Dagblaðið - 11.12.1975, Page 3

Dagblaðið - 11.12.1975, Page 3
Dagblaðið. Fimmtudagur 11. desember 1975. 3 l f. , s^ SAGÐ| CKK| AF MÉR VEGNA NEINNAR W 1f Ja ÉSEi [£l M Ö — Heldur vegna vantraustsins, l%Hí 81 W ELWWI% sem ó mig var lýst" „Fréttin iTimanum um kaffi- vélina i MR og afsögn mina er kannski á dálitlum misskilningi byggð,” sagði Skafti Harðarson inspector scholae er við rædd- um við hann um málið. „Ég sagði að sjálfsögðu ekki af mér vegna kaffivélarinnar heldur vegna þess að með þvi að fjar- lægja hana voru vissir menn að lýsa vantrausti sinu á mig.” Nokkrum aðilum, svokölluðu Dreifbýlisfélagi, var ákaflega illa við þessa kaffivél. Þeir báru upp þá tillögu á fundi, að hún yröi fjarlægð. Tillagan var samþykkt og samkvæmt lögum nemendafélagsins bar Skafta þvi að láta rifa hana niður. Framkvæmd þess dróst eitt- hvað og tók þvi Dreifbýlisfélag- ið ráðin af forsetanum, Skafta, og unnu féiagar verkið sjálfir. Skafti tók þetta verk sem van- traust, ekki sizt vegna þess að tveir af embættismönnum skól- ans, — ritstjóri skólablaðsins og formaður listafélagsins — stóðu að þessu. Nemendur hófu hins vegar undirskriftasöfnun um að Skafti tæki aftur við embætti sinu og er hann sá hversu al- mennur vilji nemenda var fyrir þvi að hann sæti áfram tók hann aftur við embætti forseta. Dreifbýlisfélag þetta viröist vera samsafn af helztu brand- araköllum menntaskólans. Til dæmis fékk félagið samþykkta þá tillögu fyrir nokkrum árum að styrkur yrði veittur til að gera heimildakvikmynd um handmjólkun kúa. Tillagan var samþykkt en myndin hefur hins vegar enn ekki verið sýnd. —AT— MEYVANT SIGURÐSSON á Eiði viö „óðaliö” sitt vestur á Seltjarnarnesi (DB-mynd Bjarnleifur) „Þetta rekur hvað annað" — segir Meyvant Sigurðsson, sem rakið hefur minningar frá Reykjavík síðan um aldamót í nýrri bók ,,Ég bið menn velvirðingar ef þeim finnst ég hafa gleymt eða fellt úr eitthvað sem á þessum siðum hefði átt að standa,” segir á einum stað i bókinni: Bóndinn og bilstjórinn Meyvant á Eiði. Þessi mannlifs- og at- burðasaga langrar ævi er svo hlaðin töfrum lifandi frásagnar að þetta litillæti er ekki nauðsynlegt. „Það er margt sem ekki má segja,” sagði Meyvant Sigurðs- son, þegar hann var spurður hvort hann ætlaði þá að bæta við þessa bók siðar. Hann bætti við: „Það verður aldrei sagt.” Þegar maður undrast þetta skipulega stálminni á aragrúa nafna og timasetninga segir Meyvant af hjartans litillæti: „Þetta rekur hvað annað.” Blitt og fagurt aldamóta- kvöld stóð Meyvant, 5 ára gamall snáði, við trégirðinguna við Austurvöll þegar bæjarbúar fögnuðu komu nýrrar aldar. Þessi áttræði drengur hefur nú af óvenjulegum lifsþrótti tekið þátt i sögu þessarar aldar til þessa dags. Vegferðin hefur legið vitt um landið en fyrst og fremst um götutroðninga Reykjavikur, tún og engi bæjar- stæðisins og allt inn á malbikaðar og steyptar hraðbrautir höfuðborgarinnar. Það þarf talsverðan ásetning til að leggja þessa bók frá sér, þótt maður hafi lesið hana spjaldanna milli. Heldur en ekki langar mann til að lesa nana afturstrax. Þess erreyndar full þörf vegna þess mikla fjölda samferðamanna sem vikið er að i mismunandi nánum og geðþekkum kynnum á meira en þriggja aldarfjórðunga lifs- hlaupi Meyvants. Það þarf ein- staklega góða frásögn til þess að láta ekki ljúfa og skemmtilega lesningu gjalda neins, heldur vaxa og batna af öllum þessum fróöleiks- og minnisatriðum. Jón Birgir Pétursson skráði þessar minningar og er vel sæmdur af þvi hvernig hann hefur haldið á þvi verkefni. Minningar Meyvants á Eiði er bók Reykvikinga öðru fremur. -BS- nýtt í hverri Viku Heimsókn í Mjóafjörð — Á slökkviliðsvakt - Tízka o'.fl. Jólagetraun Dagblaðsins: W „FINNIÐ RETTA TEXTANN!!" Nú er komið að sið- ustu myndinni i jóla- getrauninni. Nú eigið þið enn einu sinni að merkja við rétta text- ann af þeim þremur, sem myndinni fylgja. Ef þið hafið getið ykkur rétt til um allar hinar eigið þið möguleika á að vinna ein verðlaun- anna. Farið nú i gegn- um myndirnar einu sinni enn ef ske kynni að þið vilduð breyta einhverju. A. „Frá mér til þin....” „Gerðu-það-sjálf kaninupels”. B „Við fáum örugglega gott verð fyrir allan þennan jólapapp- ir!” C. Komdu með skrúfjárn, — svo skal ég ganga frá jólasteik- inni.” Nafn: ..................................................... Ileimilisfang: ............................................ Simanúmer: ........................................!....... Lausnirnar ATTA, ásamt þessum seðli, berist tii Dagblaðsins Siðumúla 12 fyrir 21. desember nk. merktar „Jólagetraun”.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.