, verkamaður og skákmaður, Konráð Árnason, Eiríkur sundkennari Stefáns- son, Ólafur Björnsson, prentari, Einar Þorfinnsson, Hermann Guðbrandsson, fulltrúi i Sjúkra- samlaginu, Jóhann Friðriksson i Kápunni, Egill Valgeirsson, rakarameistari, ólafur Sveins- son, kaupmaður, Eirikur Karls- son, kennari, Birgir Sigurðsson, kennari og rithöfundur, Jónas Þorvaldsson, Jóhann örn Sigur- jónsson, Ólafur Magnússon, Jó- hann Þór Jónsson, Anton Sig- urðsson, skólastjóri, Barði Þor- kelsson, jarðfræðingur, Óskar Gislason, skrifstofustjóri, Jó- hann Snorrason, Akureyri, Timman, - hann kom of seint, kveikti sér i sigarettu og samdi siðan um jafntefli við Murray. Skömmu áður hafði hinn ungi skákmaður fengið þær sorgar- fréttir að heiman að faðir hans hefði iátizt I svefni nóttina áður. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11.12. 13. 14. 15. 1. Ribli i / / 72 / í 72 i /? '/? 'h i 1 'lz II 2. Poutiainen i/ o o / i O i '/z l o i 1 1 8‘k 3. Hartston O o 0 o / o o Vz 1 7? l / / 1 b'/z 4. Hamann O 1 / •k o o o !z 0 1 / Vz 1 6!z+ £>i 0 5. Friflrik Vz i 1 'k 'k 1 / l 'k 0 / i Vz 9'/l + öl€> 6. Zwaig o 0 0 1 'h 0 'lz i i 'k Vz i 1 7 + SiO 7. Timman 0 O 1 1 0 i 0 'k i Vz 'k l o 1 77z 8. Liberzon '/z l 1 1 0 ’/Z í i 'h '!z /z 1 1 1 m ». Murray O o V? Zz o o ’/z o 'k 0 Vz / o 37z 10. Ostermeyer 'k 'k o i 0 o 7z h Vz ‘/z 1 1 1 T/t* S |£ 11. Jansa Vz o 'k o o ’/a 'h \ Vz Vz 1 1 1 7 «■ GlO 12. Parma 'k 1 72 / 'k Vz Vz i Vz Vz 1 1 1 9k* OiO 13. Björn o o 0 o 0 72 O o Vz 0 o O ■ 1 o z 14. Laine O 0 0 'k o o 1 o 0 0 O o 0 Vz 2 15. VandcnBroeck Vz o o o 'k o o 0 1 o o o 1 'k 3 'lz Svœðismótið í Búlgaríu: Guðmundur í efsta sœti við fjórða mann Agúst Ingimundarson, Ragnar Björnsson, dómkantor, Haukur Gunnlausson, verkamaður, Vil- mundur Gylfason, Þórður Her- mannsson, útgerðarmaður, Sveinn Kristjánsson, bifreiðar- stjóri, Sigurður Kristjánsson, fulltrúi i Globus, Magnús Sigur- jónsson, forstöðumaður, Grim- ur Thorarensen, bifreiðakaup- maður, Hjörtur Torfason, Haukur Sveinsson, Sigurður Arnason hjá Fossberg, Ólafur Hannesson, prentari, Sæmund- ur Pálsson lögreglumaður, Ein- ar S. Einarsson, bankamaður, Birgir Thorberg, málarameist- ari, Karl Birgisson, nemi, Magnús Alexandersson, Björn Bjarman, Heimir Bjarnason, læknir, Sigurbjörn Pétursson, tannlæknir, Matthias Gislason, endurskoðandi, Helgi Bach- mann, bankamaður, Áslaug Kristinsdóttir, Svana Samúels- dóttir, Vigdis óskarsdóttir, Guðjón Teitsson, forstjóri Rikisskip, Gisli Alfreðsson, leikari, Viðar Thorsteinsson, gistihúseigandi, Högni Torfa- son, Páil Jónsson, fram- kvæmdastjóri, Ólafur Eyjólfs- son, framkv stjóri, Bjarni Steingrimsson, verkfræðingur Haraldur Tómasson, yfirþjónn, Haukur Helgas. sérfræðingur, Asgeir Karlsson, læknir, Sig- urður Steinþórsson, Gull og Silf- ur, Ragnar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri tsal, Kristin Guð- johnsen, Róbert Sigmundsson, forstjóri, Jóhann Gislason, tannlæknir, Kristján Sigurðs- son, sölumaður, Rúrik Har- aldsson, leikari, Sigurður Þor- steinsson, byggingameistari, Magnús Sigurðsson, lögfræðing- ur, Jakob Bjarnason, verk- stjóri, Stefán Guðjohnsen, við- skiptafræðingur, Guðmundur Norðdahl, tónlistarkennari, Magnús Hallgrimsson verk- fræðingur. Eins og fyrr segir verða bið- skákir tefldar i dag kl. 15. —kl. 3 — að Hótel Esju. I kvöld kl. 8 verður svo hrað- skákmót svæðismótsins háð i Skákheimilinu við Grensásveg. Er gert ráð fyrir, að velflestir keppendur úr mótinu taki þátt i hraðskákmótinu. Guðmundur Sigurjónsson er i efsta sæti ásamt Ermenkov, Matanovic og Saks. Hann vann biðskákina við Netskar og gerði jafntefli við Vogt. Efstu menn eru með 8 vinninga eftir 12 um- ferðir. I dag hefur Guðmundur svart á móti Matulovic. Aðþeirri skák lokinni á hann eftir að tefla við Letsler og