Dagblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 6
6
Pagblaðiö. ÞriOjudagur 20. janúar 1976.
Spænsk yfirvöld hafa brugðizt mjög harkalega við öllum tiiraunum landsmanna tii að krefjast mann-
réttinda á opinberum fundum. Þessi mynd var tekin I Madrid á miövikudaginn i fyrri viku, þegar lög-
regla vopnuö kylfum kom I veg fyrir fund bankastarfsmanna á Gran Via at Alcala.
Spám:
Boða til
fjöldafundar
við skrífstofu
Aríasar
Hin ólöglega stjórnarand-
staða á Spáni undirbjó i morgun
aö halda mikla friðsamlega
mótmælagöngu, til að krefjast
frelsis stjórnmálalegra fanga
og innleiðingar stjórnmála-
frelsisins i landinu.
Heimildarmenn, sem þekkja
vel til i herbúöum bæöi
sóslalista og kommúnista —
tveggja stærstu stjórnarand-
stöðuhópanna — sögðu i morgun
að hóparnir heföu sameiginlega
hvatt til fjöldagöngu og fundar
utan við skrifstofur Carlos
Ariasar Navarros, forsætis-
ráðherra, siðar i dag.
I yfirlýsingu lögreglunnar um
málið sagði að fundurinn væri
ákveðin tilraun til að trufla
almenningsfriðinn og varaði við
þvi, að allar nauðsynlegar
ráðstafanir yrðu gerðar til að
koma i veg fyrir fundinn.
Juan Carlos konungur hefur
tekið mjög harkalega á öllum
andspyrnuaðgerðum og lifs-
marki stjórnarandstöðunnar.
LITAREFNIÐ
RED DYE ER
NÚ BANNAÐ
Rantt-iitarefni, sem mikið er
notað i snyrtivörur, hefur verið
tekið út af skrá yfir leyfilegar
söluvörur vegna þess að álitið er
að það geti valdið krabbameini.
Litarefnið, sem bandariska
rikisstjórnin hefur nú bannað
alla notkun á, nefnist RED DYE
númer tvö hefur verið notað til
þess að lita kornvörur og lyf.
Matvæla og lyf jaeftirlitið hef-
ur látið fara frá sér tilkynningu
þess efnis, aö „engar sannanir
liggi fyrir um algjört öryggi lit-
arefnisins og þvi hefur notkun
þess verið bönnuð”.
Matvælaeftirlitið sagði að vis-
indalegar kannanir, þar sem
rottum hefur verið gefið litar-
efnið inn i' stórum skömmtum
hefðu leitt i ljós mjög illkynjuð
æxli.
Bannið öðlast þegar gildi, en
nær þó ekki til þeirrar vöru, sem
búið er að framleiöa og er i sölu-
búöum. Deilurnar um litarefnið
hafa staðið i 16 ár, þar sem
framleiðendurnir hafa neitað af
viöurkenna réttmæti rannsókn-
anna og einnig bent á, að þetta
væri- ódýrasta litarefnið á
markaðnum i dag og gæti bann-
iö þvi haft töluverðar fjárhags-
legar afleiðingar fyrir almenn-
ing.
Kátir UNITA-menn
Þessi mynd er frá þorpinu Gago Coutinho i Angola. Það er Samuel
Chiwale, ofursti, einn helzti herforingi Þjóðarhreyfingarinnar fyrir
fullu sjálfstæði Angola (UNITA), sem fagnar ásamt mönnum sfnum
fyrir nokkrum dögum. Nú hallar undan fæti fyrir þeim.
FIMMBURAFÆÐING
- HEILSAST VEL
Fimmburar, sem fæddust i
Rotterdam i Hollandi um
helgina, eru viö góða heilsu og
móðirin sömuleiöis, aö sögn
talsmanns sjúkrahússins.
Hann sagði að framfarir
þeirra væru hægar.
Börnin fimm — þrlr drengir
og tvær stúlkur — veröa i súr-
efniskössum næstu fjórar vik-
urnar, eöa þar um bil.
Þetta eru fyrstu börn for-
eldranna, sem hafa verið gift i
tiu ár. Fimmburar hafa ekki
áður fæözt f Hollandi.
