Dagblaðið - 10.12.1975, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 10.12.1975, Blaðsíða 10
10 d Dagblaðið. Miðvikudagur 10. desember 1975. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Allir skoruðu mörk fyrir ísland nema markverðirnir islenzka landsliðið I handknatt- ieiknum vann stórsigur á úrvals- liði Sjálands i Ringsted I gær- kvöld — þrettán marka sigur, 27- 14, sem er einn mesti ef ekki mesti sigur, sem islenzkt hand- knattleiksiið hefur unnið á dönsku úrvalsliði. Það bezta i leiknum var, að allir leikmenn islands — nema markverðirnir — skoruðu i leiknum og Ólafur Benediktsson átti stórleik i marki. Fékk aðeins á sig sjö mörk I þær fimmtiu minútur, sem hann lék. Við fengum leyfi til að leika með 13 leikmönnum — vildum sjá alla þá, sem voru að koma frá Vestur-Þýzkalandi, sagði Axel Sigurðsson, þegar Dagblaðið ræddi við hann i gærkvöld i Glo- strup. Gunnar Einarsson var hvildur i leiknum — en allir aðrir léku. Tveir leikmenn frá Sjálandi, sem leika i danska landsliðinu gegn okkur i Arósum á fimmtudag, þeir Jörgen Frand- sen og Jörgen Munkager, léku ekki i Sjálandsúrvalinu, þar sem Danir vildu ekki gefa okkur tæki- færi að sjá þá i, leik fyrir lands- leikinn. En i úrvalinu danska voru margir kunnir leikmanna Dana eins og Arne Andersen, semleikið hefur 135 landsleiki, Gunnar Nielsen, Ole Lindquist og ungiingalandsliðsmaðurinn Mar- íslenzka landsliðið sigraði úrvalslið Sjálands 27-14 í gœrkvöld — einn mesti sigur gegn Dönum í handbolta. Óli Ben. fékk á sig sjö mörk í 50 mínútur. Axel markhœstur ten Engelstaft, sagði Axel enn- fremur. Þetta var skemmtilegur leikur og yfirburðir islenzka landsliðs- ins ótviræðir. Flestir leikmenn Is- lands komu vel út — ólafur H. Jónsson átti stórsnjallan leik, leikmaður i heimsklassa, og ólaf- ur Benediktsson varði glæsilega. En auðvitað kom fram ýmislegt, sem betur má fara. — Hornin voru talsvert opin,og annað sem sniða má af. t heild vorum við ánægðir með leikinn, sagði Axel. Þetta var prúður leikur — aðeins fjögur viti dæmd og fékk danska liðið þrjú vitanna. Dómarar voru Otto Henning og Ole Christensen og dæmdu prýðilega. Áhorfendur voru 800 eða eins og rúmaðist i iþróttahúsinu i Ringsted. Það var greinilegt, að þeir hrif- ust af leik islenzka liðsins — eink- um var samvinnu þeirra Ólafs H. og Axels Axelssonar klappað lof i lófa. Hún var stórgóð og oft flétt- aðist Björgvin Björgvinsson inn i. Islenzka liðið náði strax undir- tökunum — skoraði tvö fyrstu mörk leiksins. Siðan Danir eitt — en næstu fjögur mörk voru is- lenzk. Staðan 6-1. Þá skoruðú Danir 6-2 og siðan mátti sjá á markatöflunni 7-2, 7-3, 7-4 og þá komu aftur fjögur islenzk mörk i röð, 12-4. Staðan I hálfleik var 12- 5. Yfirburðirnir jukust i byrjun siðari hálfleiks og Island skoraði þrjú fyrstu mörkin 15-5. Þá gat ég ekki fylgzt meira með leiknum, sagði Axel Sigurðsson, þvf Páll Björgvinsson meiddist. Við Spánverjar unnu aftur Spánska liðið Granolle sigraði sænska liðið Vestra Frolunda aftur i Evrópukeppni bikarhafa i handbolta. Síðari leikurinn var einnig I Barcelona á Spáni og Granolle vann 23-19 — fyrri leikinn á sunnudag 20-15. íþróttir vorum hræddir — Páll hlaut þungt högg á nefið og við héldum i fyrstu að hann væri nefbrotinn. Hann hefur áður þribrotnað á nef- inu — en sem betur fer reyndist þetta ekki eins slæmt og á horfð- ist. Páll var ekki brotinn —en með blóðnasir og blæddi mikið. En þetta lagaðist allt — og við von- um, að Páll verði fær i flestan sjó i þeim leikjum, sem eftir eru, sagði Axel. Ólafur Benediktsson var 50 minútur í markinu og varði mjög vel. Fékk aðeins á sig sjö mörk — en Guðjón Erlendsson lék um tima i siðari hálfleiknum — tiu minútur — og á meðan skoruðu Danir sjö mörk. Markamunurinn jókst svo smám