Dagblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 2
 2 Dagblaöið. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. " v ## Við heyjum mikið varnarstríð gegn Ægi konungi," segja Seltirningar Hafnurmannvirkin frá timum Kveldúlfs fyrir framan Kjarvalshús- ið eru farið að láta á sjá fyrir ágangi sjávar og veröur að draga úr sjónum lengra úti ef takast á að bjarga þeim. „Aðalvandamálið er úti á Suðurnesinu og vegurinn þangaö er einn sjóyarnargarðurinn á Nesinu,” sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri i viðtali við DB. Hér sést út með nesinu til norðvesturs þar sem Sellirningar heyja þrotlausa baráttu gegn brimöldum sjávar. DB-myndir B.P. „Þetta er stórt vandamál hjá okkur,” sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, er við ræddum við hann um landbrot sjávar á Seltjarnarnesi. „Náttúruverndarnefndin okkar hefur verið ákaflega viðkvæm fyrir jarðraski sem bygging sjóvarnargarða hefði i för með sér, en annars vegar eru meiri raunsæismenn sem vilja hefta landbrotið og láta reisa garðana þvi augljóst er að sjórinn vinnur á og eyðir smátt og smátt landi.” Sagði Sigurgeir ástandið vera einna verst úti á Suðurnesi og á vesturströndinni enda lægju þau svæði fyrir opnu hafi. „Við höfum reynt að halda i horfinu og fara um leið bil beggja,” sagði Sigurgeir ennfremur. „Mikið hefur verið keyrt af grjóti i veginn út á Suðurnes meðfram Bakkatjörninni, en það er einmitt svæði, sem náttúruverndarnefndin vill gæta. Eru það gamlar mógrafir sem koma i ljós á stórstraums- fjöru.” Gat Sigurgeir þess að nýlega hefði verið boðið út endurskipu- lag á heildarskipulagi hreppsins og þá myndu Seltjörnin og svæðin i kringum hana verða tekin með i það skipulag með útivistarsvæði fyrir augum. HP Þessi gömlu skotbyrgi frá striðsárunum stóðu alllangt inni I landi en Ægir konungur teygir loppuna nær þeim með hverju árinu sem líður. Nœst vil ég koma sem ferðamaður, Ungfrú island i góöum vinskap með fulltrúum oliusmáeyjanna Curacao og Aruba, en hvorugt þeirra rikja er stærra en ísland eða fjölmennara (DB-mynd JB). — Hann er fyrsti ís- lendingurinn sem ég hef haft tækifæri til að hitta frá þvi ég kom hingað, þið verðið að hleypa honum inn! Með þessum góða stuðningi frá Miss Iceland, Halldóru Björku Jónsdóttur, fékk islenzki fréttamaðurinn að hitta hana skamma stund þar sem hún dvelur i London ásamt 67 öðrum fegurðardisum sem taka munu þátt i Miss World samkeppninni á fimmtudag. öryggisgæzlan á Hótel Britannia var ströng. Við hótel- innganginn var leitað i öllum töskum og á hverri hæð. Þar sem fegurðardisirnar búa voru verðir sem hleyptu engum óvið- komandi inn. En eftir miklar i- huganir blaðafulltrúa var loks gefið grænt ljós. — Fáið yður sæti, Miss Ice- land kemur eftir fimm minútur. Stúlkurnar eru önnum kafnar við að búa sig undir kvöldverð- inn klukkan átta, sagði blaða- fulltrúinn. — En klukkan er bara sex, sagði fréttamaðurinn, sem sjálfur lifir á pylsum og tómat- sósu og étur hvort tveggja standandi. Greinilegt var að hér var ekki fyrr búið að snæða kvöldverð en farið var að búa sig undir morgunverð daginn eftir. — Nei, sjáðu til, þetta er sér- stakur kvöldverður. 1 kvöld höldum við heilög jól, sagði full- trúinn. — Heilög jól??? Hvað áttu við maður, það er miður nóvember, sagði fréttamaðurinn mun rugl- aðri en áður. — Fæstar stúlkurnar hafa tækifæri til að dveljast hér i Englandi um jólin og þess vegna ákváðum við að sýna þeim nú hvernig hefðbundið enskt jóla- hald fer fram, sagði fulltrúinn. — Hefðbundið enskt jóla- hald??? Með 68 fegurðardisum? hugsaði fréttamaðurinn og ákvað á þeirri stundu að i fram- tiðinni skyldi hann verja öllum sinum jólum i Englandi. I þann mund birtist Halldóra, ásamt tveim suður-ameriskum þokkadisum. — En hvað ég er fegin að geta talað islenzku aftur. Ég verð þeirri stundu fegnust er ég kem heim, sagði Halldóra dauð- þreytt eftir langan dag. — Heyrðu annars, ég þekki þig nú. Þú varst áskrifandi að einhverju erlendu blaði þegar ég vann hjá Sigfúsi Eymunds- syni. Hvaða blað var það nú aft- ur? spurði Halldóra. Fréttamaðurinn dró nú eld- snöggt fram myndavél og bað Halldóru og þessar tvær frá Suður-Ameriku að brosa fallega á einni mynd. Allt frekara tal um blaðaáskriftir hefði leitt i ljós að i raun og veru hafði fréttamaðurinn verið áskrifandi að tveim erlendum blöðum, en samt gætt þess að sækja aldrei nema annað þeirra i einu! — Við vorum tvær, sem áttum að fara annars vegar i Skandinaviukeppnina og hins vegar i Miss World keppnina i London. Svo skilst mér að snögglega hafi verið hætt við Skandinaviukeppnina og mér var þá tilkynnt með stuttum fyrirvara að ég ætti að halda til London til að keppa við fegurstu stúlkur i heimi, sagði Halldóra. Halldóra hafði ekki staðið á erlendri grund áður er hún var allt i einu stödd á Heathrow flugvelli, þar sem jafnvel þaul- vanir ferðamenn villast auð- veldlega. — Ég vissi ekki einu sinni nafnið á hótelinu, sem ég átti að búa á. En sem betur fer hitti ég fljótlega þann sem var kominn — 3*

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.