Dagblaðið - 11.12.1975, Qupperneq 4
Dagblaöið. Fimmtudagur 11. desember 1975.
Mánaðareyðslan
Vísitöluf jðlskyldan
eyðir 112 þúsundum
Sú tala segir ekki hvað „þarf'" til framfœrslu
„Vísitölufjölskyldan” eyðir
um þessar mundir tæplega 112
þúsundkrónum á mánuði. betta
eru útgjöld þessarar „meðal-
fjölskyldu” samkvæmt Utreikn-
ingum Hagstofunnar á visitölu
framfærslukostnaðar.
Aherzlu ber að leggja á að
þetta segir ekki hvað meðalfjöl-
skylda þarf að hafa i tekjur til
að komast af, heldur eru þetta
áætlanir um hvað meðalfjöl-
skyldan eyði. Grundvöllur þess-
ara útreikninga er orðinn nokk-
uð gamall.
Og i hvað eyðir visitölufjöl-
skyldan og hve miklu? Hún fer
með tæpar 36 þúsundir i mat- og
drykkjarvörur, að undanskildu
áfengi. Um sex þúsundir fara á
mánuði i áfengi og tóbak og um
þrettán þúsund i föt og skófatn-
að. Rúmar niu þúsundir renna
til kaupa á heimilisbúnaði,
ARBÆJARBUAR
AÐEINS ÞAÐ BEZTA
í HÁTÍÐARMATINN
SVINAKJOT
Nýr hryggur
Ný læri
Nýr bógur
Nýr kambur
Kótilettur
NAUTAKJÖT
Fille — Buff
Roastbeef
T-bone steik
Kryddsmjör
DILKAKJÖT
Úrbeinuð læri
Úrbeinaðir hryggir
Schnitzel
Reykt læri
Reyktur bógur
Reyktur kambur
Skinka
Stroganoff
Lundir — Turnbauti
Beinlausir fuglar
London-lamb
Fyllt læri
Fylltir hryggir
ATH. Kjötið er einnig fyllt eftir óskum yðar.
Hangikjöt i úrvali ásamt vinsæla
hangikjötinu frá Akureyri.
FUGLAR
Holdakjúklingar Kjúklingalæri
1/2 kjúklingar Körfukjúklingar
Rjúpur
Hrásalt með eða án sósu.
Afgreiðum einnig sérpantanir eftir óskum
yðar.
Látið fagmenn vinna fyrir yður.
KJÖTBÚÐ ÁRBÆJAR,
ROFABÆ 9, SÍMI: 81270
hreinlætisvörum og sliku.
bá telur Hagstofan að visi-
tölufjölskyldan verji hátt á
fjórtánda þúsundið á mánuði til
að standa undir eigin bifreið og
fargjöldum. Rúmlega tólf
þúsund fara i lestrarefni, út-
varp, sjónvarp og ekki sizt i
skemmtanir og slikt. Hátt á
fimmtánda þúsundið gengur til
greiðslu á húsnæðiskostnaði,
hita og rafmagni og rúm sjö
þúsund til annars en þess sem
talið er hér að framan.
Byggt á útgjöldum
1964—65.
Núgildandi grundvöllur, það
er að segja mat á þvi hve miklu
fjölskyldan ver til hvers og eins,
var tekinn 1 notkun i ársbyrjun
1968. Hann er byggður á upplýs-
ingum 100 launþegafjölskyldna I
Reykjavik um útgjöld þeirra á
árunum 1964—65. Meðalstærð
þessara fjölskyldna v.ar hjón og
tvö börn.
Heimilisfeður skiptust þannig
eftir starfsstéttum að 26 voru
verkamenn, 3 sjómenn, 23 iðnað
armenn, 30 opinberir starfs-
menn og 18 verzlunar- og skrif-
stofumenn sem unnu hjá einka-
aðilum.
Otgjöldin eiga að sýna sem
næst meðalútgjöld hinna 100
fjölskyldna fyrir tiu árum færð
fram til verðlags i dag. Hér er
um að ræða meðalútgjöld fjöl-
skyldna með mjög mismunandi
há útgjöld, segir Hagstofan.
Hagstofanleggur áherzlu á að
gæta verði fyllstu varúðar við
allar ályktanir i sambandi við
útgjöld visitölufjölskyldunnar,
reiknuð i krónum. Hlutverk
visitölu framfærslukostnaðar er
fyrst og fremst að sýna hlut-
fallslegar breytingar á fram-
færsluútgjöldum frá einum tima
til annars.
