Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 9
Dagblaöið. Þriöjudagur 16. desember 1975.
9
Nemendur Menntaskólans á ísafirði kveða upp salómonsdóm:
BÓKIN ADDA TRÚLOFAST
ER MANNSKEMMANDI
Nokkrir nemendur i sam-
timabókmenntum við Mennta-
skólann á Isafirði hafa komizt
að þeirri niðurstöðu að barna-
og unglingabókin Adda trúlofast
eftir Jennu og Hreiðar Stefáns-
son teljist óæskileg lesning
börnum. Þeir hafa sent höfund-
unum áskorun þess efnis að
bókinni verði kippt hið bráðasta
af bókamarkaðnum.
I fjögurra siðna greinargerð,
sem fylgir áskoruninni til Jennu
og Hreiðars, gera nemendurnir
grein fyrir niðurstöðum sinum.
Þeir draga sérstaklega út um-
hverfi sögunnar, persónusköp-
un, orðfæri og stil og siðast upp-
eldisgildi bókarinnar. Skoðanir
sinar rökstyðja nemendurnir
með tilvitnunum i ritgerðir sin-
ar. Þar er i stuttu máli komizt
að þvi að bókin sé gjörsamlega
kolómöguleg. Umhverfi sög-
unnar sé þokukennt, slétt og
failegt og þar þrifist engir
svartir sauðir. Persónusköpun-
in er talin meingölluö og liflaus.
Samband aöalpersónanna er
slétt og hrukkulaust og þær birt-
ast eins og sálarlaus hylki eða
útstillingarbrúður, hafin yfir
umhverfið. Einn nemandi tekur
meira að segja svo djúpt i árinni
að hann óskar þess að hann
hefði aðeins einnaf kostum aðal-
persónanna og þá yrði hann
ánægður.
Um orðfæri og stil segir að
bókin byggist upp á einföldustu
formúlu skáldsögu, það er inn-
gangi, miðkafla og endi. Þá er
kvartað yfir þvi að aldrei sé
minnzt á ást i bókinni enda þótt
þarna sé um ástarsögu að ræða.
1 kaflanum um uppeldisgildi
bókarinnar segir eftirfarandi:
„Bókin Adda trúlofast er i stuttu
máli glansmynd af lifinu og lik-
lega skrifuð i þeim tilgangi að
búa til allsherjarformúlu fyrir
ungar stúlkur til að lifa eftir.
Þessa bók má kalla kennslu-
bók i fyrirmyndar hjónabands-
aðdraganda. Hér er verið að
sýna og kenna ungum stúlkum
hvernig þær eiga að haga sér i
vali maka og hvernig þær eigi
að undirbúa sig sem bezt undir
komandi hjónaband.”
Enn fremur finnst nemendun-
um það mikill ábyrgðarhluti að
gefa út barna- og unglingabæk-
ur og ætti að ritskoða þær ræki-
lega áður en þær eru gefnar út. 1
greinargerðinni er klykktút með
eftirfarandi: „Skemmd mat-
væli eru fjarlægð af markaðin-
um. Er þvi ekki rökrétt að þessi
bók fari sömu leið, þvi að hún er
mannskemmandi?” —AT.
Einn karlmaður
ó móti 41 blómarós!
Einn ungur maður lauk fyrir
nokkru námi hjúkrunarfræðings
frá Hjúkrunarskóla íslands, en aö
auki 41 blómarós. Myndin er af
þessu unga fólki, sem verður vel
metinn starfskraftur á sjúkra-
húsum landsins. A myndinni eru:
1. röð frá vinstri: Erla Ragna
Agústsdóttir, Arndis Jónsdóttir,
Rannveig Gunnarsdóttir, Sess-
elja Karitas Karlsdóttir,
Matthildur Róbertsdóttir, Magna
Friður Birnir, Sigurður H. Jóns-
son, Birna Kr. Svavarsdóttir,
Birna Steingrlmsdóttir, Sigriður
Búadóttir, Elisabet ólafsdóttir,
Sigriður K. Jóhannsdóttir, Marta
Sigurgeirsdóttir, Droplaug
Stefánsdóttir.
