Dagblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 3
Pagblaðið. Þriðjudagur 20. janúar 1976.
Fyrirspurn til Spurning
dómsmálaráðherra: Er Petur brot- dagsins ^i
„Herra dómsmálaráðherra:
I Dagblaðinu 13. janúar eru
þessi ummæli höfð eftir Pétri
Sigurðssyni forstjóra Land-
helgisgæzlunnar innan gæsa-
lappa: „Éghefnú heyrt margar
sögur, en ekki þessa, og-ég get
lfka glatt alla með þvi að Þór
verður i Reykjavikurhöfn þann
20. (janúar) og ég hef litla trúa á
þvi að skipið sökkvi hér i höfn-
inni”.
Það hefur komið skýrt fram i
dagblöðunum undanfarið að það
varði við lög að skýra frá ferð-
legur við lög?
um og dvalarstöðum varðskipa.
Verður samkvæmt þvi ekki
betur séð en hér hafi sjálfur for-
stjóri Landhelgisgæzlunnar
brotið þau lög sem hann er ráð-
inn til þess að framfylgja.
Sú var tiðin að islenzkir menn
voru ákærðir fyrir að veita
. brezkum togurum upplýsingar
um ferðir islenzku varðskip-
anna um loftskeytastöðvar með
dulmálslykli. Hér er ekki notazt
við dulmálslykil. Orðin eru
hrein og bein islenzka.
Hvað hyggst ráðherra gera i
þessu máli?
Álitur ráðherra að þetta for-
dæmi embættismanns sé liklegt
til að auka virðingu almennings
fyrir lögum og embættisskyldu
opinberra starfsmanna?
Virðingarfyllst,
Leó M. Jónsson
Stefán Bjarnason.”
Ætlarðu að gera skatt-
skýrsluna þina sjálf-
ur/sjálf?
Hagrœðing ef verð vörunnar
vœri með í auglýsingunum
„Einhvern tima i vetur, að
mig minnir, var kaupmönnum
gert að skyldu að verðmerkja
þær vörur er þeir stilltu út i
verzlunarglugga sina. Nú dettur
mér i hug hvort ekki væri tilval-
ið að kaupmenn gætu um verð
þeirrar vöru sem þeir auglýsa i
blöðunum.
Það yrði örugglega til hag-
ræðingar fyrir fjölda fólks og
sparaði jafnvel kaupmönnum
sjálfum fyrirhöfn. Verðmerk-
ingar i verzlunargluggum eru
alveg fyrirtak.Margir hafa tima
Heyrðu Guðmundur, er ekki rétt að fara að lita þetta inál „svolitið alvarlegum augum”?
til og ánægju af að skoða i
verzlunargluggana, oft á þeim
tima sem verzlanir eru ekki
opnar, eins og á kvöldin.”
—Húsmóðir.
Þá gœti
það verið
of séint!
Ása Atladóttir spyr:
„Hvers vegna i ósköpunum er
ekki framkvæmdum við Kröflu-
virkjun hættrétt á meðan mestu
hrinurnar ganga yfir? Vilja for-
ráðamenn kannski bæta nokkr-
um milljónum við bygginga-
kostnaðinn — áður en allt hryn-
ur i rúst?
Ég var að tala við vinafólk
mitt á Húsavik sem tjáði mér að
þeir, sem vinna við Kröflu, séu
svo uggandi um lif og limi að
þeirhafibila sina i gangi á hlað-
inu til þess að verða nógu fljótir
að komast i burtu ef eitthvað al-
varlegt dynur yfir.
Þá gæti það verið orðið of
seint, jafnvel þótt bilarnir séu
hafðir i gangi. Betra er að
byrgja brunninn áður en barnið
dettur ofan i hann!”
Raddir
lesenda
r r ÁSGEIR TÓMASSON ^ '' diatei, ÆL- ilB m ^
Gjaldeyrisskammtur ferðamanna:
MISSTI AF
STUNUNUM
„Khöfn, 5.1.1976.
Staðreyndir úr stórborginni:
Gjaldeyriskreppan fjötur um fót
islendingum erlendis.
Nú er svo komið, að farareyr-
ir landans er orðinn allódrjúgur,
enda þykir flestum hagstæðara
að fara með leiguflugi til Suður-
hafseyja.
Ungan íslending, sem dvalið
hefur á kristilegu hóteli i Kaup-
mannahöfn nýlega, langaði til
að komasti samband við eina af
þeim ungu stúlkum er stunda
elzta atvinnuveg bæjarins.
En þegar á hólminn var kom-
ið fóru tvær af stúlkunum fram
á 200 kr. danskar hvor, en ein
bauð upp á það sama fyrir 300
kr., en þá voru innifaldar stun-
ur. En þvi miður varð landi vor
af stununum þvi gjaldeyris-
skammtur ferðamanna er
skammgóður nú um stundir.
Með kveðjum frá lesanda i
Kaupmannahöfn.”
Vísur um
náttúruhamfarirnar
Lárus Salómonsson
hringdi og bað okkur að
birta þessar vísur sem
hann hefur ort:
Sköpin hræða:
Rifnar grjót og rymur jörð,
rauðum sium þeytir.
Skriður og springur skorpan
hörð,
skelfing öllu veitir.
Sköpin hræða, skriðnar jörð —
skelfing lifið fjötrar.
Allt frá Kröflu um Axarfjörð
öll jarðskorpan nötrar.
Einar Benediktsson, trésmiður:
— Já,ég hef ekkihaft efni á þvi að
láta gera hana fyrir mig vegna
þess að ég hef verið i skóla. Þetta
er nú ekki svo ýkja flókið; svo hef
ég notfært mér leiðbeiningarnar,
sem hafa birzt i dagblöðunum.
Albert Stefánsson, skipstjóri: —
Já, ég geri hana sjálfur ef ég er
heima. Ég hef notfært mér ýmsar
leiðbeiningar, t.d. i dagblöðum.
Ragnar Björnsson, framreiðslu-
maður: — Nei, ég treysti mér
ekki til þess. Ég geröi þetta sjálf-
ur hér áður fyrr og þá notfærði ég
mér ýmsar leiðbeiningar svo sem
i dagblöðunum. Núna gerir
endurskoðandi skýrsluna fyrir
mig.
Halla Einarsdóttir, nemi: — Nei.
hún er gerð fyrir mig. Annars er
þetta fvrsta árið sem ég fæ skatt-
skýrslu til að útfylla.
ólöf Magnúsdóttir.bankamær: —
Nei, ég er með svo ágætan endur-
skoðanda. sem gerir þetta fyrir
mig. Þeir eru lærðir til að sinna
svona löguðu og sjálfsagt að nota
þá.
Sigurður Guðmundsson, bifreiða-
stjóri: — Nei ég hef ekki gert það.
Það er endurskoðandi sem gerir
þetta allt fyrir mig.