Dagblaðið - 11.12.1975, Side 10

Dagblaðið - 11.12.1975, Side 10
10 I Dagblaðið. Fimmtudagur 11. desember 1975. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir ÍR heldur sínu striki en KR-ingar úr leik — Landsleikur við Dani í kvöld Viggó Sigurðsson, Viking, meiddist það illa á fingri, þegar isienzka landsiiðið sigraði Sjá- landsúrvaiið i fyrrakvöld, að hann getur ekki tekið þátt i lands- leik islands og Danmerkur i Árósum i kvöld. Hins vegar hefur Páll Björg- vinsson, Viking, jafnað sig eftir höggið, sem hann fékk i leiknum, og getur leikið I kvöld. islenzka landsliðið er þvi sjálfskipað i leiknum — allir ieikmenn þess — nema Viggó— leika gegn Dönum. Standard vann Kiev Standard Liege gerir það gott þessa dagana. Eftir mjög góða frámmistöðu i beigisku deildinni að undanförnu — 9 leikir án taps — gerðu leikmenn Liege-liðsins sér litið fyrir og sigruðu Dynamo Kiev 2-1 á þriðjudagskvöldið. As- geir Sigurvinsson átti mjög góðan leik. — Tvisvar brauzt hann i gegn og átti góöa bolta fyrir, sem Ritter og Garot nýttu mjög vel og skoruðu. Einnig átti Liege liðið skot I slá og eins var augljósri vitaspyrnu á Asgeir sieppt. Blockhin skoraði eina mark Kiev — landslið Sovétrikjanna. Eftir aö Leduc tók við Liege lið- inu hefur það veriö á stöðugri uppleið og er nú aðeins fjórum stigum á eftir FC Brugge, sem er ifyrsta sæti. A laugardaginn sæk- ir Liege Brugge heim og verður fróðlegt að sjá hvernig Asgeir og félögum hans vegnar gegn Brugge á útivelli. íþróttir KR missti endanlega af lestinni I 2. deild tslandsmótsins i gær- kvöld þegar þeir töpuðu óvænt fyrir tBK 25-26. Slök frammistaða KR I 2. deildinni kemur nokkuð á óvart eftir ágæta frammistöðu i Reykjavikurmótinu. — Þá léku þeir oft skinandi vel og töpuðu naumt i úrslitaleik gegn Vikingi. Þvi var búizt við að loksins færi að rofa til hjá KR i handboltanum eftir mörg ár i 2. deild. Einhver uppgjöf virðist hlaupin i liðið eftir . slæmt tap gegn ÍR á dögunum. Nú hafa KR-ingar tapað 6 stigum i 2. deildinni og geta sjálfsagt endan- lega afskrifað 1. deildina — i bili! ÍR heldur sinu striki — sigraði Fylki örugglega 26-12 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 13-3. Það hljóp kæruleysi i leik IR-inga STAÐAN Staðan i 2. deild er nú: tR ■ 7 7 0 0 190-105 14 KA 5 4 0 1 108-91 8 Leiknir 7 3 13 142-152 7 KR 6 3 0 3 141-126 6 tBK 6 2 0 4 111-132 4 Þór 5 10 4 108-114 2 Fylkir 4 10 3 56-79 2 UBK 4 0 13 56-98 1 i siðari hálfleik — ef til vill ekki nema von, erfitt að halda uppi „tempói” gegn sér lakara liöi. Staða 1R er nú nokkuð örugg — aðeins KA getur eitthvað ógnað þeim — en ÍR hefur þegar sigrað KA og það á Akureyri. Þriðji leikurinn, sem fram fór i gærkvöld, var milli Leiknis og Breiðabliks. Jafntefli varð 19-19 — þannig að Breiðablik hlaut sitt fyrsta stig i deildinni i ár. Var valinn rétt fyrir leik skoraði þrennu Johnny Case, ungur miðherji hjá Liverpool, var valinn i lið Liverpool rétt áður en UEFA- leikurinn við pólska liðið Slask Wroclaw á Anfield hófst i gær- kvöldi, þar sem irski landsliðs- maðurinn kunni, Steve Heigh- way, gat ekki leikið. Case þakk- aði heldur betur fyrir traustið og skoraði þrjú mörk fyrir Liverpool — á fimmtán minútna kafla. Liverpool, sem 12 ár i röð hefur tekið þátt i Evrópukeppni og