Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 24
„Maður leikur sér ekki að
eldinum i minni stöðu á
mótinu,” sagði Zoltán Ribli, er
fréttamaður Dagblaðsins leit
inn til hans á herbergi númer
811 á Hótel Esju i gær. Hann
bætti við: „Það getur maður
gert alla aðra daga.”
Þessi 24 ára gamli Ungverji
er atvinnumaður i skák og
virðist ekki hafa verið að leika
sér undanfarna 14 mánuði.
Hann hefur ekki tapað skák
þennan tima, það er að segja,
engri þeirra um 70 alvarlegu
kappskáka, sem hann hefur
teflt.
„Nú tefli ég að sjálfsögðu
fyrst og fremst upp á að tapa
ekki fyrir Van Den Broeck,”
sagði Ribli.
Ribli kveðst hafa búið i Búda-
pest i nærri 4 ár. Annars er hann
frá bænum Pécs, sem liggur
ekki mjög fjarri landamærum
Ungverjalands og Júgóslaviu.
Þar búa foreldrar Ribli, tveir
bræður og ein systir. t Pécs eru
um 150 þúsund ibúar.
Heimsmeistaratitillinn:
„Ég reyni eins
l • • # #
og ninir
segir Zoltán Ribli
Ungverjinn Zoltán Ribli er með 8 vinninga og 6 jafntefli —efstur og tapaðiekki skák. — Ljósm. B.P.
„Það eru engin vandkvæði að
hringja i konuna,” sagði Zoltan
Ribli.” Ég hefi gert það. Við
erum bara búin að vera gift i
tæpt ár.” Þau hjónin eru barn-
laus ennþá, en konan stundar
háskólanám i landafræði og
þýzku.
Þessi alþjóðlegi stórmeistari
er einstaklega hógvær og ljúfur
i viðmóti. Hann segist hafa nóg
að bita og brenna heima fyrir.
Hann á ibúð og telst hafa góð
laun. „Ég gæti átt bil, ef ég
vildi, en ég hefi ekkert gaman af
bilum,” sagði Ribli.
„Ég er rómversk-kaþólskur,
eins og flestir i Ungverjalandi,”
sagði Ribli. Hann hefur skoðað
Hallgrimskirkjuna okkar og
farið i kaþólsku kirkjuna i
Landakoti.
Fjárhagsörðugleikar náms-
manna erlendis eru nú orðnir
það miklir, að nokkrir þeirra
hafa orðið að gripa til þess ráðs*
að hverfa frá námi og koma
heim, a.m.k. um stundarsakir,
til þess að sjá hverju fram vind-
ur i námslánamálum. Reyndar
höfðu menn talið, að til þessa
þyrfti ekki að koma, en þrátt
fyrir loforð um skyndikannanir
á neyðartilfellum og aðrar yfir-
lýsingar er ljóst, að námsmenn
lifa ekki á þeim og verða þvi að
Huldumaðurinn forinn:
Huldumaðurinn,sem gisti klefa
lögreglunar i Keflavik um tima i
fyrri viku, er nú kominn til sins
heima, Þýzkalands. Hafði hann
áður leikið mikið laumuspil, var
með falskt vegabréf og harð-
neitaði i fyrstu að segja til nafns.
Komst hann undir mannahendur,
er hann var tekinn fyrir ölvun við
akstur i hliðinu á Vellinum, en
vegna undarlegs hátternis var i
fyrstu álitið að maðurinn væri
viðriðinn eiturlyfjasmygl, eða
a.m.k. eiturlyfjaneytandi. „Við
fengum málið til okkar á mið-
„Það er mikill áhugi á skák
hér,” segir Ribli, þegar hann er
spurður, hvernig honum liki við
íslenzka áhorfendur: „Þeir eru
afar kurteisir. „Ég loka að vísu
eyrunum,” en ég hefi ekki orðið
var við ónæði hér á keppnis-
staðnum. Salurinn er of litill
fyrir áhorfendur. Það getur ekki
verið þægilegt að standa svona
koma heim.
S.l. laugardag komu fyrstu
námsmennirnir heim, tvær
stúlkur, sem verið hafa i leik-
listarnámi i London. Við rædd-
um við aðra þeirra, Margréti
Hallgrimsson: „Hvorug okkar
hafði haft peninga til þess að
‘greiða skólagjöldin, en höfðum
fengið frest, þar eð skólanum
var kunnugt um lánavandræði
islenzkra námsmanna. Þegar
okkur var svo tilkynnt, að við
fengjum um 30 þúsund isl. til
vikudag og það leið ekki langur
timi þar til hann sagði okkur allt
af létta”, sagði Árni Sigurjónsson
hjá útlendingaeftirlitinu. ”Hann
sagði til nafns, Willy Denker, 25
ára og sagðist vera frá litlum bæ,
rétt fyrir utan Bremen. Þar
þekkti hann lögreglunienn i
lögreglu staðarins, og við gerðum
okkur litið fyrir, höfðum
samband við þessa litlu stöð og
þeir könnuðust strax við hann.
