Dagblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 7
Dagblaðið. Fimmtudagur 11. desember 1975. 7 Sjö pillutegundir bonnaðor í Vestur-Þýzkalondi Vestur-þýzka heilbrigðiseftir- litið hefur bannað framleiðslu og sölu á getnaöarvarnartöfl- um, sem innihalda efnið meges- trolacetate, að sögn talsmanns stofnunarinnar i morgun. Tilraunir, sem gerðar hafa verið á dýrum, hafa leitt i ljós að efniö veldur æxlum og bólg- um i brjóstum. Bannið -verður tekiö til endurskoðunar eftir að frekari tilraunir hafa verið geröar, að sögn talsmannsins. Pillutegundirnar, sem bann- aðar hafa verið með þessum hætti i Vestur-Þýzkalandi, eru Delpregnin, Kombiquens, Menoquens, Oraconal, Plano- vin, Tri-Ervonum og Werays. Sex fyrirtæki i Vestur-Þýzka- landi framleiða þessar tegund- ir, sem eru aðeins litill hluti þeirra tegunda sem eru þar á almennum markaði. Tilraunir, geröar á hundum i nokkur ár, hafa léitt i ljós að mikil og stöðug notkun á megestrol-acetate veldur æxlis- myndun I brjóstum, stundum illkynjuðum. 1 tilkynningu frá vestur-þýzka heilbrigöiseftirlit- inu sagði, að engar sannanir væru fyrir þvi, að efnið hefði sömu áhrif á konur. Erlendar fréttir REUTER Kinn gislanna úr indónesisku ræðismannsskrifstofunni I Amsterdam er fluttur burtu eftir að hafa veikzt skyndilega. „Hœttið — heimurínn hefur heyrt kröfurnar" — sagði leiðtogi S-Molúkka í Hollandi Suður-Mólúkkeyingarnir i Hol- landi, sem halda meira en 50 gisl- um i Amsterdam og Beilen, hafa virt að vettugi áskorun helzta leiðtoga S-Mólúkka i Hollandi um að gefast upp. Leiðtoginn. Johannes Manu- sama — forseti útlagastjórnar S- Mólúkkaeyja — ávarpaöi fjölda- fund landa sinna nærri Rotter- dam i gærkvöldi ogskoraði þar á hópana tvo að gefast upp, en i morgun hafði enn ekkert svar borizt. Manusama sagöi aö jafnvel þótt pólit. kröfur skæruliðanna væru réttlætanlegar, þá væru að- ferðir þeirra skaölegar málstaö sjálfstæðishreyfingar eyjanna. Allur heimurinn, ekki aöeins'hol- lenzka þjóðin, hefði nú gert sér ljósar kröfur S-Mólúkka, og þar með væri tilganginum náð. Annar leiðtogi S-Mólúkkeyinga i Hollandi, presturinn Semuel Metiari, varaði i sjónvarpsviötali i gær viö þvi, aö fleiri hópar gripu til svipaðra aðgeröa. Grimmilegustu bardagarnir til þessa í „vopnahléinu" Götubardagamenn i Beirút brugðust við vopnahléskallinu i gærkvöldi meö hörðustu átökum, sem orðið hafa i borgarastyrjöld- inni i ár. Aðeins örfáum minútum eftir að Rashid Karami, forsætis- ráðherra, hafði tilkynnt um vopnahléið — og óskað fólki „kyrrar nætur” — nötraði öll bor- in af skothriö og sprengingum. 1 tilkynningunni sagði Karamis forsætisráöh. að, vopnahlé- ið ætti að ganga i gildi á timabil- inu frá átta til tiu i gærkvöldi. En klukkan varð tiu og bardögum var haldið áfram, þar til þeir náðu hámarki upp úr miðnætti. Þá dró eitthvað úr þeim en i alla nótt og i morgun var enn barizt af töluverðri hörku i Beirút. Þvi virðist augljóst, að vopnahlés- kallið hefur engin áhrif haft. Nœr öruggt, að „Nessie" er til — fyrstu myndirnar birtar opinberlega sannfœra fœrustu vísindamenn myrkviðum skozka fjallavatns- íns. Myndir birtust i gær i nátt- úrufræðitimariti og eru sagöar sýna gömlu góðu Nessie i köldu og dimmu umhverfi sinu. Ekki voru þó allir sannfærðir um að myndirnar sýndu skrimsli en ekki trjádrumba eða annað dautt og ómerkilegt drasl. Þaö þykir þó vega þungt á metaskálunum, að meðal þeirra, sem hafa sannfærzt um tilvist Nessie og systra hennar, eru visindamenn við Smith- sonian-stofnunina, Royal Ontario Museum, Chicago-há- skólann og Harvard-háskólann. Fjöldinn allur af virtustu vis- færður um að Loch Ness- Myndirnar tók hópur visinda- indamönnum heims er nú sann- skrimslið sé til og lifi ágætu lifi i manna við háskólann i Boston. Vorum að taka upp glæsileg borðstofuhús- gögn og veggskápa úr massifum viði. Úrval af hjónarúmum, m.a. með bólstruð- um göflum (ameriskur still). Framleiðum springdýnur i öllum stærðum og stifleikum. Opið frá kl. 9—7, fimmtudaga frá kl. 9—9 og laugardaga frá kl. 10—57 Springdýnur Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Simi 53044. Opið til kl. 9 i kvöld. London: Matarílótin út um gluggann Lögreglan i London reynir nú vera félagar i Irska lýðveldis- að fá irsku skæruliðana, sem hernum, hentu matarkössun- halda miðaldra hjónum i gisl- um, sem þeim höfðu verið send- ingu, til að leyfa innsetningu ir, út um gluggann i nótt — og i nýrrar simalinu. fyrrinótt hentu þeir simanum út Skæruliðarnir, sem taldir eru um sama glugga.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.