Dagblaðið - 10.12.1975, Qupperneq 20
trav'et are
. . a^d sur) ., +raveL
--+ a^ r v1^ '■icetar'c^lC “ fevi '*'sek*
e^s tncit d* , ir aC-u+,nP tast >ev
... vcetardx0 -• * at everyö _ duri^q |cr ar>s«er*
vo-
wusireS-o - c.-+v'? '*'e ar
Ú + do V°u s V' -■—r.n
what o° y
vjhax " Q(,ards. ■ . travet suric
ar,á 'oest re ' / imnot-
W«"M d , ie.erac
,: o,ric0 / 1
V/ .•»• ■
e. 0
,>etta er ekki frá okkur"
— segir Alfreð Elíasson, forstjóri Flugleiða
„Þetta er ekki komiö frá okk-
ur”, sagði Alfreð Eliasson, for-
stjóri Flugleiða um skeytið, sem
Ferðaskrifstofunni Sunnu barst
i gær frá Imholz Travel Zurich.
1 skeyti þessu, sem greint er frá
i annarri frétt hér i blaðinu, seg-
ir, að samkvæmt upplýsingum
Loftleiðir Icelandic, standi fyrir
dyrum gjaldþrot Air Viking og
Sunnu.
Vegna samninga Air Viking
við Imholz Travel, sem er sviss-
neskur ferðaskrifstofuhringur,
biður hið svissneska fyrirtæki
um skýringar og svör.
,,Ég get auðvitað ekkert full-
yrt um, hvað erlendir starfs
menn okkar hafa sagt,” sagði
Alfreð Eliasson, ,,en það er þá
ekki með okkar vitund og eins
og ég sagði er þetta ekki frá
okkur hér heima komið.”
—BS—
,4JPPLYSINGARNAR KOMU FRA
LOFTLEIÐUM í ZURICH"
segir aðalframkvœmdastjóri Imholz Travel
„Upplýsingar okkar um yfir-
vofandi gjaldþrot Air Viking og
Sunnu eru frá umboðsmanni
Loftleiða hér i Zurich”, sagði E.
Dietrich, aðalframkvæmda-
stjóri Imholz Travel. „Vegna
samninga, sem við höfum gert
við þessi fyrirtæki er okkur að
sjálfsögðu nauðsynlegt að vita
hið sanna i málinu,” sagði Die-
trich i viðtali við Dagblaðið i
morgun.
„Við spurðumst fyrir um
þetta mál hjá Landsbanka ís-
lands og Seðlabanka tslands, en
fengum þau svör, að slikar upp-
lýsingar gætu þeir ekki gefið
öörum en bankastofnunum,”
sagði framkvæmdastjórinn.
Hann sagði að lokum: „Við ger-
um okkur grein fyrir þvi, að
orðrómur eins og þessi verður
til um ýmis fyrirtæki. Við tökum
ekki neinar ákvarðanir i okkar
starfsemi nema óyggjandi
sannanir liggi fyrir. Við munum
leita eftir þeim og höfum raunar
gert þegar. Við hljótum aðeins
að vona, að þetta sé ekki rétt, en
hvort svo er eða ekki, fáum við
væntanlega öruggar upplýsing-
ar um mjög bráðlega”.
—BS—
Útlán Alþýðubankans
h.f.
FÁIR
LÁNTAKAR -
EN STÓRIR
— flestir höfðu þó
fullnœgjandi
tryggingar
Við nýlega úttekt á fjár-
hagsstöðu Alþýðubankans hf.
kom I ljós, að útlán til nokk-
urra aðila höfðu þrengt mjög
greiðslustöðu bankans. Til-
tölulega fáir aðilar höfðu feng-
ið lánafyrirgreiðslur i mis-
munandi formi, sem námu ná-
lægt helmingi af útlánum
bankans. Meðal þeirra telur
Dagblaðið sig hafa heimildir
fyrir þvi, að séu eftirtaldir aö-
ilar: Air Viking rúmlega 100
milljónir, Cudogler um 100
milljónir, Breiðholth.f. um 100
milljónir, Guðmundur Þeng-
ilsson um 50 milljónir, Páll H.
Pálsson um 30 milljónir, Sigur-
björn Eirlksson um 20 milljón-
ir, Hagkaup um 30 milljónir,
og Alþýðuorlof um 20 milljón-
ir króna.
