Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 4
4
Oagblaðið. Mánudagur 10. nóvember 1975.
BREYTTU STAÐARVALI
OG TEIKNINGUM HÚSS
„Það kom óneitanlega nokkuð
flatt upp á okkur i byggingar-
nefnd Búðardals þegar byrjað
var að grafa fyrir 800 fermetra
húsi mjólkurstöðvarinnar á allt
öðrum stað en samþykkt lá fyrir
um”, sagði Gunnar Jónsson
húsasmiöameistari, formaður
nefndarinnar, I samtali við
Dagblaöið.
Aðdragandi málsins er, að
samþykkt var ný bygging fyrir
mjólkurstöö staðarins fyrir
rúmu ári. Siöan hefur teikning-
um verið breytt og einnig stað-
arvali, og þegar byrjað var að
grafa fyrir húsinu fyrir
skömmu, hafði ekki verið leitað
eftir samþykki byggingar-
nefndarinnar fyrir breyttum
teikningum og breyttu staðar-
vali.
Hér voru að visu brotnar regl-
ur um gang mála viö byggingar,
en gröfturinn var hafinn aðal-
lega vegna þess að tæki til hans
var fáanlegt. Byggingarnefndin
hefur kynnt sér málin og bent á
brotin. Hefur hún fjallað um
málið á einum fundi og mun af-
greiöa það á þeim næsta, e.t.v. á
mánudag. Mun hið breytta stað-
arvalfyrir bygginguna liklegast
hljóta einróma samþykki, þvi
þar er um heppilegra staðarval
að ræða. Hinar breyttu teikn-
ingar munu og hljóta samþykki.
Meira er nú byggt i Búðardal
en verið hefur. 1 byggingu er
— án samráðs
við byggingar-
nefnd
skóli, heilsugæzlustöð, frysti-
hús, sex ibúðarhús og svo er að
hefjast bygging mjólkur-
stöðvarinnar. Af ibúðarhúsun-
um sex eru 3 orðin fokheld, en
hin nálgast þann áfanga. Er
þetta raunar öllu meira en
heimamenn ráða við með góðu
móti, sagði Gunnar.
—ASt.
Líflega boðið í á málverkauppboðinu í gœr:
Dýrasta myndin fór á 672 þúsund kr.
Hvert sæti i Súlnasal Hótel Sögu
var skipað á málverkauppboði
Guðmundar Axelssonar i
Klausturhólum i gærdag.
Dýrasta myndin var slegin á 672
þúsund kr. Var það oliumynd frá
Múlakoti eftir Asgrim Jónsson,
máluð 1912. önnur Asgrimsmynd,
Núpstungugnipa fór einnig fyrir
mjög hátt verð eða 374 þúsund.
Ný verzlun_______
Rafvirkjar
Rafvirkjar óskast til Snæfellsnessveitu
meö aösetur i ólafsvik,
Störfin eru við rafmagnseftirlit og raf-
veiturekstur.
Nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri.
Hafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Fteykjavik.
ARABIA
HREINIÆTISTÆKI
Finnsk
gæðavara
GERIÐ VERÐSAMANBURO
^Bijgc/incfavöruverztunitx^,
©íííiííaæía™?
SKULATUNI 4 SIMI 25150
20% söluskattur er innifalinn I
þessu verði.
Landslagsmynd frá Þing-
völlum eftir Gunnlaug Blöndal fór
á 222 þúsund og svartkritarmynd
eftir Mugg var slegin á 186
þúsund. (Skatturinn innif.).
Mjög gott verð fékkst fyrir
önnur málverk á uppboðinu.
Ýmsar litlar myndir eftir
Jóhannes Kjarval, bæði blek-
teikningar, tússmyndir, litkrit og
vatnslitamyndir fóru frá 30 upp i
75 þúsund auk söluskatts.
Mynd frá Hornafirði eftir Jón
Þorleifsson var slegin á 138
þúsund með söluskatti. Litil oliu-
mynd eftir Kjarval (16x79 cm)
var slegin á 136 þúsund með sölu-
skatti.
Oliumynd eftir Þórarin B.
Þorláksson, Úr Laugardal i
Biskupstungum, var slegin á 180
þúsund meö söluskatti. Ráðgert
hafði verið að hafa fleiri myndir
eftir Þórarin á sýningunni en
dóttir listamannsins, Guðrún,
taldi vafa leika á um að faðir
hennar hefði málað þrjár mynd-
anna. Voru þær af þeim sökum
teknar út úr uppboðinu og er nú
verið að rannsaka þær.
Myndir eftir Gunnlaug Blöndal
voru slegnar á veröinu frá 75 upp i
150 þúsund, fyrir utan söluskatt.
Myndir Sveins Þórarinssonar
voru slegnar upp i 80 þúsund fyrir
utan söluskatt. Ein mynd eftir
Kára Eiriksson fór á 108 þúsund.
Oliumynd eftir Brynjólf Þórðar-
son „Við Reykjavik” var slegin á
110 þúsund, fyrir utan söluskatt.
Alls voru 88 málverk boðin upp
á þessu fyrsta málverkauppboði
vetrarins. Ráðgert er að hafa eitt
uppboð fyrir jól, sem verður lik-
lega bókauppboð. Ekki þykir lik-
legt að annað málverkauppboð
verði fyrr en I vor.
Uppboðshaldari var Arni
Ólafur Lárusson. A.Bj.
Hlýindi á Norð-
austurlandi:
18 stig á Siglufirði
„Menn njóta hér veðurblið-
unnar, eins og hægt er, allar
heiðar eru opnar og rjúpnaveiði
I algleymingi”, sagði Hannes
Scheving á Vopnafirði I viðtali
við Dagblaðið I gær. Hálfgerð
hitabylgja gekk yfir Austurland
siðustu dagana i fyrri viku.
Komst hitinn i allt að 16 stig á
Egilsstööum og I Vopnafiröi. Þá
var og allheitt á Siglufirði, — á
föstudag var hiti þar 18 stig.
„Fólk gengur að visu ekki
léttklætt”, sagði Guðrún Aöal-
steinsdóttir á Egilsstöðum, „en
hér er unnið við steypuvinnu,
sem er einsdæmi i nóvember.
Veðrið hefur verið afskaplega
gott hér I haust og ég vona bara
að það haldist”.
Að sögn Knúts Knudsen veö-
urfræðings er hér ekki um neitt
einstakt fyrirbæri að ræða, oft
koma hlýindakaflar á þessum
tima árs á Norður- og Austur-
landi. Sunnanáttin ber oft með
sér hlýtt loft og nú hafi hnúka-
þeyr éinnig bætzt við hlýindin.
Taldi Knútur, að heita loftið yrði
komið austur fyrir land upp úr
helginni.
HP
Réttingaverkstœði athugið
Getum útvegað með stuttum fyrirvara hina fjölhœfu
réttingatjakka og réttingatœki frá Guy - Chart i Kanada
fyrir allar stœrðir ökutœkja og verkstœða
GuL/Charf
Sýningartœki og nánari upplýsingar á staðnum
Bílasmiðjan Kyndill 36/5”™i 35051 09 85040