Dagblaðið - 16.12.1975, Síða 13
Dagblaðið. Þriðjudagur lfi. desember 1975.
r i tujuuagui
Gunnarí
8. sœti
Þó Göppingen hafi gengið illa i suðurdeild
Bundesligunnar þýzku er Gunnar Einarsson
þó meðal markhæstu leikmanna i Þýzka-
landi. Hann hefur skorað 33 mörk i 6 leikjum
— eða að meðaltali fimm og hálft mark i leik.
Júgóslavinn Lavrnic er markahæstur með 41
mark i 7 leikjum. Meðaltal tæplega sex mörk
i leik. Hins vegar er meðaltal landa hans
Krstic bezt — sex mörk i leik. Hann hefur
skorað 3fi mörk i fi leikjum. Þessir leikmenn
eru markahæstir (fyrir aftan skástrikið
mörk skoruð úr vitaköstum og þess má geta,
að ólafur H. Jónsson hefur skorað tæplega 30
mörk — ekkcrt viti)
D. Lavrnic (TuS Derschlag)
W. Salzer (TV Neuhausen)
H.-G. Schmidt (VfL Gummersbach)
W. Don (TV Huttenberg)
M. Krstic (SG Dietzenbach)
H. Oberscheidt (Phönix Essen)
U. Böbei (TSV Milbertshofen)
G. Einarsson (FA Göppingen)
M. Míiller (TSV Rintheim)
U. Ufer (TuS Derschlag)
S. Schobel (TuS Hofweier)
H. Spengler (TV Hiittenberg)
P. Kleibrink (Phönix Essen)
Hlé er nú á leikjum i Bundesligunni.
Næstu leikir i norðurdeildinni veröa 28. des-
ember og þá veröur aðeins einn leikur.
Staðan þar er nú
7 41/16
7 39/9
7 39/12
8 38/22
6 36/9
7 36/7
7 35/15
6 33/14
6 33/15
7 33/3
7 33/16
8 32/2
7 31
VfL Gummersbach 7
Phönix Essen 7
Grun-W. Dankersen 8
THW Kiel 8
TuS Wellinghofen 7
TuS Derschlag 7
Hamburger SV 7
VfL Bad Schwartau 7
TSV Altenholz 7
OSC Rheinhausen 7
0 147:101 14:0
2 129:120 9:5
3 128:122 9:7
3 124:116 9:7
3 99:91 8:6
3 114:113 6:8
4 90:105 6:8
4 102:116 5:9
5 101:128 4:10
6 105:125 2:12
í suðurdeildinni leikur Göppingen 21.
desember við Milbertshofen á útivelli. Stað-
TSV Rintheim 7
TSV Milbertshofen 7
TuSHofweier 7
TV Huttenberg 8
SG Dietzenbach 6
TV GroBwallstadt 7
Reinickend. Fúchse 6
SG Leutershausen 7
Frisch Auf Göpp. 6
TV Neuhausen 7
0 1 130:104 12:2
1 1 113:101 11:3
0 3 118:118 8:6
0 4 1 34:138 8:8
0 3 100:96 6:6
0 4 104:98 6 Æ
1 3 95:102 5:7
1 4 111:114 5:9
0 4 94:112 4:8
1 5 114:130 3:11
Norðmenn
unnu Svía
Sviar og Norðmenn léku tvo landsleiki f
handknattleik i Sviþjóð um helgina. A sunnu-
daginn unnu Norðmenn i Helsingborg með 18-
17 — en á laugardag varö jafntefli 15-15.
Norðmenn höfðu yfir í hálfleik 7-6. Mörk
Norðmanna þá skoruðu Inge Hanscn 4,
Magnúsen 3, Hunsager 3, Tyrdal 2. Furuseth,
Grislinaas og Gerdc eitt hver. Ingemar
Andersson skoraði 5 mörk fyrir Svfa — en
Björn Andersson aðeins tvö.
Í5M
Si ■£&&
Það verður barizt undir körfunni i kvöld — eins og á þessari mynd frá
leik Armanns og UMFN um sfðustu helgi. Ljósmynd Bjarnleifur.
Rogers gegn
Curtiss í
sinn
— þegar Ármann og KR leika í 1. deild
í Laugardalshöll í dag
Einar Hunsager brýzt framhjá sænskum
varnarmanni i landsleiknum á sunnudag.
Blökkumennirnir Curtiss
Carter og Jimmy Rogers mætast
i fyrsta skipti i leik hér á landi i
kvöld. Þá leika Armann og KR i 1.
dcild islandsmótsins i Ilöllinni.