2. röð frá vinstri: Freyja Stefáns-
dóttir Thoroddsen, Guðrún Jóns-
dóttir, Elin Margrét Hallgrims-
dóttir, Svava Pálsdóttir, Guðlaug
Pálsdóttir, Ólafia Sigurðardóttir,
Arndis Ragna Þorgrímsdóttir,
Sigriður Guðmundsdóttir, Björk
Guömundsdóttir, skólastjóri fr.
Þorbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg
Halldóra Eliasdóttir, Anna Ólafs-
dóttir, Björg östrup Hauksdóttir,
Jóhanna Sigtryggsdóttir, Auður
Ragnarsdóttir, Erla Dagmar
Lárusdóttir, Svava Halldórsdótt-
ir.
3. röð frá vinstri: Sigrún Ólafs-
dóttir, Hulda Guðlaug Sigurðar-
dóttir, Maria Aldis Kristinsdóttir,
Arnfriður Glsladóttir, Sigurveig
Alfreðsdóttir, Lilja Jónsdóttir,
Guðný Maria Hauksdóttir, Stein-
unn Guðbjörg Kristinsdóttir,
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Kristin
Axelsdóttir, ólöf Oddgeirsdóttir,
Margrét Jónasdóttir, Fjóla
Grimsdóttir, Sólveig Valtýsdótt-
ir, Kristin Bára Jörundsdóttir,
Guðbjörg ófeigsdóttir.
RANNSÓKNIN
BEINIST AÐ
LÁNVEITINGUNUM
EN EKKI
FJÁRHAGSSTÖÐU
LÁNTAKANDANS
Rannsókn sú, sem nú er hafin 1
Sakadómi Reykjavikur, beinist
ekki að fjárhagsstöðu flugfélags-
ins Air Viking almennt. Að kröfu
rikissaksóknara, Þóröar Björns-
sonar, beinist rannsóknin að þvi
annars vegar hvort bankastjórar
Alþýðubankans hafi gerzt sekir
um lánveitingar á þann hátt að
saknæmt geti talizt. Hins vegar
beinist rannsóknin að þvi hvort
forráðamenn fyrirtækjanna Air
Viking og Sunnu hafi hagað lán-
Geir R. Andersen
Það skal tekið fram, að
grein Geirs R. Andersen I
Dagblaðinu sl. laugardag,
„Rétta leiðin er til okkar”, á
ekkert skylt við starf hans
hjá fyrirtækinu, sem hann
vinnur viö. Starfsheiti og
vinnustaður höfundar var
sett undir greinina á vegum
Dagblaðsins.
tökum og stofnun skulda á ólög-
legan hátt.
Sverrir Einarsson sakadómari
hefur verið skipaður rannsóknar-
dómari i þessu máli.
Að þvi leyti sem ofan greinir
hefur rikissaksóknari orðið við
beiðni bankaráðs Alþýðubank-
ans, sem samþykkt var á fundi
þess hinn 7. des. sl. Samkvæmt
frétt frá bankaráðinu samþykkti
fundurinn aö óska eftir opinberri
rannsókn á viðskiptum eins
stærsta viðskiptaaðila bankans.
Er þar átt viö Air Viking og við-
skipti tengd þvi fyrirtæki.
Einnig var óskað dómsrann-
sóknar á fjárhagsstöðu þessa við-
skiptaaðila, en ekki þykja efni
standa til dómsrannsóknar á
þessu atriði, þar sem að öðru
jöfnu er ekki refsivert að skulda.
Varð rikissaksóknari þvi ekki við
ósk um að krefjast rannsóknar á
þessu atriði.
SKIPSTJÓRAR - ÚTGERÐARMENN
Getum boðið, vegna hagkvæmra samninga,
TAIYO TD-A 258 miðunarstöð ,
á aðeins kr. 144.200. /V^X
■ Mjög næmt tækif sem gefur fljótar og glöggar
staðarákvarðanir
■ Ekkert sér sense-loftnet
■ Fyrir 12f 24 og 32 volta jafnspennu
■ Auðveld í uppsetningu og notkun
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar
FRIÐRIK A. JÓNSSON
Bræðraborgarstíg 1 -Símar 14135 og 14340