Dagblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 1
l.árg. —Fimmtudagur ll.desember 1975 —79.tbl. Ritstjórn Srðumúla '12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 HÆTTULEG PILLA BÖNNUÐ Hérlendis eru seldar tvær teg- undir getnaðarvarnartaflna, sem innihalda efnið megestrol- acetate, er valdið getur æxlis- myndun og bólgum i brjóstum, að þvi er kannanir vestur- þýzkra visindamanna hafa leitt i ljós. Heilbrigðiseftirlitið i Vestur- Þýzkalandi bannaði i morgun sölu á getnaðarvarnartöflum, sem innihalda þetta efni. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem blaðið fékk hjá Lyfja- eftirliti rikisins um hádegisbil- ið, eru þær tvær tegundir, sem innihalda megestrol-acetate og seldar eru i apótekum hérlend- is, Neo-Delpregnin og Niagetin. Delpregnin fékkst hér til skamms tima, en var tekið af skrá — þó ekki vegna mege- strol-acetate innihaldsins. „Svona óljósar fréttir nægja ekki til þess að sala á þessum pillutegundum verði stöövuð hérlendis,” sagði einn starfs- manna Lyfjaeftirlits rikisins i samtali við fréttamann DB i há- deginu. „Við munum biða eftir nákvæmum niðurstöðum rann- sóknanna. Þá tekur sérfræð- inganefnd heilbrigðisráðuneyt- isins málið til athugunar og sið- an fer það til lyfjaskrárnefndar, sem ákveður, hvort það verður tekið af skrá eða ekki.” í Bretlandi hafa tvær tegundir getnaðarvarnartaflna einnig verið bannaðar en hvorug þeirra mun fást hérlendis. óV — sjó bls. 7 JOLAGET- RAUNIN, SÍÐASTI DAGUR Áttundi og siðasti hluti jóla- getraunar Dagblaðsins að þessu sinni birtist á bls. 3 i blaðinu i dag. Það er til mikils að vinna. Það verða veitt þrenn verðlaun, hljómtæki i fjölskyldubilinn, Clarion-tæki, sem þekkt eru um veröld viða fyrir gæði. Ein- hverjir munu þvi verða þeirrar ánægju aðnjótandi um jólin aö fá að hlýða á jólatónlistina i bil- um sinum flutta i öndvegis tón- tækjum. Þeirsem ekki eiga getraunina i heild, geta fengið blaðið keypt á afgreiðslu Dagblaðsins i Þver- holti 2. Skilafrestur er til 21. desember. Þann 22. desember drögum við svo. — SJA BLS. 3 JÁ, ÞAÐ ER NÚ ÞAÐ.... — hverju á ég nú að svara í Spurningu dagsins? - bls. 4

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.