Brazilía:
Harðlínuhershöfðingi
rekinn vegna dauða
pófítísks fanga
Forseti Brasiliu, Erno Geisel,
hefur svipt einn hávaðasamasta
harölinuhershöfðingja landsins
stööu sinni eftir að upp komst um
dauða eins pólitisks fanga i her-
fangelsi.
Tilkynningin um brottvikningu
Ernardo Mello hershöfðingja,
sem var annar æðsti yfirmaður
hersins i Sao Paulo, var birt opin-
berlega, aðeins nokkrum minút-
um eftir að frétzthafði um dauða
járniðnaöarmanns, sem fundizt
hafði látinn i klefa sinum i her-
fangelsi þar i borg.
Fréttaskýrendur lita á atburði
þessa sem tilraun til þess að
koma nýju skipulagi á starfsemi
hersins, sem hefur verið ákaft
gagnrýndur af stjórnmálalegum
föngum og lögfræðingum þeirra
fyrir pyntingar og aðra slæma
meðferð á föngum.
Eftir að uppvist varð um dauða
blaðamannsins Vladimir Herzog i
herfangelsi fyrir nokkru, sem
herinn sagði að verið hefði sjálfs-
morð, lét Geisel forseti hafa eftir
sér i blöðum, að slikir atburðir
mættu ekki endurtaka sig.
Tilkynning kom svo i gær um að
járniðnaðarmaðurinn Manuel
Filho hefði fundizt látinn i klefa
sinum á laugardaginn var og
sagði ennfremur i tilkynningunni,
sem harmaði atburð þennan, að
rannsókn myndi fara fram eins
fljótt og auðið yrði.
Monteiro hershöfðingi, sem
tekur við af Mallo, er sagður vera
náinn samstarfsmaður Geisel
forseta og gera menn sér vonir
um, að tök herforingjastjórnar-
innar i Brasiliu kunni nú að linast.
Andreadis, tengdafaðir Christinu Onassis:
k yfir sér málsókn,
sem hann kallar
„persónuofsóknir''
Griski bankastjórinn og iðnjöf-
urinn Stratis Andreadis neitaði i
gær ásökunum um að þrir banka
hans hefðu brotið reglur um
gjaldeyrisviðskipti og banka-
starfsemi yfirleitt.
1 tólf siöna skýrslu, sem hann
sendi gjaldeyrisnefnd griska
seðlabankans — og sem var einn-
ig dreift til erlendra blaðamanna
i Aþenu — segir Andreadis að
sakirnar, sem hann er borinn, séu
mótaðar af persónulegum ágrein-
ingi hans við fólk, sem sé i lykil-
stöðum i efnahagslifi landsins.
Saksóknari griska rikisins
ákvað sl. miðvikudag að hefja
málsókn á hendur fólki, sem talið
er ábyrgt fyrir brot á bankalög-
gjöfinni. Um er að ræða þrjá
banka — Verzlunarbankann,
Ionian-alþýðubankann og Fjár-
festingabankann.
Griska stjórnin hefur skipað
eftirlitsmenn til að hafa stjórn
bankanna með höndum. Var það
gert f desember, þegar venju-
bundin skoðun Grikklandsbanka
vakti vissar grunsemdir um að
bankarnir hefðu brotið löggjöfina
á árunum 1972—73, að þvi er sagöi
i stjórnartilkynningu á þeim
tima.
Andreadis heldur þvi fram, að
þetta samafólk —sem hannnafn-
greinir ekki — hafi haldið lykil-
stöðum sinum undanfarin tuttugu
ár, og hafi oft áður fyrirskipað
svipaðarrannsóknirá viðskiptum
sinum.
Andreadis, sem dvelur erlend-
is, segir að hin venjubundna skoð-
un Grikklandsbanka hafi ekki
dregið fram nægar sannanir til að
réttlæta málsókn. Hann segist
ætla að snúa til Grikklands siðar i
þessum mánuði til aö svara
spurningum um málið.
Alexander Andreadis, einn
þriggja sona bankastjórans, er
kvæntur ChríktinuOnassis, dóttur
skipakóngsins.
Fœreysk
frfmerki
Fyrstu færeysku frimerkin
voru sýnd i Þórshöfn i gær.
Sala þeirra hefst fyrsta
april, þegar færeyska póst-
stjórnin fær fullt sjálfstæði frá
þeirri dönsku.
/