Dagblaðið - 10.12.1975, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 10.12.1975, Blaðsíða 11
Dagblaðið. Miðvikudagur 10. desember 1975. I 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Heimsmeistarinn strax sigurvegari — Gustavo Thoeni sigraði örugglega í stórsvigi í Val d'lsere Gustavo Thoeni, italski snill- ingurinn, sem fjórum sinnum hef- ur sigrað i keppninni um heims- bikarinn, byrjaði vörn sfna á heimsmeistaratitlinum með miklum glæsibrag i stórsviginu i Val D’Isere. Hann sýnti hreint ótrúlega hæfni i fyrri umferðinni og hafði 2.20 sekúndna forskot á Ingemar Stenmark, Sviann unga, Tap meistara Júgósiavíu ó HM Austur-þýzku stúlkurnar sigr- uðu heimsmeistara Júgóslava i heimsmeistarakeppninni f hand- bolta kvenna i úrslitakeppninni i Kiev i gær. Hörkuleikur og loka- tölur 14-13 fyrir Austur-Þýzka- land. í öðrum leikjum i úrslitakeppn- inni urðu úrslit þau að Sovétrikin sigruðu Tékkóslóvakiu með 16-8 eftir 12-2 i hálfleik — og Ung- verjaland sigraði Rúmeniu 11-10 eftir 9-6 i hálfleik. 1 keppninni um 7.-9. sætið sigr- aði Noregur Danmörku 12-10 eftir 8-4 i hálfleik og lokastaðan þar varð þessi. 7. Pólland 8. Noregur 9. Danmörk 2 30-20 4 2 23-24 2 2 19-28 0 1 keppninni um 10.-12. sætið vann Japan Túnis með 26-10 eftir 14-3 i hálfleik. Lokastaðan þar varð 10. Japan 11. USA 12. Túnis 2 43-20 4 2 24-30 2 2 23-40 0 Arsenal vann Fejenoord Arsenal sigraði hollenzka liðið Fejenoord á leikvelli sinum I Lundúnum, Highbury, I gær- kvöldi 2-1. Leikurinn var ágóða- leikur fyrir Peter Storey, einn kunnasta leikmann Arsenal um langt árabil — og enskan lands- liðsmann. Þeir Alan Ball, vitaspyrna, og Liam Brady skoruðu fyrir Arsenal i leiknum — en . Nicko Jansen fyrir Fejenoord. Áhorf- endur voru 18.813 og George Best lék með Arsenal-liðinu. Middlesbro vann sinn fyrsta sigur i bikarkeppni I gær I 77 ára sögu félagsins. Það var i ensk-skozka-bikarnum. Jafntefli varð hjá Fulham og Middlesbro i siðari leik liðanna í úrslitum f gær i Lundúnum 0-0, en Middlesbro sigraði 1-0 á heimavelli sinum. Fulham sótti nær stanzlaust allar 90 min. leiksins — en hin fræga vörn Middlesbro gaf ekki eftir. Fulham fékk aðeins eitt opið færi — Viv Busby spyrnti yfir markið af 4 metra færi. sem var þá i öðru sæti og 2,40 sek. forskot á Piero Gros, landa sinn og áður heimsmeistara. Thoeni keyrði brautina á l:41.56min. — Stenmark á 1:43.76 min. og Gros á 1:43.98 — en siðan komu Thomas Hauser, Austur- riki, Ernst Good, Sviss, og Franco Bieler, ttaliu. t siðari umferðinni fór Thoeni af öryggi i gegn — hætti ekki á neitt, þar sem sigur hans var svo gott sem öruggur. Timi hans þá var 1:41.80 min. en Stenmark keyrði glæsilega og náði lang- beztum brautartima — 1:39.90 min. svo við miklu má búast af þessum glæsilega skiðamanni i vetur. Gros náði 1:40.79 min. eða sekúndu betri tima en Thoeni i umferðinni og tryggði sér örugg- lega þriðja sætið. Hans Hinter- seer, Austurriki, og helzta' von Austurrikismanna i vetur, náði sér aldrei á strik og varð aðeins i niunda sæti. Fyrri umferðina fór hann á 1:44.85 min. og þá siðari á 1:42.05 min. Brunmeistarinn Franz Klammer, Austurriki, varð i 11. sæti. — fjórum sekúndum eft- ir Thoeni samanlagt. Sviar voru ákaflega ánægðir með keppnina — Stenmark annar og Torsten Jakobsson i 15. sæti. Norðmaður- inn Odd Sörli varð i 20. sæti — en keppendur voru rúmlega 100. Úrslit urðu þessi: 1. G. Thoeni, ttaliu, 3:23.36 2. I. Stenmark, Sviþjóð, 3:23.66 3. P. Gros, ítaliu, 3:24.77 4. T. Hauser, Austurriki, 3:25.14 5. E. Good, Sviss, 3:26.35 6. P. Mahre, USA, 3:26.47 7. F. Bieler, Italiu, 3:26.61 8. Junginger, V-Þýzkai. 