Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 6
6 Dagblaöiö. Þriöjudagur 16. desember 1975. Handhœg undankomuleið Af og til kemur upp eidur f olfuborpöilum á hafi úti. Þá gildir aö koma sér f burtu eins fljótt og auöiö er. Bandariskt fyrirtæki hefur sent á markaöinn þessa „rennibraut”, sem sjálfkrafa blæs upp á 20 sekúndum. Þrjátfu menn geta rennt sér niöur á einni minútu. Mynd- in var tekin viö æfingar i Mexikó-flóa. Lausn á vandamálum Norður-írlands: Samsteypustjórn með meirihluta mótmœlenda — segir nefnd Evrópuráðsins í Strasbourg 1 alþjóölegri skýrslu, sem tekiö hefur fjögur ár aö semja, ségir aö eina skynsamlega lausnin á vandamálum Noröur-lrlands sé sterk samsteypustjórn, þar sem mótmælendur hafi meirihluta yf- ir kaþólikka. Skýrslan er aöeins 33 siöur. Hún var unnin af undirnefnd Evrópu- ráösins og veröur lögö fyrir Evrópuþingiö, sem 18 þjóöir eiga aöild aö, i febrúar. I skýrslunni eru einnig birtar ellefu ályktanir, þar sem for- dæmd er hryöjuverkastarfsemi, hvatt er til fullrar samvinnu brezkra og irskra stjórnvalda og vandamál Noröur-trlands kallaö „evrópskt” vandamál. Talsmaöur nefndarinnar, hol- lenzki sósialistinn Piet Dankert, sagöi i skýrslunni: „Þaö er aöeins meö sterkri samsteypustjórn, sem nýtur fulls stuönings fbú- anna, aö hægt veröur aö takast á viö — og siöan leysa — þau gifur- legu efnahagslegu og félagslegu vandamái, sem blasa viö i Norð- ur-lrlandi. Þaö er sorglegt aö horfa upp á mannlega krafta og efni sóaö á sama tima og þörfin fyrir þá er svo mikil.” Hann hvatti stjórnir Bretlands .og Irlands til samstarfs um lausn vandans og aö taka jafna og haröa afstööu gegn hryöjuverka- starfsemi. t skýrslunni segir aö útilokaö viröist aö kalla brezku hersveitirnar heim frá N-lrlandi á meöan ekki er hægt aö halda þar uppi lögum og reglu sam- kvæmt venjulegum aöferöum. Andúö brezku þjóöarinnar á írum er einnig alvarlegur þáttur i þessu vandamáli, segir í skýrsl- unni. „Evrópa getur ekki setiö hljóö og horft á ibúa eins svæö- is álfunnar hafa enn ekki fundið leiö til aö lifa f sátt og samlyndi,” sagöi Dankert. írar vilia 50 mílur Hagsmunahópar i Irskum fisk- iönaöi hafa krafizt þess aö fisk- veiöilögsaga trlands veröi færö út i 50 sjómilur, aö sögn brezka blaðsins Times. Krafan var sett fram i skýrslu til stjórnarinnar i Dublin. Samstarfsnefnd irska sjó- mannasambandsins, sambands irska fiskiðnaöarins og fisksala- félagsins var sett á laggirnar fyrr á þessu ári eftir deilu, sem leiddi til þess aö sjómenn lokuöu nokkr- um irskum höfnum. 1 skýrslunni segir, að veröi landhelgismörkin færö úr 12 mil- um i 50 muni irski fiskveiðiflotinn einn ekki geta veitt allan þann fisk, sem hægt veröi að veiöa. Er lagt til, að stjórnvöld selji fisk- veiðileyfi, sem geti gefiö drjúgan skilding I aöra hönd fyrir irskt efnahagslif. Samstarfsnefndin leggur einnig til, að landhelgisgæzla verð efld og sömuleiðis aukin stjórnun veiðanna. Týndur í eyði- mörk í nœrrí heila viku Vestur-þýzkúr stjórn- visindamaöur, dr. Klaus Frei- herr von der Ropp. fannst um helgina nær dauða en lífi i Na m ib-ey öini örk in ni i. SV-Afriku, þar sem hann týndist á skoðunarferö fyrir viku. Dr. von der Ropp var fluttur á sjúkrahús en er ekki i lifs- haRtu. Hann var örmagna af þreytu og þorsta. Það var þyrla flughers S-Af- riku sem fann Þjóðverjann, þar sem hann lá i eyðimörk- inni, um þaö bil 30 km frá At- lantshafsstriindinni, iklæddur