Ekki er að efa að um spcnnandi
leik veröur að ræða og vafalaust
munu körfuknattlciksáhangendur
fjölmenna i Höllina.
Ármann og KR eru einu tap-
lausu félögin f 1. deild. „Trukkur-
inn” hefur veriðaðalmaður KR —
borið höfuð og herðar yfir leik-
menn KR, sem oft hafa virkað
nánast statistar.
Ármannsliðið er hins vegar
jafnara lið — Rogers hefur verið
atkvæðamestur en Jón Sigurðs-
son og félagar hans gefa honum
litið eftir.
Þannig er ekki að efa að hart
verður barizt og ekkert gefið eftir
i kvöld. Leikurinn hefst kl. 20.
—h halls
Svíinn ungi var beztur
í báðum umferðunum
Ingemar Stenmark sigraði í svigi heimsbikarins í Vipiteno á Ítalíu
í gœr og hefur nú forustu í stigakeppninni
Hinn frábæri skiðamaður Svia,
Ingemar Stenmark, sem aðeins
er 19 ára, gerði sér litið fyrir og
sigraði f báðum umferöum f svig-
keppni heimsbikarsins i Vipiteno
á ttaliu i gær. Var i sérflokki —
aðeins þó stigi á undan Piero
Gros, Italfu.
Stenmark var i öðru sæti á eftir
Gustavo Thoeni i heimsbikarnum
á siðasta keppnistimabili. Hann
fékk timann 111.65 sek. saman-
lagt i gær — 0,60 sekúndum á und-
an öðrum manni — Hans
Hinterseer, Austurriki.
En Stenmark átti við vandamál
að striða i keppninni. 1 siðari um-
ferðinni virtist hann fara utan við
stöng — og þjálfari Austurrikis-
manna, sá frægi kappi Toni
Sailer, lagði fram kæru að Sten-
mark hefði misst hlið. En
dómarar mótsins úrskurðuðu, að
hann hefði farið i gegnum öll 74
hlið keppninnar. Tfmi hans i
siðari umferðinni var 54.22 sek. —
en 57.43 i þeirri fyrri.
Hans Hinterseer var i öðru sæti
i báðum umferðum. Fór þá fyrri á
57,96 sek. og siöari á 54.29 sek.
þrátt fyrir slæm mistök f byrjun.
Timi hans samtals var 112.25 sek.
1 þriðja sæti var Piero Gros á
112.99 sek. en hann var i fjóröa
sæti eftir fyrri umferðina.
Meistarinn mikli, Gustavo
Thoeni, var aðeins skuggi af
sjálfum sér i keppninni. Hann
náði aðeins 114.90 sek. og varð i
niunda sæti.
Mest á óvart i gær kom Norö-
maðurinn Odd Sörli, nýliði i
heimsbikarnum. Hann náði ti-
unda sæti I fyrri umferðinni þó
hann hefði rásnúmer 52 — og náöi
þriöja bezta timanum i siðari um-
ferðinni. Sörli er mikill vinur
Stenmarks og varð fimmti
íþróttir
Nei—Marsh
Enska knattspyrnusambandið
sagði stopp á að Rodney Marsh —
fyrrum fyrirliði Manchester City
yrði seldur tii Bandarfkjanna og
lánaður til Crystal Palacc.
Með þessu vill knattspyrnu-
sambandið ekki gefa fordæmi
fyrir þvi að bandarisk félög kaupi
leikmenn i Englandi en láni svo
ensku liðum leikmennina ámcðan
ekki er leikið i USA.
samanlagt á 114.17 sek. ítalinn
Bruno Neckler — einnig nýliði i
heimsbikarnum — kom lika mjög
á óvart. Varð fjórði í fyrri um-
ferðinni — rásnúmer 32 — og
sjötti samanlagt. Fjórði varð
Fausto Radivi, ttaliu, á 113,68
sek.
Svisslendingarnir, sem náðu
svo góðum árangri í stórsviginu i
Madonna di Campiglio, hurfu al-
veg i gær. Flestir féllu og sá bezti
varð i 15. sæti.
Ég keyrði á fullu f báðum um-
ferðum vegna þess, aö ég var
óánægður meö árangur minn i
stórsviginu i Madonna, sagði
Stenmark eftir keppnina í gær.