Fyrir lánum flestra þessara
aðila eru, og hafa verið, alger-
lega fullnægjandi tryggingar,
og i þvi tilliti ekkert við þær að
athuga að dómi þeirra, sem
úttektina gerðu. Hins vegar
hefur verið gagnrýnt, að svo
litill banki sem Álþýðubank-
inn er, hafi veitt svo miklum
hluta sins ráðstöfunarfjár til
útlána til svo fárra og stórra
aðila. —-BS
„Veðurfregnir og skeyti frá
varðskipi benda til þess, að veð-
urguðirnir taki að sér gæzluna I
dag,” sagði Jón Magnússon,
talsmaður Landhelgisgæzlunn-
ar, skömmu fyrir hádegið.
Tiðindalaust var I þorska-
striðinu I nótt. Varðskipið Þór
klippti I gær togvfra togarans
St. Giles. Það var I annað sinn,
sem sá togari missir vörpuna i
þorskastrfðinu. —HH
Stýrimenn á Tý athuga sigl-
ingatæki i brúnni á Tý. (DB-
mynd Ragnar Th. Sigurðsson).
frjálst, óháð dagblað
Miðvikudagur 10. desember 1975.
Fjórir kyrr-
stœðir bílar
stórskemmdir
ó Bugðulœk
í nótt var ekið á fjóra kyrr-
stæða bila við Bugðulæk og
þeir allir skemmdir mjög
mikið.
Voru þarna að verki tveir
menn á Rambler fólksbfl sem
með ógætilegum akstri
skemmdu einn Volvo, Volks-
wagenogToyota semvar hvað
verst farinn, og Fiat bifreið er
einnig mikið skemmd.
öðrum aðilanum, sem i
Rambler bilnum var, tókst að
sleppa frá lögreglunni en hinn
situr i yfirheyrslum hjá rann-
sóknarlögreglunni.
HP.
Skálatúnsheimilið:
Óskað eftir
• •
meiri og
betri
eldvörnum
„Skála tún.sheimilið er
kannski ekkert verr útbúið en
margar aðrar stofnanir, en
hitt er annað mál, að þar
mætti ýmislegt betur fara,”
svaraði Gunnar Ólafsson hjá
Eldvarnaeftirlitinu spurningu
Dagblaðsins um orðróm þess
efnis að Skálatúnsheimilið
væri sérstaklega slæmt hvað
eldvarnir snerti.
Það, sem helzt er ábótavant
i Skálatúni, er að vaktmaður-
inn á staðnum á óhægt með að
ná I starfsfólkið ef eldur kem-
ur upp. Starfsfólkið býr i
nokkurri fjarlægð frá heimil-
inu sjálfu og ekki næst í það
nema i gegnum sima. Eld-
varnaeftirlitið hefur farið
fram á að í starfsmannaibúð-
unum verði komið upp bjöllu-
kerfi, sem vaktmaðurinn gæti
sett i gang i einu vetfangi ef
eldur kæmi upp.
1 Mosfellssveit er hvorki
slökkvilið né sjúkrabill.
Spurningunni um, hvort ekki
væri æskilegt að hreppurinn
kæmi sér upp slökkviliði svar-
aði Gunnar, að f rauninni væri
litið lengra upp i Mosfellssveit
en til fjarlægustu staða innan-
bæjar. Að svo stöddu væri þvi
ekki ástæða til sliks.
—AT—
SKIPVERJI A REYKJAFOSSI FEKK
HJARTAAFALL Siglt í óveðri inn til Þórshafnar í Fœreyjum
Slysavarnafélaginu var um
miðnætti i nótt tilkynrA að að-
stoðar væri þörf, ^ar eð einn
skipverja á Re,ykjafossi, skipi
Eimskipaféla.gsins, hefði veikzt
hastarlega.
Maðurinn, sem er loftskeyta-
maður skipsins á miðjum aldri
hafði fengið hjartaáfall.
Skipið var þá statt skammt
undan Færeyjum á leið til Is-
lands. Var haft samband við
danskt eftirlitsskip við Færeyj-
ar og Reykjafossi snúið með
stefnu á Þórshöfn. Eftirlitsskip- lifshættu, en rétt er talið að fara
ið er með þyrlu og lækni um
borð, en ekki treysti yfirmaður
skipsins sér til að leyfa tilraunir
i þá átt að komast um borð i
Reykjafoss vegna óveðurs er
þarna geisar.
Skipverjinn er ekki talinn i
með hann inn til Þórshafnar,
þar sem hann verður lagður á
sjúkrahús.
Danska eftirlitsskipið fylgir
Reykjafossi inn til Þórshafnar.
—HP