Höfðu ekkert á hann, nema hvað
hann skuldaði eitthvað af barns-
timunum saman, eins og margir
áhorfendur gera á hverjum
einasta degi,” sagði Zoltán
Ribli.
Við spyrjum hann, hvort hann
þekki margakeppendur fráíyrri
mótum. „Já, þó nokkra. Ég
ætlaði ekki að þekkja Liberzon,
þegar ég sá hann. Ég tefldi
siðast við hann á móti i Moskvu
þess að lifa af fram yfir áramót,
var náminu náttúrlega sjálf-
hætt,” sagði Margrét.
Sagði hún fjárhagsaðstæður
námsmanna i London ákaflega
slæmar og væri það algengt, að
fólk væri farið að spara veru-
lega við sig i fæði allt niður i
sem svarar hálfri máltið á dag.
Kemur það heim og saman við
það, sem við höfum frétt, enda
efna námsmenn i London til
mótmælaaðgerða fyrir utan is-
lenzka sendiráðið þar i dag.HP
meðlögum”, sagði Arni. Yfirvöld
hér féllu frá málsókn á hendur
manninum til þess að losna við að
senda hann úr landi með gæzlu-
mönnum, sem hefði kostað stórfé,
en fengu hann til þess að biðja um
aðstoð v-þýzka sendiráðsins. Það
greiddi fyrir hann farmiða og fór
hann úr landi nú fyrir helgina.
Falska vegabréfið, sem hann var
með, hafði hann fengið hjá vinum
sinum i Paris og mun hann
upphaflega ætlað til Grænlands i
atvinnuleit. HP
fyrir tveim til þrem árum. Þá
var hann sköllóttur Rússi. Nú er
hann hárprúður Israelsmaður,”
sagði Ribli.
Verður þú næsti heims-
meistari spyrjum við. Ribli
brosir, ekkert nema lltillætið.
„Ég veit það ekki. Þetta eru
sterkir menn, en ég reyni eins
og hinir.” —BS
97 milljónir
króna í fölskum
óvísunum
97 milljónir króna reyndust
vera i innistæðulausum tékkum
i „rassiu”, sem gerð var i bönk-
unum á föstudag. Er þetta
mesta fjárhæð i fölskum tékk-
um, sem vitað er um i mjög
langan tima. Alls voru 1199
tékkar innistæðulausir.
Siðasta ávisanakönnun var
gerð i m'arzmánuði og reyndust
þá 22.9 milljónir króna gefnar út
með 1065 innistæðulausum tékk-
um. Það var 0.87% af ávisana-
veltunni.
1 könnun þeirri, sem gerð var
á föstudaginn var hlutfall inni-
stæðulausra ávisana um 3% af .
veltunni. Er það hærra hlutfall
en verið hefur mjög lengi.
Starfsmenn Seðlabankans og
viðskiptabankanna unnu fram á
nótt á föstudag við þessa könn-
un, sem leiddi i ljós á milli 4—5
sinnum hærri meðaltalsfjár-
hæðir á hverja ávisun en við sið-
ustu könnun.
Meðaltalsf járhæð hverrar
ávisunar var nú kr. 80.900.00 og
er auðséð af þvi, að allmargar
ávisanir hafa verið mjög háar.
—BS—
frjálst, úháð dagblad
Mánudagur 10. nóvember 1975.
Skotmenn
handteknir
Tveir 18 ára skotmenn,
byssuleyfalausir, voru hand-
teknir i Sandvik i Höfnum þar
sem þeir voru að skjóta úr
riffli á vinnuvél, sem þar
stendur á afskekktum stað.
Höfðu þeir þá skotið sundur
rúðu i vélinni. Byssuna höfðu
þeir að láni frá öðrum rétt-
indalausum. Tvær stúlkur
voru meðpiltunumog horfðu á
félaga sina við verknaðinn.
1 ljós kom að þeir höfðu áður
skotið úr fjarlægð á sömu vél
og var verið að vinna með
henni, en vinnuvélarstjórinn i
kaffi, og hafði aldrei þessu
vant ekki drukkið kaffi sitt
inni i vélinni.
ASt.
Milli heims
og helju
eftir slys
Þrír fluttir
flugleiðis frá
Djúpavogi
Ungur maður, 21 árs, ættað-
ur úr Álftafirði liggur milli
heims og helju eftir bifreiðar-
slys á Djúpavogi á laugar-
dagsmorgun Hann og tveir
aðrir sem i bilnum voru voru
fluttir flugleiðis suður. Félag-
ar hans tveir eru á batavegi,
en ungi maðurinn er i alvar-
legri lifshættu.