Ivisitölunni eru núekki beinir
skattar, það er að segja útsvör
ogtekjuskattur. —HH
Notaði danska mixtúru:
Hœtti að
Góður, þjófheldur
peningaskápur óskast
Uppl. í sima 27022
reykja á
innan
við viku
Afleiðingar reykingaherferð-
arinnar svonefndu, sem beindist
að sjálfsögðu gegn reykingum,
eru kannski ekki enn merkjan-
legar i stórum mæli. bó hefur
frétzt af einum og einum sem
hefur hætt að reykja og jafnvel
heilum bæjarhlutum, eins og á
Húsavik, þar sem 59 af 60
manna hópi hættu að reykja
eftir námskeiö sem haldið var
þar.
Sumir hafa veriö að basla við
þetta upp á sitt eindæmi og fer
litlum sögum af þeim. Hafa þeir
notað til þess hinar ýmsu að-
feröir, eins og hreint viljaþrek,
ýmsum lyfjum hefur verið beitt
og siðan eru til þeir sem hafa
reynt sælgætisát i staöinn.
Við hittum að máli einn sem
tekizt hefur að hætta með aðstoð
lyfs af dönskum uppruna og svo
að sjálfsögðu viljastyrks. Heitir
sá Guðbergur Öskar Guðjóns-
son, 58 ára verzlunaimaður sem
reykthaföi um langtárabil. Var
hann farinn að reykja allt að
tveim pökkum af sígarettum á
dag og dugði það varla til.
„Ég var svolitið slappur á
taugum orðinn,” sagöi Guð-
bergur, „og mig langaði mikið
til þess aö hætta. Eyddi orðið
um 80þúsund krónum i sigarett-
ur á ári og það er anzi mikið
þegar maður hugsar út i það.
Ég drakk þessa mixtúru
blandaða i vatni og ávaxtasafa
og dreiföi inntökunum á allan
daginn,” sagði Guðbergur enn-
„Ég var farinn að reykja tvo
pakka á dag og það dugði
skammt,” sagði Guöbergur.
fremur. „bað stendur að visu I
leiðbeiningunum að maður eigi
að drekka stærri skammta en
þessi aðferð reyndist mér ágæt-
lega, ég hætti að reykja á mjög
skömmum tima, reyndar
skemmri en auglýsingar um
mixtúruna segja.”
Guðbergur sagði að sig hefði
ekki langað i sigarettur sfðan,
jafnvel þótt hann fengi sér I
glas, en það hefur jafnan verið
mestur höfuðverkur þeirra sem
baslað hafa við að hætta að
reykja af sjálfsdáöum.
„Eigin viljastyrkur er auðvit-
að höfuðatriðiö og mig hefur
ekki langað i sigarettu siðan ég
hætti. bað var ég hræddur um
að yrði raunin ef ég færi á nám-
skeið,” sagði Guðbergur að lok-
um.
Gaman væri að heyra frá les-
endum blaðsins um áhrif þess-
arar herferðar og hvort þeim
hefur tekizt að miniTka við sig
reykingar eða jafnvel hætta og
þá meö hvaða hætti. HP.
purn ——-V ing
11
Spurning dagsins:
Er jólasveinninn til?
Brynjar Frosti, þriggja ára:
„Nei, — hann er sko ekki til. betta
er bara fólk sem fer i búninga.
Strákar og svoleiðis.”
Snæbjörn pabbason, þriggja ára:
„Nei — það er fólkið sem kemur
heim með pakkana. Jóla-
sveinarnir eiga heima bak við ■
fjöllin. Hins vegar má kaupa þá i
búðum.”
Björgvin Kárason, þriggja ára:
„Já, þeir eiga heima i fjöllun-
um og stela mat frá fólkinu á
bæjunum. Svo gefa þeir stundum
jólagjafir. Ég sá einu sinni jóla-
svein á jólatrésskemmtun.”
Elli Hákonarson, þriggja ára:
- „Já, þeir koma ofan úr fjöllunum
og gefa okkur jólagjafir ef við er-
um góð og þæg.”
Elfsabet A r n a r s d ó tt ir ,
þriggja ára:
„Já, — ég hef oft séð hann. Einu
sinni sá ég hann þegar ég var með
mömmu. Hann er i rauðum fötum
meö skegg.”
Finnur Friðgeirsson, þriggja
ára :
„Já, — hann er heima hjá mér.
Gefur mér jólagjafir og svoleiðis.
Af hverju ert þú með svona stórt
nef? ”