3:26.76 Ólafur H. Jónsson Handboltapunktar frá V-Þýzkalandi Dankersen 4. desember. Eftir langa og erfiða ferð frá Reykjavik, sem tók tvo daga vegna þoku i London, komum við hingað til Minden á þriðju- deginum — frekar þreyttir og slæptir. t gær — miðvikud. 3. desember — var farið með rútu i fjóra klukkutima og leikið við Gummersbach. Sagt verður frá þeim leik hér á eftir — leik Göppingen i suðurdeildinni og frá landslcik Vestur-Þýzka- lands og Belgiu. Við byrjum þá á landsleiknum. Belgia — V-Þýzkaland. Vestur-þýzka landsliðið er i riðli með Belgiu og Austur- Þýzkalandi i forkeppni fyrir Olympiuleikana i Montreal. Fyrsti leikurinn i riðlinum var milli A-Þjóðverja og Belga. Sá‘ leikur fór fram i Berlin. Þar unnu A-Þjóðverjar 27-11. Vestur-þýzka landsliðið spil- aði svo við Belga i Belgiu á sunnudaginn 30. nóvember. Vestur-þýzku leikmennirnir virtust vera taugaóstyrkir i byrjun og gerðu margar vitleys- ur. Eftir 14. min. var staðan 4-2 fyrir Þjóðverja. Þjálfarinn Stersel sá þá, að þannig gat þetta ekki gengið lengur og skipti nýjum mönnum inn á — einnig markvörð. Sá, sem kom inn á, Hoffmann hjá Grosswall- stadt, varði allt, sem i markið kom og i hálfleik var staðan orð- in 11-2.1 siðari hálfleiknum virt- istþetta ætla að verða svipað og staðan orðin 13-2 eftir 3 minútur. Belgum hafði sem sagt ekki tek- iztað skora i 30 minútur. En eft- ir það slakaði vestur-þýzka liðið allverulega á og mestan hluta siðari hálfleiksins skiptust liðin á að skora. Má segja, að þetta sé að vissu leyti veikur punktur hjá vestur-þýzka landsliðinu að gera ekki betur en að halda jöfnu 8-8 meirihluta siðari hálf- leiks. Þrátt fyrir það eru þeir kok- hraustir um möguleika sina gegn Austur-Þjóðverjum 20. desember. Leikmenn hafa látið hafa það eftir sér að v-þýzka landsliðið vinni i Munchen með 3ja marka mun. Þeir, sem skor- uðu gegn Belgum, voru Busch 4, Spengler 1, Becker 4, Kleibrink 2, H. Brand 2, Hahn 4 (allt viti), Kluhspiess 3 og Deckarm 1. Vlado Stenzel lét hafa það eft- ir sér, að leikmenn hefðu ætlað sér of mikið i upphafi. Þeir hafi ætlað að skora tvö mörk i hverju upphlaupi. Fyrirliðinn Spengler segir. — Við erum ekki lengur gráar mýs, sem þurfa að fela sig. Suðurdeild Dietzenbach—Göppingen 21-13 Nýliðarnir fengu Göppingen i heimsókn og i upphafi virtist leikurinn ætla að verða jafn og skemmtilegur á að horfa. A töfl- unni sást 2-2, 3-3 og 4-4. Af þess- um fjórum fyrstu mörkum hafði Gunnar Einarsson skorað þrjú mörk. Dietzenbach setti þá mann til höfuðs Gunnari — þannig þó, að hann hálftók Gunnar úr umferð. Við þetta féll Göppingen algjörlega saman. t hálfleik stóð 9-5 fyrir Dietzen- bach. I siðari hálfleiknum var um algjöra einstefnu að ræða hjá Dietzenbach. Var Kristic (Júgó- slavi) þeirra bezti maður með sjö mörk. Gunnar skoraði fimm mörk og var eitt þeirra úr vita- kasti. Gunnar var slæmur i þumalfingri vinstri handar, en hann varð að spila, þar sem hann er nánast sá eini, sem eitt- hvað kveður að i Göppingen-lið- inu. Eitthv. virðist mikið að hjá Göppingen, þvi liðið hefur tapað tveimur siðustu leikjum. Stað- Gustavo Thoeni i brautinni í Val d’Isere. Hann byrjaði vörn titils sins glæsilega i heimsbikarnum — i fyrrahaust var