Þessir þrir sem allir eru úr
Alftafirði höfðu á laugardags-
nóttina ekið mjög glæfralega
um á Djúpavogi. Lauk þvi svo
að bifreið þeirra bræddi úr
sér. Slógust þeir þá i för með
pilti og stúlku frá Djúpavogi
og tók einn piltanna við akstri
bifreiðar Djúpavogsfólksins.
ökuferðinni lauk er bifreið-
inni var ekið á miklum hraða
aftan á hjólavagn frá Vega-
gerðinni er lagt hafði verið á-
samt dráttarbil á götunni milli
Djúpavogs og þjóðvegarins.
Var höggið mikið, rúðubrot
fundust i 20 m fjarlægð og ann-
að eftir þvi. Grunur er um ölv-
un við akstur.
ASt.
Rœndi her-
hergisfélaga
sinn
Ibúi einn i verbúð i Keflavik
saknaði aleigu sinnar i reiðufé
á laugardagsmorgun. Grunur
féll þegar á herbergisfélaga
mannsins. Kom fljótt i ljós að
hann hafði haldið til Reykja-
vikur með leigubifreiö. Þar
tókst lögreglumönnum i
Reykjavik að aðstoða Kefla-
vikurlögregluna með þvi að
handtaka manninn. Viður-
kenndi hann brot sitt og hafði
þá i fórum sinum 21 þús kr. af
32 þúsundum er horfið höfðu.
Auk þess var tekinn af honum
varningur er hann hafði keypt,
m.a. áfengi. Maðurinn er nú i
vörzlu Keflavikurlögreglunn-
ar.
ASt.
SMITANDI HEILAHIMNUBÓLGA
í RADARSTÖÐ HERSINS
— ekki vitað hvaðan smitið hefur borizt
Nokkur ótti greip um sig i
Rockwille, radarstöð varnar-
liösins i Miðnesheiði á fimmtu-
daginn þegar einn starfsmaður
mötuneytis veiktist i höfði og
var lagður inn á sjúkrahús
varnarliðsins á Keflavikurflug-
velli, með smitandi sjúkdóm.
Nokkrir íslendingar starfa i
stöðinni, meðal annars i mötu-
neytinu. Fengu þeir að fara
heim á fimmtudagskvöldið,
eftir nokkrar vangaveltur yfir-
manna. A föstudaginn voru
þeir, sem ekki áttu vakt i mötu-
neytinu, beðnir að koma til
læknisskoðunar i Rockwille, en
skömmu siðar var sú beiðni
afturkölluð. Seinna um daginn
kom bifreið frá radarstöðinni
heim tii þeirra og með henni lyf
sem starfsmennirnir voru
beðnir að taka inn til frekara
öryggis. Engar skýringar voru
gefnar á þvi um hvaða sjúkdóm
væri aö ræða, né heldur hvaða
lyf það væri sem mönnum var
gert að neyta. Hins vegar voru
þeir beðnir um að láta vita, ef
þeir fengju höfuðverk — sem
leiddi niöur I herðar. Ekki var
mönnum bent á að hafa sam-
band við islenzka lækna.
Að þvi er bezt er vitað mun
umferð um Rockwille ekki hafa
veriö með eðlilegum hætti á
föstudaginn, hliöið lokað og
engum óviðkomandi hleypt þar
um, að minnsta kosti hluta úr
deginum.
Lögregluskýrslur munu ekki
hafa verið teknar, vegna
atburðanna, að þvi er lögreglu-
þjónn sagði, en hins vegar
sagðist viökomandi yfirmaöur
hjá varnarliðinu hafa tilkynnt
landlækni og héraðslækni um
málið.
„Á Keflavikurflugvelli kom
upp tilfelli af heilahimnubólgu,
sem við fáum hér á hverju ári,”
sagði Ólafur Ólafsson land-
læknir I viðtali viö Dagblaðið.
„Maðurinn, sem sjúkur var, er
varnarliðsmaður. Var hann
lagöur á sjúkrahús og honum
gefið sýklalyf. Er hann við góða
heilsu og ekki i neinni hættu.
„Þetta er einn af 35 sjúk-
dómum, sem á að gefa skýrslu
um”, sagði landlæknir. „Þaö
var gert og sjúklingnum komið
til réttrar meðferðar, enda er
gott samstarf viö lækna og
heilsugæzlu hjá varnarliöinu.”
Sú tegund heilahimnubólgu,
sem þarna kom upp, er
smitandi. Landlæknir sagði að
erftitt væri að geta sér til um,
hvaðan smit þetta hefði borizt,
og lægi ekkert fyrir um það enn.
BS
Það sem átti ekki að koma fyrir:
FYRSTU NÁMSMENNIRNIR HEIM
Willy Denker, 25 ára Þjóðverji