Hann var aðeins i tiunda sæti i
stórsviginu — og það merkilega i
gær, að þetta er í fyrsta skipti,
sem hann nær beztum tíma i báð-
um umferöum svigkeppni. Piero
Gros sagðist vera ánægöur með
árangur sinn — en ég heföi getað
staðiö mig betur, sagði hann. —
Erenn ekki kominn i toppþjálfun.
Staðan i stigakeppninni eftir
svigiö i gær.
1. * I. Stenmark, Sviþjóð, 46
2. P. Gros, Italiu, 45
3. G. Thoeni, Italfu, 31
4. E.Goos, Sviss, 28
5. Ph. Roux, Sviss, 26
6. Ken Read, Kanada, Franz
Klammer, Austurriki og Par-
gaetzi, Sviss 25
9. Hinterseer, Austurríki,
og Irwin, Kanada 22
covn
íil/^1/!-
Kapparnir snjöllu eftir stórsvigskeppnina f Val d’Isere I heimsbikarn-
um. Frá vinstri Ingemar Stenmark, Gustavo Thoeni, sem sigraði þar,
og Piero Gros.
Förum í Olympíuleikinn með
því hugarfari að ná sigri
— segir Viðar Símonarson, landsliðsþjálfari, um leikinn við Júgóslava á fimmtudag
,,Ég er afskaplega ánægður
með þessa ferð okkar til Dan-
merkur. Danir vildu allt fyrir
okkur gera — og allt skipulag af
þeirra hálfu var eins og bezt
verður á kosiö,” sagði Viðar
Sfmonarson, landsliðsþjálfari i
handknattleik. Eins og kunnugt
er hafa handknattleiksmenn
dvalið f Danmörku við keppni og
æfingar til undirbúnings fyrir
landsleikinn við Júgóslava, sem
fer fram á fimmtudaginn. Liðið
kom heim i gær.
— Alagið á strákana var geysi-
mikið — við lékum 6 leiki á 7 dög-
um og æfðum alltaf tvisvar á dag.
Þetta var ef til vill of mikið — en
taktik þarf að æfa aftur og aftur
ef árangur á að nást.
Þrátt fyrir að okkur tækist ekki
að vinna danska landsliðið er ég
ekkert súr. Við vorum þarna fyrst
og fremst til æfinga.
Ég man ekki eftir eins sam-
heldnum landsliðshóp og þeim
sem nú er, og hef ég þó lengi verið
viðloða við landslið.
Við æfðum taktik bæði i vörn og
sókn og þó að strákarnir hafi spil-
að saman hér uppi á tslandi með
landsliði — þá er það nú samt svo
að þeir voru eins og ókunnugir.
En þó við höfum fengið eina
viku úti i Danmörku er ekki þar
með sagt að við vinnum Júgó-
slavana. Ég er ekki að segja að
við gerum það ekki — aðeins það
að á siðasta ári komu júgóslavn-
esku landsliðsmennirnir saman
til æfinga og keppni i 265 daga.
Samanborið við það er ein vika
aðeins hégómi.
Þrátt fyrir þetta tel ég að við
höfum hiklaust möguleika á sigri
— að minnsta kosti að standa i
þeim. 1 viðtali sem haft var við
Milkovich — þjálfara Júgóslav-
anna sagði hann að júgóslavn-
eska landsliðið ætlaði að koma
upp til tslands og vinna stórt. Jú,
júgóslavneska landsliöið er eitt
hið sterkasta i heiminum þrátt
fyrir allt.
Ég tel að HSt hafi gert góða
hluti með þvi að senda landsliðið
út til æfinga og keppni. Þessi
undirbúningur er meiri en áður
hefur þekkzt og ef okkur tekst að
sigra Júgóslavana þá vil ég
þakka það þessari ferð. Hitt er
svo annað mál að gagnrýni hefur
komiðfram um að ekki skuli hafa
verið æft hér uppi á íslandi.
Já, það er sorglegt að segja frá
þvi en möguleikar til þess að æfa
hér eru afskaplega takmarkaðir.
Það er svo margt sem spilar inn i.
Til að mynda hef ég verið i megn-
ustu vandræöum með að fá inni
tima fyrir landsleikinn á fimmtu-
daginn i Höllinni — og ég er ekki
einu sinni viss um að það takist.
Þrátt fyrir það bað ég um tima
löngu áður en við fórum út. Annað
inni i þessu dæmi er að drengirnir
þurfa að stunda sina vinnu —
þrátt fyrir að ég vildi helzt að
strákarnir ynnu ekki neitt fram
að leik þá er þvi til að svara að
þeir eru i vinnu og hafa fyrir
heimili að sjá. Þannig er það i
framkvæmd mun erfiðara að æfa
hér heima en úti — þegar maöur
getur tekið strákana og það er
ekkert hugsað um annað en hand-
bolta og aftur handbolta.
