Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 15
Dagblaðið. Þriðjudagur 16. desember 1975. 15 ÁGRIP AF SÖGU MEYVANTS Á EIÐI Meyvant á Eiði er löngu landskunnur maður fyrir dugnað og atorku. Hann á sér marga eðlis- þætti; getur verið allra manna mildastur en einnig snöggur upp á lagið og hvatskeyttur, eins og fram kemur í kaflanum HALDIÐ ÞÉR KJAFTI FRÚ SIGRÍÐUR. Þótt ungur sé í útliti og anda þá er hann samt svo gamall að hann man alda- mótakvöldið og hefur lifað tímana tvo. Saga hans er samofin þróunarsögu bíla á íslandi, enda var hann einn af þeim fyrstu sem fékk ökuskírteini. Hann kann frá mörgu að segja, allt frá þeim dögum er hann var kúskur og keyrði olíu í tré- tunnum á hestvögnum um bæinn og var kærður fyrir að aka slíkum vagni of hratt niður Suður- götuna, skylda var að flauta fyrir horn eftir að bílöldin hófst og sjálfsagt þótti að bílstjórinn „afmeyjaði" brennivínsflöskuna. Meyvant var einn af fyrstu vörubifreiðastjórum á íslandi og rak um skeið sína eigin vörubílastöð þar til forystumenn verkalýðsins knésettu þar einkaframtakið. Á bernskuárum bílanna ruddi hann nokkrar ökuleiðir, sem ekki höfðu verið farnaráður. Hann ók Magga Júl. lækni um borgina milli sjúklinganna þegar Spánskaveikin geisaði og stóð við gaflinn á Laugarnesspítalanum og horfði á þann sorglega atburð þegar kútter Ingvar fórst við Viðey. Meyvant hefur verið mikilvirkur félags- málamaður og lengi þótt einn af ötulustu „kos'n- ingasmölum íhaldsins", eins og hann sjálfur segir. í bók Meyvants eru fjölmargar gamlar Ijós- myndir úr Reykjavík af mönnum, mannvirkjum og farartækjum. • v • / rinn MEYVANT A EIÐI Jón Birgir Pétursson skráði Meyvant á Eiði á til marga eðlisþætti. Hann getur verið allra manna mildastur en einnig snöggur upp á lagið og hvatskeyttur. eins og fram kemur i kaflanum HALDID ÞÉR KJAFTI FRÚ SIGRÍÐUR ....OG MEYVANT SKEMMDI KELLINGIN" Frásögn Meyvants er lipur og skemmtileg, hér á eftir er gripið af handahófi ofan í frásögnina: „Um tíma rak Milljónafélagið sjálft kúabúskapinn í Viðey. Ráðsmaðurinn þar var danskur, Petersen að nafni. Eftir að hann hætti ráðsmennsku, setti hann upp lystivagna- og hestaleigu að Haga þar sem Coca-Cola er nú til húsa við Hofsvallagötu. Einhverju sinni fékk ég hesta og vagn hjá Petersen og fór með tvenn hjón, Pétur Guðmundsson vél- stjóra og Guðbjart starfsbróður hans, sem var á varðskipun- um, ásamt konum þeirra, til Þingvalla. Á heimleiðinni, skammt fyrir neðan Borgarhóla, áðum við hjá veitingatjaldi, sem danskur maður, Nielsen að nafni, rak. Nutum við þar veitinga og ókum síðan af stað. Eftir skamman spöl gerðist það að vagninn datt í sundur undir mér. Ég hélt þéttingsfast í taumana og varð það mér til bjargar. Afturhluti vagnsins féll til jarðar og önnur konan, sem sat í fremra sætinu rakst á luktarstæði og fékk af mikla van- líðan. Ég spennti hestana frá, tók af þeim aktygin og reið niður í Miðdal. Fékk ég þar lánaðan hnakk og reið svo áfram til Reykjavíkur. Þá var liðið að nóttu. Ég vakti Pedersen °g sagði honum mínar farir ekki sléttar. Sagði hann mér að fara vestur í Haga, sækja þangað hesta og annan vagn, sem ég gerði. Sótti ég síðan fólkið og gekk sú ferð vel. Morguninn eftir kemur Pedersen vestur í Haga og hittir þar ráðsmann sinn og segir við hann: „Hellvedes klúdor, — vognen gaar í stykker — og Meyvant skemmdi kellingin". GÓD BÓK ER GULLIBETRI Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.