Cermiak. —BS Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur fund miðvikudaginn 12. nóvember kl. 8.30 á Baldursgötu 9. Dröfn Farestveit verður með sýnikennslu á pizza-réttum. Munið bazarinn sunnudaginn 16. nóvember að Hallveigarstöðum. Kvenfélag Lágafellssóknar Fundur i boði Kvenfélagsins Seltjörn verður miðvikudaginn 12. nóvember i Félagsheimilinu Seltjarnarnesi. Rútuferð verður frá Brúarlandi kl. 8 siðdegis. Tilkynningar Bingó Kvenfélag Ásprestakalls heldur bingó að Hótel Borg þriðjudaginn 11. nóvember kl. 8.30. Barðstrendingafélagið i Reykjavik Sveitakeppni Barðstrendinga- félagsins i bridge hefst mánu- daginn 17. nóvember. Þátttak- endur eru beðnir að mæta tiu minútum fyrir klukkan átta. Barðstrendingar, eflið bridge- deildina og mætið stundvislega. Spilað er i Domus Medica. Sýningar Kjarvaisstaðir: Sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals er opin alla daga nema mánudaga klukk- an 16—22. Aðgangur og sýningar- skrá ókeypis. Listasafn tslands: Yfirlitssýning á verkum Jóns Egilberts. Opið frá 13.20-22 daglega til 18. nóvem- ber. c Veðrið Sunnan kaldi og siðan stinningskaldi eða a 11- hvasst. Rigning með köflum. Heldur mun hlýna. Andlát Sigriður Oddsdóttir, Hvassaleiti 153, lézt 30. október i Landspitalanum og var jarðsett á laugardag. Hún var fædd 10. mai 1890 að Sámsstöðum i Fljóts- hlið, dóttir Helgu Magnúsdóttur og Odds Oddssonar gullsmiðs. Sigriður giftistHelga Magnússyni vélstjóra frá Eyrarbakka, en hann lézt árið 1918. Eftir lát manns sins hóf Sigriður störf hjá Landssimanum i Reykjavik, unz hún giftist Páli Sigurgeirssyni deildarstjóra hjá Braunsverzlun i Reykjavik. Árið 1922 fluttust þau hjónin til Akureyrar, er Pá.ll tók við starfi deildarstjóra þar. Siðan eignaðist hann verzlunina og varð eigandi Vöruhússins árið 1946. Árið 1961 hætti Páll verzlunarstörfum og þá fluttust hjónin til Reykjavikur. Þau hjónin eignuðust tvo syni, Sverri skólastjóra á Akureyri og Gylfa skólastjóra i Mosfellssveit. Kristófer Ingimundarson, bóndi, Grafarbakka, lézt 3. nóvember og var jarðsunginn frá Hrunakirkju á laugardaginn. Hann var fæddur 10. ágúst 1903, sonur hjónanna Mariu Gisla- dóttur og Ingimundar Guð- mundssonar. Framan af ævi stundaði hann ýmiss konar störf. Arið 1941 kvæntist Kristófer Kristínu Jónsdóttur frá Grafar- bakka, og nokkrum árum siðar hófu þau búskap þar. Á siðasta ári brugðu þau búi, þar sem heilsa og kraftar Kristófers entust ekki lengur. Þau hjónin eignuðust ellefu börn, og þar af komust tiu upp. Jónas Hallgrimsson forstöðumaður Manntalsskrif- stofunnar, lézt 3. nóvember, og verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni i dag klukkan 15. Jónas var fæddur á Siglufirði 12. marz 1910. Hann hlaut framhalds- menntun við Verzlunarskóla Islands og starfaði að námi loknu hjá Pósthúsinu i Reykjavik og siðar Vinnufatagerð íslands hf. Arið 1936 gerðist hann starfs- maður Manntalsskrifstofu Reykjavikurborgar og veitti henni forstöðu frá 1966. Jónas var mikill áhugamaður um frimerkjasöfnun. Hann var tvikvæmtur. Fyrri kona hans var Vilborg Jónsdóttir. Þau eignuðust þrjú börn, Hrafn- hildi, Hallgrim og Asgerði. Siðari kona Jónasar var Ingi- björg Eyþórsdóttir og eignuðust þau fjögur börn, Jóhönnu, Jónas, Eddu og Marius Þór. Dóra Margrét Björnsdóttir lézt af slysförum 31. október sl. Útför hennar fer fram frá Dóm- kirkjunni i dag kl. 13.30. Guðrún Hansdóttir, Nesvegi 56, lézt i Landspitalanum 2. nóvember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun kl. 14. Magnús Guðmundsson, frá Hamraseli, lézt að dvalar- heimilinu Asi, Hveragerði, 6. nóvember. Svanfriður Hjartardóttir, léztað heimilisinu aðafaranótt 7. nóvember. Oddur Jónsson, fyrrv. framkvæmdastjóri, Grenimel 25, lézt i Landakots- spitala 7. nóvember.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.