Dagblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 20
20 Dagblaðið. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. Tillögur Jóns Sigurðssonar „HREINGERNING" Á BÚSKAP RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA Jón Sigurðsson, forstöðumað- ur Þjóðhagsstofnunar, vill gera „hreingerningu” á fjármálum rikis og sveitarfélaga. t tillögum, sem hann hefur sett fram, segir að fasteigna- skattur eða skattur af þvi tagi ætti að verða annar aðalskattur sveitarfélaganna. Hann eigi ætið að miðast við raunhæft eignamat sem taki tillit til verð- breytinga frá ári til árs. Kanna þurfi hvort mengunar- skattur, svo sem „skorsteins- skattur” eöa „úrgangsskattur”, sem lagður væri á einhvern mælikvarða á mengun lofts, vatns og jarðar, gæti ekki komið að góðu haldi. Aðstöðugjaldið, sem verið hefur annar helzti tekjustofn sveitarfélaga, ætti að leggja niður. Hins vegar fengju sveitarfé- lögin hlut i tekjuskatti félaga. Þá segir i tillögunum að lög- gjöf um alla tekjuöflun hins opinbera ætti að fella i einn lagabálk. Jón segir að núgildandi á- kvæði laga og reglugerða um sameiginleg útgjöld rikis og sveitarfélaga séu svo flókin að 50 fjárlagaliðir gætu varðað hvert sveitarfélag á fjárlögum 1975. Um 13 milljarðar króna séu á fjárlögum 1975 til sameig- inlegra útgjalda rikis og sveit- arfélaga eða um 27 prósent af heildarupphæð fjárlaganna. Kerfi þetta þurfi að einfalda og hreinskipta verkefnum milli rikis og sveitarfélaganna. Að lokinni slikri „hreingern- ingu” komi til álita að hafa þátt- tökuhlutfall rikisins i sameigin- legum framkvæmdum breyti- legt i hagstjórnarskyni eftir nánari ákvörðun rikisvaldsins. Tillögurnar koma fram i Handbók sveitarstjórna sem Samband islenzkra sveitarfé- laga hefur nú gefið út. —HH Fjallkonur fylgjast vel með Mariu Kristmanns þegar hún snyrtir módel sitt. Rudolf Valentino sýnir þeim um leið hvernig karlmaður á að vera til að vera „smart”. „FJALLKONUR" KYNNAST TÍZKU OG SNYRTINGU Nýjasta fatatizka frá Melkorku. Eins og sjá má eru fötin frjálsleg og þægileg. YFIRLITSSÝNING Á VERKUM ENGILBERTS FRAMLENGD Yfirlitssyningin á verkum Jóns Engilberts hefur verið mjög vel sótt. Sýningin var opnuð 18. október s.l. og átti að ljúka sl. sunnudag. Vegna mikillar aðsóknar undir lokin hefur nú verið ákveðið að sýningartiminn verði framlengd- ur. Verður sýningin opin i dagjimmtudag, á laugardaginn og á sunnudaginn frá kl. 1.30-4 siðdegis. ASt sýning frá verzluninni Melkorku og einnig var snyrting sýnd. Það voru Maria Kristmanns sem kynnti Juvena snyrtivörur og Heiðar Jónsson, sem kynnti Yardley snyrtivörur. Og nú vita Fjallkonur bæði hvernig þær eiga að vera klæddar og snyrtar. Ekki sakaði heldur að Rudolf Valentino (Heiðar Jóns- son) gekk þarna um eins og hann hefði aldrei horfið af sjónarsvið- inu.enhann varkynnir kvöldsins. EVI „Fjallkonur”, kvenfélag efra Breiðholts, fjölmennti i Fellahelli á