hann lengi að ná sér á strik. Tekur Lísa-María sœti Önnu-Maríu Helzta von Svisslendinga — Lisa Marie Morerod, sem er 19 ára — á Olympiuleikunum i Inns- bruck i vetur, sigraði með mikl- um yfirburðum i fyrstu keppni kvenna I heimsbikarnum I Val d’Isere. Það var i stórsvigi og Lisa varð 1.22 sek. á undan þeirri næstu i mark. Keppnin hjá konum i vetur i heimsbikarnum verður mjög ,,opin”, þar sem skiðadrottningin Anna Maria Moser Pröll er hætt keppni — eftir fimm sigurár i röð. Margar frábærar skiðakonur keppa nú að þvi að ná titli Önnu-Mariu. ,,Ég vissi að mér gekk vel — en þetta var framar minum björt- ustu vonum”, sagði Lisa Maria eftir sigurinn i stórsviginu. Hún keyrði hina 1550 metra löngu braut með miklum glæsibrag — og frægar skiðakonur máttu láta sér nægja að ná miklu lakari tima. Orslit urðu þessi. 1. L. Morerod, Sviss 1:16,15 2. R. Mittermaier, V-Þýzk. 1:17.37 3. M. Kaserer, Austurr. 1:17,50 4. L. Cochran, USA, 1:17,55 5. F. Serat, Frakklandi 1:17,62 6. E. Mittermaier, V-Þýzk 1:17,69 Axel r Axelsson reyndin er vist sú, að Göppingen hefur ekki lengur yfir sterkum leikmönnum að ráða, nema Gunnari Einarssyni, og hann má sin iitils einn. Norðurdeild Gummersbach — Dankersen 21- 12. Dankersen sótti Gummers- bach heim og var leikið i Biel- stein að viðstöddum 1500 áhorf- endum. Fyrir leikinn voru menn bjartsýnir á að um jafnan og harðan leik yrði að ræða, þar sem Dankersen er það lið. sem væntanlega kemur til með að keppa um anpað sætið i riðiin- um. En i þessum leik var ekki vafi á þvi hvor var sterkari aðil- inn. Eftir nokkrar minútur var staðan 5-0 fyrir Gummersbach. t millitiðinni hafði Dankersen átt vitakast, sem var varið — Busch tók vitið — og tvö önnur dauðafæri. Þrátt fyrir þetta var Gummersbach alltaf sterkara liðið með Kater markmann sem bezta mann. í hálfleik var stað- an 11-5 fyrir Gummersbach og það var mikið gegn svo sterku liði. sem Gummersbach er. Dankersen hefur aldrei i allt haust spilað jafn lélegan leik. 1 fyrri háifleik var vörnin likust gatasigti og skoruðu Feldhof og Brand að vild. Enn fyrir Hansa Schmidt var enginn möguleiki, þar sem hann var tekinn mjög jframarlega. I Dankersen-liðinu áttu allir leikmenn slakan leik og kenna menn þar um. að landsiiðsmenn liðsins, Busch og ! Becker, hafi ekki getað æft i einn mánuð samanlagt i allt haust. Það er að sjálfsögðu mjög bagalegt, þar sem þeir leika 40-60 minútur i hverjum leik sem aðalpóstar. Nú i desember verðum við fjórir i burtu fra liðinu þannig, að ekki er von á góðu. Annar af undirrituðum, Ólaf- ur H. Jónsson meiddist i siðari hálfleik — honum var hrint i hraðaupphlaupi og lenti Ólafur með höfuðið á markstönginni. Varð að sauma fimm spor i augabrúnina — en það er ekki alvarlegt. En Ólafur lék ekki gegn Salzburg á laugardaginn 6. desember i Evrópukeppninni — en verður með islenzka lands- liðinu i Danmörku. Þeir, sem skoruðu i leiknum. voru. — Gummersbach Deck- arm 4. Feldhof 4, Brand 3. Schmidt 3 (2 viti). Schlagheck 2 og Westebbe 3. — Dankersen Busch 6, Ólafur 2. Axel 1. Walke 1. Becker 1 og Kramer 1. Gummersbach er efst með 14 stig úr sjö leikjum — hefur ekki tapað stigi. Dankersen er i öðru sæti með 9 stig. Wellinghofen hefur átta stig og Phönix Essen og Kiel sjö stig. Hansi Schmidt var markahæstur með 39 mörk — 12 skoruð úr vitum. Kær kveðja Ólafur II. Jónson Axel Axelsson. s

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.