stuttbuxum og stigvélum. Varir hans voru sundur- sprungnar og tungan bólgin af vatnsleysinu. liann reyndi að tala við bjargvætti sina en kom ekki upp skiljanlegu hljóði Þjóðverjinn var ásamt fjór- um öðrum mönnum og leið- sögumanni á skoðunarferð i eyðimörkinni þegar bill þeirra bilaði. Van der Ropp fór ásamt leiösögumanninum eftir hjálp, en þegar hann ætlaði að finna bilinn aftur týndist hann. Samferðamenn hans og leiðsiigumaðurinn fundust tveimur dögum siðar. Roger Vadim kvœntur í fjórða sinn • Franski kvikmyndaleik- stjórinn Roger Vadim er kvæntur I fjórða sinn. Um helgina gekk hann að eiga Catherinu Schneider, tæplega þritugan erfingja einnar stærstu stálverksmiöja heims. Valdim er sjálfur 48 ára. Hann og Chatherina hafa ver- ið í nánu sambandi undanfarin ár og eiga dóttur saman. Áður hefur Vadim verið kvæntur leikkonunum Brigitte Bardot, Annette Stroyberg og Jane Fonda. Um margra ára skeið var Vadim með frönsku leik- konunni Chatherine Deneuve og á með henni son. Vadim varð fyrst frægur þegar hann stjórnaði Brigitte Bardot i kvikmyndinni „Et Dieu Crea la Femme” — og Guð skapaði konuna — 1956. KÍNVERJA VÍSAÐ ÚR LANDI Sovézka fréttastofan Tass skýrði frá þvi i gærkvöld, að stjórn Mongóliu hcfði visað kin- verskum borgara úr landi fyrir að fremja það sem kallað var „glæp gagnvart alþýöulýöveldi Mongóliu”. Fréttastofan skýrði ekki nánar viö hvað var átt, en orðalagið þykir benda til þess, aö um ein- hvers konar njósnir hafi verið að ræða. Mongólskir embættismenn I Moskvu vildu ekkert segja um málið. t frétt Tass var vitnað i frétta- sendingu mojagólsku rikisfrétta- stofunnar Montsame. Sagði þar að maðurinn heíði verið starfs- maður ,,hins svokallaða kin- verska borgararáðs” i höfuð borginni Ulan Bator. Á laugardaginn sagði i fréttum i Sovétrikjunum, að Kina heföi i haldi þrjá sovézka borgara, sem hefðu villzt inn á kinvorskt land- svæði Talið er. að brottvikning Kinvcrjans frá Mongóliu nu sé hefndarráðstöfun. Mongólia. sem er i klemmu milli risaveldanna Kina og Sovct rikjanna, hefur ætið stutt stjórn- ina i Moskvu i deilunum við kin- ' crsku stjórnina. Byssurnar sitja barinn Enn er barizt I Beirút i Libanon og hafa feröamcnn, sem áöur fyrr voru ein helzta tekjulind borgarinnar, nú flúið hana. Skæruliöar sitja nú meö byssur sinar á barnum á St. George’s hótelinu. Leitað að trölli í Venezuela Fimm menn hafa haldið frá Caracas til vatnssósa frum- skóga sv-hluta Venezuela til að klifa þar 4500 feta hátt fjall, sem sagt er vera heimkynni mannætutrölls nokkurs. 1 eiðangurinn er kostaður af Frumbyggjanefnd Venczuela. t hópnum er brezki blaða- maðurinn David Nott, sem segir að samkvæmt gamalli þjóðsögu Indiána sé hellir i fjallinu og þar búi tröllið sem leiti niöurtil mannabyggða að næturlagi og ráðistó fóik til að hafa i soðið. Nína og Friðrik lögskilin Söngvarahjónin Nina og Friðrik fengu lögskilnað i London i gær eftir 15 ára hjónaband. Það var Nina sem sótti um skilnað og Friðrik samþykkti, enda hafa þau ekki búið saman undanfarin tvö ár. Þau giftust i Genf 1960 ogsungu sig til heimsfrægðar. Niu árum siðar hættu þau að syngja saman. Siðan hefur Nlna orðið fræg söngkona á eigin spýtur og einnig hefur hún leikiö I kvikmyndum. Nina fékk umráðaréttinn yf- ir þremur börnum þeirra en Friörik fær að umgangast þau ^hæfilega” mikið. Þau eru enn vinir, að sögn Ninu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.