fimmtudagskvöldið var enda að vonum þvi að á döfinni var tizku- Fjárlögin: Milljarður bœtist við Milljarður hefur nú þegar bætzt við fjárlagafrumvarpið og meira kemur á eftir. Jón Árnason alþingismaður, formaður fjárveitinganefnd- ar, sagði i viðtali við Dagblað- ið að ekki minna en einn milljarður króna hefði bætzt við i frumvarpið vegna dag- gjalda á sjúkrahúsum. Margir sækja nú þungt að nefndinni að koma að þessari eða hinni hækkuninni frá þvi sem frum- varpið greindi þegar það var lagt fram. Jón Árnason sagði að það yrði ekki fyrr en upp úr mánaðamótum sem i ljós kæmi hvað af sliku kæmi til viðbótar. Nefndin reyndi að standa gegn hækkunum. —HH Til söíu Nokkur nagladekk og sumardekk til sölu, stærð 560x13. Einnig er til sölu spiral- dunkur og straumbreytir 220 volt- 110. Uppl. i sima 35799 eftir kl. 7. Mokkakápa nr. 18 til sölu og skrifborð, 150 á lengd, 80 á breidd. Upplýsingar i sima 24560. Kanarieyjaferð fyrir 2 til sölu, einnig nýlegt Philips-drengjahjól. Uppl. i sima 72774. Mjög góður miðstöðvarketill, 4 ferm, spiral- hitadunkur, brennari og fleira til sölu. Verð kr. 20 þúsund. Simi 42683. Leikjateppin með bilabrautum til sölu að Nökkvavogi 54. Simi 34391. Hring- ið áður en þér komið. Megið koma eftir kvöldmat. Nýlegur 12 tonna Bátalónsbátur til sölu. Fæst i skiptum fyrir fasteign eða gegn fasteignaveði. Uppl. i sima 30220. Óskast keypt Óska eftir að kaupa ógangfæra Deutz B15 árg. ’60-’64 dráttarvél. Uppl. i sima 7474 Sandgerði. Miðstöðvarofnar óskast. Óska eftir að kaupa pott- miðstöðvarofna fyrir hitaveitu. Upplýsingar i sima 42058. Óska eftir tveggja til þriggja fermetra mið- stöðvarkatli. Uppl. i sima 50940. Vil kaupa Kombi Star trésmiðavélar, hefil og sög. Uppl. i sima 36236. Nokkrir sexleggja pottofnar óskast keyptir. Uppl. i sima 11138. Geirskuröarhnifur óskast til kaups. Uppl. i sima 36477 10—12 f.h. og eftir kl. 7 á kvöidin. 1 Verzlun Hnýtið teppin sjálf. I Rýabúðinni er borgarinnar mesta úrval af smyrnateppum. Veggteppi i gjafaumbúðum, þýzk, hollenzk og ensk. Pattons- teppi i miklu úrvali og mörgum stærðum, m.a. hin vinsælu „bænateppi” i tveim stærðum. Niðurklippt garn, teppabotnar i metratali og ámálaðir. Pattons smyrnagarn. Póstsendum. Rýa- búðin Laufásvegi 1, Simi 18200. Kópavogsbúar! Smáir og stórir dúkar nýkomnir, einnig kringlóttir með kögri, stærð 1,60. Full búð af gjafavör- um. Hraunbúð Hrauntungu 34, Kópavogi. Þriþættur lopi Okkar vinsæli þriþætti lopi er á- vallt fyrirliggjandi i öllum sauða- litunum. Opið frá 9-6 alla virka daga og til hádegis á laugardög- um. Magnafsláttur. Póstsendum um land allt. Pöntunarsimi 30581. Teppamiðstöðin Súðarvogi 4, Reykjavik. Til eiginmamia og unnusta Við vorum að fá gobelinpúða i gjafapakkningum á kr. 1.395.- Hnýtt veggteppi 40x120, kr. 6.870.