Mér finnst þaö til háborinnar
skammar að ekki skuli vera hægt
að fá inni — án þess að standa i
stappi — fyrir landslið sem er að
undirbúa sig undir Olympiuleika
og það að spila við sjálfa Olym-
piumeistarana.
Það væri hægt að smjúga inn á
milli, segjum þrjú og f jögur i ein-
hverju húsinu en dæmið er ekki
svona einfalt — strákarnir eru
núna byrjaðir að stunda sina
vinnu — þannig verður timinn
alltaf ódrýgri.
En þrátt fyrir allt þetta erum
við ekkert bangnir og göngum til
leiksins með þvi hugarfari að
sigra, þaðgeturðu reitt þig á.
—h.halls
Topplið
í USA
Bandarikin halda á næsta
ári upp á 200 ára afmæli
sjálfstæðis sins. Mikið verð-
ur um dýrðir eins og gefur að
skilja — þó mun
knattspyrnumót sennilega
vekja hvað mesta at-
hygli. England, ítalia og
Brasilia — fyrrverandi
heimsmeistarar — munu
senda landslið sin til
Ameriku til keppni.
Mótið fer fram i lok mai og
fara leikirnir fram i New
York, VVashington og
Philadelphiu. Ásamt lands-
liðum þessara þriggja stór-
velda á knattspyrnusviðinu
mun úrvalsliö úr bandarisku
knattspyrnunni taka þátt i
mótinu. Þar verða ekki
minni karlar en Pela, Euse-
bio og Jimme Johnstone.
„Þetta verður mesti
knattspyrnuviðburður i sögu
Bandarikjanna og augu
heimsins munu beinast að
mótinu,” sagði Gene Ed-
wards, forseti bandariska
knattspyrnusambandsins.
h halls
Magnús óskarsson
Eftirminnilegt ár
i
sogu
- Magnús Óskarsson, hœstaréttarlögmaður, kjörinn formaður félagsins
Þróttar
Aðalfundur Knattspyrnufélags-
ins Þróttar I Reykjavik var hald-
inn 10. des. sl. Guðjón Oddsson,
sem verið hefur formaður félags-
ins um fimm ára skeið baðst und-
an endurkosningu og var Magnús
Óskarsson, hæstaréttarlög-
maður, kjörinn formaður i hans
stað. Aðrir i stjórn félagsins eru
Jón M. Björgvinsson, Stefán
Jónsson, Friðrik Kristjánsson og
Jón Baldvinsson.
1 aðalstjórn eiga einnig sæti
Helgi Þorvaldsson, form. knatt-
spyrnudeildar, óli K. Sigurðsson,
form. handknáttleiksdeildar og
Gunnar Arnason, form. blak-
deildar. Varamenn i stjórn eru
Guðjón Oddsson og Eysteinn
Guðmundsson
Eftirminnilegt ár.
Árið 1975 er eftirminnilegt ár i
Farþegarnir sitja sem lamaðir ^Flugvélin verður að breyta um stefnu..*)
Maðurinn er /Hann er með sprengju og'
brjálaðiir. Við'„\^ byss" F.noa áhættn
verðum að gera',
sögu Þróttar. A árinu unnu bæði
meistaraflokkar karla i knatt-
spyrnu og handknattleik sér rétt
til keppni i 1. deild og eru nú allar
deildir félagsins karlaflokki i 1.
deild. Þá er miku gróska i yngri
flokkum félagsins ( g náðu yngstu
drengirnir þar lengst, en þeir
urðu Islandsmeistarar i knatt-
spyrnu i 5. flokki.
Starfssvæði Þróttar er nú
Langholts-, Voga- og Heima-
hverfi og nágrenni þess. Beinist
starfsemi félagsins einkum að
æskulýð þessara hverfa, þótt fé-
lagsmenn búi að sjálfsögðu viöar.
A svæði félagsins við Sæviðar-
sund hefur þegar verið gert mikið
átak i gerð leikvalla, en öll önnur
aðstaða er ófullnægjandi. Er nú
ákveðið að hefjast handa um hús-
byggingu á svæöinu og standa
vonir tii að framkvæmdir geti
hafizt sem fyrst á þessu ári.
Straufría sængurfataefnið er nú
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum \
og litum. ’1
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvik simi28200