saman I 13 mörk — lokatölur 27-14. Þess má geta, að Ole Lindquist var eini maður- inn i danska liðinu, sem gat skor- að hjá nafna sinum Óla Ben. i fyrri hálfleik. — Skoraði þá öll fimm mörk Sjálandsúrvalsins. Axel var markhæstur islenzku leikmannanna i leiknum — skor- aði sjö mörk. Ólafur H. og Jón Karlsson skoruðu fjögur mörk Jón skoraði sex fyrir Lugi Lugi frá Lundi — liðið, sem Jón Hjaltalin Magnússon leikur með i 1. deildinni sænsku — skauzt upp i annað sætið I deildinni sl. föstu- dag, þegar Lugi vann Vestra Fro- lunda frá Gautaborg 20-18 á úti- velli. Jón Hjaltalin var hetja Lugi-liðsins i leiknum — skoraði sex mörk og var markhæstur leikmanna liðsins. Einnig átti Eero Rinne góðan leik h já Lugi — en beztur var þó landsliðsmark- vörðurinn Hans Jonsson, sem átti frábæran leik i marki. Mörk Lugi skoruðu Jón Hjalta- lin 6, Göran Gustavsson 4, Eero Rinne 3, Cleas Ribendahl 3, Ingvar Persson 2, Kent Karlsson og Christian Zetterström eitt hvor. Leikurinn við Vestra Frolunda var háður fyrr, þar sem Gauta- borgarliðið keppti á Spáni um helgina i Evrópukeppni bikar- meistara. Tapaði þar báðum leikjunum. Úrslit úr leikjum helgarinnar i l.deildinni höfðu ekki borizt, þeg- ar blaðið fór i prentun — en fyrir þá var Heim efst með 10 stig úr sex leikjum, Lugi var með átta stig úr 7 leikjum og betri marka- tölu en Guif, sem var með átta stig úr sex leikjum. A meöan — heima... |. r Hér stendur að Sparta hafi sýnt mikla' hæfni, leikni og iþróttaanda. Er það ekkistórkostlegt! A Lundúnaflugvelli Takk.en gleymdut Hugsaðuþér, ) við verðum komnir J heim á morgun r Svona nú — eða Þjálfi heimtar að við^ tökum æfingu i vélinni. hvor, Björgvin og Friðrik Frið- riksson þrjú mörk hvor, og þeir Sigurbergur Sigsteinsson, Viggó Sigurðsson, Stefán Gunnarsson, Páll, Ingimar Haraldsson og Árni Indriðason eitt mark hver. Landsleikur íslands og Dan- merkur verður i Arósum á fimmtudagskvöld og hefst kl. 8.30 að dönskum tima. Daginn eftir verður einnig leikið við danska landsliðið i Ulstrup en þá hefst mót með þátttöku fjögurra liða. Þvi lýkur sunnudaginn 14. desem- ber. ” ólafurH. Jónsson átti frábæran leik I gærkvöld — leikmaður I heimsklassa,sagði Axel Sigurðs- son. Gouldtil ÚHdnna! Bobby Gould, sá kunni kappi i ensku knattspyrnunni, er kominn til Óifanna og lék sinn fyrsta leik með þeim á laugardag. McGarry framkvæmdastjóri greiddi West Ham 30 þúsund sterlingspund fyrir Gould. Fáir leikmenn hafa leikið með fleiri liðum en Gould. Hann hefur verið hjá Coventry, Wolves áður, Arsenal, WBA og West Ham. Þá hefur WBA keypt irska landsliðsmanninn Mick Martin frá Manch. Utd. fyrir 35 þúsund pund. Martin hefur leikið með WBA sem lánsmaður sfðustu vik- Enski landsliðsmaðurinn Francis Lee hjá Derby var i gær settur i fjögurra leikja keppnisbann af aganefnd enska knattspyrnusam- bandsins — og að auki sekt- aður um 250 sterlingspund fyrir að koma óorði á knatt- spyrnuna. Lee lenti i átökum við Nor- man Hunter hjá Leeds i fyrra mánuði i leik Derby og Leeds á Baseball Ground. Báðir voru reknir af velli — Mál Hunter var einnig tekið fyrir i gær, en hann slapp með áminningu. Hunter var að koma úr fjögurra leikja keppnisbanni — var vara- maður gegn Arsenal sl. laug- ardag. Lee og Hunter fóru strax i eins leiks keppnis- bann hvor eftir slagsmál sin á Baseball Ground — og það var dýrt fyrir Derby, þvi Lee missti síðari leikinn við Real Madrid i Evrópubikarnum. Dave McKay, fram- kvæmdastjóri Derby, hefur áreiðanlega reiknað með þungum dóm hjá Lee og þess vegna keypt Leighton James frá Burnley. Hann fer nú sjálfkrafa inn i Derby-liðið — og þess má lika geta, að Francis Lee hefur sagzt ætla að hætta knattspyrnu að þessu keppnistimabili loknu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.