sigraði i UEFA-keppninni 1973, vann auöveldan sigur á Siask 3-0 — þvi 5-1 samtals i báðum leikjunum. í Wroclaw vann Liverpool einnig — 2-1 fyrir hálfum mánuði. Kevin Keegan og John Tos- hack áttu mjög góðan leik á An- field i gærkvöldi — en Case sá um mörkin. Skoraði tvö nokkru fyrir leikhléið — hið þriðja i byrjun siðari hálfleiks, Case er aðeins 21 árs. Liverpool er þvi komið i átta liða úrslit UEFA-keppninnar á- samt Barcelona, Stal Mielec, Póllandi, Brugge, Levski Spart- ak, Dynamo Dresden, A-Þýzka- landi, AC Milanó og Hamburger SV, sem vonast til að halda bik- arnum, sem Borussia Mönchen- gladbach vann á siðasta leik- timabili, áfram i Þýzkalandi. Dynamo Dresden lék við Tor- pedo Moskvu i gær niður við Svartahaf og hafði þriggja marka forskot frá fyrri leiknum i Dresden (3-0). Litlu munaði að það 'dygði ekki. Torpedo sigr- aði 3-1 og fyrirliðinn Petrensko misnotaði vitaspyrnu strax á fjórðu mín. Hann skoraði siðar i leiknum — og Degtyraryov tvi- vegis, en Heidler skoraði fyrir Dynamo og það nægði austur- þýzka liðinu til að komast á- fram. Pólska liðið Stal Mielec sigr- aði Inter, Bratislava, Tékkó- slóvaklu, 2-0 i Póllandi og kom- ust þvi áfram á jafnri stigatölu en betri markatölu 2-1. POLITISK OLYKT I ÍÞRÓTTAHREYFINGUNNI p L Á sama tima og leikmenn meistara flokks Fram I knatt spyrnunni fá vcrðlaun fyrir drengilega keppni á leikvelli leikur formaður félagsins — borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins I Reykjavik — ákaf- lega ódrengilegan leik á Iþrótta. siðum Timans og Visis — leik, sem byggist á þvi að reyna að gera pólitiskan andstæðing tor tryggilegan. Á ársþingi Knattspyrnusam- bands Islands um siðustu helgi kom fram, að Ellert B. Schram hafði fengið 200 þúsund krónur fyrir störf i þágu KSÍ sl. sumar. Aðeins einn þingfulltrúi, Alfreð Þorsteinsson, formaður Fram, reyndi aögera sérmat úr þessu, greinilega i pólitiskum tilgangi. Þegar að formannskjöri kom fór Ellert, sem var einn i kjöri, fram á skriflega atkvæða- greiðslu vegna þessa máls, sem þóaðeinseinn þingfulltrúa hafði gert að einhverju atriði. Þing- heimur sýndi Ellert mikið traust —hannhlaut 118atkvæði, en sjö sátu hjá — og héldu þá flestir, að málið væri úr sög- unni. En ekki aldeilis. Formað- ur Fram undi ekki þessum málalokum. Starfsemi KSI er orðin geysi- mikil — hefur aldrei verið meiri en á siðasta leiktimabili. For- maöur KSt, Ellert B. Schram, tók að sér störf, sem voru langt utan hans verkahrings sem for- maður. Safnaði meðal annars auglýsingum, sem gáfu KSt um tvær milljónir i tekjur, og fékk greiðslu fyrir þessa auglýsinga- söfnun. Þó miklu minni i pró- sentutölu, en almennt gerist hjá þeim, sem safna auglýsingum. Það var ekki nóg með, að for- maður KSt eyddi nær öllum frf- stundum sinum i þágu KSl — heldur er undirrituðum per- sónulega kunnugt um, að Ellert fór með mest allan vinnutima sinn allt frá mai i vor fram i september i þágu KSt. Sleppti lögfræðistörfum til að geta ein- beitt sér aö málefnum KSI. 1 sumar lék tsland fleiri lands- leiki ennokkru sinni fyrr. Fimm erlend landslið léku hér i Reykjavik — og auk þess var hér háð Norðurlanda- þing. óhjákvæmilega þarf formaður KSt að hafa jnikla risnu i sambandi við slikt. Þar er mikill kostnaður — þó vinnu- tapi sé sleppt — og Ellert hefur lagt út miklu meiri fjárhæð i beinhörðum peningum vegna starfa i þágu KSt en þær 200 þúsundir, sem hann fékk greiddar hjá gjaldkera sam- bandsins. Ellert B. Schram er ungur maður og það getur enginn æti- ast.til þess, að hann verði fyrir miklum fjárútlátum fyrir það eittað sinna þeim störfum, sem hann hefur verið kjörinn til af fulltrúum knattspyrnufélaga ts- lands. Hann hefur reynzt dug- mikill formaður og starf KSl aldrei verið glæsilegra en ein- mitt nú. Ómetanlegur maður fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Ellert tók við af dugmiklum formanni, Albert Guðmunds- syni, — og fyrirrennari Alberts var einnig frábær maður, Björgvin Schram. Knattspyrnu- hreyfingin hefur verið ákaflega heppin með forustumenn sið- ustu áratugina. Það er gleðilegt að ungur maður hefur haldið merki þessara höfðingja hátt á loft — ris KSt hefur ekki minnk- að nema siður væri. Samt er reynt að gera hann tortryggi- legan fyrir það eitt, að hafa ekki yfir þeim fjármunum að ráða sem Björgvin og Albert — menn, sem höfðu efni á þvi fjár- hagslega að halda uppi risnu á vegum KSt. En hart væri það ef ungur maður gæti ekki tekið að sér formennsku i þessu öflug- asta sérsambandi iþróttahreyf- ingarinnar af þeim sökum — eða að ungir menn gætu ekki valizt til áhrifastarfa I iþrótta- Ellert B. Schram — hinn dug- mikli forniaður KSt. hreyfingunni nema að eiga milljónir í bankabókum. Hætt er þá við að iþróttahreyfingin yrði að sjá af mörgum góðum starfs- kröftum. Þó þingfulltrúár á ársþingi KSt sýndu Ellert mikið traust — undi formaður Fram ekki þeim málalokum. A þriðjudag geysist hann fram á ritvöllinn á iþrótta- siðuTImans. — Eyðir nær hálfri siðu I að reyna með litlum ár- angri að gera Ellert tortryggi- legan. Ekki nóg með það. t gær ryðst Alfreð Þorsteinsson fram á Iþróttasiðu Visis til að svara viðtali við Ellert — og Visir tek- ur borgarfulltrúa Framsóknar- flokksins opnum örmum svo hann geti haldið áfram iðju sinni gegn dugnaðar- og prýðis- piltinum Ellert B. Schram. Dagblaðið Timinn hefur greini- lega ekki nægt borgarfulltrúan- um að mati ritstjórnar Vfsis. Hræsnina vantar .. ekki. Al- freö segir i VIsi. —'„Þeirn, sem þetta ritar, er enn i fersku minni, er Albert Guðmundsson, þá formaður KSt gekk dúðaður i frostnepju milli manna á Há- skólavellinum fyrir fáeinum ár- um og seldi happdrættismiða. Vlst er það, að ekki varð hann rikur á þeirri miðasölu”. Nú er Albert góður. Undirrit- uðum er enn i fersku minni að fyrstu skref Alfreðs Þorsteins- sonar á hinni pólitisku braut byggðust á svivirðingum á Al- bert Guðmundsson. Þvi' meiri auri sem Albert var ataður á I- þróttaslðum Timans undir stjórn Alfreðs Þorsteinssonar þvf hrifnari urðu einhverjir hálfvitar I hinum furðulega flokki Alfreðs — og drifu pilt I framboð. Þá var (og er) Albert Guömundsson borgarfulltrúi Reykvikinga. — Nú er Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Reykvikinga. Ellert B. Schram er þingmaður Reykvikinga. Skyldi einhver vera farinn að ganga með þingmann i magan- um? Ætlar sér ekki að láta ilm- inn af réttunum nægja sem þingfréttaritari. Það er pólitisk ólykt i iþrótta- hreyfingunni — og það ekki i fyrsta skipti. Hallur Simonarson.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.