- Tilvaldar jólagjafir handa eigin- konunni og unnustunni. Verzlið þar sem úrvalið er mest og verðið bezt. Hannyrðaverzlunin Grims- bær við Bústaðaveg. Koddar, ullarteppi, svanadúnssængur, sængurver og sett, straufri, damask og léreft, flónel i barnanáttföt, flauel rifflað, nærföt fyrir dömur og herra, handklæði i úrvali, terylenedúkar úr blúndu. Póst- sendum. Verzlunin Höfn, Vestur- götu 12, simi 15859. Kaupum og seljum litið notuð rafmagnsorgel og sjón- varpstæki. Uppl. i sima 30220. Kaupum af lager alls konar fatnað og skófatnað. Staðgreiðsla. Uppl. i sima 30220. Kápur, jakkar, gallar heilir og tviskiptir, buxur, jakkapeysur, kjólar og blússur. Úrval af barnafatnaði. Gallabúð- in, Kirkjuhvoli, simi 26103. Sendum i póstkröfu. Rýmingarsala á öllum jólaútsaumsvörum verzl- unarinnar. Við höfum fengið fall- egt úrval af gjafavörum. Vorum^ að fá fjölbreytt úrval af nagla- myndunum vinsælu. Við viljum vekja athygli á að þeir sem vilja verzla i ró og næði komi á morgn- ana. Heklugarnið okkar 5. teg. er ódýrasta heklugarnið á Is- landi. Prýðið heimilið með okkar sérstæðu hannyrðalistaverkum. Einkunnarorð okkar eru „ekki eins og allir hinir”. Póstsendum. Simi 85979. — Hannyrðaverzlunin Lilja Glæsibæ. Barnafataverzlunin Dunhaga 23. Nýkomnar sokkabuxur, mynda-' peysurnar vinsælu, sængurgjafir og fl. Gjörið svo vel og litið inn. Barnafataverzlunin, Dunhaga 23. Það eru ekki orðin tóm að flestra dómur verði að frúrnar prisi pottablóm frá Páli Mich i Hveragerði. Blómaskáii Michelsens. Verzlunaráhöld Vil kaupa búðarpeningakassa með skúffu. Upplýsingar i sima 30726. Vetrarvörur Skautar — skiðaskór. Tökum notaða skauta og skiðaskó i umboðssölu miili kl. 2 og 6 dag- lega. Seljum á sama tima notaða skauta og skiðaskó. Skerpum einnig skauta. tJtilif, Glæsibæ. Fatnaður Iierrabuxur, drengjabuxur og bútar. Peysur, skyrtur og fleira. Búta-og buxna- markaðurinn Skúlagötu 26. Húsgögn Vel með farið sófasett, 4ra sæta sófi, sófaborð og tveir stólar til sölu. Uppl. i sima 41536. Til sölu Pira-hillur, hjónarúm og hljóm- plötuhirzla. Uppl. i sima 53299 eft- ir kl. 19. Nett hjónarúm með dýnum, verð aðeins frá kr. 28.800,—. Svefnbekkir, 2ja manna svefnsófar fáanlegir með stólum eða kollum i stil. Kynnið yður verð og gæði. Afgreiðslutimi frá kl. 1 til 7, rnánudaga til föstudaga. Sendum i póstkröfu um land allt. Húsgagnapjónustan Langholts- vegi 126, simi 34848. Kaupum og seljum vel með farin húsgögn og aðra góða muni. Seljum nýtt. Eldhús- kolla, sófaborð og nokkrar litið gallaðar kommóður. Sækjum. — Staðgreiðum. Fornverzlunin Grettisgötu 31, simi 13562. Vel með farin húsgögn, skápar, sófasett, bekkir og hjóna- rúm og margt fleira. Húsmuna- skálinn, Klapparstig 29, simi 10099. Saga Hafnarfjarðar. Óska eftir að kaupa gott eintak af Sögu Hafnarfjarðar. Uppl. i sima 35320 milli ki. 3 og 5. Byssur Ilaglabyssa til sölu Spænsk einhleypa með stuðpúða- ól og skotfærabelti, verð 12 þús- und krónur. Upplýsingar i sima 52028 eftir kl. 7.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.